Morgunblaðið - 08.06.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 08.06.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993 13 Listahátíð í Hafnarfirði sett. Morgunblaðið/Einar Falur Listahátíð í Hafnarfirði _________Tónlist Jón Ásgeirsson Fyrir nokkrum árum þótti í mikið ráðist, þegar stofnað var til Listahátíðar í Reykjavík. Kostnaður af slíku tilstandi fór í taugarnar á mörgum en í uppgjör- inu var helst blínt á beinan kostn- að, en aldrei í raun reiknað hver fjármunaumsvif tengjast öllu um- stanginu og koma samfélaginu á margan máta til góða. Nú er stofnað til listahátíða, eins og ekkert sé sjálfsagðara. Kirkju- listahátíð er nýlokið, með þátttöku frægra orgelsnillinga, er gagngert koma til að leika á nýja orgelið í Hallgrímskirkju. Innlendir og er- 'lendir kórar fluttu glæsileg tón- verk og þessu svöruðu áheyrendur með ágætri aðsókn og frábærum undirtektum. Listahátíð í Hafnarfirði var sett sl. föstudag, með mikilli viðhöfn í íþróttahöll Hafnarfjarðar í Kaplakrika. Eftir að formleg setn- ing hafði farið fram með ræðum Gunnars Gunnarssonar skóla- stjóra, formanns listahátíðarinn- ar, og ávarpi Guðmundar Árna Stefánssonar bæjarstjóra hófust tónleikar með léik Sinfóníuhljóm- sveitar íslands og öllum kórum bæjarins undir stjórn Petri Sak- ari. Einsöngvari var Sigrún Hjálmtýsdóttir ópersusöngkona. Á efnisskránni voru tvö verk, Gloria eftir Poulenc og Sinfónía nr. 1 eftir Brahms. Gloria er skemmtilegt og opin- skátt verk og var söngur kórsins, eða kóranna, í heild ágætur, þó oft mætti fínna nokkurt ósam- ræmi á milli radda. Bæði er það eðlilegt, þar sem tæplega hefur gefíst mikill tími til að samhæfa söng kóranna, og auk þess hefur mishljóman hússins og flatt sviðið einnig áhrif. Sigrún Hjálmtýsdótt- ir söng einsöng í Domine Deus og í Agnus Dei,*sem er megin ein- söngsþátturinn, og lauk verkinu á fallegri amen-tónlínu. Sigrún söng verkið af glæsibrag, einkum Agnus Dei og niðurlagið. Seinna verkið var fyrsta sinfón- ían eftir Brahms og var þetta glæsilega tónverk ágætlega flutt, undir stjórn Petri Sakari. Ekki var laust við að heyra mætti nokkra mishljóma á milli hljóðfærahópa, sem er að miklu leyti tilkomin vegna sviðsins, en segja má að aftari hljóðfæraleikararnir hafí leikið í „skugga" þeirra er fremst- ir sátu. Þrátt fýrir þetta og ýmsa smá framkvæmdahnökra, er ástæða til að óska Hafnfirðingum til hamingju með framtakið og þá ekki síður með aðsóknina, en íþróttahöllin var þéttsetin fólki og undirtektir mjög góðar, svo að ekki er annað að sjá en Hafnfírð- ingar kunni að meta framtak það, sem Sverrir Olafsson myndlistar- maður stóð upphaflega fyrir og bæjarstjórnin í Hafnarfírði studdi myndarlega. Fyrir þetta tiltæki mætti vel hugsa sér, að í framtíð- inni næði Hafnarfjörður því að vera miðstöð fijórrar listsköpunar í landinu. Og nægir að benda á, að Hafnarborg er orðin vinsæll tónleikastaður fyrir Stór-Reykja- víkursvæðið. Traustar ferðir í sérflokki ^Loí W0*"4 MV UUU46ÁR KR Fá\ð e\n\a\í meö Wapp' m\öa áöur en upp'aP ptýW 200.000 ' oretj.0 RA.iún' KINA „að hætti keisaranna‘ 10. sept. 3 vikur. Það besta í Kína, Hong Kong og Thailandi. Ferð í algjörum sérflokki. Fegurstu og sögufrægustu borgir Kína: KANTON, GUILIN, XÍAN, SHANGHAI, garðar og náttúrutöfrar HANGZHOU, BEIJING, HONG KONG og í lokin besti baðstaður THAILANDS. Ótrúlega hagstætt verð ef staðfest er fyrir 15. júní. Fáein sæti laus. Perlur Austurlanda 7. okt. 3 vikur. - ÞAÐ BESTA í MALAYSÍU OG THAILANDI í EINNI FERÐ - Örfá sæti laus. Hnattreisan — umhverfis iörðina /al 3. nóv. 30 dagar. 2 sæti laus v. forfálla. FERÐASKRIFSTOFAN H HEIMSKLUBBUR INGOLFS AUSTURSTR&TI 17,4. hsA 101 REYKJAVÍK-SÍMI 620400-FAX 626564 BMW 3 LINAN Fullkominn fjölskyldubíll TEKUR ÖÐfíUM FfíAM Á ÖLLUM SVIÐUM Verð á BMW-3 línunni er frá kr. 1.969.000,- (Bíll á mynd er búinn ýmsum aukabúnaði sem fáanlegur er í 3-línunni). BMW ráöleggur: Akiö varlega. Framleiðendur BMW hafa lagt mikla áherslu á rannsóknir og þróunarvinnu með hliösjón af hámarks öryggi og fullkomnustu tækni og hönnun á hverjum tíma. Með þessum áherslum og hugviti færustu sérfræðinga hefur með BMW-3 línunni tekist að framleiða fólksbíla sem marka brautir sem aðrir framleiðendur fylgja. Árangur f bílaframleiðslu felst f því að framleiða gæðabíla sem stöðugt vinna á og verða vinsælli með árunum. Raunveruleg gæði felast í lágri bilanatíðni, hámarks öryggi og þægilegum og ánægjulegum akstri við öll skilyrði. Bílar í BMW-3 línunni eru meðal annars búnir glæsilegri innréttingu, kraftmiklum vélum, samlæsingu með þjófavörn, lituðu gleri, rafdrifnum útispeglum, þjónustutölvu, hraðatengdu aflstýri, hæðarstillanlegum framljósum, 6 hátalara BMW hljómkerfi og Blaupunkt útvarpstæki með þjófavörn. Hægt er að velja um mikið úrval af öðrum búnaði. Söludeildin er opin alla virka daga BflaUITlboðÍð hf. Engum kl. 8-18 og á laugardögum kl. 13-17. Krókháisi 1, Reykjavík, sími 686633 líkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.