Morgunblaðið - 24.07.1993, Blaðsíða 1
48 SIÐURB
STOFNAÐ 1913
164. tbl. 81. árg.
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þingið sneiðir að
mönnum Jeltsíns
Sjúmeiko sakaður um að hafa misnot-
að opinbert fé og braskað með íbúðir
Reuter
Stiklað á vísundum á flóðasvæðum í Indlandi
GÍFURLEG flóð hafa verið í Indlandi, Bangladesh og Nepal í vikunni af völdum monsúnvinda. Vitað er um
a.m.k. 1.200 manns sem hafa drukknað en óttast var í gær að talan ætti eftir að hækka því miklu fleiri er
saknað. Akurlendi hefur eyðilagst á stórum svæðum og rúmlega milljón manns hefur misst heimili sín af
völdum flóða eða skriðufalla. Myndin var tekin í ríkinu Haryana í norðurhluta Indlands og sýnir unga menn
reyna að komast yfir fljót með því að stikla á baki vísunda.
Moskva. Reuter.
RÚSSNESKA þingið samþykkti í gær að efna til rannsóknar
á meintri misnotkun Vladímírs Sjúmeiko, aðstoðarforsætis-
ráðherra Rússlands, á opinberu fé, en hann er einn nánasti
samstarfsmaður Borísar Jeltsíns, forseta landsins. Þingið, sem
lýtur meirihluta harðlínumanna, óskaði einnig eftir að Viktor
Jernín, innanríkisráðherra, yrði vikið úr embætti vegna átaka
lögreglu við mótmælendur þann 1. maí. Jeltsín sakaði þingið
aftur á móti um að reyna að grafa undan lýðræðisþróuninni
og um valdagræðgi.
Undanfama viku hefur þingið
ítrekað ögrað Jeltsín og umbóta-
stefnu hans, meðal annars sam-
þykkt Qárlög með miklum halla
og unnið gegn stefnu hans um
erlenda banka, ásamt því að reyna
að klekkja á nánum samstarfs-
mönnum. Sagðist Jeltsín myndu
hundsa samþykktir þess í gær Að
sögn /nteríax-fréttastofunnar er
mikil spenna í Moskvu um þessar
mundir.
í yfírlýsingu varaði Jeltsín við
því að þessar árásir líktust undir-
búningi harðlínuaflanna til þess að
ná vöídum í Rússlandi. Forsetinn
hefur verið í sumarleyfí skammt
frá Novgorod í norðvesturhluta
Rússlands frá 13. júlí. Talsmaður
hans sagði forsetann íhuga að snúa
aftur tii Moskvu vegna aðgerða
þingsins, en hlé var gert á störfum
þess í gær vegna sumarleyfis þing-
manna.
Sjúmeiko neitar ásökununum og
segir talsmaður hans samþykktina
minna á hreinsanir Stalíns á fjórða
áratugnum.
Á Sjúmeiko að hafa flutt 14
milljónir dollara, eða einn milljarð
króna, á reikning svissnesks fyrir-
tækis og að hafa tekið þátt í íbúða-
braski í Mónakó.
Þann 1. maí lenti lögreglan í
Moskvu í átökum við þjóðernis-
sinna og kommúnista með þeim
afleiðingum að 600 slösuðust og
einn lögreglumaður lét lífíð. Segja
harðlínumenn lögreglu hafa átt
upptökin og vilja draga Jemín til
ábyrgðar.
Breska stjórnin fékk traustsyfirlýsiugu samþykkta á þingi
Kosningahótun Majors
fleytti Maastricht í gegn
25 götubörn
myrtí Ríó
Rio de Janeiro. Reuter.
DAUÐASVEITIR myrtu allt að
25 svonefnd götubörn í Rio de
Janeiro í fyrrinótt, að sögn
fréttastöðvarinnar Estado.
Hafði fréttastofan eftir Ivone
Mello, sem kunn er fyrir aðstoð
við börn sem búa á götum borg-
arinnar, að morðin hafi átt sér
stað víða í borginni.
Talsmaður Leonels Brizola
borgarstjóra sagði að embættið
gæti engu svarað ásökunum Mello
þar sem engar upplýsingar um
meint bamamorð lægju fyrir.
Ynni herlögreglan að rannsókn
málsins.
Að sögn Estado sluppu nokkur
börn í miðborginni lifandi er
dauðasveitimar iétu til skarar
skríða að næturlagi. Sum þeirra
héldu því fram að herlögreglu-
menn hefðu verið að verki. Tals-
maður herlögreglunnar, Abilio
Faria Pinto, sagði hins vegar að
ekki væri vitað hveijir bæru
ábyrgð á morðunum.
Faria upplýsti að fjórir menn
hefðu myrt átta börn í miðborg
Rio í gærmorgun. Sex þeirra vom
skotin við Candelaria-kirkjuna,
frægustu kirkju borgarinnar.
Gráta félaga
GÖTUBÖRN í Rio de Janeiro grátandi við lík eins félaga sinna
sem dauðasveitir myrtu í fjármálahverfi borgarinnar í fyrrinótt.
London. The Daily Telegraph, Reuter.
NÆR 15 mánaða langri baráttu Johns Majors, forsætisráð-
herra Bretlands, fyrir því að fá Maastricht-samkomulagið
samþykkt í þinginu lauk í gær með sigri ráðherrans. Hann
lagði líf stjórnarinnar að veði er greidd voru atkvæði um
tvær tillögur, annars vegar breytingatillögu frá Verka-
mannaflokknum er vill samþykkja félagsmálaákvæði
Maastricht, hins vegar stjórnartillögu er tryggði staðfest-
ingu á samningnum. I fyrri atkvæðagreiðslunni féllu at-
kvæði 339-301, stjóminni í vil, í þeirri síðari 339-299.
í fyrradag tapaði stjórnin er
kosið var um Maastricht-tillöguna
þar eð hópur íhaldsmanna hljópst
undan merkjum. íhaldsmenn hafa
verið við stjórnvöl í Bretlandi í
samfellt 14 ár og hafa ekki farið
fram á traustsyfirlýsingu á þingi
öll árin fyrr en nú. John Smith,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
sagði Major hafa stillt flokksmönn-
um sínum upp við vegg með því
að hótaþeim „kosninga-sjálfsvígi".
„Mér kæmi síst af öllu til hugar
að láta þá sem sitja þarna á móti
mér stjóma málefnum þessarar
þjóðar," sagði BiII Cash, einn skel-
eggasti andstæðingur Maastricht
í þingliði Ihaldsflokksins. Hann
greiddi atkvæði með stjórninni eins
og aðrir uppreisnarmenn í liði
flokksins enda sagðist Major
myndu efna til nýrra þingkosninga
ef stjórnin yrði undir. Skoðana-
kannanir gefa til kynna að staða
íhaldsflokksins meðal kjósenda sé
með versta móti um þessar mund-
ir. Bæði Verkamannaflokkurinn og
Frjálslyndir demókratar eru með
meira fylgi og íhaldsflokkurinn
hefur tapað hveijum aukakosning-
unum á fætur öðrum, einnig í kjör-
dæmum sem talin hafa verið mjög
traust vígi flokksins.
Óvissa þrátt fyrir allt
Höfðað hefur verið mál í Bret-
landi til að fá Maastricht-samn-
ingnum hnekkt á þeirri forsendu
að afgreiðsla hans stríði gegn
bresku stjórnarskránni og geta Iið-
ið nokkrar vikur, jafnvel mánuðir,
þar til úrskurður fæst. Þar að auki
er enn ekki ljóst hvort stjórnlaga-
dómstóll í Þýskalandi telur hann
vera í samræmi við þýsku stjórnar-
skrána. Klaus Kinkel, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, óskaði
starfsbróður sínum í Bretlandi,
Douglas Hurd, til hamingju með
niðurstöðuna og sagði Breta með
þessu hafa þokað evrópsku sam-
starfí verulega fram á við.
Sjá „Urslitakosti þurfti gegn
uppreisnarliði ... “ á bls. 18.