Morgunblaðið - 29.05.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1993
7
Glitnirhí
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Árinúla 7 108 Rcykjavík
Sími 608800 Myndsendir 608810
Samræmd próf í grunnskólum landsins
Hæstu einkunnir í Reykja-
vík - lægstar á Vestfjörðum
NIÐURSTÖÐUR samræmdra
prófa í grunnskólum um allt land
liggja nú fyrir. Samræmd próf
eru tekin í stærðfræði, íslensku,
dönsku og ensku. Meðaltal ein-
kunna reyndist hæst í Reykjavík
í öllum fögunum en voru lægst
á Vestfjörðum. Samræmd próf
hafa verið tekin í grunnskólum
frá árinu 1977 í íslensku og
stærðfræði en dönsku og ensku
var bætt við á þessu ári.
Að sögn Einars Guðmundssonar
hjá Rannsóknarstofnun uppeldis-
og menntamála er útkoman í próf-
unum nú áþekk og á síðustu árum.
Hann sagði að Reykjavík hefði jafn-
an verið efst en Vestfírðir í neðsta
sæti. Einar varaði við því að dregn-
ar væru of afdráttarlausar ályktan-
ir af meðaltölum í einstökum um-
dæmum. Tekin eru saman meðaltöl
fyrir Reykjavík, Reykjanes, Vestur-
land, Vestfirði, Norðurland vestra,
Norðurland eystra, Austurland og
Suðurland.
Greiðslur frá
vinnuveit-
anda skerði
ekki styrk
HÆSTIRÉTTUR staðfesti á
fimmtudag niðurstöðu Héraðs-
dóms Reykjavíkur og tók til
greina kröfur Láru V. Júlíus-
dóttur lögfræðings ASI á hend-
ur Tryggingastofnun ríkisins
um að það skerði ekki rétt henn-
ar til fæðingarstyrks og fæðing-
ardagpeninga í fæðingarorlofi
að hún hafi samið við vinnuveit-
anda sinn um að hún skyldi njóta
óskertra tekna í fæðingarorlofi
og ASÍ hafi skuldbundið sig til
að greiða það sem á greiðslur
Tryggingíistofnunar vantaði til
að svo mætti verða.
Lára V. Júlíusdóttir höfðaði
málið fyrir eigin hönd þar sem líf-
eyrisdeild Tryggingastofnunar
hefur ekki talið þær konur sem
njóta launa frá vinnuveitanda í
barnsburðarleyfum eiga rétt til
greiðslu frá stofnunnni.
Dómur féll henni í hag í janúar
1991 í bæjarþingi Reykjavíkur og
á fimmtudag staðfestu hæsta-
réttardómararnir Hrafn Bragason,
Guðrún Erlendsdóttir, Gunnar M.
Guðmundsson, Haraldur Henrys-
son og Pétur Kr. Hafstein þá niður-
stöðu.
-----4.».4-----
Einar sagði að samræmdu prófin
hlytu góðar undirtektir meðal kenn-
ara en þeim voru sendir spurninga-
listar og gefinn kostur á að gera
athugasemdir við prófín í vetur.
Sagði hann að meirihluti kennara
teldi að prófgerðin hefði tekist bet-
ur á þessu ári en í fyrra.
Einar sagði að rannsókn færi nú
fram á niðurstöðum prófanna og
yrði henni varla lokið fyrr en í haust.
Hann sagði það koma á óvart að
stúlkur næðu að jafnaði betri
árangri í stærðfræði en drengir og
ætti það sérstaklega við um al-
gebru.
Heildareinkunn á samræmdum
prófum vorið 1993
Stærðfr. íslenska Danska Enska
Reykjavík 6,3 6,3 6,7 7,1
Reykjanes 5,8 6,1 6,4 6,8
Vesturland 5,3 5,8 5,9 5,8
Vestfirðir 4,8 5,6 5,1 5,5
Norðl. vestra 5,1 6,0 6,2 5,9
Norðl. eystra 5,6 6,2 6,3 6,2
Austurland 5,2 6,1 6,5 5,9
Suðurland 5,4 5,9 5,9 5,7
Landið allt 5,8 6,1 6,4 6,5
Vaka sam-
þykkti 5-1
NÝGERÐIR kjarasamningar Al-
þýðusambands íslands og samtaka
vinnuveitenda voru samþykktir á
fámennum félagsfundi í verkalýðs-
félaginu Vöku á Siglufirði á
fimmtudagskvöld. Niðurstaða at-
kvæðagreiðslunnar varð sú, að
fimm greiddu atkvæði með samn-
ingnum en einn var á móti.
Hagkvæmt bílalán!
Staógreiðslulán er heildarlausn vió kaup a nýjum bíl
Þúfœrð staógreiðsluafsláttinn
Þegar þú kaupir þér nýjan bíl, greiðir Glitnir það sem á vantar. Þannig er hægt að
nýta staðgreiðsluafsláttinn og fá bíl á bestu fáanlegu kjörum.
Lánstfmi allt að 3 ár
Nú býðst verðtryggt Staðgreiðslulán til 3ja ára sem gefur þér kost á léttari
greiðslubyrði. Ef þú vilt greiða lánið hraðar niður er í boði óverðtryggt lán til allt
að 30 mánaða.
Þú velur tryggingarfélagið
Tryggja þarf bílinn með kaskótryggingu á lánstímanum og að sjálfsögðu
ræður þú hvar hann er tryggður.
r
Oskertir lánamöguleikar
Þú rýrir ekki lánamöguleika í bankanum þínum sem er afar heppilegt ef þú þarft
að mæta óvæntum útgjöldum á lánstímanum.
Aiit að 100% fjármögnun kaupverðs
Lánshlutfall getur orðið 100% af staðgreiðsluverði bíls fyrir allt að 24 mánaða
lánstíma.
Kynntu þér hagstœð kjör Staðgreiðslulána og gerðu jafnframt
samanburð á þeim lánsformum sem bjóðast. Sölufulltrúar bifreiða-
umboðanna veita þér nánari upplýsingar og útbúa tilheyrandi
skjöl á skjótan og einfaldan hátt.
MERKING Hf 1*Aa
BMUMH0LI24 WWW
Si#l: 622044 f 9
□ÓSASKILTI