Morgunblaðið - 29.05.1993, Page 4
fjrtft
4
I IAM JUiDAClMAö'JAJ UiaA.lttMUiM10M
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1993
Tólf ára piltur úr Vestmannaeyjum mikið slasaður eftir slys við bjargsig í Hánni
Hrapaði 30 metra en ætlar
að ná sér fyrir þjóðhátíð
„ÉG MAN að ég var alltaf að bíða eftir að sumarið kæmi þegar ég
var ennþá í skólanum. Svo gerist þetta og sumarið er farið,“ sagði
Sævar Þór Hallgrímsson, 12 ára Vestmanneyingur, viku eftir að
hann féll 25-30 metra í Hánni í Vestmannaeyjum. Sævar Þór var
ásamt tveimur kunningjum sínum að síga eftir fílseggjum í bjarginu
þegar kaðall, sem þeir notuðu til sigsins, gaf sig með fyrrgreindum
afleiðingum. Hann liggur nú á barnadeild Landspítalans, tvílærbeins-
brotinn, handleggsbrotinn, rifbeinsbrotinn og marinn á baki en
hress í anda og segist ætla að ná sér fyrir þjóðhátíð.
Sigið
Sævar og félagar hans eignuðu
sér kaðal úr skútunni Nakka og
fengu lánað sigbelti hjá vini sínum.
Þremenningamir sigu nokkrum
sinnum niður bjargið þar sem það
var mjög hátt en svo komu þeir
að Hánni og fikraði Sævar sig
fyrstur niður. Hann var þó ekki
kominn langa leið þegar hann leit
upp og sá þá kvamast úr kaðlinum
og stuttu seinna tók við fijálst fall
niður bjargið í skriðu fyrir neðan.
Maður í nærliggjandi prent-
smiðju sá til Sævars og hringdi
eftir lækni og lögreglu. Hann tók
síðan á rás í átt til Sævars og sömu
sögu er að segjá af féiögum hans.
Skömmu seinna var Sævar fluttur
á sjúkrahúsið í Eyjum og var þar
ákveðið að fljúga með hann í
sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Fermingarveisla á sunnudegi
Pabbi og mamma Sævars voru
i óða önn að undirbúa fermingar-
veislu systur hans á sl. sunnudag
þegar þeim var sagt frá slysinu.
Skömmu seinna vom þau komin
upp í flugvél á leið til Reykjavíkur
og Helga Vattnes Sævardóttir,
mamma hans, minnist þess að hafa
séð Heijólf koma inn til Eyja með
fermingargestina þegar hún leit
niður úr vélinni. Allt útlit virtist
fyrir að ekkert yrði úr veislunni,
en foreldrar Sævars fóru aftur til
Eyja um hádegi á laugardag og
komu til baka á mánudag.
8 vikur á sjúkrahúsi
Sævar þarf líklega að dveljast á
sjúkrahúsi í Reykjavík í a.m.k. 8
vikur en þegar sá tími er liðinn
verður fóturinn settur í gifs og í
kjölfarið fær Sævar að fara heim
- til Eyja. Eftir það sem á undan, er
gengið segir hann fremur ólíklegt
að hann fari áftur í bjargið en ef
Morgunblaðið/Sverrir
Á batavegi
HALLGRÍMUR, Sævar Þór og Helga á barnadeild Landspítalans.
Foreldrarnir segjast hafa bannað Sævari að síga eftir eggjum en
erfitt sé að fylgjast með hverri hreyfingu stráka á hans aldri.
Þess má geta að Sævar var með gleraugun á sér í fallinu en fyr-
ir utan beyglu á umgjörðinni skemmdust þau ekki.
svo fari sé a.m.k. öruggt að hann
kanni vel útbúnað sinn.
Fyrir slysið átti bjargið hug
Sævars allan og hann hafði farið
á tvö námskeið í sprangi og sigi
til Súlla Johnsen á Saltabergi. Að-
eins einn þremenninganna hafði
sigið áður eftir eggjum.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 29. MAI
YFIRLIT: Yfir Norður-Grænlandi er víðáttumikil 1.037 mb hæð, en grunn
lægð austur við Noreg. Við suðurströnd landsins er grunnt lægðardrag
sem eyðist í kvöld.
8PÁ: Norðaustanátt, strekkingur um landið vestanvert. Él eða slydduél
víða um landið norðanvert og hiti 1-5 stig, en syðra verður víða bjartara
og 5-10 stiga hiti að deginum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG, MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG: Norðaustanátt,
nokkuð stíf á mánudag en síðan hægari. Él eða skúrir norðan- og austan-
lands en léttskýjað suðvestanlands. Hiti 5-11 stig yfir hádaginn sunnan-
lands en annars 0-4 stiga hiti.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
/ / /
r f
f f f
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
V
Skúrir Slydduél
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Það er yfirleitt ágæt færð á þjóðvegum landsins, nema að hálka er á
Möðrudalsöræfum, Fjarðarheiði og Hellisheiði eystri. Annars er fært
fyrir létta bíla um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar á Vestfjörðum, Lág-
heiði er opin jeppum á Norðurlandi, en ófært um öxnadalsheiði og
Hólssand á Norðausturlandi. Hálendisvegir eru lokaðir vegna snjóa og
aurbleytu. Viðgerðir ó klæðingum eru víöa hafnar og eru vegfarendur
beðnir um að virða hraðatakmarkanir sem settar eru vegna hættu á
grjótkasti.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kí. 12.00 ígær að ísl. tíma
hitl veður
Akureyri 3 skýjsö
Reykjavík 5 skýjað
Bergen 11 léttskýjað
Helsinki 12 skýjað
Kaupmartnahöfn 13 rignlng
Narssarssuaq 6 lágþokublettir
Nuuk vantar
Óslö 18 léttskýjað
Stokkhólmur 12 hálfskýjað
Þórshöfn 6 skúr
Algarve 19 léttskýjað
Amsterdam 12 rigning.
Barceiona 21 léttskýjeð
Berlín 18 skýjað
Chicago 19 alskýjað
Feneyjar 27 hálfskýjað
Frankfurt 19 skúr
Glasgow 13 skýjað
Hamborg 16 alskýjað
London 15 skýjað
Los Angeles ■14 léttskýjað
Lúxemborg 13 skúr
Madrtd 19 skýjað
Malaga 22 léttskýjað
Mallorca vantar
Montreal 11 alskýjað
New York 17 skýjað
Orlando 23 alskýjað
París 16 skýjað
Madelra 20 léttskýjað
Róm 24 skýjað
Vín 15 skúr
Washlngton 19 alskýjað
Winnipeg 2 léttskýjað
Heimild: Veðurstofa ístands
(Byggt é veðurspá kl. 16.15 í gœr)
f DAG kl. 12.00
Nafnvextir skulda-
bréfalána lækka
um 0,5 til 0,8%
LANDSBANKI, Búnaðarbanki og sparisjóðir tilkynntu í gær lækkun
útlánsvaxta sem tekur gildi 1. júní. Islandsbanki tilkynnti á fimmtudag
lækkun vaxta á óverðtryggðum skuldabréfum um 0,7%. Engar breyting-
ar verða á vöxtum vísitölubundinna útlána. Þá gerir engin lánastofnun
breytingar á vöxtum innlána og minnka því vaxtamun. Landsbankinn
lækkar kjörvexti á óverðtryggðum skuldabréfum um 0,55% eða úr
10,50% í 9,95% og sama lækkun verður á kjörvöxtum annarra útlána-
flokka. Búnaðarbankinn lækkar vexti á almennum skuldabréfalánum
um 0,5% en gerir ekki frekari vaxtabreytingar nú en að sögn Stefáns
Pálssonar bankastjóra verða vaxtamálin áfrain til skoðunar. Sparisjóð-
irnir lækka vexti á öllum útlánaflokkum en gera engar breytingar á
innlánahlið. Nafnvextir skuldabréfalána Iækka um 0,8%.
í Landsbankanum lækka vextir
viðskiptavíxla og almennra víxla um
0,5%. og lækka vextir á almennum
víxlum þannig úr 12,50% í 12% og
á viðskiptavíxlum úr 15% í 14,50%.
Vextir á yfirdráttarlánum lækka úr
15,50% í 15,25%.
Fyrsta skref
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, sagði að
þessar vaxtalækkanir hefðu verið
ákveðnar vegna spár um minnkandi
verðbólgu í kjölfar kjarasamninga
og sagði að þetta gæti hugsanlega
verið fyrsta skrefið með tilliti til þess.
Hjá sparisjóðunum lækka víxil-
vextir um 0,5% og einnig vextir á
yfirdráttarlánum sem fara úr 14,7%
í 14,2%. Kjörvextir skuldabréfa
lækka úr 10,5% í 9,7%.
Unnu að útgáfunni
ÞEIR SEM.unnu að útgáfu Hómilíubókarinnar. í fremri röð: Guðrún
Kvaran, Sigurbjöm Einarsson, Gunnlaugur Ingólfsson og Sigurður
Líndal. Aftari röð: Jón Reykdal, Sverrir Kristinsson, Knútur Signars-
son og Gunnar H. Ingimundarson.
Hómilíubókin komin út
eftir átta hundruð ár
ÍSLENSK Hómilíubók, Fornar stólræður, er komin út á vegum Hins
íslenska bókmenntafélags. Bókin er gefin út að tilstuðlan Sigurbjörns
Einarssonar biskups sem ritar inngang, en ásamt honum unnu að útgáf-
unni orðabókarritsljórarnir Guðrún Kvaran og Gunnlaugur Ingólfsson.
Tilhögun bókar var í höndum Jóns Reykdals listmálara og Sverris
Kristinssonar framkvæmdastjóra.
íslensk Hómilíubók kom fyrst út
í aðgengilegri útgáfu 800 árum frá
því hún var rituð. Bókin er meðal
dýrgripa íslenskra bókmennta, ekki
síst fyrir málfar og stíl. Hún hefur
verið talin æskileg kennslubók í ritl-
ist, jafn nauðsynleg rithöfundum og
fjallræðan prestum.
Sjá nánar um Hómilíubókina á
bls. B7 í Menning/Iistir.