Morgunblaðið - 29.05.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1993
43-
SMAÞJOÐALEIKARNIR A MOLTU
Met bætt um tæpar 17 sek,
Jslenska sundliðið hélt uppteknum
hætti og var í sviðsljósinu í laug-
inni í gær. Hæst bar glæsilegt Is-
lands- og mótsmet
strákanna í 4x200
m skriðsundi, þar
sem þeir bættu ís-
landsmetið um
tæpar 17 sekúndur. íslands- og
mótsmeti stúlknanna í sömu grein
var einnig ákaft fagnað, en ekki
er orðum aukið að krakkarnir eigi
hug og hjörtu áhorfenda, en yfir-
Steinþór
Guöbjartsson
skrífar
frá Möltu
leitt eru um 3.000 til 3.500 manns
að fylgjast með.
Strákamir settu punktinn yfir
i-ið með frábæru sundi í síðustu
grein. Arnar Freyr náði strax for-
ystunni og fór á 57,67. Orð fyrr
um daginn þess efnis að metið yrði
slegið fengu þegar byr undir báða
vængi og eftir sprett Richards var
ljóst að það yrði að veruleika. Hörð-
ur jók enn við forystuna og Magnús
Már var ekki eftirbátur hinna.
Mótsmet Mónakó frá 1991 var
8.04,65 og íslandsmetið 8.13,34,
en strákamir syntu á 7.56,41.
Stelpumar höfðu llka talað um
að setja met og þær stóðu við það.
Bryndís byrjaði sem elding, Elín
bætti við, Ama Þórey lét sitt ekki
eftir iiggja og Helga sá um að Ijúka
dæminu.
Bryndís sigraði örugglega í 50 m
skriðsundinu og Birna Björnsdóttir
virtist á góðri leið með að sigra í
200 m bringusundi. Hún var fyrst
þar til um 40 metrar voru í mark,
en þá skaust stúlka frá Kýpur fram
úr. Birna var hins vegar aðfram-
komin og eftir að hafa náð öðm
sæti var hún dregin upp á bakkann
og borin inn í sjúkraherbergi. Hún
hafði fengið astmakast og gat ekki
tekið við verðlaununum, en Eydís
hljóp í skarðið. Bima, sem var frá-
bær í boðsundinu í fyrradag, var
þreytt og sögðu þjálfararnir að ryk-
ið í herbergi hennar og víðai- hefði
greinilega farið í hana, en þetta var
síðasta grein hennar.
URSLIT
Fylkir-Valur 2:1
Fylkisvöllur, íslandsmótið í knattspymu -
1. deild karla - föstud. 28. maí 1993. •
Aðstæður: Nokkur vindur og heldur kalt,
sól í síðari hálfleik, völlurinn leit vel út.
Mörk Fylkis: Kristinn Tómasson 2 (43.
og 78.).
Mark Vals: Kristinn Lárusson (51.).
Gult spjald: Steinar Adolfsson, Val (29.),
fyrir að handleika knöttinn.
Rautt spjald: Enginn.
Áhorfendur: 516.
Dómari: Ólafur Ragnarsson, stóð sig vel.
Línuverðir: Gylfi Orrason og Gfsli Jó-
hannsson.
Fylkir: Páll Guðmundsson - Helgi Bjarna-
son, Zoran Micovic, Gunnar Þ. Pétursson
- Aðalsteinn Víglundsson (Bergþór Ólafs-
son 77.), Finnur Kolbeinsson, Salih Porsa,
Baldur Bjamason (Björn Einarsson 46.),
Ásgeir Ásgeirsson - Þórhaltur Dan Jó-
hannsson, Kristinn Tómasson.
Valur: Bjarni Sigurðsson - Jón Grétar
Jónsson, Steinar Adolfsson, Sævar Jóns-
son, Jón S. Helgason - Þórður B. Bogason
(Sigurbjörn Harðarson 81.), Baldur
Bragason (Gunnlaugur Einarsson 70.),
Ágúst Gylfason, Hörður M. Magnússon -
Kristinn Lárusson, Anthony Karl Gregory.
Kristinn Tómasson, Fylki.
Helgi Bjamason, Finnur Kolbeinsson,
Gunnar Þ. Pétursson og Salih Porsa, Fylki.
Ágúst Gylfason, Jón S. Helgason, Steinar
Adolfsson og Kristinn Lárusson, Val.
1. deild kvenna
Þróttur N. - Stjarnan.............2:2
Sirrý Haraldsdóttir (57.), Jóhanna Guðjóns-
dóttir (60.) - Guðný Guðnadóttir (63.),
Harpa Hermannsdóttir (76.).
2. deild karla:
KA-Stjaman........................1:2
Pétur Oskarsson (20.) - Haukur Pálmason
(40.), Leifur Geir Hafsteinsson (68.).
3. deild karla:
Grótta-Magni......................1:1
Kristján Haraldsson - Hreinn Hringsson.
Haukar-Víðir......................1:1
Haraldur Haraldsson - Grétar Einarsson.
Völsungur - Dalvík................1:1
Róbert Skarphéðinsson - Örvar Eiríksson.
Selfoss - Rcynir S.................4:1
Valgeir Reynisson 2, Gísli Bjömsson 1,
Guðjón Þorvarðarson - Jónas Jónasson.
Skallagrímur - HK.................1:6
Þórhallur Jónsson - Zoran Ljubicic 4, Helgi
Kolviðsson 2.
4. deild karla:
Ármann - Hafnir...................2:1
Magnús Jónsson, Arnar Sigtryggsson -
Kári Guðmundsson.
Þrymur - Neisti...................1:1
Bjöm Sverrisson - Jón Þór Óskarsson
Ægir - Leiknir R..................1:1
Halldór Páll Kjartansson -
Hamar - Afturelding.....................0:3
2. deild kvenna:
FH - Fjölnir.......................1:0
Elín Ósk Guðmundsdóttir.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KARLA
Nýliðar Fylkis lögðu
bikarmeistarana
„ÞETTA var mjög mikilvægur
sigur. Strákarnir sjá að þeir
geta þetta og það er aðalatrið-
ið,“ sagði Magnús Jónatans-
son þjálfari Fylkis, eftir óvænt-
an sigur nýliðanna á bikar-
meisturum Vals, 2:1, á Fylkis-
vellinum ígærkvöldi. „Þeir
lögðu sig allir fram í minningu
um góðan félaga og léku eins
og hann hefði gert; af mikilli
baráttu," sagði Magnús, en
fyrir leikinn var Indriða Einars-
sonar minnst með einnar mfn-
útu þögn, en þessi fyrrum leik-
maður Fylkis lést í nóvember á
síðasta ári.
Valsmenn byrjuðu leikinn af
miklum krafti og áttu nokkur
góð færi. Fylkismenn komu meira
inn í leikinn er á leið
en fengu ekki um-
talsverð færi fyrr en
fyrsta markið kom á
43. mínútu.
Valsmenn mættu ákveðnir til
Tvær sóknir
-tvömörk
Stúlkurnar hjá Þrótti Nes. náðu
100% sóknamýtingu er þær
gerðu jafntefli, 2:2, gegn Stjömunni
á Neskaupstað í gærkvöldi. Fyrsta
sókn þeirra á 57 mín. bar árangur,
en þá skoraði Sirrý Haraldsdóttir með
góðu skoti af 20 m færi og þremur
mín. seinna bætti Jóhanna Guðjóns-
dóttir marki við, eftir aukaspyrnu -
2:0. Guðný Guðnadóttir skoraði fýrir
Stjörnuna, beint úr aukaspyrnu á 63.
mín. og á 76. mín. jafnaði Auður
Skúladóttir, 2:2.
Ágúst Blöndal, Neskaupstað
Stefán
Eiríksson
skrifar
Krlstlnn Tómasson.
leiks í síðari hálfleik eins og stund-
um er sagt, og jöfnuðu fljótlega.
Töluvert fjör færðist í leikinn eftir
jöfnunarmarkið og fengu bæði lið
ágæt færi. Finnur Kolbeinsson átti
gott skot að marki á 56. mínútu
sem Bjarni varði vel og Kristinn
Lámsson var nálægt því að skora
annað mark sitt fjórum mínútum
síðar, en Páll Guðmundsson í marki
Fylkis varði ágætan skalla hans.
Fylkismenn gerðu síðan sigurmark-
ið tólf mínútum fyrir leikslok og
voru nær því að bæta við þriðja
markinu en Valsmenn að jafna, er
Bjarni Sigurðsson varði frábært
skot Kristins Tómassonar á síðustu
mínútu leiksins.
Valsmenn voru betri í fyrri hálf-
leik en jafnræði var með liðunum í
þeim síðari. Kristinn Tómasson var
baneitraður í framlínu Fylkis, lék
vel og gerði tvö falleg mörk. Helgi
Bjamason og Gunnar Þ. Pétursson
léku einnig ágætlega, sem bakverð-
ir vinstra og hægra megin, og náðu
að halda kantmönnum Vals vel
niðri. Ágúst Gylfason var bestur
Valsmanna og Kristinn Lárusson
var frískur.
1B#%Salih Porsa lék upp hægri kantinn á 43. mínútu og gaf
■ %#einkar laglega.á Kristin Tómasson sem staddur var rétt
fyrir utan vítateig Valsmanna. Hann tók knöttinn niður, lék inn í teig
og skaut yfírveguðu skoti yfir Bjarna Sigurðsson og ( markið.
1m 4 Ágúst Gylfason tók homspyrnu frá vinstri á 51. mínútu
■ I og sendi knöttinn nánast inn í markteig, þar sem'Kristinn
Lánisson sneiddi hann í fjærhomið.
2a afl Sævar Jónsson tók útspark á 78. mínútu sem heppnaðist
■ | ekki betur en svo að knötturinn fór beint til Finns Kolbeins-
sonar sem staddur var á miðjum vallarhelming Vals. Hann lék í átt
að vítateig og skaut í Sævar Jónsson, knötturinn barst til Kristins
Tómassonar sem skaut fostu skoti frá vítateig að marki Vals og
hafnaði knötturinn neðst í hægra markhorninu án þess að Bjarni Sig-
urðsson kæmi við vörnum.
HANDBOLTI
Finnur aft-
uríVal
Finnur Jóhannsson, fyrrum
landsliðsmaður hjá Val, sém
lék með Þór á Akureyri sl. keppnis-
tímabil, hefur gengið á ný til liðs
við Val. Miklar líkur eru því -að
Þórsarar missi tvo aðra leikmenn -
þá Rúnar Sigtryggsson, langskyttu,
sem mun stunda nám í Reykjavík
í vetur og Árna Pál Aðalsteinsson,
sem er í íþróttakennaraskólanum
að Laugarvatni. Þessir þrír leik-
menn voru lykilmenn Þórsliðsins sl.
keppnistímabil.
BADMINTON
Tap í síð-
asta leik
Islenska iandsliðið í badminton varð
að sætta sig við að tapa fyrir
Tékkneska lýðveldinu 0:5, í úrslita-
leik 6. riðils á heimsmeistaramótinu
í Birmingham í gær. Þar með var
draumur íslands úti um að hækka
um styrkleikaflokk.
Leikimir gegn Tékkneska lýðveld^
inu voru ekki eins ójafnir og úrslitin
gefa til kynna. Tveir af fimm leikjum
fóru í oddalotu. Ámi Þór Hallgríms-
son og Guðrún Júlíusdóttir töpuðu
tvenndarleiknum, 15:8, 4:15 og
12:15. Bima Petersen tapaði 7:11 og
2:11 í einliðaleik kvenna.
Broddi tapaði 12:15, 15:10 og 9:15
í einliðaleik karla. Hann meiddist í
oddaleiknum á olnboga og gat því
ekki beitt sér að fullu. Hann gat
ekki leikið tvíliðaleikinn. Reiknað er
með að hann verði þó búinn að náf^
sér áður en einstaklingskeppnin hefst-
á sunnudag.
Birna og Guðrún töpuðu í tvíliða-
leik, 10:15 og 12:15 og Ámi Þór og
Þorsteinn Páll Hængsson töpuðu tvíl-
iðaleiknum, 16:17 og 6:15.
Tékkneska lýðveldið sigraði í riðl-
inum, vann alla þtjá leikina. ísland
hafnaði í öðm sæti_, vann tvo leiki,
Bandaríkin einn og Irland rak lestina
og féll um styrkleikaflokk en sæti íra
taka Svisslendingar.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÍA 2 2 0 0 6: 0 6
ÍBK 2 2 0 0 4: 2 6
VALUR 2 1 0 1 4: 3 3
KR 2 1 0 1 2: 1 3
FRAM 2 1 0 1 3: 3 3
FYLKIR 2 1 0 1 3: 3 3
ÞÓR 2 1 0 1 2: 3 3
VÍKINGUR 2 0 1 1 1: 3 1
FH 2 0 1 1 0: 5 1
ÍBV 2 0 0 2 2: 4 0
Stjarnan með fullt hús
Stjarnan gerði góða ferð norður
á Akureyri, þar sem Stjömu-
menn lögðu KA að velli, 1:2. Leifur
Geir Hafsteinsson skoraði sigur-
markið með skalla, eftir fyrirgjöf
frá Iraldi Kalubja.
Það voru KA-menn sem skoruðu
fyrsta mark leiksins - Pétur Ósk-
arsson af stuttu færi, en Haukur
Pálmason jafnaði fyrir Stjörnuna
fyrir leikshlé, með skoti af 20 m
færi - Haukur Bragason, mark-
vörður KA, náði að koma við knött-
inn, en missti hann yfír sig.
Leikurinn var lítt fyrir augað -
aðstæður voru ekki góðar, strekk-
ingsvindur og kuldi.
Reynir Eiríksson Akureyri
Knattspyrnufélagið Valur
Unglingaráð
Knattspyrnuþjálfari
Óskum að ráða þjálfara fyrir einn af kvennaflokkum
félagsins sem fyrst.
Upplýsingar gefur Helgi Kristjánsson í síma 623730 á
skrifstofu knattspyrnudeildar Vals að Hlíðarenda.
Unglingaráð knattspyrnudeildar Vals.
HANDKNATTLEIKUR
Héðinn í stjömulið
- sem leikur kveðjuleik Pólverjans Tluczynski hjá Fredenbeck
H
léðinn Gilsson hefur verið val-
inn í stjömulið leikmanna
þýsku úrvalsdeildarinnar í hand-
knattleik, sem leikur kveðjuleik
Pólverjans Zbigniew Tluczynski hjá
Fedenbeck, en hann er á förum til
Nettelstedt. Leikurinn verður í
Geestlandöllinni í Fredenbeck.
Héðinn hefur leikið vel með
Dusseldorf í vetur og er hann í
fímmta sæti yfir markahæstu menn
í úrvalsdeildinni - skoraði 179/44
mörk, en Andreas Dörhöfer hjá
Gummersbach varð markahæstur
með 212/82 mörk. Héðinn, sem er
talinn einn skotfastasti leikmaður-
inn í úrvalsdeildinni skoraði 135
mörk með langskotum og var í
fjórða sæti yfir langskyttur, en efst-
ur á blaði var Hvít-Rússinn
Tutschkin hjá Essen, sem skoraði
161 mark með langskotum, en
næstur kom gamla kempan Borc-
hard hjá Rostock með 151 mark.
Héðinn, sem skoraði 11 mörk í
leik gegn Rostock, var útnefndur í
lið vikunnar eftir leikinn.
Frjálsíliröttanámskeið
fyrir krakka á aldrinum 7—10 ára
7.-24. júní
Leiðbeinendur: Oddný Árnadóttir og Þorbjörg Jensdóttir.
Námskeiðið hefst mánudaginn 7. júní. Kennt verður 3
daga vikunnar; mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl.
14.00-16.00.
Námskeiðið verður haldið á Valbjarnarvelli, Laugardal (völl-
urinn ofan við aðalleikvanginn). Mót og grill á síðasta degi.
Námskeiðsgjald kr. 3.000,- greiðist á fyrstu æfingu. Skrán-
ing í síma 2 82 28 og 7 46 40 milli kl. 15.00 og 16.00, eða
á fyrstu æfingu. Ath. takmarkaður fjöidi þátttakenda.