Morgunblaðið - 29.05.1993, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAI 1993
væri til aðstoðar í horni „hringsins“
og tilbúinn að leysa hann af svona
í annarri hverri lotu. Annars var
Ólafur góður sundmaður á mennta-
skólaárum. Hef ég heyrt fólk sem
þekkti hann þá segja frá því.
Mikill harmur er nú kveðinn að
fjölskyldu Ólafs, eiginkonu hans,
Marín Henný Matthíasdóttur, og
bömum þeirra þremur. Ólafur sagði
undirrituðum oft að eiginkona sín
væri kjölfesta hans og bamanna.
Sagði hann að óhjákvæmilega sinnti
hún meira en hann uppeldi barn-
anna, sem em hvert öðm mannvæn-
legra, vegna mikillar vinnu hans
sjálfs utan heimilis. Þá sagði hann
tengdamóður sína vera mikla hjálp-
arhellu, ekki síst þegar bömin vom
yngri. Einnig hafði hún fjárfest með
þeim í hluta af nýja húsinu.
Þá var Ólafur ánægður með börn-
in sín og með stolti sagði hann mér
frá því þegar eldri sonurinn Matthías
málaði þakið á nýja húsinu undir
styrkri verkstjórn „kallsins" á jörðu
niðri sem væri svo lofthræddur að
hann þyrði ekki upp á þak.
Ólafur var fæddur og uppalinn á
Selfossi, þar sem foreldrar hans,
bróðir og hans fjölskylda búa. Þeirra
missir er mikill. Talaði hann alltaf
með mikilli virðingu og ánægju um
þau og frændgarð sinn og vini þar.
Ég sendi þér, Henný, bömum
ykkar og fjölskyldum innilegustu
samúðarkveðjur mínar og konu
minnar.
Megi Guð gefa ykkur styrk í fram-
tíðinni.
Jón Guðmar Jónsson.
Margs er að minnast þegar við
kveðjum bekkjarfélaga okkar, Ólaf
Guðmundsson. Hugurinn leitar aftur
til þess tíma er við settumst á skóla-
bekk við Menntaskólann að Laugar-
vatni fyrir hartnær aldarfjórðungi.
Framundan vom viðburðaríkir tímir
í lífi okkar, og minningin um þá
tengir okkur sterkum böndum. Þeg-
ar við nú með söknuði sjáum á bak
félaga okkar og vini, þá leita minn-
ingarnar á hugann, og það eru minn-
ingar sem ylja.
Óli bjó yfir góðum gáfum og var
hreinskiptinn í öllu því sem hann tók
sér fyrir hendur. Hann var athugull
og lá ekki á skoðunum sínum ef því
var að skipta, enda var mál hans
þá ætíð vel ígrundað. Hann var hlýr
í viðmóti og var lagið að sjá skop-
legu hliðina á tilvemnni. Við sem
kynntumst Óla náið eignuðumst í
honum tryggan vin, og sú vinátta
veitti okkur margar skemmtilegar
stundir, sem gott er að minnast.
Nú þegar leiðir skilur viljum við
þakka Óla samfylgdina og vottum
ástvinum hans okkar dýgstu samúð.
Blessuð sé minning Ólafs Guð-
mundssonar.
Samstúdentar frá ML 1972.
Okkur systkinin langar í fáum
orðum að kveðja föðurbróður okkar
Ólaf Guðinundsson, sem lést skyndi-
lega miðvikudaginn 19. maí. Það
kom eins og þruma úr heiðskím lofti
þegar hringt var og okkur sagt að
Óli frændi væri dáinn, hann hefði
orðið bráðkvaddur um nóttina.
Aðeins 41 árs að aldri var hann
hrifinn burt af þessari jörð, frá fjöl-
skyldu sinni, vinum og kunningjum
til annarra athafna á öðrum stað.
Við trúum því að honum sé ætlað
hlutverk annars staðar, enda vart
hægt að kynnast nákvæmari eða
samviskusamari manni. Störfin léku
í hendi hans umyrða- og æðrulaust,
enda vel liðinn af öllum sem til hans
þekktu.
Hann lét sig það miklu skipta
hvernig okkur gekk í skóla, hjálpaði
okkur ef við leituðum til hans með
námið og bar framtíð okkar fyrir
brjósti. Hann fylgdist vel með hvað
við höfðum fyrir stafni þó að við
værum á Selfossi, en hann í Reykja-
vík.
Elsku Henný, Matti, Auður, Helgi
og aðrir aðstandendur. Við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð, megi
Guð veita ykkur styrk í sorg ykkar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Sigríður og Guðmundur.
Einar B. Ingvars-
son - Minning
Með örfáum orðum skal hér
minnst Einars B. Ingvarssonar, sem
lést 17. maí eftir stutt en erfið veik-
indi.
Einar átti sæti í stjóm Viðlaga-
tryggingar Íslands og var varafor-
maður hennar um rúmlega tveggja
ára skeið og formaður stjórnarinnar
var hann frá 1986 til 1991. Einar
reyndist hinn ágætasti liðsmaður og
ötull forsvarsmaður stjórnarinnar.
Voru störf Einars einkar farsæl og
árangursrík. Hann var sérstaklega
áhugasamur um starfsemina og
ólatur við að kynna sér til hlítar öll
mál sem við þurfti að fást. Hann
fylgdi þeim eftir af miklum áhuga
og var ósínkur á tíma sinn er hann
þurfti að koma fram fyrir hönd
stofnunarinnar. Honum var einkar
lagið að setja skýrt fram sjónarmið
stjórnarinnar.
Einar Ingvarsson var ágæta vel
glöggur og réttsýnn við úrlausnir
allra mála og kom sér oft. vel mikil
þekking hans á mönnum og málefn-
um. Náði sú þekking til flestra
byggða landsins. Einar var góður
félagi, prúðmenni, góðviljaður og
glaðsinna, en hann var stefnufastur
og hikaði ekki við að koma sjónar-
miðum sínum á framfæri með þeim
hætti að vel skildist.
Að leiðarlokum verða þökkuð góð
kynni og ánægjulegt samstarf á liðn-
um árum, og votta ég Herdísi Jóns-
dóttur og börnum þeirra Einars, svo
og öllum öðrum aðstandendum
dýpstu samúð.
Geir Zoéga.
I dag 28. maí verður elsku afi
minn borinn til hinstu hvíldar.
Síðast þegar ég sá þig, afi, varstu
svo hress og kátur. Svo stuttu seinna
ertu farinn frá okkur. Góðar minn-
ingar á ég með þér og ömmu þegar
ég kom á hverju sumri og fékk að
vera hjá ykkur í Karfavoginum. Ég
þakka fyrir þann tíma sem ég fékk
að njóta með þér. Þú varst alltaf svo
hlýr og góður. Ávallt var hægt að
treysta á þig, afi, ef ég þurfti á þér
að halda.
Lífsgleði fylgdi ykkur ömmu og
alltaf var gaman að koma og sitja
hjá ykkur eina kvöldstund og spjalla.
Þú varst fróður maður og sagðir
mér margar góðar sögur sem aldrei
gleymast.
Mér þykir leitt að geta ekki verið
viðstödd jarðarförina þína, þar sem
ég er að ljúka námi mínu erlendis,
en ég fylgi þér í huganum. Ég kveð
þig, afi, þú verður alltaf ljós í huga
mínum. Elsku amma, pabbi og fjöl-
skylda. Ég votta ykkur mína dýpstu
samúð.
Guðbjörg Kristín
Ingvarsdóttir.
Einar B. Ingvarsson, fyrrverandi
bankaútibússtjóri, lézt hinn 17. maí
sl. eftir stutta legu á sjúkrahúsi, 72
ára að aldri. Einar fæddist 26. júlí
1920 í Reykjavík, en foreldrar hans
voru Sigríður Böðvarsdóttir og Ingv-
ar E. Einarsson skipstjóri. Eftirlif-
andi eiginkona_ hans er Herdís E.
Jónsdóttir frá ísafirði og eignuðust
þau fjögur börn, sem öll eru á lífi.
Þau eru Sigríður, Ingvar, Friðjón og
Herdís. Þau hafa öll menntast, fest
ráð sitt og eignast afkomendur.
Fyrstu kynni mín af Einari urðu
snemma árs 1954. Ég hafði þá
nokkru áður, ungur og óreyndur,
tekið að mér það erfiða hlutverk að
reyna að bæta úr erfiðleikum í at-
vinnumálum í þorpi á Vestfjörðum.
Var ég nú mættur í Landsbankanum
á ísafirði og bað um viðtal við banka-
stjóra. Mér var vísað til sætis á bið-
stofu. Eftir nokkra stund opnuðust
dyr og út kom ungur og glaðlegur
máður og spurði, hvort hann gæti
gert eitthvað fyrir mig. „Nei, ég er
nú að bíða eftir bankastjóranum,"
sagði ég. „Það er ég, gerðu svo vel
og gakktu inn,“ sagði ungi maður-
inn. Þetta var Einar Ingvarsson og
var sannarlega ekki í samræmi við
þá ímynd, sem ég hafði gert mér
um bankastjóra, en samkvæmt henni
áttu slíkir menn að vera aldnir, digr-
ir, afundnir og fráhrindandi. Þetta
viðtal var upphaf að farsælum við-
skiptum, sem stóðu í 15 ár, eða
meðan Einar starfaði á Isafirði, og
ennfremur upphaf að samskiptum
okkar, sem entust til hinstu stundar.
Mér varð fljótlega ljóst, að Einar
bjó yfir mikilli þekkingu á atvinnu-
málum, einkum sjávarútvegsmálum,
enda var hann síðar valinn til ýmissa
trúnaðarstarfa á þeim vettvangi.
M.a. var hann aðstoðarmaður sjáv-
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
MORGUNBLAÐIÐ tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá geng-
in, vélrituð og með góðu línu-
bili.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KARLS GUÐMUNDSSONAR,
Grænuhlíð 18,
Reykjavík.
Unnur S. Jónsdóttir,
Jón Karlsson, Dagrún H. Jóhannsdóttir,
Guðmundur Karlsson, Ásta Þórarinsdóttir,
Ellert Karlsson, Ásdís Þórðardóttir,
og barnabörn.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR ELÍNUSSON
frá Heydal,
Hjallarbraut 33,
Hafnarfirði,
lést í Landsspítalanum 28. maí.
Þóra S. Guðmundsdóttir,
Ólöf S. Guðmundsdóttir,
Einar E. Guðmundsson,
Hulda Guðmundsdóttir,
Guðmundur R. Guðmundsson,
Ragna K. Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hilmar Antonsson,
Gunnar Þ. Jónsson,
Jóna Gunnarsdóttir,
Karólína Geirsdóttir,
33
arútvegs-, heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra á árunum 1974-1978.
Ymis önnur vandasöm verkefni voru
honum falin, sem ekki verða rakin
hér, en óhætt mun að segja, að hann
sinnti öllum sínum verkefnum af
dugnaði og samvizkusemi, kynnti
sér vel þau mál, sem hann vann að
og áhuginn og starfsgleðin var jafn-
an auðfundin í fari hans. Einar var
hugsjónamaður um framfarir á
Vestfjörðum, hvatti menn til dáða,
kom með nýjar hugmyndir, sem
hrint var í framkvæmd eftir getu í
hveiju tilfelli og komu atvinnulífi og
byggðum á Vestfjörðum að góðu
gagni. Menn áttu sér framtíðarsýn
um öflugt og þróað atvinnulíf og
byggð á Vestfjörðum.
Eg minnist margra góðra stunda
að vestan er menn hittust og ræddu
málin og þá ósjaldan á heimili Ein-
ars og Dísu á ísafirði, þar. sem öllum
þótti gaman og gott að koma. Hygg
ég að þar hafi ófá framfaramál
Vestfirðinga átt upphaf sitt. Einar
var drenglundaður maður, Iaus við
sérhyggju og pólitískt pot og vildi
hag lands og þjóðar sem mestan og
lagði sig allan fram til þeirra verka.
Með auknum kynnum okkar Ein-
ars myndaðist trúnaðartraust, sem
með árunum þróaðist í vináttu. Ein-
ar var mannkostamaður, sem var
mannbætandi að umgangast. Við
hjónin kynntumst jafnframt hinni
ágætu eiginkonu Einars, henni Dísu,
og höfum við öll í áranna rás átt
margar ógleymanlegar ánægju-
stundir saman. Við minnumst þeirra
stunda núna með gleði og þakklæti
— en með söknuð í huga.
Fráfall Einars kom á óvart. En
eigi má sköpum renna. Við þökkum
honum samfylgdina og óskum hon-
um fararheilla á vit nýrra heima og
nýrra viðfangsefna. Missir Dísu,
barna og barnabama er sár og mik-
ill. Við hjónin biðjum algóðan guð
að veita þeim huggun og stuðning.
Jónas Asmundsson.
Með fáeinum orðum langar mig
að kveðja elskulegan tengdapabba
minn, Einar B. Ingvarsson, sem lést
hinn 17. maí sl.
Það er erfitt að trúa því að hann
Einar sé dáinn. Hann sem var svo
lífsglaðúr og ungur í anda. Á þeim
tuttugu árum sem ég átti hann að
er svo margt sem mig langaði að
þakka honum fyrir. Þakka honum
fyrir hversu góður afi hann var börn-
um okkar. Þakka honum allan þann
stuðning og áhuga sem hann sýndi
öllu því sem við vomm að gera hverju
sinni, hvort sem það var námið, vinn-
an, heimilið eða áhugamálin, sem
voru mörg sameiginleg. Þakka hon-
um allan þann tíma sem hann gaf
okkur. Hann var aldrei svo upptek-
inn að hann mætti ekki vera að því
að hlusta á okkur, spyija og gefa
góð ráð.
Enda var það ekki að ástæðulausu
að við tengdabörnin jafnt sem böm-
in hans leituðum alltaf til hans með
svo ótal mörg og ólík málefni. Það
var ekki eitt, það var allt.
Elsku Einar, þakka þér fyrir allar
góðu minningarnar. Guð btessi
minningu tengdapabba og gefi
tengdamömmu styrk.
Ragnhildur Jónsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar eig-
inkonu minnar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR HALLDÓRU
LOFTSDÓTTUR,
Hlíðarvegi 58,
Njarðvik.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á 3. hæð
Vífilsstaðaspítala fyrir frábæra umönnun
veikindum hennar.
Halldór Helgason,
Magnea Halldórsdóttir, Gfsli Hauksson,
Ragnar Helgi Halldórsson, Þórunn Friðriksdóttir,
Halldóra Halldórsdóttir, Erlingur Hannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför
ARNDÍSAR ÞORKELSDÓTTUR,
Miðbæjarskólanum,
Fríkirkjuvegi 1.
Sérstakar þakkir til þeirra, sem önnuðust hana gegnum árin og
í veikindum hennar.
Halldóra Þorkelsdóttir,
Ingunn Þorkelsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar móður okkar,
SIGURBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hólmgarði 58,
Reykjavík.
Svanhildur Guðmundsdóttir,
Árni Guðmundsson,
Sigurður Guðmundsson,
Þórarinn Guðmundsson.
og fjölskyldur
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför
SÆMUNDAR JÓNSSONAR
frá Bessastöðum.
Mínerva Gísladóttir,
Erla Sigurjónsdóttir, Valdimar ingólfsson,
Jón Sæmundsson, Steinunn Jónsdóttir,
Soffía Sæmundsdóttir, Hafsteinn Lúðvíksson,
Sigurbjörg Sæmundsdóttir, Sverrir Haraldsson,
Oddný Sæmundsdóttir, Sveinn Runólfsson,
Sigríður Sæmundsdóttir, Ólafur Guðmundsson,
Gísli Sæmundsson, Snjólaug Kristinsdóttir,
Nanna Sæmundsdóttir, Stefán Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.