Morgunblaðið - 24.07.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
15
Björgunarmenn reiðir vegna leitar að manni á Langjökli
Þyrla og björgunarsveit
kölluð út vegna glópsku
Björgunaraðgerðir kosta stórfé segir Snorri Jóhannesson
GLÓPSKA varð þess valdandi að að kalla þurfti björgunar-
sveitina Ok og þyrlu Landhelgisgæslunnar út til að leita að
vélsleðamanni á Langjökli sl. sunnudag. Þetta segir Snorri
Jóhannesson félagi í Oki en tveir vélsleðamenn urðu viðskila
á Langjökli sl. sunnudagsnótt en ekki um daginn eins og
áður var sagt í Morgunblaðinu. Snorri segir að mennimir
hafi verið vel útbúnir og þessa nótt hafi verið eitt besta veð-
ur, sem komið hafi í sumar. Það hefði því átt að vera mjög
erfitt fyrir mennina að verða viðskila.
Sigurður Gunnarsson varð stúd-
ent 1870 með 1. einkunn, 88 stig-
um. Stefán Sigfússon varð stúdent
1871 með 2. einkunn, 73 stigum.
Þorvarður Kjerúlf varð stúdent
1871 með 2. einkunn, 73 stigum.
VII.
Til glöggvunar fyrir lesendur tel
ég hér upp gististaði þeirra félaga
og húsbændur á þeim:
1. Þorgerðarstaðir í Fljótsdal —
eigi vitað um húsbónda þar. Nú í
eyði.
2. Hof í Álftafirði, sr. Þórarinn
Eriendsson, f. 1800, d. 1898.
3. Stafafell í Lóni, sr. Bjarni
Sveinsson, f. 1813, d. 1889.
4. Árnanes í Nesjum, Stefán
Eiríksson alþingismaður f. 1817,
d. 1884.
5. Kálfafellsstaður, sr. Þorsteinn
Einarsson prestur, f. 1809, d. 1877.
6. Hnappavellir í Öræfum — eigi
vitað um húsbónda þar.
7. Svínafell í Öræfum — Sigurð-
ur Jónsson, f. 1832, d. 1902.
8. Núpsstaður í Fljótshverfi —
Eyjólfur Stefánsson, 1837-1885.
9. Kirkjubæjarklaustur, Árni
Gíslason sýslumaður, 1820-1898.
10. Þykkvabæjarklaustur, Sig-
urður Nikulásson bóndi, 1830-
1909.
11. Höfðabrekka, Jón Jónsson
umboðsmaður, 1830-1878.
12. Fell í Mýrdal, sr. Gísli skáld
Thorarensen, 1818-1874.
13. Holt undir Eyjafjöllum, sr.
Björn Þorvaldsson, 1805-1874 (2
gistinætur).
14. Þykkvibær eða Sandhóla-
feija — man eigi.
15. Litla-Hraun, Þórður Guð-
mundsen sýslumaður með meiru,
1848-1899.
16. Bessastaðir, Gísli læknir
Hjálmarsson, 1807-1867.
VIII.
Hvað varð svo um þremenning-
ana?
A) Sigurður Gunnarsson varð
prestur að Ási í Fellum, Valþjófs-
stað og í Stykkishólmi, þingmaður
til fjölda ára, formaður fjárveitinga-
nefndar um skeið. Faðir Bergljótar
fyrri konu Haraldar Níelssonar, en
dóttir þeirra var Soffía móðir grein-
arhöfundar. Sr. Sigurður dó 7. jan-
úar 1936.
B) Stefán Sigurðsson varð prest-
ur m.a. í Mývatnsþingum og Hofi
í Álftafirði, en flutti síðan til
Winnipeg og dó þar 1906.
C) Þorvarður Kjerúlf varð læknir
5. júlí 1874, bjó lengst af á Orms-
stöðum í Fellum, þar sem hann var
læknir í 14. læknishéraði frá 1876.
Hann dó 1893.
Allir voru þeir félagar fæddir
1848.
IX-
í lok greinar sinnar í Eimreiðinni
1932, bls. 52-64, segir sr. Sigurður
Gunnarsson: „Ekki man ég til þess,
að við sæjum á allri hinni löngu
leið vegarspotta gerðan af manna-
höndum, fyrr en við komum niður
af Bakarabrekkunni í Reykjavík.
Þar varð fyrir okkur brú, en vatns-
fallið ekki stórt þá fremur en nú ...
engir vegir, engar brýr, ekkert
strandferðaskip. En þrátt fyrir allt
fannst mér unglingnum þá, eins og
nú, ég geta af hjarta tekið undir
með Jónasi Hallgrímssyni:
Landið er fagurt og frítt
og fannhvítir jöklanna tindar
himinninn heiður og blár,
hafið er skínandi bjart.
Landið fríða og tígulega beið óþol-
inmótt og áfjáð eftir frelsinu, er
knýr til dugnaðar, drengskapar og
dáða, sé rétt með farið.“
Það tók okkur tvo daga að aka
það sem skólapiltar riðu á röskum
hálfum mánuði. Lesandanum læt
ég eftir að meta þær framfarir, sem
orðið hafa í samgöngumálum á ís-
landi á 129 árum.
Heimildir:
Eimreiðin, 88. árg. 1932, bls. 52-64.
Skýrslur lærða skólans í Reykjavík 1861-1874.
íslenzkar æviskrár eftir Pál Eggert Ólason, I-V.
Vestur-Skaftfellingar eftir Bjöm Magnússon, I-IV.
Islandsk Kortlægning, útg. Geodætisk Institut,
Köbenhavn 1944, ved Nörlund.
Höfundur er lögfræðingur.
„Þetta var þannig að það fóru
tveir menn inn í Fjallkirkju saman
á sleðum og virtust nokkuð vel
útbúnir í einu besta veðri, sem ver-
ið hefur í sumar, sól og heiðríkju
og mjög góðu skyggni. Seint um
kvöldið kemur annar maðurinn nið-
ureftir og segist hafa týnt félaga
sínum, sem er nú út af fyrir sig
afskaplega einkennilegt. Það getur
gerst ef það bilar sleði að hinn
haldi áfram en þarna bilaði ekki
neitt,“ segir Snorri.
Hlaut að vera alvarlegt
„Frá okkar sjónarhóli hlaut þetta
að vera alvarlegt því það gat ekki
Ms. Zaan-
dam til Þórs-
hafnar með
70tonn
Þórshöfn
Færeyska skipið ms. Zaand-
am, sem skráð er í dóminík-
anska lýðveldinu, kom á
fimmtudag til hafnar í Þórs-
höfn, heilt á húfi eftir skothríð
Norðmanna og flutti 70 tonn
af ýsuðum þorski.
Fréttaritari ræddi við kaptein-
inn, Daníel Pétur Nilsen, og var
hann frekar undrandi en reiður
yfir þeirri stefnu, sem málin hafa
tekið, varðandi veiðar skips hans
við Svalbarða. Sagði hann að öll
strandríkin á svæðinu hefðu sama
rétt til veiða á þessum miðum.
Að sögn Daníels Péturs kom
norska strandgæslan nokkrum
sinnum um borð í ms. Zaandam
en hafði ekki heimild til þess að
færa skipið til hafnar. Að lokum
var skipstjóranum hótað fallbyssu-
skothríð ef hann ekki hypjaði sig
burtu innan tíu mínútna og þegar
strandgæslan stóð við þá hótun
sína og skaut að ms. Zaandam sá
skipsstjórinn þann kost vænstan
að hverfa burtu af svæðinu um
sinn.
Daníel sagði ennfremur að af
hans hálfu væri málið opið en
hann myndi verða um kyrrt með
skip sitt um sinn og sjá til hvort
málið leystist ekki farsællega.
L.S.
NÝLEGA var haldin í Lundi í
Svíþjóð norræn vísindaráð-
stefna um ofnæmi. Um 400 of-
næmislæknar sóttu þessa ráð-
stefnu, þ. á m. þrír íslenskir
læknar.
Undanfarin ár hefur vaxandi
áhersla verið lögð á það að kynna
á spjöldum (posters) niðurstöður
rannsókna í læknisfræði. Þessi
aðferð hefur þann kost að þátttak-
gerst að menn týndu hvor öðrum
í svona góðu veðri,“ segir Snorri.
Hann segir að þyrlan hafi fundið
manninn um fimm leytið sunnu-
dagsmorgun og tilkynnt björgunar-
sveitinni, sem ekki var farin af stað,
að maðurinn væri fundinn og sleð-
inn væri sennilega bilaður. Hún bað
Ok um að fara upp á Geitlandsjök-
ul þar sem maðurinn var og sækja
hann. Snorri segir að þeir hafi þá
farið á sjö eða átta sleðum upp á
jökulinn en þegar þangað var kom-
ið hafi maðurinn verið horfinn.
„Það var einfaldlega vegna þess
að þegar að þyrlan flýgur yfir set-
ur hann sleðann í gang og keyrir
Dagsveiðin í Laxá í Ásum
var 90 Iaxar
HINIR þekktu laxveiðimenn og
tannlæknar Þórarinn Sigþórsson
og Egill Guðjohnsen fengu met-
veiði í Laxá í Ásum þegar þeir
veiddu 82 laxa á eina stöng á ein-
um degi. Megnið af þessum laxi
veiddu þeir á maðk en sá sem
hafði hina stöngina í ánni veiddi
eingöngu á flugu og fékk 8 laxa
á sama tíma. Dagsveiðin úr ánni
nam því 90 löxum.
Þórarinn Sigþórsson segir að
hann hafi aldrei áður veitt jafn-
marga laxa á einum degi og nú.
Hið mesta áður voru 58 laxar á
eina stöng. „Við fengum 43 laxa
á stöngina seinnpart fimmtudags
og síðan 39 laxa fyrripart föstu-
dagsins,“ segir Þórarinn. „Það er
óhætt að segja að við séum mjög
ánægðir með þennan afla en við
lentum í göngu í ánni og fiskurinn
gaf sig vítt og breitt um alla á.“
Stærsti laxinn af þessum 82 var
12 pund en Þórarinn segir að
megnið af honum hafi verið 5-7
punda mjög vænn og fallegur smá-
lax. Með þessari veiði hafa ríflega
550 laxar komið á land úr Laxá í
Ásum og má segja að þeir félagar
hafi aukið fjöldann í sumar um 20%
á einum degi.
Að sögn Þórarins hefur þetta
sumarið verið ágætt fyrir hann i
laxveiðinni. Stærsta laxinn enn
sem komið er veiddi hann í Norð-
lingafljóti og var sá rúmlega 21
endur geta
gefíð sér góð-
an tíma til að
kynna sér nið-
urstöðurnar
og ræða þær
við þá sem að
þeim standa.
Á ráðstefn-
unni í Lundi
var ekki nema
niður. Aðspurður þegar hann kem-
ur niður sagðist hann hafa áttað
sig á því að hann var kominn upp
á Geitlandsjökul og væri því ekki
á réttri leið. Þá drap hann á sleðan-
um eftir því sem hann sagði sjálf-
ur, fékk sér sígarettu, og gekk svo
eitthvað illa að koma sleðanum í
gang á eftir,“ segir Snorri og bæt-
ir við að það hafi tekið ansi marga
klukkutíma að reykja þessa sígar-
ettu.
Ekkert einkamál manna
Snorri vill koma því á framfæri
að óvanir menn séu ekki að æða
upp á jökul. „Hvorugur þeirra gat
gefíð skýringu á því af hverju þeir
urðu viðskila," segir hann og vill
brýna það fyrir fólki, sem fer svona
ferðir, að halda hópinn í öllum til-
fellum. „Þetta kostar auðvitað stór-
pening. Það er ræstur út að nóttu
til fjöldi manns í björgunarsveit og
þyrla frá Reykjavík. Þetta er ekk-
ert einkamál manna,“ segir Snorri.
pund. Þórarinn segir að hann hafi
verið að kanna þessa á og í leið-
inni veiddi hann kvóta hennar, eða
7 laxa á dag.
ítalskur listmálari fékk 20
laxa
Veiðin í Laxá í Kjós hefur tekið
mikinn kipp síðustu daga og hafa
um 100 laxar veiðst í ánni á síð-
ustu tveimur dögum. Af þessum
fjölda hefur ítalski listmálarinn
Giovanni Leon Bianchi fengið 20
laxa og þar á meðal stærsta laxinn
hingað til úr ánni, 17 punda físk,
sem hann veiddi á flugu í Króar-
hamri. Var það að sögn veiðivarð-
ar skemmtileg hálftíma viðureign
og Giovanni hinn ánægðasti á eft-
ir en hann hefur oft komið hingað
til lands og rennt fyrir lax.
Heildarveiðin í Laxá í Kjós er
nú tæplega 600 laxar en áin byij-
aði mjög illa og hefur mengið af
aflanum komið á síðustu vikum.
Þokkaleg byijun í Dölum
Laxveiðin í Laxá í Dölum fór
þokkalega af stað er áin var opnuð
þann 26. júní en hefur dottið nokk-
uð niður síðan. Er langvarandi
þurrkum kennt um og segja veiði-
menn að rigningu skorti til að lax-
inn fari að taka á ný en töluvert
sést af honum í ánni. Hann virðist
hinsvegar taka lítið eða illa í veður-
blíðunni. Nú eru komnir 250 laxar
á land úr ánni og mun það á svipuð-
um nótum og veiðin var í fyrra.
Menn hafa þó ient í stöku skotum
ein rannsóknastofa frá íslandi.
Fyrir henni stóð Magnús Ólafsson
læknir á Akureyri og kynnti hann
athugun á eðli og orsökum of-
næmissjúkdóma á svæðinu kring-
um Eyjafjörð.
I lok ráðstefnunnar voru sérstök
verðlaun veitt fyrir þijár áhuga-
verðustu spjaldkynningarnar, og
hlaut framlag Magnúsar Ólafsson-
ar verðlaun.
Vísindaráðstefna norrænna ofnæmislækna
Læknir frá Akureyri fékk verðlaun
Magnús Ólafsson
Morgunblaðið/Alfons.
SIGURBJÖRG Kristjánsdóttir.
Golþorskur
kom á stöng
SJÓSTANGAVEIÐIFÉLAG Snæ-
fellsness hélt árlegt opið mót sitt
dagana 16. og 17. júlí. Þátttakend-
ur urðu alls 47, víðsvegar af land-
inu. Róið var á 11 bátum sem
fengnir voru frá Grundarfirði og
Rifi, auk Ólafsvíkur. Afli var góð-
ur, að meðaltali 221 kg. á stöng.
Það bar til tíðinda að sett var Is-
landsmet, jafnvel talið Evrópumet,
þegar landað var golþorski sem vó
19.220 kg. Það var Axel Clausen frá
Reykjavík sem þann happadrátt fékk.
Alfahæstur varð Helgi Magnússon frá
Siglufirði og fékk hann 462 kg. og
voru það 298 fiskar. Mestan afla
kvenna _ fékk Sigurbjörg Kristjáns-
dóttir, Ólafsvík, 340 kg.
Mesti afli á bát var á Geysi undir
stjóm Ómars Þórhailssonar, 388 kg.
á stöng. Sveitakeppni kvenna sigraði
sveit skipuð ísfirðingum og Akur-
eyringum og keppni karla vann sveit
sem skipuð var Siglfirðingum og
Akureyringum. - Helgi.
Morgunblaðið/Magnús Jónasson
Þrír á Breiðunni
HINN landskunni veiðimaður
Þórður Pétursson, leiðsögu-
maður við Laxá í Aðaldal,
skellti sér í fyrsta sinn á ævinni
í veiði í Elliðaánum ásamt ung-
um veiðimanni. Saman fengu
þeir þrjá laxa á Breiðunni á
klukkutima og veiddi sá ungi,
Jónas Breki Magnússon, einn
þeirra.
eins og eitt þriggja daga holl ný-
lega sem náði 60 löxum á stangim-
ar fimm í ánni og taldist það góð-
ur afli.
Hægt og hyótt
Veiðin í Laxá í Þing hefur geng-
ið hægt og hljótt fyrir sig í sumar
eins og veiðivörður orðaði það.
Mun rólegri byijun en í fyrra og
mun laxinn taka illa í þeim kuldum
sem verið hafa á þessu svæði það
sem af er sumri. Úr ánni eru komn-
ir rúmlega 700 laxar og þar af
tveir 20 punda boltar. Annan
þeirra fékk Sigríður Guðmunds-
dóttir á maðk en hinn fékk Axel
Gíslason einnig á maðk.
- hótelið þitt