Morgunblaðið - 29.05.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1993
35
DYRALIF
Breskur ljósmyndari um borð
í japönsku hvalveiðiskipi
Mark Votier, ljósmyndari breska dagblaðsins
Today, fékk leyfi til að dveljast um borð í jap-
önsku hvalveiðiskipi í um það bil fimm mánuði og
birtust myndir hans ásamt grein eftir blaðamanninn
Barry Wigmore í blaðinu 12. maí sl. Greinin birtist
einmitt í þeirri viku sem fundur Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins stóð yfir.
Votier féllst á að kynna málstað Japananna til
hvalveiða gegn því að fá að mynda veiðarnar og held-
ur hann því fram, að hvaladráp sé ekki jafn grimmdar-
legt og verksmiðjuframleiðsla á nautgripum og kjúkl-
ingum. „En gagnvart flestum munu myndirnar tala
sínu máli,“ segir blaðamaðurinn Wigmore. „Og jafn-
vel Votier sem heldur því fram að eigi að leyfa hval-
veiðar aftur segir að vísindahvalveiðar Japana séu „að
sönnu frumstæðar“.“
Eorsíðan 12. maí sl. þar sem vísað er í greinina.
THt WORt-D TODAy
In the cold, cold waters of
í greininni er síðan sagt frá hvað gerðist á fyrstu
dögum á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins' og hversu
hvölum hafi fækkað frá síðustu aldamótum. Komið
er inn á hvort hvalveiðar falli undir vísindi eða ekki
og haft er eftir ljósmyndaranum, að „ekkert fari til
spillis. Peningar vegna kjötsölunnar fara beint í rann-
sóknir." Þá er haft eftir ljósmyndaranum, að hvalirn-
ir kveldust meira þegar þeir væru drepnir í vísinda-
skyni, því þá væri ekki skotið beint í höfuð þeirra.
Það væri greinilegt að skepurnar hefðu þjáðst.
CHARLES AND
•T
■ ■1
Myndin sem birtist af Björk Guðmundsdóttur í Vogue.
TONLIST
Debut Bjarkar
fær góða dóma
Ijúníhefti breska tímaritsins
Vogue kemur fram að sú tónlist
sem nú er að ná yfirhöndinni sé
óhefðbundin danstónlist þrátt fyrir
mikla uppsveiflu í hráu gítar-
kvennarokki. Tekin eru dæmi um
fimm söngkonur sem eru að slá í
gegn í Bretlandi og er Björk Guð-
mundsdóttir þar fremst í flokki.
Hinar eru Shara Nelson, Cath Cof-
fey, Sharon Lewis og Natasha Jo-
nes, en þær tvær síðarnefndu
mynda dúettinn Phooka.
Björk fær góða dóma fyrir sóló-
plötu sína Debut og haft er eftir
henni, að þessi plata hafi verið að
búa um sig í huga hennar undanfar-
in tólf ár. í greininni er þess enn-
fremur getið, að útgáfufyrirtækið
One Little Indian sjái mikla mögu-
leika í Björk.
Hún vann plötuna í samvinnu við
Nellee Hooper, sem áður starfaði
með hljómsveitinni Soul II Soul.
Að sögn blaðsins gerði Hooper
Björk kleift að nýta tæknina til
fullnustu, sem hún notfærði sér. í
greininni segir ennfremur, að Debut
sé ein af fremstu dansalbúmum
ársins.
Þess má geta að Björk, sem býr
í Bretlandi, er stödd hér á landi.
þessa helgi til að vinna að mynda-
tökum með tónlistarsjóvarpsstöð-
inni MTV.
með hvalveiðigreininni sem birtist í breska blaðinu Today.
SAMHELDNI
Á leið í frí
Þrátt fyrir ströng málaferli á undanförnum
mánuðum milli leikaranna Miu Farrow og
Woodys Allens hefur ekki slitnað upp úr sam-
bandi þeirra Woodys, sem er bamsfaðir Miu,
og Soon-Yi Previn, sem er stjúpdóttir Miu. En
það var einmitt vegna sambands þeirra sem
endanlega sauð upp úr milli Miu og Woodys.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Þau Woody
og Soon-Yi voru á leið í frí til New Orleans
fyrir stuttu.
Morgunblaðið/S.Ó.K.
Helga Þorsteinsdóttir oddviti færir alnöfnu sinni fegurð-
ardrottningunni blómakörfu í heiðurssamsætinu.
FEGURÐ
Hóf til heiðurs
fegurðardrottningu
Fegurðardrottning Suðurlands, Helga Þorsteinsdóttir frá
Hvolsvelli á alnöfnu þar í bæ, en sú er oddviti Hvol-
hrepps. Á dögunum færði Helga oddviti nöfnu sinni veglega
blómaskreytingu í kaffisamsæti sem hreppsnefndin hélt feg-
urðardrottningunni til heiðurs. Þess má einnig til gamans
geta að mágkona Helgu, Hanna Valdís Garðarsdóttir, var
kjörin fegurðardrottning Suðurlands i fyrra og báðar flytja
þær innan tíðar í nýbyggt fjölbýlishús á Hvolsvelli.
Morgunblaðið/pþ
UPPFRÆÐSLA
Hvaðan
koma blómin?
Solveig Lára Guðmundsdóttir
söknarprestur í Seltjarnames-
kirkju segir Davíð Jakobssyni frá
sköpun Guðs. Kannski verður Davíð
einn þeirra, sem fer í sumarbúðir
kirkjunnar i Heiðarskóla í sumar,
en þar eru meðal annars kennd
undirstöðuatriði kristinnar trúar,
farið á sveitabæi, smakkað á spen-
volgri nýmjólk og farið í leiki.
Hefst kl. 13.30____________________________________ \
Aðalvinninqur að verðmæti_______________________________ ?|
100 bús. kr. I!
-------------*---; .... ....... ..
Heildarverðmæti vinninqa um — TEMPLARAHOLLIN
—--------................... Eiríksgötu 5 — S. 20010