Morgunblaðið - 24.07.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
13
Ró gtæ knirinn og
silkihanskarnír
eftír Hrafn
Gunnlaugsson
Þann 5. apríl sl. urðu umræður
utan dagskrár á Alþingi um ráðn-
ingu framkvæmdastjóra Ríkissjón-
varpsins. í upphafi umræðunnar
tók Svavar Gestsson alþingismað-
ur til máls með þessum orðum:
„Virðulegi forseti. Við skulum
ímynda okkur alþingismenn að við
værum að ráða framkvæmdastjóra
að ríkisstofnun eða einkafyrirtæki.
Mundum við þá ráða mann sem
hefði starfað við sömu stofnun og
alltaf árum saman farið fram úr
fjárhagsáætlun þessarar stofnun-
ar? Hrafn Gunnlaugsson fór alltaf
fram úr þeim þegar hann var dag-
skrárstjóri."
Fullyrðing Svavars um að ég
hafi „alltaf farið fram úr fjár-
hagsáætlunum" hlýtur að eiga við
árin 1986 til ’88 þegar ég starfaði
við Ríkissjónvarpið sem dagskrár-
stjóri Innlendrar dagskrárdeildar
(IDD). í samantekt sem Ólafur
Jónsson rekstrarráðgjafí hjá Hug-
verk hf. hefur tekið saman um
rekstur Sjónvarpsins á árunum
1986 til ’88 kemur eftirfarandi
fram um rekstur IDD:
Árið 1986 verður veruleg breyt-
ing á íslenskum sjónvarpsmarkaði,
Stöð tvö hefur útsendingar og
hafði það afgerandi áhrif á rekstur
dagskrárdeilda Sjónvarpsins, IDD
fer hins vegar minnst fram úr
áætlun á þessu ári.
Árið 1987 ákvað yfirstjórn
Ríkisútvarpsins að hefja útsend-
ingar á fimmtudögum og keppa
um auglýsingar af fullum krafti.
Þetta þýddi mikla röskun á þeim
fjárhagsáætlunum sem höfðu verið
gerðar. Þessi ákvörðun kom hvað
harðast niður á rekstri IDD. Þrátt
fyrir óvænt álag og ný útgjöld fór
deildin tiltölulega lítið fram úr
áætlun.
Um árið 1988 segir orðrétt í
greinargerðinni: „Jafnvægi komið
á í rekstri eftir breytingaskeið
tveggja undanfarinna ára. IDD er
innan ramma. Aðrar dagskrár-
deildir fara lítilsháttar fram úr
áætlun."
í heildina er niðurstaða þessarar
úttektar sú, að þau þrjú ár sem
ég starfaði sem dagskrárstjóri IDD
hafi reksturinn verið innan eðli-
legra marka. Þetta er sá sannleik-
ur sem blasir við, þrátt fyrir yfír-
lýsingar Svavars um að ég „hafi
alltaf farið fram úr fjárhagsáætl-
unum“.
En hvað liggur þá á bak við
fullyrðingu Svavars?
„Let him deny it“ kallast ákveð-
in tækni í rógburði. Markmið þeirr-
ar tækni er að koma róginum á
kreik í trausti þess, að erfítt verði
að hrekja róginn, þ.e.a.s. að lygi
rógsins verði lífseigari en sannleik-
urinn. Grunsemdum um óheiðar-
leika einstaklinga er sáð og þeir
neyddir til að veija sakleysi sitt.
Hugsunin sem alið er á, er þessi;
að maður sem verði að standa upp
og lýsa yfír sakleysi sínu, hljóti
að hafa eitthvað óhreint í poka-
horninu. Sama tilgang má lesa út
úr öðrum atriðum í máli Svavars,
en ég læt nægja í bili að leiða sann-
leikann í ljós varðandi þetta
ákveðna atriði. Það yrði langur
lestur, ef rekja ætti upp alla þá
lygi, persónuróg og falsanir sem
er að fínna í þessari einu ræðu.
Málflutningur Svavars er ein gróf-
asta tilraun til mannorðsmorðs að
yfirlögðu/áði sem íslensk þingsaga
þekkir. Ég gat ekki borið hönd
fyrir höfuð mér í sölum Alþingis
og greip til þess ráðs að rita Ríkis-
endurskoðun bréf, þar sem segir
m.a.:
„Ég tel mikilvægt, ekki mín
vegna og minnar samvisku, heldur
vegna þeirrar stofnunar, sem ég
starfa fyrir nú um stund, að óska
eindregið eftir því, að embætti
yðar láti tafarlaust gera á því at-
hugun, hvort eitthvað bendi til að
ég hafí brotið af mér í starfí, elleg-
ar að ég hafí notfært mér stöðu
mína hjá Sjónvarpinu á starfstíma
mínum sem dagskrárstjóri þess, til
að draga mér fé, eða hygla sjálfum
mér fjárhagslega."
Nú hefur Ríkisendurskoðun lok-
ið athugun sinni og sent frá sér
skýrslu upp á nær 70 síður. Niður-
staða skýrslunnar er skýr: „Ekkert
hefur komið fram sem bendir til
að hann (Hrafn Gunnlaugsson)
hafí brotið af sér í opinberu starfí
eða dregið sér fé.“
í umræðu á Alþingi þann 19.
apríl (þ.e. tveim vikum eftir að
ræðan sem vitnað var til hér í
upphafi var flutt) var mál mitt enn
til umræðu og þá öðru fremur
vegna þess að Svavari og aftaní-
ossum hans fannst ekki nógu hart
fram gengið í aðförinni að mér
með því að fela Ríkisendurskoðun
málið._ Þeir vildu rannsóknardóm-
stól. í þeim umræðum víkur Jón
Baldvin Hannibalsson að skipun
slíks rannsóknardómstóls í ræðu
og segir m.a.:
„Og hveijir ætla að verða rann-
sóknardómarar? Hv. þm. Páll Pét-
ursson, hv. þm. Svavar Gestsson,
hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson.
Og hver haldið þið meðal heiðvirðs
almennings í landinu að treysti
þessum rannsóknardómurum, póli-
tískur rannsóknarréttur í pólitísku
máli?“
Og nokkru síðar bætir Jón Bald-
vin við:
„Haldið þið eða heldur einhver
yfirleitt að þeir sem eru best til
þess fallnir að rannsaka það af
óhlutdrægni og hlutleysi séu þessir
hv. þm.? Það dettur engum í hug.
Það dettur ekki nokkrum einasta
manni í hug.“
Svavar dvaldi á háskólaárum
sínum í Austur-Þýskalandi í
skugga leyniþjónustu Stasi. Hann
skilur ekki lýðræðislega leikreglu.
Hann skilur aðeins leikreglur al-
ræðis og ofsókna. í hans húsi verða
þeir sem valdamönnum dettur í
hug að ásaka, að sanna sakleysi
sitt. Þeir menn eru sekir, nema
þeir beri glóandi járn, og sanni
þannig að það sem á þá er borið,
sé ekki satt.
Sú leikregla lýðræðisins, að eng-
inn sé sekur, fýrr en sekt hans er
sönnuð, er ekki leikregla Svavars.
Hvernig á upptrénaður stalínisti
að geta hugsað samkvæmt henni.
Undir askloki hans eru allir sekir
sem honum dirfíst að álíta svo.
Sannleikurinn er kallaður er auka-
atriði. Það sem honum fínnst, að
gæti verið satt, er satt. Sannleikur-
inn er kallaður silkihanskar þegar
hann birtist, og Ríkisendurskoðun
ásökuð fyrir að taka of mjúklega á.
í Morgunblaðinu nýlega (16.
júlí), kvartar Svavar Gestsson enn
eina ferðina yfír því að Ríkisendur-
skoðun „fari silkihönskum um
málið“. Hvað býr á bak við þessa
umkvörtun?
Helsti lærifaðir Svavars í pólitík,
Jósep heitinn Stalín, notaði ekki
silkihanska á fólk. Stalín notaði
jámklóna til að koma því saklausa
fólki fyrir kattamef sem honum
hugnaðist ekki. Ef Svavar væri í
þeirri aðstöðu að geta skipað opin-
beram stofnunum að taka menn
þeim tökum sem hann reynir sjálf-
ur að beita, yrði stutt í íslenskt
gúlag.
Og hvar stendur svo hinn holi
sauðaleggur eftir, þegar skjólstæð-
ingur hans í austri er fallinn? Rót-
tæknin ímyndaða er orðin að róg-
tækni. Eða var róttæknin aldrei
neitt nema rógtækni? Aðferð öf-
undar og haturs til að níða niður
náungann. Og núna þegar falshug-
sjónirnar hafa sprungið eins og
blöðrar stendur rógtæknin eftir
Parmesanskál
A! Verð: 2.250,-
VARIST EFTIRLÍKINGAR
ALESSI
KRINGLUNNI S: 680633
Hrafn Gunnlaugsson
„Málflutningur Svavars
er ein grófasta tilraun
til mannorðsmorðs að
yfirlög’ðu ráði sem ís-
lensk þingsaga þekkir.“
eftir Merði Valgarðssyni. Eini
munurinn er sá, að Svavar hefur
bijóst verra.
Sú ógæfa henti íslenska þjóð
fyrir nokkrum árum að stalínisti
settist í stól menntamálaráðherra.
Um stjórnarferil þessa mennta-
málaráðherra, hafði Þráinn Bert-
elsson kvikmyndaleikstjóri þetta
að segja þegar hann veitti Menn-
ingarverðlaunum DV móttöku fyrir
kvikmynd sína Magnús:
„Ég er óánægður með hvernig
staðið er að yfirstjórn kvikmynda-
mála núna. Aðalábyrgðin er hjá
menntamálaráðherra, Svavari
Gestssyni, sem hefur staðið verr
að þessum málum en nokkur annar
menntamálaráðherra frá því að
kvikmyndavorið byijaði. Svavar
hefur farið næst því að drepa niður
kvikmyndagerðina á þessum ára-
tug.“
Menn reisa sér minnisvarða með
verkum sínum. Sumir með andleg-
um stórvirkjum á sviði vísinda og
lista, aðrir með illvirkjum. Sagan
skipar illvirkjunum í ákveðinn
flokk. Þar standa lærifeður Svav-
ars þykkir fyrir. í hvaða flokk
ætli sagan skipi rógtækninum
Svavari Gestssyni?
Markaðsdagar í Borgarnesi
Markaðsdagar í Borgarnesi
verða haldnir nú um helgina. Mark-
aðsdagar era tjaldmarkaður þar
sem tugir fyrirtækja og einstakl-
inga selja allt milli himins og jarð-
ar. Meðal afurða má telja: Njóla-
marmelaði, hákarl, slípaða eðal-
steina og óvenjulega kornblöndu.
Fjölbreytt dagskrá verður á Mark-.
aðsdögum og má þar nefna; götu-
leiki, ökuleikni, eldgleypa, trúða,
spilakassakeppni, NBÁ skipti-
myndamarkað og margt fleira.
Á laugardagskvöldinu kl. 20.30
verða útitónleikar á plani Shell-
stöðvarinnar í Borgamesi og eru
það hljómsveitimar: Draumalandið
og Bogomil font sem halda uppi
stuðinu.
(Fréttatilkynning)
berstrípuð. Svavar Gestsson getur
skreytt sig með því að vera öflug-
asti rógtæknir íslenskrar sögu á
Höfundur er rithöfundur og
kvikmyndaleikstjóri og hefur
verið settur framkvæmdastjóri
Ríkissjón varpsins til eins árs.
Happatalan þín er
Bakhjarl Sparisjóðs vélsfjóra
gaff 6,85% ársávöxtun
ffyrstu 6 mánuði ársins.
UaUhjarl Sparisjóðs vélstjóra er
24 mánaða innlánsreikningur fyrir þá sem
vilja njóta hagstæðustu ávöxtunarkjara hjá
sparisjóðnum.
Þú býrð við öryggi með Bakhjarli
Sparisjóðs vélstjóra.
SPARISJOÐUR VELSTJORA
■úvöxtun • rádgjöf • þjónusta
Uppskera í hámarki! Verð i lágmarkl! I