Morgunblaðið - 29.05.1993, Qupperneq 26
Afkoma Verkalýðsfélagsins Einingar
Halli á rekstrinum
vegna samdráttar
FJÁRHAGSAFKOMA Verkalýðsfélagsins Einingar var lakari á liðnu
ári en verið hefur nokkur undanfarin ár. Þar segir til sín sá samdrátt-
ur sem orðið hefur i atvinnulífinu, en þegar vinnutekjur dragast sam-
an minnkar það sem tii félagsins rennur í félagsgjöldum og gjöldum
atvinnurekenda til sjúkrasjóðs, orlofssjóðs og fræðslusjóðs. Halli á
, rekstri sjúkrasjóðs varð á þriðju milljón króna á síðasta ári, en á rekstri
félagsins í heild 600 þúsund krónur. Vegna lélegrar afkomu sjúkrasjóðs-
ins samþykkti aðalfundur Einingar, sem haldinn var í fyrrakvöld, breyt-
ingar sem fela í sér lækkun á bótagreiðslum, en bótagreiðslur sjóðsins
námu á síðasta ári alls 23,2 milljónum króna.
Félagsmenn í Einingu eru nú
4.685 talsins, þar af eru aðalfélagar
3.789, en aukaféiagar 896. Flestir
eru í Akureyrardeild, 2.846, í Dalvík-
urdeild er 401 félagsmaður, 255 eru
í Ólafsfjarðardeild, 121 í Grenivíkur-
deild, 105 í Hríseyjardeild og í bíl-
stjóradeild er 61. Konur eru í meiri-
Markaðsráðgjafi
HALLDÓR Þ.W. Kristinsson
hefur þýtt og gefið út Mark-
aðshandbókina.
Bókum
markaðs-
áætlanir
MARKVÍS markaðsþjónusta
hefur nýlega gefið út bók sem
heitir Markaðshandbókin, en
þar er um að ræða vinnubók
um markaðsáætlanir.
Halldór Þ.W. Kristinsson, iðn-
rekstrarfræðingur og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins
þýddi bókina, en hún er eftir
Adrienne Zoble sem unnið hefur
við að aðstoða smærri fyrirtæki
í markaðsmálum.
„Bókin gagnast ágætlega
þeim sem hug hafa á að stofna
fyrirtæki, en höfundnrinn ein-
beitir sér að litlum og meðalstór-
um fyrirtækjum," sagði Halldór.
hluta, 2.427, og karlar eru 1.362.
30 ára
Verkalýðsfélagið Eining varð 30
ára í febrúar og í tilefni þess var
ákveðið að láta rita sögu félagsins
og þeirra félaga sem voru fyrirrenn-
arar þess eða hafa sameinast því í
tímans rás. Þorsteinn Jónatansson
hefur verið ráðinn til að annast sögu-
ritunina.
Til aðalfundarins var boðið þeim
tveimur sem eru á lífi af þeim sem
sæti áttu í fyrstu stjóm félagsins,
en það voru Vilbórg Guðjónsdóttir
og Þórir Daníelsson.
Fyrsta lendingin
Morgunblaðið/Rúnar Þór
KARL Magnússon, Boeing 737-þota flugfélagsins Atl-
anta, lenti á Akureyrarflugvelli í gærmorgun. Henni
var flogið beint frá Hamborg í Þýskalandi og voru 75
farþegar, ferðamenn, um borð. Þetta er í fyrsta sinn
sem þotan lendir á flugvellinum á Akureyri, en hún
heitir eftir Karli Magnússyni fyrrverandi formanni
Svifflugfélags Akureyrar. Hann var einn af frumkvöðl-
um flugsins á Akureyri.
Útvegsmannafélag Norðurlands um tillögur Hafrannsóknastofnunar
Grípa verður til aðgerða
annars blasir hrun við
STJÓRN Útvegsmannafélags Norðurlands kom saman til fundar á
Akureyri í gær þar sem rætt var um tiliögur Hafrannsóknastofnun-
ar um afla á næsta ári og lýsti sljórnin yfir þungum áhyggjum yfir
fyrirliggjandi tiilögum stofnunarinnar. „Það þarf ekki mörg orð um
þetta, það eru mjög alvarleg tíðindi sem birtast okkur í tillögunum,
vissulega áttu menn von á skerðingu, en þetta er meiri niðursveifla
en við áttuin von á,“ sagði Sverrir Leósson formaður sljórnar Útvegs-
mannafélags Norðurlands eftir fundinn í gær, en eins og fram hef-
ur komið leggur Hafrannsóknastofnun til að þorskafli á næsta ári
verði ekki meiri en 150 þúsund tonn.
Benti stjómin á, að ef til þess innan sjávarútvegsins. Það hefur
kemur að enn verði dregið úr veiðum
er nauðsynlegt að grípa til sérstakra
aðgerða ef ekki eigi að koma til
hmns í atvinnugreininni. „Það er
alveg ljóst að ef farið verður eftir
tillögum Hafrannsóknastofnunar
blasir ekkert annað við en hrun í
þessari atvinnugrein, grein sem
þjóðin lifir á, við lifum á því sem
úr sjónum kemur,“ sagði Sverrir.
„Það er ískaldur veraleiki sem við
okkur blasir og við sjáum ekki
hvemig útgerðimar geta staðist
þetta.“
Áfallið
„Ég held að sé alveg ljóst að
greinin þolir ekki þetta áfall til við-
bótar við þann vanda sem fyrir er
Foreldrar! Foreldrar!
Laus pláss í eftirtalda flokka
fyrir 8 ára og eldri:
Drengir:
1. fl. 8. júní-15. júní 7 daaar, verð kr. 13.200.
2. fl. 18. júní-25. júní 7 dagar, verð kr. 13.200.
Drengir og stúikur:
6. fl. 29. júlí-5. ágúst 7 dagar, verð kr. 13.200.
Rútugjald er innifalið í dvalargjaldinu.
Innritun og upplýsingar í síma 96-23929 hjá
Önnu og 96-23939 hjá Hönnu.
Sumarbúdirncsr Hólavatni
lítið verið gert til að laga stöðuna
á síðustu misseram, en síðan fáum
við þennan skell og það er auðvitað
afar slæmt. Þannig að það er vægt
til orða tekið að segja að við séum
áhyggjufullir," sagði Valdimar
Kjartansson útgerðarmaður á
Hauganesi og stjórnarmaður í Út-
vegsmannafélagi Norðurlands.
Á fundinum í gær var rætt um
að efla beri hafrannsóknir, einkum
á sviði vistfræði, þannig að leitað
verði skýringa á minnkandi stofn-
stærðum og lélegri nýliðun þrátt
fyrir minnkandi afla. Norðlenskir
útgerðarmenn vilja að sérstök
áhersla verði lögð á að skoða hvaða
áhrif stækkandi hvala- sela- og sjó-
fuglastofnar hafa á vöxt og viðgang
nytjastofna samanborið við veiðar.
Þröng staða
„Við vitum að ýmsar hvalateg-
undir rífa í sig milljónir tonna af
fiski úr vistkerfinu og þess vegna
þykir okkur ástæða til að skoða
nánar hvað áhrif það hefur og leggj-
um til að rannsóknir verði efldar,"
sagði Sverrir.
Valdimar Kjartansson sagði að
þjóð sem ætti allt sitt undir því sem
úr sjónum kæmir yrði að hafa efni
á því að stunda rannsóknir.
Þá benti stjórnin einnig á nauðsyn
þess að loka með öllu fijálsum að-
gangi að veiðum svo sem með
krókaleyfi og tvöföldun línuafla á
ákveðnum tíma. „Þegar við erum
komin í þetta þrönga stöðu verðum
við að loka svona götum, það er
ekki um annað að ræða en setja á
aflamark þarna eins og annars stað-
ar,“ sagði Sverrir.
^ Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ahyggjufullir
STJÓRN Útvegsmannafélags Norðurlands kom saman til að ræða
tillögur Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla á næsta fiskveiði-
ári. Sverrir Leósson formaður félagsins, Valdimar Kjartansson á
Hauganesi og Svavar Magnússon í Ólafsfirði spjalla um tillögurnar.
Smíðuðu sér brvggju
Skagaströnd.
MIKIL fjölgun hefur orðið á smábátum í eign Skagstrendinga undan-
farin ár. Aðstaða fyrir þessa báta í höfninni hefur verið heldur
bágborin fram að þessu en nú eru væntanlegar úrbætur á því.
Eigendurnir minnstu bátanna tóku
sig saman og smíðuðu þrjá fimm
metra langa og tveggja metra breiða
flotpramma sem þeir ætla síðan að
fá að koma fyrir á góðum stað í
höfninni þar sem þeir eru ekki fyrir
öðrum bátum. Ætlun smábátaeig-
endanna er að taka síðan prammana
á land í haust því minnstu bátamir
era bara á floti frá vori fram á haust.
Ekki hefur enn gefist tækifæri til
að koma flotprömmunum fyrir á sín-
um stað vegna þrálátra sunnan- og
vestanátta í vor en til að hægt sé
að koma prömmunum fyrir þarf að
vera stillt og gott veður.
Hafnarsjóður Skagastrandarhafn-
ar ætlar að styðja þetta framtak
smábátaeigendanna með því að
borga efnið í flotbryggjuna en smíð-
in og vinnan við að koma prömmun-
um fyrir er sjálfboðavinna karlanna.
- Ó.B.
Messur
AKUREYRARPRESTAKALL:
Hvftasunnudagur: Hátíðar-
guðsþjónusta verður á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
kl. 10. Hátíðarguðsþjónusta
verður í Akureyrarkirkju kl.
11. Þau sem fermdust fyrir
10 árum (fædd 1969), 20
árum (fædd 1959), 30 árum
(fædd 1949), 40 árum (fædd
1939) og 50 árum (fædd
1929) eru sérstaklega vel-
komin.
Hátíðarguðsþjónusta
verður að Seli kl. 14 á hvíta-
sunnudag og kl. 16 á Dvalar-
heimilinu Hlíð.