Morgunblaðið - 08.06.1993, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993
Það var þétt rokk í Tunglinu þetta kvöld.
Áheyrendur virtust vel kunna að meta til-
burði Sólarinnar og Iétu ljósmyndara Morg-
unblaðsins ekki trufla sig.
TONLIST
SSSól á útgáfutónleikum
okksveitin
SSSól hélt tón-
leika í Tunglinu
síðastliðið fimmtu-
dagskvöld til þess
að kynna nýjustu
afurð sína. Platan,
sem ber nafn skap-
ara sinna, inniheld-
ur bæði nýtt og
eldra efni. Meðal
nýrra laga má
nefna dúett þeirra
Helga Björssonar
og Ingibjargar Stef-
ánsdóttur. Þó svo
að platan sé nýút-
komin hefur lagið
Háspenna/lífs-
hætta þegar náð
töluverðum vin-
sældum Og klífur Morgunblaðið/Einar Falur
nú listana Sólin Meðal áheyrenda mátti sjá Pelíkanana Guðmund Jónsson og Daníel Ágúst
hefur fengíð liðs- Haraldsson í Ný danskri.
styrk fyrir sumarið: Atli Örvars- var mál manna sem sóttu tónleik- sveitarmenn leyft sér að keyra
son, fyrrum hljómborðsleikari Sál- ana að Sólin væri í fínu formi og lögin af krafti. SSSól verður á
arinnar, hefur gengið til liðs við það væri greinilegt að hún væri ferð um landið í allt sumar og
sveitina og var ekki annað að sjá búin að vinna heimavinnuna sína. voru tónleikarnir í Tunglinu fyrsti
en leikur hans félli vel inní. Það Spilamennskan var góð og gátu liðurinn í sumardagskránni.
TÓNLIST
Boy
George
rýfur
þöguina
að hefur verið hljótt um popp-
söngvarann Boy George síðast-
liðin sjö ár. Ástæðan? Of mikil víma
og of litlar vinsældir segja þeir sem
til þekkja. En nú eru liðin sex ár frá
því að söngvarinn skipti um matar-
æði og heróínið fékk að vikja fyrir
grænmetinu. „Þetta er liðin tíð fyrir
mig,“ segir Boy George, „vímuefnin
ber nú aðeins á góma í viðtölum. Það
er eins og fólk vilji finna hjá mér
eftirsjá." Boy George er ekki á þeim
buxunum. Hann segir að heróínið sé
frábær felustaður og hann hafi neytt
eiturlyfja vegna þess að hann naut
þess. „Ég hef alltaf verið öfgamað-
ur,“ segir söngvarinn, „ég verð að
vera í sviðsljósinu — alltaf.“ Það er
alrei að vita nema söngvaranum verði
að ósk sinni því nýjasta lag hans,
Crying Game, hefur sést víða á vin-
sældalistum.
Nú er hann drottning. Boy
George hefur stigið síðasta
skrefið úr skápnum.
í stað þess að látast vera tvíkyn-
hneigður hefur Boy George nú alfar-
ið snúið sér að karlpeningnum. „Ég
er drottning," segir hann og brosir.
Boy George hefur gerst trúaður mjög
í seinni tíð og aðhyllist kenningar
Hare Krishna safnaðarins. En hann
er ekki fullgildur meðlimur og að-
spurður svarar hann: „Stærsti þrö-
skuldurinn er samkynhneigðin. Hare
Krishna viðurkennir hana ekki.“
MÁLAFERLI
Stewart stefnir
eldabuskunni
Rod Stewart hefur þungar áhyggjur vegna
skrifa eldabuskunnar um drykkjusiði hans
og kynlíf.
Carole Bodman var
atvinnulaus þegar
hún datt í lukkupottinn
og fékk vinnu hjá rokk-
söngvaranum Rod
Stewart og þáverandi
unnustu hans Kelly
Emberg. Bodman átti
að skúra gólfin og sjá
um matseld á heimili
þeirra í Beverly Hills.
Laun hennar voru fæði
og ókeypis húsnæði
ásamt bifreið til eigin
afnota. í þakkarskyni
hefur hún skrifað bók
um „líf sitt með Rod
Stewart" þar sem hún
segir frá drykkju- og
kynlífsvenjum söngvar-
ans sem fólu víst ekki
alltaf í sér þátttöku
sambýliskonu hans.Bókin geymir
einnig nokkrar myndir og þar á
meðal er mynd af poppgoðinu þar
sem hann kemur fram án fata
umkringdur rósum og fjöðrum.
Carole segist hafa tekið myndimar
sjálf en Rod vænir hana um lygar
og sakar hana um að hafa stolið
þeim úr einkasafni sínu. Rod Stew-
art er allt annað en hress þessa
dagana og kallar eldabuskuna
sníkjudýr í ákæruskjali sínu þar sem
farið er fram á skaðabætur upp á
litlar 2.200 milljónir króna.
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543 3700 0007 3075
4548 9000 0042 4962
4548 9018 0002 1040
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4506 43** 4507 46**
4543 17** 4560 08**
4560 09** 4920 07**
4938 06** 4988 31**
4506 21‘*
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Hörkustuð á ballinu í efri farþegasalnum í Herjólfi.
Ásta María, Sigurður Friðrik og Eðvarð höfðu nóg að gera í eldhús-
inu.
VESTMANNAEYJAR
Afgreiðsliiiólk vinsamlegast takið ofangreind
kort úr umferð og sendið VISA islandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir aö klófesta kort og vísa á vágest.
Höföabakka 9 • 112 Reykjavík
Sími 91-671700
Dansinn stiginn um borð 1 Herjólfi
Ilok Landsþings Landsbjargar, sem fór fram í Eyjum fyrir skömmu, var
haldið veglegt lokahóf með borðhaldi og síðar dansi. Hófið var haldið
um borð í Herjólfi við Básaskersbryggju og létu Landsbjargarmenn vel
af notagildi Herjólfs fyrir skemmtunina.
Borðhaldið fór fram í stærri farþegasal skipsins. Þar snæddu 150
manns kvöldverð meðan harmoniku- og gítarleikari gengu um salinn og
fluttu ljúfa tóna. Að borðhaldi loknu var stiginn dans í efri farþegasalnum
þar sem hljómsveitin Eymenn lék fyrir dansinum. Gestum á lokahófinu
þótti skemmtileg nýbreytni að sitja slíka veislu um borð í skipi, þó það
lægi bundið við bryggju, og höfðu margir á orði að skipið væri kjörinn
staður fyrir slík samkvæmi.
Grímur