Morgunblaðið - 24.07.1993, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
9
Göngnferðir og barna-
stundir á Þingvöllum
UM helgina verður gestum þjóðgarðarins á Þingvöllum boðið upp á
dagskrá að vanda. Laugardaginn 24. júlí verður gönguferð um norð-
urgjár. Kl. 13 verður haldið frá þjónustumiðstöð í Hvannagjá. Þaðan
verður farið meðfram gjárbarmi Snóku, um Langastíg í Stekkjagjá.
Þá verður gengið til baka um Þinggötu, sem er gömul reiðgata um
Fögrubrekku og endað þar sem ferðin hófst, við þjónustumiðstöð.
í Hvannagjá verður brugðið á
leik með yngstu kynslóðinni. Þar
verður jafnframt brúðuleikur um
músaskáldið Friðrik. Dagskráin þar
hefst kl. 14.
Á sunnudag, 25. júlí, verður
gönguferð að gömlu eyðubýli í
Þingvallahrauni. Áður fyiT, meðan
enn var blómleg byggð í Þingvalla-
hrauni, lágu allar leiðir í austan-
verðu hrauninu í Skógarkot, en
þangað verður haldið frá Skáldareit
við kirkju kl. 13. Frá Skógarkoti
verður farið í Vatnskot, sem fyrrum
var hjáleiga frá Þingvallastað, en
kotið stóð á dálitlu nesi niður við
Þingvallavatn, miðja vegu milli
staðarins og Vellankötlu.
Klukkan 14 verður skemmti- og
fræðslustund fyrir böm við Skötu-
tjörn, nærri Þingvallakirkju. Vegna
Skálholtshátíðar verður ekki guðs-
þjónusta í Þingvallakirkju að þessu
sinni.
r
%
Sumaráætlun Flugleióa '93
Frá (slandl Dagur
Tll M Þ M F F L S
Amsterdam M M M M
Baltimore S S S S S S S
Barcelona S
Frankfurt M M M M
Færeyjar M M
Gautaborg M M
Glasgow S M M
Hamborg M/S M/S M/S M/S M/S M M/S
Kaupmannahöfn M/S M/S M/S M/S M/S M M/S
London M S M S M S S
Lúxemborg M M M M M M M
M = Morgunflug S = S/ðdegisflug
Bein flug í júlf 1993
I
Frá íslandl Dagur
Til M Þ M F F L s
Mdanó S
Munchen S
Narsarsuaq S S
Nuuk s s
New York S s S S S s s
Ortando s S
Ósló M M M M M M
París s S S S s
Stokkhólmur M M M M M M M
Vfn S
Zúrich s S
FLUGLEIÐIR ÆB0
Traustur isltmkurftriuféldgi ÆL
NÝIR HATTAR
í stórglæsilegu
úrvali fyrir dömur
á öllum aldri
viö öll tækifæri.
Ps. Muniö
hattaleiguna.
KMk
VERSLUN í BORGARKRINGLUNNI
SÍMI 677340
Hverjir eru hagsmunir
Norðmanna í EB?
í Noregi heyrast nú æ fleiri efasemdaraddir um að óbilgjörn
afstaða ríkisstjórnarinnar í viðræðum um aðild að Evrópubanda-
laginu þjóni í raun hagsmunum Norðmanna. Margir segja að
undanþágukröfur Norðmanna séu alltof margar og spilli fremur
fyrir en hitt.
Að sjá ekki
skóginn fyrir
trjánum
Kjell Hanssen, blaða-
maður á Aftenposten,
skrifar grein í blaðið í
seinustu viku, undir fyr-
irsögninni „Hveijir eru
raunverulegir hagsmunir
Norðmanna?". Hann vík-
ur þar að áhyggjum And-
ers Talleraas, þingmanns
norska Hægriflokksins,
af að ríkisstjómin sé hætt
að sjá skóginn fyrir tiján-
um og allar undanþágu-
beiðnimar verði þess
valdandi að menn hafi
tapað heildaryfírsýn í að-
ildarviðræðunum. „Ótti
Talleraas kann að vera á
rökum reistur eða ekki.
Sjálf spumingin — um
það hveraig hagsmuna
Noregs er bezt gætt —
byggist á því að hagsmun-
ir Norðmanna hafi verið
skilgreindir. En um það
hefur einmitt verið ein-
kennilega litið rætt.
Hveiju eigum við að ná
fram í viðræðunum við
EB?“ skrifar Hanssen.
Markmiðið
týnt
Hann heldur áfram:
„Sjálft markmið viðræðn-
anna virðist hafa týnzt á
leiðinni. Kjami málsins
hlýtur að vera að Noreg-
ur fái aðild að EB. En
hvað er EB? Fyrst og
fremst er það stór og
opinn, fijáls markaður.
Samningaviðræðumar
ættu því að sýna að Norð-
menn stefni að landvinn-
inginn á þessum markaði
— en ekki aðeins að þeir
reyni að fá undanþágur
frá ýmsum sviðum hans.
Það er ekki Evrópu-
bandalagsins vegna sem
við þurfum að leggja
áherzlu á að Norðmenn
fái inngöngu í EB. Við
þurfum þess sjálfra okkar
vegna. Vandinn við sum-
ar af þeim sérkröfum,
sem við höldum fram, er
ekki aðeins að erfitt sé
að ná þeim fram. Stærsta
vandamálið er að Norð-
menn hefðu aldrei átt að
halda þeim fram, vegna
þess að við erum betur
komin án þeirra. Aðeins
fáeinar undanþágukröfur
okkar snerta raunveru-
lega þjóðarhagsmuni
Norðmanna. Flestar em
í raun til komnar vegna
þröngra hagsmuna ein-
stakra atvinnugreina eða
vegna pólitisks stjóm-
lyndis — en klæddar í
búning þjóðarhagsmuna,
sem standa beri vörð um.
Stærsti misskilningur-
inn varðandi þjóðarhags-
muni okkar er að við eig-
um að vemda alls konar
norska starfsemi, sem
hingað til hefur ekki
bjargað sér í fijálsri sam-
keppni — eða sem hefur
fram til þessa verið
vemduð fyrir henni ...
Kjami málsins er að það
erum við sjálf — ekki
Evrópubandalagið — sem
verðum að gjalda fyrir
hveija einustu undan-
þágu, sem við biðjum um.
I hvert sinn sem við reyn-
um að bjarga óarðbærum
störfum í einni atvinnu-
grein, munu fleirí störf
glatast í öðrum norskum
atvinnugreinum, sem
verða að borga reikning-
inn. Þetta er óþjákvæmi-
leg afleiðing vemdar-
stefnu. ÖU atvinna, sem
haldið er uppi á fölskum
forsendum — með sam-
keppnisvemd eða niður-
greiðslum — grefur und-
an öðrum störfum í land-
inu.“
Raunveru-
leikafirrt sjó-
mannasamtök
Erik Rolfsen, ráðgjafi
Landssamtaka sjávarút-
vegsins (FNL) í EES- og
EB-málum, skrifar grein
í Aftenposten nú í vikunni
og gerir að umtalsefni
greinargerð norska sjáv-
arútvegsráðuneytisins
um stöðu viðræðnanna
við EB um sjávarútvegs-
mál. Rolfsen segir þar:
„Margir, bæði í Noregi
og erlendis, hafa látið í
\jós undmn sína yfir þvf
hversu miklar kröfur
Norðmenn gera i sjávar-
útvegsmálunum. Þannig
leggur Fiskaren hálfa
forsíðuna undir frétt um
að með þessum kröfum
hafi sjávarútvegsráðherr-
ann „skráð Noreg úr
samningaviðræðimum“.
Út frá þessu er erfitt
að skilja yfirlýsingar Sjó-
mannasamtakanna
(Norsk Fiskarlag) um
kröfur Norðmanna. For-
maður samtakanna, Ein-
ar Ilepso, telur að norsk
stjómvöld hafi ekki verið
nógu metnaðargjöm í
kröfum sínum. Sjómanna-
samtökin líta meðal ann-
ars svo á að það sé nei-
kvætt að sameiginleg
sjávarútvegsstefna EB
eigi að ná til Noregs!
Sjáift markmið samn-
ingaviðræðnanna er þó
einmitt að samhæfa sjáv-
arútveg Noregs sjávarút-
vegsstefnu EB — þannig
að hagsmuna Norðmanna
sé gætt.
Greinargerðin um
stöðu viðræðnanna gerir
ráð fyrir að Evrópu-
bandalagið lagi sjávarút-
vegsstcfnu sína að norsk-
um aðstæðum á mörgum
sviðum, ekki öfugt. Að
krefjast metnaðargjam-
ari stefnu en þetta er
ekki í tengslum við raun-
veruleikann."
áramótum, segja allt um vinsældir Bláa lónsins.
;