Morgunblaðið - 08.06.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993
3
Sjópróf vegna sjúkraflugs á miðin
Vonast eftir breyt-
ingum á reglum
EIRÍKUR Ragnarsson afleysingaskipsljóri á frystitogaranum Haraldi
Kristjánssyni segist vonast eftir því að sjópróf vegna veikinda hans
leiði til breytinga á starfsreglum lækna eða annarra við ákvörðun um
það hvort farið sé í sjúkraflug eftir slösuðum eða veikum sjómanni.
Hann segir að túlka eigi allan vafa sjómanninum í vil.
í gær hófust sjópróf vegna veik- mörkuðum upplýsingum frá fólki á
inda Eiríks og ákvörðunar um að
senda þyrlur varnarliðs eftir honum.
Hann fékk innvortis blæðingar um
borð í Haraldi Kristjánssyni þar sem
hann var að veiðum langt suðvestur
af landinu fyrir mánuði. Læknar
töldu ekki ástæðu til að óska aðstoð-
ar þyrlusveitar varnariiðsins fyrr en
um sjö klukkutímum eftir að haft
var samband við þá og var Eiríkur
í lífshættu þegar komið var með
hann á Borgarspítalann.
í sjóprófunum kom fram hjá lækni
á Borgarspítalanum að hann telur
að læknir úr þyrlusveitinni sem ann-
aðist málið hafi tekið réttar ákvarð-
anir miðað við fyrirliggjandi upplýs-
ingar. Hann segir að þyrlulæknarnir
þurfi oft að byggja mat sitt á tak-
Yfir 200
kveikjur-
um stolið
ZlPPO-kveikjurum í hundraðatali
var stolið úr tóbaksbúðinni Björk
í Bankastræti aðfaranótt laugar-
dags. Einnig var stolið öllum
barmmerkjalager verslunarinn-
ar, en einungis nokkrum pökkum
af vindlingum. Unnið er að rann-
sókn málsins.
„Það er spennt upp hurðin og
lagst á eina vörutegund og hún
hreinlega hreinsuð út,“ sagði Sölvi
Óskarsson, eigandi verslunarinnar,
en úr henni hurfu á þriðja hundrað
Zippo-kveikjara að söluverðmæti um
hálf milljón króna.
Sölvi sagðist leitast við að hafa
góðan lager af hinum fjölmörgu
gerðum kveikjara sem boðið er upp
á frá Zippo. „Það eru allar skúffur
opnaðar hérna — eflaust í leit að
ávísanaheftum, fjármunum eða slíku
— nema hvað, að fyrir utan kveikjar-
ana hverfur eiginlega ekkert nema
ein skúffa af krossbarmmerkjunum
með nafni íslands og fleiri landa.“
Zippo í verðlaun
Sölvi sagði þjófinn eða þjófana
hafa gengið snyrtilega um og ekki
brotið nokkurn hlut, en peningakass-
inn tekinn hartnær í sundur í leit
að skiptimynt, sem aldrei er geymd
í búðinni. Sex silfraðir Zippo-kveikj-
arar í afmælisútgáfu bíða þess er
getur gefið vísbendingar sem leiða
til þess að megni þýfisins endur-
heimtist, að sögn Sölva.
-----♦ ♦ ♦-----
Keflavíkurvöllur
Viðræður
um varnir
hafnar
VIÐRÆÐUR íslenzkra og banda-
rískra stjórnvalda um framtíðar-
fyrirkomulag varnarviðbúnaðar
á Keflavíkurflugvelli hófust í
Reykjavík í gær.
Atta manna sendinefnd frá
Bandaríkjunum kom hingað í gær-
morgun og á viðræðunum að ljúka
í dag. Búizt er við að Bandaríkja-
menn setji fram hugmyndir um
verulegan niðurskurð á Keflavíkur-
flugvelli.
Bandaríska sendinefndin og ís-
lenzka utanríkisráðuneytið vildu
ekki tjá sig um viðræðurnar í gær.
vettvangi og bendir á að þeir séu
settir í ómögulega aðstöðu með því
að hafa ekki yfír að ráða björgunar-
þyrlu og þyrftu að reiða sig á útlent
herlið.
Sjá bls. ...: „Ómöguleg aðstaða
þyrlulækna.“
psii
IÉéSM
‘.-V- V
...
- i -
!; ^ ' '
V ■ ' _ /
• u'. -r-
■ »£ **?&*«&*
Kvaðst við
Eyjar
GAMLI Herjólfur var
kvaddur með viðhöfn þegar
hann hélt frá Vestmannaeyj-
um áleiðis til Gautaborgar í
Svíþjóð síðastliðið föstu-
dagskvöld. Meðal annars
fylgdi nýja Vestmannaeyja-
feijan honum austur fyrir
Eyjar, sigldi hring í kring
um hann á meðan skipsflaut-
ur voru þeyttar og skipin
kvöddust með fánakveðju.
Gamli Herjólfur er væntan-
legur til Gautaborgar i dag.
Þar verður hann afhentur
nýjum eigendum, sænska
hernum.
Morgunblaðið/Sigurgeir
'Áttaþúsundtvöhundruðogsextíu lítrar af bensíni!
Þú getur valið margar leiðir þegar kemur að því
að kaupa nýjan bfl. Ef þú fjárfestir í nýjum Skoda
Favorit fyrir aðeins 598.000, í stað þess að
kaupa evrópskan eða japanskan bíl í sam-
bærilegum stærðarflokki, sparar þú þér upp-
hæð sem dugar fyrir bensíni fram á næstu öld!
Ef þú hefur ekki þegar reiknað dæmið til enda
kíktu þá við hjá okkur og reynsluaktu Favorit
hlaðbak eða Forman langbak en þeir eru nú
framleiddir samkvæmt kröfum og stöðlum
þýskuVolkswagen samsteypunnar.sem tryggir
meiri gæði, aukið öryggi og betri endingu.
Nýr framhjóladrifinn Favorit LXi 5 dyra og S
gíra kostar aðeins kr 598.000.- á götuna, og
fæst í 9 spennandi og frískum litum.
Söludeild Jöfurs er opin
virka daga 9-18 og
laugardaga 12-16.
SKOLABOKARDÆMi UM HVAÐA
BÍL BORGAR SIG AÐ KAUPA!
NÝBÝLAVEGI 2
KÓPAVOGI
SÍNII: 42600
AFULIMFERÐI