Morgunblaðið - 29.05.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1993
17
Erill
OFT ER mikið að gera á slysadeildinni.
Morgunblaðið/Bjami
og markvissari. Það er meiri háttar
misskilningur að dreifa svona ein-
ingum víða. Sumir eru að tala um
að það þurfi að vera tvær slysa-
deildir á Stór-Reykjavíkursvæðinu,
en reynslan hefur sýnt, t.d. í
Bandaríkjunum, að heildarárangur
er mun verri þar sem einingar eru
smærri og fleiri. Allir eru sammála
um að ef það á að reka slysadeild
þá eigi hún að vera kröftug og í
stakk búin að taka á öllu sem upp
á kemur. ísland er mjög lítið og
því fyrir bestu að ein kröftúg slysa-
deild sinni sunnaverðu landinu. Það
þarf síðan að vera önnur góð á
Akureyri fyrir Norðurlandið. Mót-
taka fyrir lítið slasaða getur og
verður að vera víðar en þá þarf að
tryggja góða sjúkraflutninga," seg-
ir Brynjólfur.
Brynjólfur bendir á fleira sem
þurfí að hyggja vel að er horft er
til framtíðarinnar frá þessum tíma-
mótum. Eitt af þvi er forvarnastarf
til þess að draga úr slysa- og veik-
indatíðni. „Slys kosta þjóðarbúið 8
til 10 milljarða á hveiju ári. Þetta
eru óheyrilegar upphæðir og því
skiptir miklu að reyna að draga
úr þeim og ein leið er markvisst
forvarnastarf. Eitt af því sem er í
bígerð er að bæta orsakaskráningu.
Hvers vegna verða slysin? Vönduð
úttekt á orsökum slysa yrði stórt
skref til þess að draga úr slysat-
íðni. Annað sem þarf að gera er
að samræma slysaskráningu. Auð-
vitað eru slys alls staðar skráð, en
það þarf að samræma þær til að
auðvelda úrvinnslu."
Brynjólfur telur að slysadeildin
sé vel í sveit sett, stjómmálamenn
geri sér ljósa grein fyrir mikilvægi
hennar, enda hafi deildin til þessa
getað afkastað í samræmi við
mannskap, tækni, aðstöðu og þekk-
ingu. „Það hefur verið stutt vel við
bakið á okkur, enda skynja yfirvöld
að svona deild skilar óhemju miklu
til baka af því sem í hana er lagt.
Nægir að benda á að á þeim 25
árum sem deildin hefur starfað
hafa rúmlega 860.000 manns leitað
til hennar, bæði slasaðir og veikir.
En til að gera þetta vel þarf mikið
fé. Rekstur á slysadeild, endur-
komudeild og gæsludeild kostar um
150 milljónir á ári og er þá allt
talið. Menn geta þá séð í hendi
sér, að ef það ætti að byggja upp
aðra einingu á svæðinu myndi það
kosta annað eins og einungis verða
til að draga úr nýtingu á þeirri sem
fyrir er. Þetta eru það miklar fjár-
hæðir að brýnt er að nota pening-
ana rétt. Á sama hátt væri það
hrapallegt að skera. niður framlög
til starfseminnar, en við höfum
ekki þurft að mæta slíkum aðgerð-
um,“ segir forstöðumaðurinn. Og
hann lýkur máli sínu með því að
draga saman í stutt mál inntakið
í starfsemi slysadeildarinnar:
„Flestir vita, að deildin er opin fyr-
ir slasaða og veika allan sólarhring-
inn alla daga, árið um kring. Inn-
takið er að fólk eigi sér samastað
hér, hvað sem á bjátar. Hér er
þekking og reynsla til staðar. Fólk
getur leitað hingað ef á þarf að
halda.“
fyrir blóðstreymi og skilja eftir efni
í sárinu sem kemur í veg fyrir að
blóðið storkni. Þar með rennur blóð
inn og blóð út þótt ekki sé það endi-
lega hin rétta leið út. Eftir nokkra
daga er líkaminn sjálfur búinn að
búa til nýtt fráflæði. Það er rétt að
taka fram, að þetta eru smitfríar
blóðsugur, sérræktaðar erlendis og
þeim er ekki sturtað ofan í klósettið
að notkun lokinni, heldur eru þær
brenndar“.
Magnús heldur áfram og segir
að ennfremur megi tíunda að mikil
aukning hafi orðið í aðgerðum á
liðagigtarsjúklingum, einkum á
höndum, hnjám, öxlum og mjöðm-
um. „Liðagigt er bólga í sinaslíðrum
og liðum og það er hægt að hefta
staðbundið liðagigt með því að nema
bólguna brott. Meira að segja í mjög
slæmum tilfellum er nú hægt að
gera mikið fyrir fólk sem langt er
leitt af liðagigt," segir Magnús.
Fleira tínir hann til, til að mynda
meðferð á liðþófa. Áður var skorið
og menn lágu á sjúkrahúsinu í allt
að 1 til 2 vikur. Nú er þófinn tekinn
með speglun og menn fara heim
uppistandandi strax sama dag.
Bökin
Ragnar bætir við þetta, að ekki
séu framfarimar minni í bakskurð-
lækningum. Er við hann var rætt
var hann nýkominn úr aðgerð. Hann
segin „Þetta var aðgerð sem ekki
hefur áður verið gerð hér á landi.
Sjúklingurinn var 14 ára bam sem
fæddist með klofinn hrygg og er
lamað í hjólastól. Hryggur barnsins
var hins vegar orðinn svo skakkur
að það gat vart setið í stólnum.
Aðgerðin fólst í því að rétta við
hrygginn, þannig að barnið mun
eftirleiðis geta setið betur.“
Ragnar bætir við að auk þessa
hafi eftirmeðferð bakaðgerða breyst
mjög. Nú væri farið að hreyfa fólk,
hífa það jafnvel á fætur til æfinga
2 til 3 dögum eftir aðgerð. Jafnvel
þegar hryggbrot hefur verið annars
vegar. Gamli tíminn sagði að þetta
fólk ætti að liggja sem fastast og
hreyfa sig sem minnst. Nýi tíminn
segir það vera það versta sem þetta
fólk geti gert. Sama er að segja um
brot á mjöðm og lærleggjum. Svona
eru tímarnir breyttir og þeir Magnús
og Ragnar segja þetta skila sér í
vaxandi afköstum og nýtingu. „Og
gæðin era meiri,“ segja þeir.
Þeir segjast geta haldið lengi
áfram og Magnús gerir raunar gott
betur, bætir við lýsingum á því
hvemig ákveðnar rannsóknir á úln-
liðum séu þegar farnar að skila sér,
en úlnliðurinn er flókinn og algeng-
ur miðdepill meiðsla.
Þetta er allt af hinu góða segja
þeir Magnús og Ragnar, Islendingar
séu fljótir að taka við sér þegar ein-
hver ný læknavísindi era viðurkennd
á annað borð. Þeir segja íslenska
lækna upp til hópa góða og íslensk
sjúkrahús góð. Viðmiðun þeirra eru
þau lönd sem þeir lærðu í.
Skáksamband íslands
Guðmundur G.
Þórarinsson
endurkjörinn
AÐALFUNDUR Skáksambands
íslands var haldinn 22. maí sl. í
Faxafeni 12, Reykjavík. Forseti
sambandsins, Guðmundur G.
Þórarinsson, var endurkjörinn.
í stjóm eru eftirtaldir menn:
Guðmundur G. Þórarinsson, for-
seti, Andri Hrólfsson, Guðmundur
Benediktsson, Haraldur Baldurs-
son, Margeir Pétursson, Pétur Ei-
ríksson og Þráinn Guðmundsson.
í varastjóm eru: Ólafur H. Ólafs-
son, Gunnar Björnsson, Halldór
G. Einarsson og Kristján Guð-
mundsson.
(Fréttatilkynning)
4x
með frönskum og sósu
=995.-
■TfS$!Ð P|
Jarlinn
K
miðasala í
verslunum
Steinars,
versluninni
Hljómalind
og sölustöðum
Listahátíðar
Hafnarf jarðar
í þróttahúsi nu
K APLAKRiKA
Haf narf irði
12.júní
kl. 20.30
upplýsingar og
miðapantanir í
síma 65 49 86
Tl 3 HAfNARflOROOR
■3 Æ INTERHATIONAL
M f ART f ESTIVAL
f I ICELAND
V ALÞJOÐLEG
. ~ LISTAHATIÐ
I HAFNARFIRÐI
4.-30. JÚNÍ
1993
M Ú S-Í-K &
M- YKD-I-R
T'K'O