Morgunblaðið - 24.07.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
Ovenjulegt kynning-
arátak Vikublaðsins
Verja fylgir hverju blaði til unglinga
VIKUBLAÐIÐ hefur sent sérstakt kynningareintak til allra 16 og
17 ára unglinga á landinu. í blaðinu, sem gefið er út með væntan-
legar útihátíðir í huga, er sérstaklega varað við áhættukynlífi og
glannalegum akstri. Veija fylgir hveiju blaði sem 16 og 17 ára
unglíngar fá. Veit Morgunblaðið um dæmi þess að foreldrar ungl-
inga hafi brugðist illa við þessari óvenjulegu blaðakynningu. Efni
blaðsins, sem er 20 siður, er allt skrifað af unglingum.
Vikublaðið er gefið út af Alþýðu-
bandalaginu. Að sögn ritstjórans,
Hildar Jónsdóttur, er þetta tölublað
sérstaklega gefið út með heill ungl-
inga að leiðarljósi.
Feimnismál?
Hildur sagði að smokkar væru
sjálfsagt feimnismál enn fyrir suma
en Landlæknisembættið hefði stað-
ið fyrir auglýsingaherferð um notk-
un smokka fyrir nokkrum árum og
gert grein fyrir gagnsemi þeirra í
baráttunni gegn alnæmi. Hildur
sagði að í blaðinu væru unglingar
jafnframt hvattir til að láta ekki
þrýsting annarra hafa áhrif á sig
til að sofa hjá. í blaðinu er m.a.
viðtal við Ríkharð Líndal, sálfræð-
ing Alnæmis-samtakanna, sem
segir að dregið hafí úr notkun
smokka og áróðri fyrir þeim. Hann
telur hættu á að smokkurinn fái
ranga ímynd, verði tákn samkyn-
hneigðra og smitaðra meðal fólks.
Afleiðingar hraðaksturs
í blaðinu er jafnframt varað við
afleiðingum af glannalegum akstri.
Aðalsteinn Árni Hallsson, fulltrúi
Samtaka endurhæfðra-mænu-
skaddaðra í Umferðarráði, fjallar í
viðtali um þörf stráka fyrir hrað-
akstur og hinar ógurlegu afleiðing-
ar sem glannalegur akstur getur
haft.
Morgunblaöið/Þorkell
Brúðguminn tertum grýttur á torginu
VEGFARENDUM um Lækjartorg á fimmtudagskvöld bauðst að kasta ijómatertum í mann, sem sat þar
fáklæddur með sérkennilegan höfuðbúnað. Menn greiddu tíu krónur fyrir að kasta tertu í skotmarkið, en
erlendir ferðamenn fengu afslátt og borguðu ekki nema fimm krónur. Fyrir uppátækinu stóðu „vinir“
mannsins með kassann á herðunum, en hann er á leið í hnapphelduna og höfðu félagar hans haldið honum
veizlu, steggjateiti eins og þær eru kallaðar. Þessar veizlur ganga meðal annars út á það að ganga æ lengra
í uppátælqum og óhefðbundinni meðferð á brúðgumanum væntanlega.
VEÐUR
Salov efstur á millisvæðamótinu í skák
12
i DAG kl. 12.00
Hetmild: VeSurstofa islands
(Syggt áveðurepá kl. 16.151 gær)
r
r
/
r
r
m r VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. timá hiti veður Akureyri 11 skýj8ð Reykjavík 13 skýjað
Bergen 13 skýjað
Helsinki 20 hálfskýjað
Kaupmannahöfn 16 rign. á sfð. klst.
Nar8sarsauaq 13 Iétt8kýjað
Nuuk 8 léttskýjað
Oíló 17 úrk. fgrennd
Stokkhólmur 18 skúr
Þórshöfn 10 alskýjað
Afgarve 28 léttskýjað
Amsteróam 18 alskýjað
Barcelona 25 hálfskýjað
Berlfn 17 skýjað
Chicago 21 alskýjað
Feneyjar 25 heiðskírt
Frankfurt 21 skýjað
Glasgow 17 skýjað
Hamborg 16 skýjað
London 25 skýjað
LosAngeles 18 alskýjað
Lúxemborg vantar
Madrid 30 heiðskírt
Malaga 27 heiðskírt
Mallorca 26 léttskýjað
Montreal 16 skúr á sfð. klst,
NewYork 22 heiðskirt
Orlando 26 skýjað
Parls 24 skýjað
Madelra 22 skýjað
Róm 25 heiðskfrt
Vfn 17 skúr á síð. klst.
Washíngton 22 hálfskýjað
Winnipeg 16 súld
Jóhann tapaði fyr-
ir Gata Kamsky
Áskell Örn Kárason skrifar frá Bie!.
ÞEGAR einungis er ólokið tveimur biðskákum í 7. umferð á milli-
svæðamótinu í Biel, stendur hinn þrítugi Rússi, Valerí Salov, best
að vígi.
Hann á betri biðskák gegn stiga-
hæsta manni mótsins, hinum hand-
fljóta Indverja Viswanathan Anand.
Af úrslitum í viðureignum efstu
manna má nefna að skákum Barejev
— Kramnik, Van der Sterren —
Gelfand og Sirov — -Portisch lauk
með jafntefli. Kamsky vann Jóhann
Hjartarson, Khalifman vann
Gurevich, Júdasín vann Seirawan
og Gulko lagði Barua að velli. Þá
er Englendingurinn Adams á góðri
leið að vinna sína þriðju skák í röð,
á líklega unna biðskák gegn hetju
heimamanna, Viktori Kortsnoj.
Kamsky (2.645 stig), tefldi fast
til vinnings gegn Jóhanni. Hann
beitti Sámisch-afbrigðinu gegn
kóngsindverskri vörn Jóhanns og
náði varanlegum stöðuyfírburðum í
miðtaflinu. Jóhann hélt sér fast og
fékk lengi vel varist, en þar kom
að undrabarnið fyrrverandi náði að
bijótast í gegnum vamir hans. Þeg-
ar Jóhann gafst upp í 55. leik var
Kamsky kominn með frelsingja upp
á 7. reitaröð og stórfellt liðstap
óumflýjanlegt.
Staða efstu manna:
1. Salov (Rússl.) 5+biðsk., 2.-8.
Barejev, Kramnik og Khalifman
(allir Rússl.), Gelfand (Hvítarússl.),
Júdasín (ísrael) og Van der Sterren
(Hollandi), 5 v. í þennan hóp geta
bæst þeir Anand, ef hann heldur
jöfnu gegn Salov, og Adams, ef
hann vinnur Kortsnoj.
Jóhann hefur nú 4 vinninga úr 7
skákum og er enn með í baráttunni
um áskorendasætin 10, þrátt fyrir
tapið í dag. 8. og 9. umferð verða
tefldar um helgina, en á mánudag
eiga skákmennirnir frí.
Tyrkneska for-
ræðismálið
Halim brýt-
ur á Sophiu
í fjórða sinn
HALIM Al, fyrrum eiginmað-
ur Sophiu Hansen, kom ekki
með dætur þeirra til fundar
við hana í gær. Þar með braut
hann í fjórða sinn á jafn
mörgum vikum gegn um-
gengnisrétti hennar.
Vegna öryggis Sophiu var
ákveðið að hún tæki ekki þátt
í að leita Halim og dætur þeirra
uppi í gær. Þess í stað leituðu
fulltrúi fógeta og tveir vopnaðir
lögreglumenn að feðginunum
og varð þeim ekkert ágengt.
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóðanna
4% til 5% hlutfall ið-
gjalda eðlilegt markiuið
LÍFEYRISSJÓÐUR verslunarmanna, sem er með rekstrarkostnað
sem nemur 1,96% af iðgjöldum, mun færa lántökugjöld sin á þann
veg, að þau komi til frádráttar rekstrarkostnaði. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins er þessi færsluháttur þjá jafnstórum sjóði
og Lífeyrissjóði verslunarmanna til þess fallinn að lækka rekstrar-
kostnað umtalsvert. Endurskoðendur munu telja að eðlilegt sé að
færa lántökugjöld sem hluta af fjármagnstekjum, því þau séu ekk-
ert annað en hluti af ávöxtun sjóðanna.
Það mun þykja eðlilegt að rekstr-
arkostnaður llfeyrissjóða, sem hlut-
fall af iðgjöldum sé á bilinu 4% til
5%. Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur því verið beint til
stjórna lífeyrissjóða, að þær reyni
að ná slíku markmiði í rekstri.
Sérstök nefnd vinnur nú að því
að samræma reikningsskilaaðferðir
lífeyrissjóðanna og þar með verður
samanburður á milli sjóða, bæði
hvað varðar ávöxtun og kostnað,
auðveldari og marktækari.