Morgunblaðið - 29.05.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.05.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1993 19 r* Morgunblaðið/RAX Svandis NÝ BOEING 757-200 flugyél Flugleiða, sem hlotið hefur nafnið Svandís, á flugi yfir Reykjavíkurborg í gær. Þríðja Boeing 757 vélin komin heim Keflavík. ÞRIÐJA Boeing 757-200 flugvél Flugleiða og ellefta „Dísin“ bætt- ist í flugflota Flugleiða í gær. Við móttökuathöfn sem fram fór í hinni nýju viðhaldsbyggingu Flugleiða gaf Áslaug Ottesen, eigin- kona Harðar Sigurgestssonar, stjórnarformanns Flugleiða, vélinni nafnið Svandís og jós hana vatni við það tækifæri úr tveim ám sem eiga það sameiginlegt að renna í Atlantshafið, EUiðaánum í Reykjavík og Hudson-fljóti í New York. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri hún verið í leiguflugi hjá breska og Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða fiuttu ávörp og gat Sig- urður þess að með komu vélarinn- ar væri endurnýjun Flugleiðaflot- ans lokið að sinni og nú ætti félag- ið sennilega yngri flugflota en nokkurt annað alþjóðlegt flugfélag og því vel í stakk búið að mæta harðri samkeppni. Flugleiðir eignuðust Svandísi fyrir tveim árum en síðan þá hefur flugfélaginu Brittania. I flugflota Flugleiða eru nú þrjár Boeing 757-200 vélar, fjórar Boeing 737-400 og fjórar Fokker 50 skrúfuþotur. Svandís verður aðal- lega notuð í flugi milli Lúxemborg- ar og borga í Bandaríkjunum, líkt og hinar 757-vélarnar, en hún verður einnig nýtt í flugi héðan til annarra ákvörðunarstaða í Evr- ópu en Lúxemborgar. - BB Aðalfundur Hundaræktarfélags Islands Guðrún Guðjohnsen endurkjörin formaður GUÐRÚN Guðjohnsen var valin formaður í Hundaræktarfélaginu á aðalfundi þess í fyrrakvöld. Hún hefur gegnt formennsku í félaginu síðastliðin tíu ár og hlaut 146 atkvæði, eða 68%, í gær. Miótframbjóð- andi hennar Jóhanna Harðardóttir hlaut 75 atkvæði, sem eru 37,6% atkvæða. Guðrún kvað niðurstöðuna traustsyfirlýsingu félagsmanna en Jóhanna sagði að sá fjöldi sem hefði stutt hana væri greinilega á annarri skoðun. Kristján Gunnarsson, forstöðumaður hagdeildar Búnaðarbankans Hef kannski hlaup- ið eitthvað á mig Ihugar að segja upp starfi sínu hjá Búnaðarbankanum KRISTJÁN Gunnarsson, forstöðumaður hagdeildar Búnaðarbankans, er yfirmaður Búnaðarbankans sem fjallað hefur verið um hér í Morgun- blaðinu undanfarn'a tvo daga, vegna þess á hvaða hátt hann hagnaðist um verulegar upphæðir á því að nýta sér gengisupplýsingar Reuters og færa inneign sína á milli innlendra gjaldeyrisreikninga í Búnaðar- bankanum um langa hríð. Hann segist hafa litið á það sem „heilaga skyldu sína að verja eignir sínar“. „Að sjálfsögðu," svaraði Kristján þegar blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann hvort það væri ekki heilög skylda starfsmanns Búnaðarbankans að verja hagsmuni atvinnu- veitenda síns í starfi. - Kristján, þú varst vart að gæta hagsmuna Búnaðarbankans það tímabil sem þú stundaðir þessar gjaldeyrismillifærslur í Búnaðar- bankanum, því þú varst jú allan tím- ann að gera út á kostnað bankans, ekki satt? „Það held ég að megi lengi deila um,“ sagði Kristján. - Stjórnendur Búnaðarbankans segja mér að tvímælalaust hafir þú allan tímann verið að hagnast á kostnað bankans. „Það sem hann græddi, því tapaði bankinn," voru þeirra orð. Hvað segir þú um það mat yfirmanna þinna? Vitað frá upphafi „Á hveijum einasta degi eiga sér stað gjaldeyrissveiflur og það er ein- hver sem tapar og einhver sem græð- ir. Hvar er bankinn staddur á með- an? Heldur þú að hann sé alltaf 100% varinn gagnvart því að vera alltaf réttur? Það geta komið stórar fúlgur inn í bankann og stórar fúlgur verið teknar út. Þetta veldur því að bank- inn er ekki alltaf með sinn gjaldeyri- sjöfnuð á hreinu. Þar með talið að menn eru að færa á milli reikninga. Spurningin er þessi: Bankinn veit af þessu. Það hafa allir bankamenn vitað af þessu frá upphafi og það er sett inn í lög og reglur 1979, þegar heimilaðir eru innlendir gjald- eyrisreikningar í íslenskum bönkum. Þá er eiiímitt tekið fram hvemig skuli farið með það, þegar fært er á milli reikninga og það hefur ávallt staðið öllum til boða að færa á milli reikninga. Það vita allir að fjölmargir hafa stundað þessar millifærslur og stór fyrirtæki eins og Flugleiðir og Eim- skip eru með menn innan sinna veggja, sem gera ekkert annað en pæla í gjaldeyrisþróun og innbyrðis breytingum á milli gjaldmiðla. Það hefur ekki verið neitt leyndarmál, þegar Eimskip hefur í gegnum árin sent frá sér fréttatilkynningar til þess að greina frá því hvað fyrirtæk- ið hefur grætt á gjaldeyrisbraski. Það hefur enginn sagt neitt við því.“ Ósammála mati Búnaðarbankans - Þetta er alls ekki spumingin, heldur hitt, hvort það var ekki þín skylda, sem starfsmanns Búnaðar- bankans, að veija hagsmuni atvinnu- rekanda þíns í starfi, en gera ekki út á kostnað hans, allan þennan tíma. „Ég er ekki sammála þessu mati^ og þar stendur hnífurinn í kúnni.“ - Hver tapaði, þegar þú hagnað- ist? „Það geta verið margir aðrir en Búnaðarbankinn." - Eins og hveijir? „Það getur til dæmis verið á kostn- að þeirra sem vom ekki með peninga í réttum gjaldmiðlum. Það getur ver- ið að þetta sé ekki rétt fullyrðing bankans, því hann hafði jú tækifæri til þess að færa fé út í Seðlabanka eða á milli gjaldeyrisreikninga er- lendis. Þessi staða er alls ekki svona einföld." Siðlegra að stunda viðskiptin annars staðar - Hefði ekki verið siðlegra af þér, sem starfsmanni Búnaðarbank- ans, að stunda þessa millifærsluiðju þína hjá öðmm banka en vinnuveit- enda þínum? „Það má vel vera rétt. Ég skal viðurkenna að þar hafi ég kannski eitthvað hlaupið á mig.“ - Það er ekki um það deilt, að þetta athæfi er löglegt. En það sem talið er vera siðlaust í þínu tilviki, er að þú sem starfsmaður bankans, skulir hafa notfært þér þennan möguleika á kostnað vinnuveitanda þíns. Bankamenn fullyrða við mig að þú sért eini bankastarfsmaðurinn sem hafir lagt stund á millifærslur sem þessar og telja raunar fáheyrt að þú skulir hafa komist upp með þær allan þennan tíma. „Ég skal ekkert segja um það hvort ég er eini bankastarfsmaðurinn sem hef stundað þetta, ég bara þekki það ekki. Hins vegar getur vel verið að þetta sé miklu meira áberandi hjá mér, þar sem ég er með miklu meiri eignir umleikis en gengur og gerist, og því sé frékar tekið eftir því. Ekki brotalöm - heldur eðlilegt Ég lít ekki þannig á að þetta hafi verið brotalöm á kerfinu, heldur að þetta sé eðlilegt. Það er eðlilegt að menn veiji sig, það er það sem ég er að tala um. Með svona millifærsl- um eru menn að veija sig fyrir tapi og út úr því kemur kannski gróði. Ef þú gerir ekkert, þá ertu stundum að tapa og stundum að græða. Ef þú beitir þínu hyggjuviti, reynir að fá upplýsingar og reynir að draga ályktanir út frá þeim, þá kemstu kannski að því að þú getur grætt oftar en þú tapar." - Það er ekki nema ósköp einföld siðgæðisvitund sem gerir það að verkum að mönnum finnst afskap- lega óeðlilegt að menn „veiji sig“, eins og þú orðar það, ávallt á kostn- að atvinnuveitanda síns. Það er ein- faldlega talið siðlaust. „Ég skal ekki deila um það við þig.“ Tími til að gera eitthvað annað - Er ekkert erfitt fyrir þig, eftir að um þinn þátt hefur verið íjallað opinberlega og þú kemur fram undir nafni, að sitja áfram í yfirmanns- stöðu þinni í Búnaðarbankanum? „Ég hef nú oft hugsað það mál sjálfur og auðvitað þykir mér ekkert gaman að lenda í svona aðstöðu. Ég hef oft hugsað það mál, að nú sé kominn tími til að fara að gera eitt- hvað annað. Það má vel vera að það verði fljótlega." - Áttu kannski von á því að at- vinnutilboðin streymi til þín, í þá veru að gerast fjármálaráðgjafi ann- arra! „Það skyldi þó aldrei vera. Kannski er þetta bara hin ágætasta atvinnuauglýsing fyrir mig!“ Viðtal Agnes Bragadóttir 5% staðgreiðsluafsláttur. Póstsendum samdægurs. oppskórinn VELTUSUNDI • SÍMI: 21212 Fundurinn stóð fram undir eitt eftir miðnætti og var íjölmennur að sögn Jóhönnu. Kvað hún það hafa vakið undrun sína hversu margir voru viðstaddir og hversu fáa hún þekkti og bjóst við að þetta hefðu verið nýir félagsmenn og fjöl- skyldur þeirra. Sagði hún fundinn hafa verið sögulegan þar eð reglur um fundarsköp hefðu ekki verið virt. Tók hún sem dæmi að reikn- ingar félagsins hefðu verið bornir upp án þess að þeir hefðu legið frammi félagsmönnum til glöggv- unar fyrir fundinn og hann því ólög- legur. Guðrún Guðjohnsen sagði hins vegar að tveir félagsmanna hefðu viljað fá reikningana nokkrum dög- um fyrir fundinn en sú vinnuregla hefði aldrei tíðkast og því ekki hægt að verða við því. Að öðru leyti kvað Guðrún fundinn hafa gengið vel, rætt hefði verið um lagabreyt- ingar og ýmislegt varðandi bætta starfsemi félagsins. Betra húr og sterkari neglur Torfi Geirmundsson Nýju hárstofunni, Laugavegi 45 segir: „Éj> hef selt og sjálfur notað Prof. Kervran's Original Silica töflur í mörg ár og fengið margstaðfest áhrif þess á hár og neglur. Ef þú ert með húðvandamál, brothættar neglur, fíngert og þurrt hár, er lMegt að það sé af skorti á Silica. Þá hafa rannsóknir sýnt að menn, sem verða sköllóttir hafa fítið magn af Silica í húðinni. (Silica leysir samt ekki skallavandamál, heldur getur það hjálpað). Vísindamenn hafa bent á, að Silica bvggir upp slagæðakerflð og að þeir, sem eiga ekki við nein hjartavandamál að stríða, hafi allt að því 14 sinnum meira af Silica í slagæðum heldur en þeir, sem em hjartveikir. | 11 Ég mæli eindregið með Prof. Kervrans Silica. I Hflr I Ln Þaðeykurekkiaðeinsvöxthársog nagla, LMnnaJII I heldur bætir það útlit húðarinnar og heilsu mannsins.11 Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966 Fœst á bárgreiðslustofum, f apótekum og beilsubúðum leilsuhúsið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.