Morgunblaðið - 29.05.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.05.1993, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAI 1993 Prédikunarstóll Hallgrí mskirkj u eftir Karl Sigurbjörnsson Við hátíðarmessu á hvítasunnu- dag kl. 11 verður vígður nýr prédik- unarstóll Hallgrímskirkju. Biskup íslands, herra Olafur Skúlason, víg- ir stólinn. Dr. Sigurbjöm Einarsson biskup prédikar. Forsaga þessa stóls er sú að þegar dr. Sigurbjöm Einarsson biskup varð sjötugur, 30. júní 1981, mæltist hann til þess að þeir sem vildu heiðra hann á þeim tímamótum létu Hallgrímskirkju njóta. Var ákveðið að gjafir yrðu ávaxtaðar í sérstökum sjóði sem gæti staðið straum af gerð prédik- unarstóls kirkjunnar. Stóllinn er því 29077 Opið í dag kl. 13-15 Karlagata - parhús Fallegt 130 fm parhús með 5 svefn- herb., stofu með fallegu parketi og nýju eldhúsi. Mikið endurn. eign. Áhv. 4 millj., þar að 3 millj. veðdeild. Verð 12,5 millj. Hraunbær - 4ra-5 herb. Falleg 120 fm íb. á 1. hæð. 3 rúmg. svefnherb. á sérgangi. Sérþvhús í íb., rúmg. stofa, eldhús með borðkróki. Áhv. 1,7 millj. veðdeild. Verð 8,2 millj. Baldursgata - einstaklingsíbúð Falleg einstaklíb. á jarðhæð í þríbhúsi með sérinng. og -hita. Ósamþykkt. Verð 3 millj. SKÓLAVÖRÐUSTfG 38A, VIÐAR FRIÐRIKSSON, LÖGG. FASTEIGNASALI, HEIMASÍMI 27072. kostaður af ótal gjöfum, smáum og stórum, fjölmargra hollvina Sigur- bjarnar biskups. Einnig hefur fé úr listskreytingarsjóði Hallgríms- kirkju verið varið til listbúnaðar stólsins. Prédikunarstóllinn er hannaður af Húsameistara ríkisins og vann Andrés Narfi Andrésson arkitekt hönnunarvinnu í umboði hans. Sög- in hf. í Reykjavík smíðaði stólinn. Stóllinn er úr eik í sama stíl og bekkir kirkjunnar. Á þrem hliðum stólsins eru glermyndir unnar af Leifi Breiðfjörð glerlistamanni þar sem innfelldar eru myndir af eigin- handarriti sr. Hallgríms Pétursson- ar af Passíusáimunum og auk þess táknmyndir Guðs föður, sonar og heilags anda. Bakhlið stólsins er einnig glermynd sem sýnir fanga- mark Krists, grísku stafina X P sem eru fyrstu stafirnir í nafninu Krist- ur. Sitt. til hvorrar handar eru staf- irnir alfa og ómega, fyrsti og síð- asti stafur gríska stafrófsins, sem minna á orð Jesú: „Ég er alfa og ómega, upphafið og endirinn.“ Yfir stólnum er „himinn", sem gegnir hlutverki hljómbotns, á hann er skorið versið: „Láttu Guðs hönd þig leiða hér...“ Undir „himninum“ er dúfa, táknmynd heilags anda. Lit- imir í glerinu eru hinn græni litur vonar, vaxtar og þroska í trú, og fjólublár litur iðrunar og aftur- hvarfs, litur föstunnar. Prédikunarstóll gegnir tvíþættu hlutverki. Annars vegar því hag- nýta hlutverki að vera staðurinn þar sem prédikunin er flutt, ræðu- stóllinn, verkfæri hins talaða orðs. Hins vegar hefur prédikunarstóllinn auðugt tákngildi. Hann táknar orð- ið sem boðað er, orð Guðs í lög- máli og fagnaðarerindi sem prédika skal öllum þjóðum. Orð Guðs sem er ekki letrað á stein heldur snertir hjörtu lifandi manna og hrærir tungur þeirra til vitnisburðar og lofgjörðar. Merkjateigur Mos. Góð 3ja herb. íbúð 70 fm ásamt 34 fm bílskúr. Parket. Sérinng. Áhv. veðd. 4,1 millj. Verð 7,3 millj. Fasteignamiðluniun Berg Sfmi625530. 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSS0N framkvæmdastjori KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggh.tur fasteignasau Nýjar eignir á söiuskrá meðal annarra: Endaíbúð - sérþvottahús - bflskúr Glaesil. 5 herb. íb. á 2. hæð v. Stelkshóla tæpir 120 fm. 3-4 svefn- herb. Skipti mögul. á 3ja herb. íb. í nágr. Gott verð. Lyftuhús - bflskúr - frábært útsýni Stór og góð 4ra herb. suðuríb. 110,1 fm í lyftuh. v. Álftahóla. Sólsval- ir. Ágæt sameign. Stór og góður bílsk. Mjög gott verð. Glæsileg sérhæð - öll eins og ný neðri hæð um 140 fm f þríbhúsi skammt frá Menntaskólanum í Hamra- hlíð. Allt sér. Forstherb. m. snyrtingu. Stórt geymslu- og föndurherb. í kj. Mjög góður bílsk. 28 fm. Ágæt sameign. Á vinsælum stað í Vesturborginni nýl. og góð 4ra herb. íb. á 3. hæð. Sólsvalir. Laus fljótl. Gott lán. Mikið útsýni. Nýendurbyggð - tilboð óskast Á úrvalsstað á Nesinu 4ra herb. neðri hæð í tvibhúsi. Góður bílsk. Úrvais einstaklingsíbúð á 6. hæð í lyftuh. v. Kleppsveg. Öll nýendurbyggð. Sólsvalir. Fráb. útsýni. Langtlán. Daglega leita til okkar fjársterkir kaupendur með margs konar óskir um fasteignaviðskipti. Sérstaklega óskast: Húseign m. tveimur 3ja-5 herb. íb. Eignir í miðborg- inni og nágr. og góðar íb. með bílskúrum. Margs konar skipti m.a. á einbhúsum og sérhæðum. • • •______________________________________ Opiðídagkl. 10-16. Teikningar á skrifstofunni. Almenna fasteignasalan sf. var stofnuð 12. júlf 1944. AIMENNA FASTEIGNASAIAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 Búnaður og gerð prédikunarstóls Hallgrímskirkju er vitnisburður um mátt orðsins. Hann prýða myndir af handritum sr. Hallgríms að sálm- unum sem eru áhrifamestu prédik- anir sem íslensk tunga þekkir, sál- munum sem aldrei voru aðeins orð á blöðum heldur gripu og hrærðu hjörtu kynslóðanna í landi hér. Táknmyndir heilagrar þrenningar, Guðs föður, sonar og heilags anda, Guðs sem skapar, Guðs sem frels- ar, Guðs sem huggar og leiðir, minna okkur á að orð prédikunar- innar er lifandi orð sem skapar og leysir og huggar. Prédikunarstóll Hallgrímskirkju er tjáning þeirrar bænar sem passíusálmaskáldið bið- ur: Gefðu að móður málið mitt, minn Jesú þess ég beiði, frá allri villu klárt og kvitt krossins orð þitt út breiði um landið hér, til heiðurs þér, helst mun það blessun valda, meðan þín náð lætur vort láð lýði og byggðum halda. Höfundur er sóknarprestur við Hallgrímskirkju. Umsjónarmaður Gísli Jónsson „Ég teldi því illa faríð ef í nýrri þýðingu biblíunnar yrði bylt þeim texta sem íslendingar hafa vanist nær alla þessa öld og að mörgu leyti varðveitir það besta úr biblíumálshefð okkar. Því fer þó jjarri að með þessu sé ég að halda því fram að ný þýðing biblíunnar sé óþörf. Ýmsu þarf ugglaust að breyta, sumpart til þess að koma merk- ingu bestu texta eins vel til skila og unnt er, og víða má líka færa málfar nær mæltu máli án þess að hátíðleiki stílsins og elli- fegurð málsins bíði tjón af. En bylting á orðfæri textans, sem hvort tveggja í senn gerði hann framandlegan biblíukæru fólki og fjarlægði hann til muna frá „kirkjuíslensku" aldamótaþýð- ingarinnar, held ég að yrði menningarslys. Þá gæti sprung- ið sá hornsteinn tungunnar í þúsund ár, sem íslenskt kirkju- mál hefur verið.“ (Stefán Karls- son, Mbl. 24/4 93.) ★ Hlymrekur handan kvað: Hleypti Jón í sig dáðum og dug, honum datt eitthvað sniðugt í hug, en hjá grasi af konum var greyinu honum sökum girndarskorts vísað á bug. ★ Emma er gamalt tökunafn úr þýsku, gæluheiti af t.d. Ermgard (Irmgard), eiginl. „Jörmungerður“ = hin mikla valkyrja. Við gætum hugsað okkur * * Erma > Emma. Þetta nafn er einnig stuttnefni af Emilía eða Emilína. Emma var mikið nafn með því fólki (Normönnum frá Nor- mandí) sem lagði undir sig Eng- land á 11. öld. Emma Ríkarðs- dóttir frá Normandí var um hríð drottning Aðalráðs ráðlausa (Ethelred the Unready), átti síð- ar Knút ríka Sveinsson. Ein Emma var á íslandi, göm- ul, í Árnessýslu 1703. Síðan týndist nafnið langa hríð, en kom upp aftur á seinni hluta 19. aldar. Nú eru konur með þessu nafni um hundrað á íslandi. Haraldur Guðnason í Eyjum slakar ekki á varðstöðu sinni um móðurmálið. Hann er löngum vandlátur og lætur þá til sín heyra, ef honum mislíkar. Mál hans nýtur sín best, ef ekki er flúrað inn í það neinum athuga- semdum, og munu menn skilja og taka til sín það sem honum þykir kátlegt eða miður fara. Hér kemur dtjúgur hluti af síð- asta bréfi hans og færir umsjón- armaður honum þakkir fyrir mörg góð bréf um dagana: „Heill og sæll Gísli. Nú er mikill siður fjölmiðla að hafa skipsnöfn með greini, Guðbjörgin o.s.frv. þykir víst alþýðlegt. Mér þótti þó skondið (tískuorð) þegar Margrétin kom til hafnar með afla (RÚV-frétt- ir). Fiskibátur í Eyjum heitir Kap, áður var hér báturinn Kapí- tóla. Seinna kom Kap og þá segj- um við: Kapin (eða Kapinn) var að fá ’ann. Þorsteinn í Laufási, skipstjóri og rithöfundur, átti bát sem hét Unnur. Nú vafðist fyrir sumum að beygja þetta ágæta nafn og sögðu til dæmis: „Hann Þor- steinn á Unnuri.“ Umhverfisráðherra vill vanda málfar sitt og annarra. Svo sagði hann, að nú stefndi til „sjálf- bærrar þróunar“ í umhverfis- málum. Og Sighvatur talar stundum um greiðslumeðferð. Hvers konar meðferð er það? Nú eru víða mikil „átök“. Pjöl- miðlar sögðu svo frá, að „hrint hefði verið í framkvæmd Akur- eyrarátaki". Það hefur þó að lík- indum verið átakalítið átak, því að átt var við hvíldardvöl á Ák- ureyri. Listin blómstrar. „Á morgun opnar málverkasýning.“ (Rás 2 2/2.) Niðurskurður. Sjónvarpsfrétt í okt. fyrra ár: „Kjarnorkuvopn verða skorin niður“ (í Rússíá). I útvarpssamtali var spurt um 694. þáttur „kalt mat“. Hvers konar mat er það? Spurt í fjölmiðli (langt síðan): „Var þetta öldruð kú?“ Annar fjölmiðill: „Hann fór með Eyjaflug eftir að veðrinu lægði.“ Kennari í samtalsþætti talaði um kennslumagn og gífurlega magnaukningu kennslu (kennslu- gagna). Þetta er magnað. Segjum svo „takk fyrir“ eins og heyrist í sjónvarpi og út- varpi. En „aldrei datt henni í hug að sletta dönsku einsog „takk““. (Halldór Laxness um Guðnýju Kiængsdóttur örnmu sína.) Með kveðju og sumaróskum.“ „Og svo kemur þá aftur sama vandaspurníng: er málið í forn- öld það sama sem nú? Henni er vandsvarað. Og jeg ætla ekki að svara hjer neinu beinu — en mjer finst áð það sje með málið sem manneskjuna; barnið og fullorðna manneskjan er sami einstaklíngurinn, en þó er stór- mikill munur á þeim; en er hann svo mikill, að einstaklíngurinn sje orðinn annar á fullorðinsár- unum en hann var barn? Þessu er best að láta hvern einstakan svara - eða heimspekínginn!" (Finnur Jónsson, mars 1923, í Ársriti Fræðafjelagsins.) ★ Tóbakið hreint, fæ ég gjörla greint, gjörir höfðinu létta, skerpir vel sýn, svefnbót er fín, sorg hugarins dvín, sannprófað hef ég þetta. (Ur Tóbaksvísum sr. Hallgrims Péturssonar.) ★ Sigfríður sagan kvað: Þórdís hótaði Berki i bræði (hann brúkaði ósköp af fæði og var digur sem naut): hún sig drifi á braut, því að bólið það tók ekki bæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.