Morgunblaðið - 29.05.1993, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAI 1993
41
Skynsamlegasta ákvörð-
unin í hvalamálinu
Frá Rafni Geirdal:
ÞESSA daga, sem greinin er skrif-
uð, stendur yfír ársfundur Al-
þjóðahvalveiðiráðsins. Ljóst er að
enn er mikil andstaða gegn hval-
veiðum. Það er einnig ljóst að ríkis-
stjóm Bandaríkjanna hefur gefið
skýrt í skyn að þeir gætu mögu-
lega farið út í refsiaðgerðir ef við
færum út í hvalveiðar. Það gæti
eyðilagt okkar ímynd út á við og
hugsanlega okkar fiskmarkaði
einnig.
LEIÐRÉTTING
Gjafir Hringsins
í frétt á bls. 18 í Morgunblaðinu
í gær hefur fallið niður í setningu
kafli úr fréttatilkynningu. Þar átti
að segja frá því að á síðastliðnu
ári hafi Hringurinn gefið vöku-
deild Barnaspítala Hringsins 6
tölvumonotorsamstæður að and-
virði 8,2 milljónir króna og ferða-
gjörgæslutæki að upphæð 2,3
milljónir króna. Samtals er þetta
10,5 milljónir eins og fram kemur
í fyrirsögn fréttarinnar.
Hlaut ágætis-
einkunn
í frétt Morgunblaðsins í gær
af skólaslitum Menntaskólans í
Reykjavík féll niður nafn eins nem-
andans, sem hlaut ágætiseinkunn.
Það var nafn Sigfúsar Örvars Giz-
urarsonar, sem tók stúdentspróf
úr 6. bekk Y í eðlisfræðideild.
Hann hlaut aðaleinkunnina 9,00.
i
i
i
h
Læða í óskilum
Sagt var frá fundi svartrar læðu
með hvítar loppur og trýni i blaðinu
á föstudag. Þá vildi svo til að annað
símanúmerið í Kattholti, hvar læð-
una er að finna, misritaðist, en rétt
er númerið svo: 668281.
í ljósi þess hve brýnt er að við
sem þjóð tökum hyggilega aðstöðu
tel ég mikilvægt að við hugleiðum
þetta mál nánar. Ljóst er að við
erum að glíma við stórveldi, sem
getur með „litla fingri“ lagt efna-
hag okkar í rúst. Því tel ég hyggi-
legra að leita leiða sem geta þjón-
að þeim besta sameiginlega hag
sem hægt er að finna.
Aðrar tekjuleiðir
Ég tel að það sé þannig hyggi-
legt að finna aðrar tekjuleiðir af
hvalnum, sem geta veitt okkur
svipaðar tekjur og hvalveiðar
hefðu annars gert. Bandaríkin létu
frá sér yfirlýsingu á fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins í fyrra, þar sem
þeir bentu á eftirfarandi:
1. Allar auðlindir sjávar ætti að
vemda og nýta á sjálfbæran hátt,
hvort sem væri í úthöfum eða inn-
an efnahagslögsögu einstakra
ríkja;
2. Hins vegar eru sjávarspendýr
sérmál, og sjálfbær nýting hvala
þýðir ekki að nauðsynlegt sé að
veiða þá.
Síðan segja þeir áfram: „Við
trúum því að nýting hvala, sem
ekki felur í sér veiðar, svo sem
hvalaskoðun, sé eitt besta dæmið
um sjálfbæra nýtingu sjávarauð-
lindar. Bandaríkin benda Alþjóða-
hvalveiðiráðinu á stóraukið gildi
lifandi hvala. Hvalaskoðun, sem
skipulögð er um allan heim, veltir
meira en 300 milljónum dölum (um
18 milljörðum króna) árlega og á
síðasta ári tengdust um 4 milljón-
ir manna nýtingu hvala, sem ekki
tengdust veiðum.“
Hvalaskoðunarferðir
Ef við leggjum áherslu á að
afla tekna með því að auglýsa
hvalaskoðunarferðir er líklegt að
sú ákvörðun hljóti náð hjá Banda-
ríkjastjórn. Og með því einu erum
við sloppin fyrir horn. En síðan
má nýta þá miklu alþjóðlegu at-
hygli sem varpast á okkur Islend-
GÆDAFLISARAGOÐUVERÐI
□ r m rrm Sfil
p E •naiF?tr m IL (JL9
; h- m LL LE
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
FLÍSAR
í
tl
enaig^rniiiLLU
Vil
11 1 J.JJ-LI-L
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
FLÍSAR
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
Ljósm.stofan Nærmynd
HJÓNABAND. — Gefin voru sam-
an í hjónaband í Lágafellskirkju
þann 6. mars sl. af sr. Guðmundi
Þorsteinssyni, Aðalheiður Halldórs-
dóttir og Davíð Gunnarsson. Héim-
ili þeirra er í Skógargerði 2.
inga út af þessu máli til góðs og
þannig nýta hana inn í auglýsinga-
herferðina. Þannig getur meira en
verið að við náum inn á þennan
mikilvæga markað sem hvalaskoð-
unarferðir eru og við fáum meira
en nóg af ferðamönnum. Það má
einmitt nýta sömu hvalveiðiskipin,
af sömu starfsmönnum og í sömu
sjávarplássunum og áður til að
fara í þessar ferðir. Þannig koma
tekjur einmitt til þeirra sem þurfa
þeirra mest. Ég held að betri lausn
sé vart til í bráð!
Ég vil að lokum benda á að
Flugleiðir eru að taka þátt í til-
raunaferð í hvalaskoðun næsta
haust í samvinnu við breska ferða-
þjónsutu og hafa þeir sent mér
bréf þess efnis. Ég hef sent ríkis-
stjórninni bréf þess efnis, fyrst 6.
maí sl. og síðan 11. maí sl. Ég
hef sent sjávarútvegsráðherra um
4 bréf um þetta efni, Og sl. sumar
var birt grein efir mig í Morgun-
blaðinu, nefnd „Hvalavernd“. Ég
er sannfærður um að ef rétt er á
haldið geti þetta orðið góð tekju-
lind fyrir okkur. Um leið erum við
að taka mið af alþjóðlegum sjónar-
miðum. Að lokum erum við að
styrkja sjónarmið dýraverndar og
leyfum hvalnum að synda í friði
um heimshöfin, þar sem hann á
heima. Ég vona því að þetta mál
leiði til góðra lykta. Megi svo vera.
RAFN GEIRDAL,
Smiðshöfða 10,
Reykjavík.
Yeðurlýsing
mikilvæg
SKARPHÉÐINN Árnason hringdi
og vildi vegna umræðu um veður-
fregnir í útvarpi koma því á fram-
færi, að veðurlýsingar væru sér-
staklega mikilvægar fyrir sjó-
menn. Því ætti að lesa veðurlýs-
ingu á undan veðurfregnum og
veðurspá. Skarphéðinn sagði einn-
ig, að framhaldsspá í veðurfregna-
tíma Sjónvarpsins ætti að fylgja
kort með veðurörvum og líklegri
vindhæð.
Ljósmyndarinn Jóhannes Long
HJÓNABAND. — Gefín voru sam-
an í Bústaðakirkju þann 1. maí sl.
af sr. Pálma Matthíassyni, Jóhanna
Þorbjörnsdóttir og Kristinn Guð-
laugsson. Heimili þeirra er í Reykja-
vík.
—^
Trjáplöntur og runnar
Sértilboð á eftirtöldum tegundum: Gljámispill kr. 160,
alaskavíðir, brúnn og grænn, kr. 69, gljávíðir kr. 75, hansa-
rós kr. 390. 25% afsláttur af öllum sígrænum plöntum
svo sem furu og Himalayaeini ásamt mjög fjölbreyttu úr-
vali annarra tegunda á hagstæðu verði.
Trjáplöntusalan Núpum, Ölfusi,
beygt til hægri við Hveragerði. Opið 10-21 alla daga.
Gluggaþvottur
Vönduð vinna - Gerum tilboð
-
Langur laugardagur
Opið kl. 10-17
Við höldum upp á að í sumar verður lokað hjá okkur á
laugardögum. Þess vegna höldum við hátíð í dag; höf-
um opið lengur og bjóðum alls konar tilboð:
- Ef þú kaupir vagn eða kerru frá SIMO færðu í
kaupbæti úr og hlífðarplast yfir vagninn.
- Ef þú kaupir skiptitösku eða magapoka frá
BABY BJORN færðu 1000 kr. í afslátt.
- Ef þú kaupir barnabílstól (0-10 kg.) frá MAXI COSI
færðu poka eða höfuðpúða í hann á hálfvirði.
ALLT FYRIR BORNIN
Klapparstíg 27, sími 19910.