Morgunblaðið - 08.06.1993, Side 14

Morgunblaðið - 08.06.1993, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JUNI 1993 Að ávaxta vel sitt pund Úr skýrslu OECD um heilbrigðismál eftir Ólaf Ólafsson í skýrslu OECD sem nýlega barst til ráðuneytis heilbrigðismála kemur margt athyglisvert fram um þróun heilbrigðismála á Islandi. Erlend eft- irlitsstofnun hefur ekki áður gert úttekt á faglegum og efnahagslegum þáttum þessara mála og ber að þakka ráðherra fyrir þetta framtak. Áður hefur skýrslan verið kynnt í fjölmiðl- um en þar hafa einungis hagfræði- legir þættir verið lauslega ræddir. Hér verður þvf freistast til að gera heildamiðurstöðum skýrslunnar nokkur skil. Inngangur í skýrslunni er tekið fram „að ís- lendingar skari framúr öðrum OECD-ríkjum á sviði heilbrigðis- mála“. Rætt er um „að ísland hafi náð öfundsverðum árangri í heil- brigðismálum og að hér sé veitt betri heilbrigðisþjónusta en gerist miðað við önnur OECD-ríki“. Orsök þessa er talin vera vegna: 1. „Heilsusamlegs mataræðis og lífsstíls, meðal annars er áfeng- isneysla til muna minni en gerist í öðrum ríkjum OECD. Tóbaks- neysla er að vísu veruleg." 2. „Lítillar lyfjaneyslu, en meðal- neysla á lyfjum (average number of medicines) á einstakling á ári er 3,3 en 11,3 í öðrum OECD- löndum, sem að vísu gæti verið afleiðing góðs heilsufars." Að vísu neyti íslendingar meira af geð-, magasárs- og sýklalyfjum en aðr- ir en hlutfallslega vega þessir lyfjaflokkar Iítið miðað við heild- arlyfjatöku. Annað mál er að lyf- in eru dýr. 3. „Ágætrar menntunar og þjálf- unar heilbrigðisstarfsfólks.“ 4. „Heppilegrar forgangsröðunar varðandi heilsuvernd. T.d. voru íslendingar fyrstir til að hefja allsheijar skimun fyrir legháls- krabbameini og eru meðal leið- andi þjóða í skimun fyrir bijósta- krabbameini." Ekki er þó minnst á að á íslandi er rekin víðtækasta slysaskráning í Evrópu og á góð- ar slysavamir m.a. fyrir tilstilli slysádeildar Borgarspítalans, Slysavarnafélags íslands, Um- ferðarráðs og heilsugæslunnar. Vel heppnuðum aðgerðum gegnt farsóttum er sleppt. 5. Bent er á „umtalsverða lækkun á hjartadauða eftir 1970“. 6. Til frekari stuðnings er bent á „lágan ungbamadauða og ævilík- ur“. Þessi atriði eru tíunduð hér því að tími er til kominn að minna á ágætt starf heilbrigðisstarfsfólks en það gleymist gjaman í umræðu um heilbrigðismál. Framfarir í heilbrigð- isþjónustu eru að mestu til komnar fyrir árvekni, hugmyndaauðgi og óeigingjamt starf starfsmanna í heil- brigðisþjónustunni og áhugamanna- samtaka. Uppbygging heilsugæslu- stöðva og annarra sjúkrastofnana hefur einnig verið hröð. Vissulega hefur góður lífsstíll fólksins sitt að segja og má trúlega þakka það að verulegu leyti brautryðjandi starfí Náttúrulækningafélags íslands, Krabbameinsfélags Islands, Hjarta- vemdar o.fl. Á seinni stigum hefur hið opinbera tekið þátt og ber að þakka það. Fólk sem vinnur að heil- brigðismálum hefur því ávaxtað vel sitt pund, þ.e. nýtt, vel fjárveitingar, en ekki grafíð það í jörðu. Mannafli „Læknar eru hlutfallslega heldur fleiri en almennt gerist í OECD-lönd- um en fjöldinn er svipaður og á öðr- um Norðurlöndum. Fjöldi hjúkrunar- fræðinga er svipaður og annars stað- „Eftir margra áratuga starf hefur tekist að skipuleggja og þróa ís- lenska heilbrigðisþjón- ustu á þann veg að til fyrirmyndar er að mati erlendrar eftirlitsstofn- unar, sbr. nýlega skýrslu frá Alþjóðaheil- brigðismálastofnuninni í Kaupmannahöfn. Fyllsta ástæða er því til að flýta sér hægt ef teknar eru ákvarðanir um veigamiklar breyt- ingar á fyrirkomulagi þjónustunnar.“ ar á Norðurlöndum en fieiri en í mörgum OECD-ríkjum.“ Tekið er fram „að fjjöldi hjúkrunarfræðinga sé mikill á vissum sjúkrahúsum." I heild er þó faglært heilbrigðisstarfs- fólk hlutfallslega færra en annars staðar á Norðurlöndum (athugasemd landlæknis). Rúmafjöldi „Fjöldi rúma á deildaskiptum sjúkrahúsum er svipaður og í OECD- löndum, þ.e. 4,8/1.000 íbúa en 4,7/1.000 að meðaltali í OECD-ríkj- um. Meðallegutími er 6,3 dagar en meðaltal í OECD-ríkjum er 8,7 dag- ar. Rúmanýting er betri á Islandi, þ.e. 86% en 81% í OECD-ríkjum. Rúm á hjúkrunar- og öldrunarstofn- unum eru fleiri en gerist í OECD-ríkj- um og heimaþjónusta minni. Stjórn- arkostnaður er hlutfallslega ekki mikill." Laun „ísland er láglaunaiand miðað við nágrannalöndin.“ Sjá t.d. laun hjúkr- unarfræðinga á íslandi í samanburði við nágrannalöndin (mynd). Hlutfall launa heilbrigðisstétta, annarra en lækna, miðað við heildarlaun í land- inu, féll um 8% á árunum 1980- 1990 en þetta hlutfall jókst um 6% í öðrum OECD-löndum. Kostnaður Kostnaður við heilbrigðisþjónustu jókst hraðar á árunum 1986-1988 en í öðrum OECD-löndum en hefur farið lækkandi frá 1989. Árið 1991 reyndist kostnaðurinn vera 8,4% af þjóðarframleiðslu (meðaltal í OECD- ríkjum 7,8%). Umreiknað í „PPP- gildum nemur kostnaðurinn 1.391 dollar á íbúa og er ísland áttunda í röðinni að ofan meðal OECD-ríkja.“ Þegar tekið er tillit til rauntekna á íbúa sem vega þyngst í þessum út- reikningum, aldursstöðlunar, en verulegur kostnaður heilbrigðisþjón- ustunnar vegna hás hlutfalls 15 ára og yngri miðað við önnur OECD-lönd vegur upp tiltölulega lágt hlutfall 65 ára og eldri á íslandi og tiltölulega lítils atvinnuleysis, „eyðum við 4,2% minna til heilbrigðisþjónustunnar en OECD-ríki að meðaltali" (bls. 95). Það kemur fram að samkvæmt þess- um útreikningum hefur ísland minni kostnað vegna þjónustu við eldra fólk og atvinnuleysis en aðrar OECD- þjóðir. Talið er að heilbrigðiskostnað- ur aukist verulega eftir að atvinnu- leysi fer yfir 1,5%. Kostnaður er þó raunverulega lægri, því eins og endranær er í útreikningum OECD ekki tekið tillit til þess að yfirleitt er mun stærri hluti af kostnaði við öldrunarþjónustu færður á reikning heilbrigðisþjónustunnar á íslandi en í nágrannalöndunum. Þess í stað færa margar þjóðir þennan kostnað á félagsgeirann, reikning félags- málaráðuneytis. Gott dæmi um þessi áhrif er að nú fer heilbrigðiskostnað- ur ört lækkandi í Svíþjóð vegna þess Hagsmunahópar og baráttan um kvótann eftir Ingólf Arnarson Sú umræða sem átt hefur sér stað í blöðunum um kvótakerfið hefur í raun ekki snúist um hvort það sé slæmt eða gott, heldur hefur spum- ingin verið um hvemig deila eigi kökunni. Ef togara frá Vestflörðum væri úthlutaður meiri kvóti en hann gæri aflað, mundi hann haga sér sem á „sóknarmarki" væri vegna þess að tímagildið yrði allt að því óendanlega hátt. Ef allir hefðu alltaf haft meir en nægan kvóta væru hugtökin „sóknarmark" og „aflamark“ ekki til. Þetta sannaðist í Alaska þar sem umræðan um aflamark og sóknar- mark byrjaði ekki fyrr en ljóst var orðið að flotinn var orðinn nógu stór til þess að veiða leyfilegan ársafla á innan við 9 mánuðum. Það sem einkennir fiskveiðilöggjöf þjóða í Norður-Atlantshafl og Banda- ríkjunum er að þær endurspegla styrkleika hagsmunahópa á hveijum tíma. Þó að yfirlýstur tilgangur lög- gjafar sé að hámarka arðsemi sjávar- útvegs með þjóðarhagsmuni fyrir augum kemur oftast í ljós, ef grannt er skoðað, að megininntak löggjafar- innar er að einn eða fleiri hagsmuna- hópar hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir hvaða áhrif hinar ýmsu aðgerð- ir og Iagaákvæði munu hafa þegar þeim hefur verið hrint í framkvæmd og fram í sækir. Það hefur oft viljað brenna við að aðgerðir hafa haft allt önnur áhrif en til var ætlast. Gott dæmi um þetta er þegar laxveiðisjó- menn í Bandaríkjunum fengu stjóm- völd til þess að banna innflutning á norskum laxi af þeirri ástæðu að þeir töldu hættu á undirboðum og verðfalli. Norðmenn beindu þeim Iaxi sem að öllu jöfnu hefði farið á Banda- ríkjamarkað inn á Japansmarkað og olli þessi mikla framboðsaukning miklu verðfalli. Japansmarkaður er stærsti útflutningsmarkaður fyrir bandarískan lax og urðu bandarískir sjómenn fyrir töluverðri kjaraskerð- ingu af þessum sökum. Innflutnings- höftin sem áttu að vera til að halda uppi kjörum bandarískra sjómanna urðu þannig, þegar fram í sótti, til þess að tryggja að þeir yrðu fyrir kjaraskerðingu. Það eru ekki eingungis hagfræði- leg rök sem hagsmunahópar nota til þess að tryggja sér sinn hlut í kök- unni, heldur einnig „líf- og vistfræði- leg rök“ sem stundum eru byggð á hæpnum vísindalegum grundvelli. Þegar höfundur vann að verkefni fyrir sjávarútvegsráðuneytið í Alaska fékk hann fyrirspum frá starfsmönh- um ráðuneytisins um hvort hann kannaðist við, að vísindalegar rann- sóknir hefðu farið fram á afleiðingum þess að veiða fiskistofn á meðan á hrygningu stæði. Á þessu tímabili var að byija togstreita um kvótann á milli verksmiðjutogara og bátaflot- ans. Á hrygningartímanum veiddi togaraflotinn í Beringshaflnu Ala- skaufsa vegna hrognanna. Einn liður í skæruhernaði bátasjómanna var að fara fram á að þessar veiðar yrðu stöðvaðar þar sem þær væru skað- legar stofninum. Því miður hafði ég ekki umbeðnar upplýsingar en þóttist geta séð fyrir lyktir deilnanna í Al- aska á grundvelli þess sem átt hefði sér stað annars staðar í heiminum. í Noregi hrygnir þorskurinn við land- steinana og eru aðaluppeldisstöðv- amar til hafs. Þar þrengir bátaflotinn stöðugt að togaraflotanum á hinu pólitíska sviði með þeim rökum að þeir veiði smáfisk, leyfi flskinum ekki að vaxa. í Kanada hrygnir þorskurinn hins vegar til hafs og elst upp við strendurnar og þar þrengir bátaflotinn að togaraflotan- um með þeim rökum að þeir hindri fískinn í að hrygna. í báðum tilfellum var það fjöldi atkvæða sem réð úrslit- um, en bátasjómenn eru í báðum til- fellum þó nokkuð fleiri en togarasjó- menn. Það kom síðan á daginn að lyktir mála í Alaska urðu svipaðar og í Noregi og Kanada. Hér skal ekki lagður dómur á hvað er hagstætt eða óhagstætt í þessu sambandi, en kjami málsins er sá, að í þessum tilvikum var tekin ákvörðum um framtíðarskipan mála án þess að fram færi greining á því hvort hún væri til gæfu fyrir samfé- lagið eða ekki. Það er mikilvægt að þess sé gætt við samningu flskveiði- löggjafar, og þeirra reglugerða sem fylgja, að stundarhagsmunir séu ekki látnir ráða sem gætu sýnt sig að vera skaðlegir þegar til lengri tíma er litið. Niðurlag Það er ólíklegt að hagræðing muni breyta rekstraraðstöðu íslensks sjávarútvegs til hins betra að ein- hveiju marki í náinni framtíð. Það er ennfremur ólíklegt að rekstur fs- lenskra aðila í sjávarútvegi á er- lendri grundu muni færa íslenskum sjávarútvegi stóra sjóði. Með skynsamlegri fískveiðistjóm- un er hægt að stuðla að kostnaðar- lækkun og aukinni verðmætasköpun í sjávarútvegi og hefur það verið gert að hluta til með gildandi físk- veiðilöggjöf. Það er mikilvægt að rammi fískveiðilöggjafar sé röklegur og hindri ekki eðlilega þróun útvegs- ins þegar til lengri tíma er litið. Við gerð fískveiðilöggjafar er skilgrein- Ingólfur Arnarson Það er mikilvægt að þess sé gætt við samn- ingu fiskveiðilöggjafar, og þeirra reglugerða sem fylgja, að stundar- hagsmunir séu ekki látnir ráða sem gætu sýnt sig að vera skað- legir þegar til lengri tíma er litið ing á eignarrétti ein mikilvægasta forsendan. Réttlát skilgreining eign- arréttar er eitt af lykilatriðum vel- heppnaðrar fískveiðistjómunar. I næstu grein verður því byijað að flalla um eignarrétt, þar á meðal einokun, einokunarskatt (auðlinda- skatt) og stærð fiskiskipaflotans. Höfundur hefur undanfarin ár stundað rannsóknir ogkennsiu í sjávarútvegi við norska og bandaríska háskóla og er að Ijúkn við doktorsritgerð í hagfræði. Ólafur Ólafsson að þeir flytja verulegan kostnað við öldrunarþjónustu yfír á félagsgeir- ann. Ráðlagðar aðgerðir Lokið er lofsyrði á aðgerðir heil- brigðisyfírvalda á lyfjamálum og á ýmsar hagræðingaraðgerðir, s.s. fækkun bráðavakta sjúkrahúsa í Reykjavík. Bent er á nauðsyn áfram- haldandi hagræðingaraðgerða. Talin eru upp eftirtalin atriði: 1. „Hagræðing í öldrunarþjónustu, þ.e. að auka heimaaðstoð til muna.“ 2. „Efling utanspítaiaþjónustu og hagræðingu í sjúkrahúsþjón- ustu.“ Þetta eru aðgerðir sem hafa verið til umræðu lengi og þegar farnar að skila árangri. Eftirfarandi atriði vega trúlega þyngst í því efni (athugasemd landlæknis): a) Meðferðarbylting á sjúkrahús- um, en ný tækni og lyfjameðferð hafa valdið því að sjúkrahúslegur vegna algengra sjúkdóma, t.d. gall-, nýrnasteina-, blöðruhál- skirtils- og hjartasjúkdóma, hafa styst verulega á undanförnum árum. Magasársaðgerðir hafa næstum lagst af vegna lyfjameð- ferðar o.fl. b) Utanspítalaaðgerðir varðandi Grænir dagar í Kópavogi TRJÁRÆKT hefur aukist gífur- lega undanfarin ár í landi Kópa- vogs. Á sumrin hefur Vinnu- skóli Kópavogs í samstarfi við Skógræktarfélag Kópavogs gróðursett um 60 þúsund tré á sumri og í sumar heldur það starf áfram. Dagana 7. til 13. júní er ætlun- in að fegra bæjarlandið, í sam- starfi við bæjarbúa, með tijárækt- arátaki sem gengur undir nafninu „Grænir dagar“. Framkvæmda- deild, bæjarskipulag og umhverfis- ráð hafa haft með þessa skipulagn- ingu að gera enda mikil vinna far- ið í að finna hentug svæði í hverf- um bæjarins til niðursetningu tijáa. Til að hinir „grænu dagar“ heppnist sem best er mjög mikil- vægt að Kópavogsbúar fjölmenni til tijáræktarsvæða næst heimili sínum og leggi hönd á plóginn. Dreift hefur verið upplýsingum um „grænu dagana“ á hvert heim- ili í Kópavogi þar sem bæjarbúar geta séð hvenær gróðursetning fer fram nálægt sínu heimili. Fjölmörg félög og klúbbar hafa komið til samstarfs við bæjaryfir- völd í þessu sambandi og á meðan á „grænu dögunum" stendur eru þeim Kópavogsbúum sem hyggjast auka gróðursæld í sínum einka- görðum bent á að gróðrastöðin Birkihlíð á Dalvegi 32 og í Birki- grund 1B bjóða 20% afslátt af öll- um tijám. Nánari upplýsingar veit- ir Jón Kristinn Snæhólm, verkefn- isstjóri „grænu daganna". (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.