Morgunblaðið - 24.07.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
Suðurnes
83 millj-
ónumkr.
úthlutað
TÍU FYRIRTÆKI og einstakl-
ingar hafa fengið vilyrði frá
Eignarhaldsfélagi Suðumesja
og Hitaveitu Suðurnesja um
fjárframlög, ætluðum til at-
vinnuuppbyggingar á Suður-
nesjum, að upphæð 83 milljón-
ir króna. Átta umsóknum hef-
ur þegar verið hafnað en níu
verða teknar til frekari skoð-
unar.
í fréttatilkynningu frá Eignar-
haldsfélaginu og Hitaveitunni
kemúr fram að ekki þyki rétt að
svo stöddu að upplýsa hvernig
heildarupphæð þessarar úthlutun-
ar sé skipt milli umsækjenda. Það
komi til vegna þess að enn eigi
eftir að ræða við umsækjendur um
ýmis skilyrði, sem uppfylla þurfi
vegna fyrirgreiðslnanna.
Tvö fyrirtæki, ísaland hf. og
Stakksfjörður hf., fengu vilyrði um
fyrirgreiðslu í því skyni að fram-
leiða físk til útflutnings og Víðir
hf. hlaut vilyrði til framleiðslu fisk-
rétta. Þá fékk Skúli Guðbjömsson
vilyrði vegna sandhverfueldis.
Ventus hf. fékk loforð vegna
framleiðslu á skútum, Léttsteypan
hf. vegna framleiðslu á hellum og
íslenska saltfélagið til framleiðslu
á heilsusalti. Þá fékk Heilsufélagið
við Bláa lónið vilyrði um fyrir-
greiðslu til eflingar ferðamanna-
iðnaðar á Suðumesjum. Loks vom
loforð gefin vegna polyolgerðar
og vegna kaupa á efnagerð.
SLÖKKVILIÐIÐ i Reykjavík var kallað út að bílskúr í Vesturbergi síðdegis í gær. Þegar slökkviliðið kom á
staðinn var töluverður eldur laus í bflskúrnum enda eldfím efni geymd þar og er bílskúrinn nær ónýtur eftir
eldsvoðann. Talið er að kviknað hafi í út frá neistaflugi frá smergli sem verið var að vinna með í skúmum.
Bílskúr brann
Stefnt að jöfnun verðtryggingarhalla bankanna
Heímílt að verð-
Verðbreytingar
v. gengisiækkunarínnar
Colgate
tannkrem, 75 ml
Verðið Vferðið hækkar
varkr. er nú kr. um
185,- 197,- 6,5%
trvggja 2ja ára lán
BÖNKUM og sparisjóðum er nú heimilt að verðtryggja lán til tveggja
ára og lengri tíma, en áður var lágmarkslánstími verðtryggðra lána
þijú ár. Um næstu áramót verður síðan viðmiðunartími við verðtrygg-
ingu innlána lengdur úr sex mánuðum í tólf. Seðlabankinn gaf út
reglur þessa efnis í síðasta mánuði og er nú stefnt markvisst að því
að innlánsstofnanir jafni þann mismun sem verið hefur á verðtryggð-
um inn- og útlánum.
6,5% hækkun
á tannkremi
TANNKREM hefur m.a. hækkað
vegna gengisfellingarinnar. Sem
dæmi um þá hækkun kostaði t.d.
75 ml túba af Colgate-tannkremi
áður 185 krónur en kostar nú 197
krónur. Það er um 6,5% hækkun.
Bankamir hafa haft mun stærri
hluta innlána sinna verðtryggðan
en nemur verðtryggðum útlánum.
Þetta hefur verið nefndur verð-
tryggingarhalli og í bankakerfinu í
heild var hann 25-30 milljarðar kr.
um síðustu áramót, að sögn Eiríks
Guðnasonar, aðstoðarbankastjóra
Seðlabanka íslands. Þessi munur
hefur valdið bönkunum miklum erf-
iðleikum þegar verðbólgan hefur
aukist skyndilega.
Seðlabankinn hefur hvatt bank-
ana til að jafna þennan halla sem
mest en það hefur ekki dugað, að
sögn Eiríks, enda hefðu stjórnvöld
í dag
ívan grimmi
Nýjar upplýsingar benda til aðJohn
Demjanuk sé ekki ívan grimmi 18
Vædderen í Reykjavík___________
Danska varðskipið Vædderen kom
til Reykjavíkur til að taka þátt í
Hafnardegi 20-21
Risœðluæði_____________________
Kvikmyndin „Jurassic Park“ fær
mjög góðar viðtökum í Bandaríkj-
unum og leiðir afsér risaeðluæði 31
Leiðari________________________
Verðhækkanir 20
tviæringurinn
í I eneyjum
Menning/Listir
► -Myndlist í Evrópu - Bonn-
hátíðin gerð upp - Gullflauta
Áshildar - Kolbrún Halldórs-
dóttir - Galdrabók Ellu Stínu
- Píanóieikur í Siguijónssafni
gert þeim erfitt fyrir með því að
lengja lágmarkstíma verðtryggðra
útlána en ekki innlána. Því var regl-
unum breytt eins og fram kemur
hér í upphafí. Hann sagði að það
tæki langan tíma að jafna þennan
halla og verðbólgubreytingar hefðu
því áfram áhrif á afkomu bankanna.
Reglulegt eftirlit
Eiríkur benti jafnframt á að í
reglunum væri bönkunum gert að
stefna að sem mestum jöfnuði í
verðtryggðum eignum og skuldum.
Sagði hann að Seðlabankinn myndi
fylgjast reglulega með þessu atriði
hjá einstökum stofnunum.
Morgunblaðið/Þorkell
Turnspíran böðuð
í VIKUNNI hefur verið unnið við
að baða turnspíru Hallgrímskirkju
með efninu sílani, sem úðað er á
kirkjuna og kemur í veg fyrir að
vatn sogist inn í steypuna og eyði-
leggi hana. Örn Steinar Sigurðsson
verkfræðingur segir aðgerðina fyr-
irbyggjandi og verði hún endurtekin
reglulega en spíran hafi fyrst feng-
ið þessa meðferð eftir viðgerð árið
1989.
Islandsmótið í
hestaíþróttum
Sigurbjöm
efstur í
fimmgangi
SIGURBJÖRN Bárðarson á Vídal-
ín frá Sauðárkróki hlaut flest stig,
61,80, í forkeppni fimmgangs á
öðrum degi íslandsmótsins á Ak-
ureyri í gær. Næstur honum varð
Egill Þórarinsson á Kolu frá Sig-
ríðarstöðum með 60,30 stig.
Þriðji varð Eyjólfur ísólfsson á
Dropa frá Hólum og Baldvin Ari
Guðlaugsson á Hoffu frá Litla-Dal
fjórði.
í forkeppni fimmgangs-ungmenna
stóð efstur Gísli Geir Gylfason á
Koli frá Stóra-Hofi með 49,80 og
Ragnar E. Ágústsson stóð efstur
unglinga á Þey frá Akranesi. í fjór-
gangi ungmenna varð efstur Sigurð-
ur Vignir Matthíassson á Þráni frá
Gunnarsholti, í unglingaflokki varð
efst Sigríður Pjetursdóttir á Skag-
fjörð frá Þverá og í fjórgangi barna
varð efst Bergþóra Sigtryggsdóttir á
Jónasi frá Bakka.
Flugvirkj-
ar aflélta
ekki yfir-
vinnubanni
STJÓRN og trúnaðarmanna-
ráð flugvirkja ákvað á fundi
sínum í gærkvöldi að aflétta
ekki yfirvinnubanni flug-
virkja þrátt fyrir að drög að
samkomulagi til lausnar deil-
unni lægju fyrir. Boðað verð-
ur til félagsfundar hjá flug-
virkjum á þriðjudag og þar
verður samkomulagið lagt
fyrir til höfnunar eða sam-
þykktar. Isleifur Gíslason rit-
ari félagsins segir að verði
samkomulagið samþykkt á
félagsfundinum muni yfir-
vinnubanninu verða aflétt.
í samkomulagsdrögum þeim
sem kynnt voru á fundinum í
gærkvöldi var ekki gert ráð
fyrir beinum launahækkunum
til flugvirkja en þar er m.a. að
finna ákvæði þess efnis að flug-
virkjar hagnist á erlendum við-
haldsverkefnum Flugleiða á
þann hátt að fleiri verkefni og
meiri afköst þýði auknar tekjur.
Fyrsta lönd-
un loðnu
á Höfn
LOÐNUVEIÐAR hafa geng-
ið þokkalega og er löndun-
arbið á flestum höfnum norð-
austanlands. Fyrsta loðnan
barst til Hafnar í Hornafirði
fyrir helgina þegar Húnaröst
RE og Þórshamar GK lönd-
uðu þar um 13 hundruð tonn-
um af loðnu. Um 86 þúsund
tonn af loðnu hafa nú borist
á land.
Að sögn Bjarna Sveinssonar
hjá Óslandi hf. á Höfn í Homa-
firði gengur vel að vinna loðn-
una og fæst gott mjöl þó mikið
sé af átu í loðnunni. Hann seg-
ir að loðnan sé feit og vel á sig
komin og fáist mikið lýsi úr
henni. Bjami átti von á að
meiri loðna myndi berast til
Hafnar í næstu viku.
Tvísýnar
horfur með
kartöflu-
uppskeru
HORFUR með kartöfluupp-
skeru er mjög slæmar bæði
á norðan- og austanverðu
landinu, og dæmi þess sum-
staðar að kartöflugrösin séu
vart komin upp þannig að
þar eru jafnvel horfur á að
nánast engin kartöfluupp-
skera verði. Að sögn Sigur-
bjarts Pálssonar, formanns
Landssambands kartöflu-
bænda, er ástandið hins veg-
ar slarkfært á Suðurlandi.
„Þetta á þó mjög langt í land
ennþá og núna vantar okkur
rigningu eftir endalausa blíðu
sem verið hefur. Hér hefur
sáralítið rignt í nánast allt sum-
ar þannig að allt er orðið mjög
þurrt,“ sagði Sigurbjartur.
Hann sagði horfur á að
fyrstu kartöflumar kæmu ekki
á markað fyrr en um miðjan
ágúst, en oft á tíðum hafa kart-
öflur verið komnar á markað
jafnvei í lok júlí. Þá væri
ógjörningur að segja til um
hvernig uppskeran yrði þar sem
það færi alfarið eftir tíðarfari
í ágúst og ein frostnótt gæti
þess vegna eyðilagt alla upp-
skeruna.