Morgunblaðið - 29.05.1993, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAI 1993
Margt smatt gerir eitt stort
eftir Guðrúnu
Ögmundsdóttur
Það var að tillögu Kvennalistans
að Reykjavíkurborg keypti
Morgunblaðshúsið undir starfsemi
Borgarbókasafnsins. Kom þar að-
allega tvennt til: Mikil húsnæðis-
þörf safnsins og nauðsyn þess að
styrkja starfsemi í miðbænum.
Borgarbókasafnið hefur því nú
fengið veglegan sess í miðborginni
og mun nú geta aukið þjónustu
við borgarbúa auk þess sem bætt
er úr brýnni húsnæðisþörf.
Kvennalistakonur töldu sjálf-
sagt og eðlilegt að flytja tillögu
um breytingu á framhlið hússins,
þar sem nú stendur til að hýsa þar
aðra starfsemi en verið hefur. Með
nýju hlutverki fengi húsið nýtt
útlit. Því var svohljóðandi tillaga
flutt á fundi borgarstjórnar:
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkir að fram fari samkeppni um
listskreytingu á framhlið Morgun-
blaðshússins (Aðalstræti 6). Unnið
verði að samkeppninni á sambæri-
legan hátt og verið hefur um aðrar
listskreytingar á vegum borgarinn-
ar, sbr. listskreytingu á ráðhúsi.
Um samkeppnina sjálfa giltu sam-
keppnisreglur Sambands íslenskra
myndlistarmanna. Borgarráði
verði falin nánari útfærsla á tillög-
unni, m.a. viðræður við meðeigend-
ur hússins og arkitekt þess.
í greinargerð með tillögunni
segir m.a. að listskreyting á þetta
hús gæti orðið mikil lyftistöng,
bæði útliti hússins og ímynd mið-
bæjarins, þá sérstaklega með tilliti
til þeirra framkvæmda sem gera á
við Ingólfstorg og Grófartorg. Að
sjálfsögðu verður haft samráð við
handhafa höfundarréttar á arki-
tekúr hússins og allar hugmyndir
vandlega skoðaðar.' Borgarráð hef-
ur þessa tillögu til umfjöllunar og
er það von mín að málið fái þar
ítarlega umfjöllun.
Betra aðgengi -
aukin atvinna skólafólks
Á sama borgarstjórnarfundi bar
ég einnig upp tillögu um gerð fláa
í gangstéttir en hún er framhald
fyrirspurnar um gerð hjólreiða-
stíga við Sæbraut og fláagerð fyrr
í vetur. Lagt er til að gatnamála-
saman áður en almennur veiðitími
hefst.
Hinu er við að búast, að ýmsum
leikmönnum kunni að virðast erfitt
að fylgjast með og skilja til hvers
er verið að þessu.
Einhveijir fleiri en ég gætu auk
þess átt til að spyrja, hvaðan starfs-
mönnum Veiðimálastofnunar komi
lagaheimildir til að lengja laxveiði-
tímabil á einstökum vatnasvæðum
um allt að 50 daga úr 90 dögum í
allt að 130 til 140, eða frá 1. júní
til kannski tíunda eða tuttugasta
október! Hver hefur veitt heimild
til svo stórfeldra frávika frá skýrum
lagafýrirmælum? Hefur ráðherra
e.t.v. gert það; Veiðimálanefnd, og
þá á hvaða grundvelli? Ekki hafa
vlsindin á Selfossi tekið þetta upp
hjá sér, fjandakornið.
Hvað á þetta að halda lengi
áfram — og til hvers?
Er ekki meira en tímabært að
gera þá kröfu til Veiðimálastofnun-
ar að hún kanni á ærlegan hátt það
sem er að gerast á vatnasvæði Olf-
usár- Hvítár, sífellt minnkandi fisk-
gegnd, stórhættulega ofveiði í Ölf-
usá, einkum við árósinn — og fram
úr hófí rangláta skiptingu veiði-
fangsins? Að hún beiti sér fyrir
breytingum, eins og henni ber laga-
skylda til — í stað þess að láta sem
ekkert sé, geri sig jafnvel að at-
hlægi ár eftir ár með meira en
ónýtri, barnalegri og skaðlegri þjón-
ustusemi við raunverulega eða
ímyndaða hagsmuni fáeinna neta-
manna — og kalli það vísindi!
stjóri geri í þessu skyni áætlun
fyrir hverfi borgarinnar og fái til
þess aukafjárveitingu. í greinar-
gerð með tillögunni segir m.a. að
verkefnið skuli vera liður í atvinnu-
skapandi aðgerðum fyrir skólafólk.
Mikilvægt sé að gengið verði
skipulega til verks og útivistar- og
göngusvæði verði sett í forgang.
Verkefni sem þetta gæti skapað
atvinnu handa skólafólki hér í
borginni en fyrirséð er mikið at-
vinnuleysi í þeim hópi. Þessari til-
lögu var einnig vísað til borgarráðs
en mikilvægt er að vinna við gerð
fláanna sé unnin samhliða gerð
hjólreiða- og gangstíga í borginni
og nauðsynlegt að gera 3-3 ára
áætlun í þeim efnum.
Bætt hjólreiðamenning
Á vegum fræðsluskrifstofu
borgarinnar starfar nú hópur um
bætta hjólreiðamenningu en Guð-
rún Þórisdóttir er í forsvari hans.
Hópurinn hefur starfað í 2 ár en
meginverkefni hans er að tryggja
öryggi grunnskólanema á hjólum
en slíkt starf nýtist að sjálfsögðu
öllum borgarbúum. Starf þessa
hóps er til fyrirmyndar í alla staði
en hann hefur samráð og samstarf
við ýmsa aðila, s.s. fulltrúa
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkurum-
dæmis. Umferðarráð, SAMFOK,
Borgarskipulag og Vinnuskóla
Reykjavíkur.
Fulltrúar Kvennalistans og Nýs
vettvangs hafa bókað ánægju sína
með starf hópsins og einnig beint
því til borgarverkfræðings að
kartna hvort ekki megi efla starf
á vegum hópsins og skapa á þann
hátt nokkur störf í atvinnuleysinu.
Jafnframt er vakin athygli á þörf-
inni fyrir örugga leið hjólreiða-
verkalýðsfélaga? (lesist leiðbein-
endur). í ljós kom að grunur minn
reyndist á rökum reistur, enda
hafa kennarar yfirleitt verið ráðnir
til starfans en þeir hafa þá tekið
laun annars staðar og greitt af
þeim tilheyrandi gjöld. Af þessu
tilefni flutti ég tillögu í borgar-
stjórn um að nýr háttur verði hafð-
ur á ráðningum í þessar stöður og
nú verði það aðallega „... náms-
menn í uppeldisfögum, svo og hluti
þeirra sem áður hafa starfað og
hafa reynslu á þessu sviði, en eru
ekki á launum annars staðar ...“
sem fengju þessi störf. í tillögunni
segir ennfremur: „Mikilvægt er að
réttarstaða þeirra, sem ekki eru
námsmenn né á launum annars
staðar, sé skoðuð og verði starfs-
mannastjóra falið að skoða stöðu
þess hóps hvað stéttarfélagsaðild
'varðar ... Þetta er mjög mikilvægt
vegna réttar þessa fólks til at-
vinnuleysisbóta síðar meir.“
Þessi tillaga fékk jákvæðar und-
irtektir og var henni einnig vísað
til borgarráðs og mun starfs-
mannastjóri borgarinnar væntan-
lega fara ofan í saumana á mál-
inu. Borginni er skylt að ganga á
undan með góðu fordæmi og gera
allt sem í hennar valdi stendur til
að tryggja sjálfsögð réttindi starfs-
manna sinna.
Ég vona að lesendur séu ein-
hveiju nær um tillöguflutning
Kvennalistans í borgarstjórn
Reykjavíkur. Það er von mín að
tillögur okkar, stórar jafnt sem
smáar, fái áfram jákvæða af-
greiðslu í borgarstjórn. Margt
smátt gerir eitt stórt og auðvitað
tökum við á móti öllum ábending-
um til úrbóta fyrir borgarbúa, kon-
ur, börn og karla.
Höfundur er borgarfulltrúi
Kvcnnalistans.
Guðrún Ögmundsdóttir
„Það er von mín að til-
lögur okkar, stórar
jafnt sem smáar, fái
áfram jákvæða af-
greiðslu í borgar-
s1jórn.“
manna og fólks með barnavagna
úr Heima- og Vogahverfi yfir á
útivistarsvæðið í Elliðaárdal.
Vinnuskóli Reykjavíkur -
réttur leiðbeindenda
Á fundi borgarráðs 6. apríl sl.
bar undirrituð fram eftirfarandi
fyrirspum: Er það rétt, að þeir,
sem ráðnir eru hjá Vinnuskóla
Reykjavíkur greiði ekki gjöld til
Steingrímur á stofnfund
nefndar um „Stór-Evrópu“
STEINGRÍMI Hermannssyni formanni Framsóknarflokksins
hefur verið boðið til stofnfundar nefndar um „Stór-Evrópu“
sem halda á í Vín í Austurríki. Á fundinum verða
ýmsir stjórnmálaleiðtogar og einstaklingar í Vestur-Evrópu
og leiðtogar rússneskra umbótasinna.
Frumkvæði að stofnun nefndar-
innar eiga Alois Mock, utanríkis-
ráðherra Austurríkis og forseti
Evrópusamtaka demókrata og
Otto Graf Lambsdorff forseti Al-
þjóðasamtaka fijálslyndra flokka,
en Steingrímur Hermannsson er
einn af varaforsetum þeirra sam-
taka.
„Stór-Evrópunefndin“ mun
hafa aðsetur í Vín. í frétt frá
Framsóknarflokknum segir, að
nefndin verði alþjóðleg án þátttöku
stjórnmálaflokka og hafi að leiðar-
ljósi hugmyndina um- Stór-Evrópu
sem nái út fyrir landamæri Evr-
ópubandalagsins. Nefndinni verð-
ur ætlað að stuðla að samvinnu
allra Evrópuríkja á sviði stjórn-
mála, fjármála, öryggismála og
menningarmála.
Chevrolet Corsica Lwxury 93'
Á kr. 1.869.000.- á götuna með ryðvörn og skráningu.
Aukalega í Luxury:
• Alfelgur.
• Vindskeið.
• Mótaðar aurhlífar.
• BreiS dekk með hvítum stöfum.
Luxury tilboðið stendur til 30. júní
Staöalbúnaður í Corsica er hreint ótrúlegur: ABS
bremsur, sjálfskipting, útvarp/segulband,
öryggisloftpúöi í stýri, samlæstar huröir,
rafdrifnar rúður og m.fl.
Alger nýjung í lánamálum á íslandi. Við lánum
3/4 af andvirði bílsins í 36 mánuði. Standi illa á
hjá þér á tímabilinu er hægt að hliöra greiðslum
allt að sex sinnum og færa þær aftast. Þú greiðir
þá bara vexti. Þannig getur lánið orðið til 40
mánaða.
Til að auðvelda þér bílakaupin enn frekar, tökum
viö vel með farna notaða bíla uppí.
Bílheimar hf.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 63 4000/634050
Höfundur er veiöimaður