Morgunblaðið - 29.05.1993, Page 11
í
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1993
11
»
Vorferð Útivistar út í
Breiðafi arðare jrj ar
eftir Rannveigu
Ólafsdóttur
Breiðafjarðareyjar eru eitt af
þremur náttúrurufyrirbærum á ís-
landi sem óteljandi voru talin. Helg-
ina 4.-6. júní nk. heldur Útivist í
vorferð til Breiðafjarðar, ekki til
þess að reyna að koma tölu á eyjar
fjarðarins heldur til þess að njóta
heillandi náttúru og útivistar. Lagt
verður af stað frá BSÍ kl. 20.00 á
föstudagskvöldi og gist í notalegu
og vistlegu húsi Farfugla í Stykkis-
hólmi.
Á laugardag verður siglt með
Baldri út í Flatey og dvalið þar
yfir daginn, en sem kunnugt er er
Flatey ein þekktasta og sögufræg-
asta eyja Breiðafjarðar. Flatey er
stærst svonefndra Vestureyja.
Snyrtileg gömul hús sem mörg hver
hafa nú -verið uppgerð, bera blóm-
legu mannlífi fyrri tíma glöggt vitni.
í Flatey hefur verið verslun allt frá
þvi á miðöldum og um miðbik síð-
ustu aldar var Flatey ein helsta
miðstöð menningar og framfara á
íslandi. Flatey hefur upp á ýmsilegt
fleira að bjóða hinum fróðleiksfúsa
ferðalangi og náttúruskoðara sem
sækir eyjuna heim. Fuglalíf er ein-
stakt og strandlíf allt mjög fjöl-
breytt auk tilkomumikils útsýnis til
lands og yfír hinar óteljandi eyjar
Breiðafjarðar.
Á laugardagskvöld verður boðið
upp á stutta ferð um nágrenni
Stykkishólms og endað á göngu upp
»
Zontakonur
lcggja víða lið
Landsfundur Zontaklúbbanna á íslandi var haldinn á Holiday Inn
í Reykjavík helgina 23-25 apríl. Sátu hann um 70 fulltrúar frá Zonta-
klúbbunum fímm í boði Zontaklúbbs Reykjavíkur, sem er elsti klúb-
burinn, stofnaður 1941. Zonta eru alþjóðleg samtök kvenna er starfa
við stjómun fyrirtælqa og annarra stofnana á sviði sérmenntunar.
Eru klúbbarnir yfír þúsund talsins í 53 löndum. Höfuðstöðvarnar eru
í Bandaríkjunum.
Islensku klúbbarnir eru fimm
'talsins og í skýrslum formanna kom
m.a. fram að þeir vinna að margvís-
legum þörfum málefnum. í Zonta-
klúbbi Reykjavfkur _eru 47 konur
úr ýmsum stéttum. Úr svonefndum
Margrétarsjóði, sem ber nafn Mar-
grétar Rasmus, sem var mikill bar-
áttumaður um málefni heyrnar-
skertra, eru veittir styrkir til mennt-
unar þeirra sem geta orðið heyrnar-
skertum að liði, og til tækja á því
sviði. Zontaklúbbur Akureyrar, sem
telur nú 35 félaga, varðveitir og
rekur Nonnahús. Er gestum þar
alltaf að fjölga, 8500 skrifuðu nafn
sitt í gestabók á sl. ári. Zontaklúb-
bur Selfoss, sem er 20 ára gamall,
hefur nú 29 félaga sem búa víðsveg-
ar í nágrannasveitum. Hafa kon-
urnar veitt ýmsa styrki á sl. 2 árum,
mest til sjúkrahúsa með söfnun til
tækjakaupa og fl. og þær styrkja
árlega Kvennaathvarfið. Yngri
klúbburinn á Akureyri, Þórunn
hyma, verður á árinu 10 ára og
telur 26 félaga. Á sl. ári stóðu þær
fyrir söfnun fyrir nýrnavél til
notkunar fyrir norðan og safnaðist
hálf önnur milljón. Þeirra fasta
verkefni er að styrkja Verkmennta-
skólann á Akureyri. Zontaklúbbur-
Laugagerðis-
skóla slitið
Borg í Miklaholtshreppi
SKÓLASLIT Laugagerðisskóla
voru nýlega. Þaðan útskrifuðust
átta nemendur úr tíunda bekk. I
skólanum voru um 70 nemendur.
Skólahald gekk vel þrátt fyrir
stormasaman og erfiðan vetur.
Nokkur mannaskipti verða nú við
skólann. Gísli Bjarnason sem kennt
hefur þar um nokkur ár hættir.
Ennfremur kona hans Guðný Ge-
orgsdóttir.
Þá hætta þar kennslu prestshjón-
inn Sr. Hreinn S. Hákonarsson og
frú Sigríður Pétursdóttir. Þau hafa
kennt þar mörg undanfarin ár. Sr.
Hreinn hefur tekið við starfi fanga-
prests en Sigríður mun kenna við
Lauganesskóla í Reykjavík.
Öllu þessu fólki eru færðar þakk-
ir fyrir góð störf við skólann og því
óskað góðs gengis á nýjum stöðum.
Páll
með frönskum og sósu
=995.-
TAKIÐMED . t i j t TAKIDMED
- tilbod! -tilboð!
Jarltnn
á Helgafell en þaðan er útsýni yfír
mest allan Breiðafjörð.
Snemma á sunnudagsmorgni
verður farið í spennandi og áhuga-
verða siglingu með Eyjaferðum um
Suðureyjar. Siglt verður m.a. fram-
hjá hinum sérkennilegu Klakkeyj-
um með Dímonarklökkunum tveim-
ur en það eru mjög áberandi keilu-
laga hnúkar og hjá Eiríksvogi sem
kenndur er við Eirík rauða, en áður
en hann lagði í útlegð sína í Græn-
landi faldi hann skip sitt í vogi þeim
sem síðan hefur verið við hann
kenndur. Á meðan á siglingunni
stendur gefst farþegum tækifæri á
að smakka á nýveiddum skelfiski,
ígulkerahrognum o.fl. sjávardýrum.
Eftir siglingu morgunsins er hug-
að að heimferð og á leiðinni verður
komið við í Rauðamelsölkeldu og
Eldborg. Fleira mætti telja fram
af töfrum Breiðafjarðareyja en sjón
er sögu ríkari og víst er að ferð í
Breiðafjarðareyjar er ógleymanlegt
ævintýri.
Höfundur er fararstjóri.
Úr Flatey í Breiðafírði.
inn Embla í Reykjavík er 5 ára og
telur 30 félaga. Hann á og kostar
tvö fósturbörn í Indlandi og veitti
á sl. ári styrk til Kvennaathvarfs
og til Félags krabbameinssjúkra
barna. Sitthvað fleira hafa Zonta-
konur á sinni könnu, sem fram kom
í skýrslum. Auk þess leggja klúb-
barnir til sjóða alþjóðasamtakanna.
Má þar nefna námsstyrkjasjóð
Ameliu Earhart, sem veitir konur í
raunvísindum styrki, og hafa tvær
íslenskar konur verið styrkþegar í
hópi 600 kvenna um allan heim.
Zonta starfar líka í nánum tengsl-
um við stofnanir Sameinuðu þjóð-
anna og hefur þar lagt mörgum
þýðingamiklum verkefnum lið, sem
íslensku klúbbarnir hafa tekið þátt
í. Hefur Guðrún Jónsdóttir arkitekt
nýlega verið kosin í stjórn alþjóða-
samtakanna. En nýlega var Norður-
landaklúbbunum skipt í tvö svæði
og mynda íslendingar ásamt Dön-
um 13. svæði með höfuðstöðvum í
Kaupmannahöfn. Flutti Sigrún
Karlsdóttir skýrslu um störf 13.
svæðis.
Ýmis mál voru rædd á þingi
Zonta, sem stóð í 2 daga, bæði innri
málefni og ýmis málefni sem varða
konur í víðara samhengi. Þar sem
stór þáttur í starfsemi Zontasam-
takanna eru kynni milli starfsstétta
og kvenna var góður tími nýttur til
að blanda geði og heimsækja saman
stofnanir eins og Alþingi í boði
Salome Þorkelsdóttur þingforseta,
Ráðhúsið í boði Markúsar Arnar
Antonssonar borgarstjóra, Dóm-
kirkjuna til helgistundar með sr.
Auði Eir og Operuna þar sem
Zontakonan Olöf Kolbrún ræður
ríkjum. o. fl.
MÉHÉán
...gepið góð kaup!
Sdúpur kr. 49,
Skogapplöntur
(íbökkum, 15-60 plönturíbakka)
kp. 999,-
Petúníur kr. 99,