Morgunblaðið - 24.07.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
Flautu- og
píanótón-
leikar 1 dag
Á LISTASUMRI á Akureyri verða
haldnir flautu- og píanótónleikar
á sal Gagnfræðaskólans á Akur-
eyri í dag, laugardag. Tónleikarn-
ir hefjast klukkan 16.00
Áshildur Haraldsdóttir flautuleik-
ari og Þorsteinn Gauti Sigurðsson
píanóleikari koma fram á tónleikun-
um í Gagnfræðaskólanum.
Áshildur og Þorsteinn Gauti eru í
hópi athyglisverðustu ungra ís-
lenskra tónlistarmanna og hafa
stundað nám bæði hér á landi og
erlendis með prýðilegum árangri.
Þau hafa komið fram hvort í sínu
lagi víða' um heim og hlotið viður-
kenningar fyrir leik sinn. Sem dæmi
má nefna að Áshildur vann til verð-
launa í Flute d’Or-keppninni í Frakk-
landi fyrir skemmstu, en þar hefur
hún verið við framhaldsnám.
Áshildur og Þorsteinn Gauti eru á
tónleikaferð um landið og leika nú
saman í fyrsta sinn á ferlinum. Að
loknum leik sínum á Listasumri á
Akureyri halda þau til Reykjavíkur
og leika í Ráðhúsinu á morgun klukk-
an 16 og síðan á Höfn í Homafirði
á þriðjudagskvöld.
Unnið að miklum endurbótum á sundaðstöðunni á Þelamörk
Vaðpottur og vatns-
nudd tekið í notkun
NÚ ER AÐ ljúka stórum áfanga í endurbyggingu sundaðstöðu
við Þelamerkurskóla, þar sení á sumrin er Edduhótel. Lokaáfang-
inn, sundlaug með vatnsrennibraut, verður væntanlega tilbúinn
næsta sumar. Mikil aðsókn er að sundlaugunum á Þelamörk.
Gamla sundlaugin á Þelamörk
er að breytingunum loknum jafn-
góð og jafnheit og áður, en nú
hafa verið teknir í notkun tveir
nýir pottar með vatnsnuddi og
vaðlaug fyrir börn. Hún er með
aflíðandi halla út að stórum svepp
með rennandi vatni. Búið er auk
þessa að steypa laug sem verður
með vatnsrennibraut og verður
hún að líkindum tekin í notkun
næsta sumar.
Geysimikil aðsókn
Hafdís Ólafsdóttir hótelstjóri á
Hótel Eddu á Þelamörk sagði að
auk þessara framkvæmda hefði
verið unnið að miklum endurbót-
um á umhverfi sundlaugasvæðis-
ins, lagðir göngustígar og
gróðursettur mikill fjöldi tijáa og
plantna. Þegar þessu væri öllu
lokið yrði við Þelamerkurskóla
sundparadís sem ætti sér engan
líka á Norðurlandi. Hafdís
sagði að geysimikil aðsókn væri
að sundaðstöðunni á Þelamörk,
hún hefði lengi verið mikil en
væri alltaf að aukast. Sundgestir
væru yfirleitt ekki undir 100 á
dag og væru oft nærri 400. Þama
væri um að ræða heimafóik og
ferðamenn úr ýmsum áttum auk
þess sem mjög mikið væri um
að Akureyringar drifu sig út fyr-
ir bæinn til að vera í sundi og
kyrrð og ró á Þelamörkinni, ekki
síst í góðu veðri. Hún sagði að
búningsaðstaða sundgesta hefði
tekið byltingarkenndum breyt-
ingum þegar hið nýja íþróttahús
var byggt, en salur hússins er
ekki enn kominn í notkun. á hót-
elinu um helgar.
Morgunblaðið/Golli
Sundparadís á Þelamörk
NÝJA barnalaugin með sveppnum er við gömlu, vinsælu sundlaug-
ina hjá Þelamerkurskóla. Þessi sundparadís dregur að sér sívax-
andi fjölda gesta, bæði nærsveitamenn og lengra að komna, ekki
síst þegar sól nær að skína.
Miklar sumarannir hjá Flugfélagi Norðurlands
Fímmta Twin Ott-
er-flug-vélin leigð
Morgunblaðið/Golli
Gítarleikarar framtíðar
FLUGFÉLAG Norðurlands hefur nú tekið á leigu eina Twin Otter-
flugvél til viðbótar við þær fjórar sem félagið hefur haft í förum í
sumar. Miklar annir eru hjá félaginu sem stendur, bæði hér á landi
og í Grænlandi.
NEMENDUR á sumarnámskeiði Gítarhátíðar á Akureyri ásamt kenn-
aranum, Arnaldi Arnarsyni frá Barcelona, sem er lengst til vinstri,
og Erni Viðari Erlendssyni framkvæmdastjóra hátíðarinnar, sem er
annar frá vinstri í fremri röð. Við hlið Arnaldar er stúlka sem kom
frá Spáni til að taka þátt í námskeiðinu
Nemendatónleikar
haldnir á Gítarhátíð
VIKULANGRI Gítarhátíð á Akureyri lýkur í dag. Þar hafa nem-
endur á ýmsum aldri, sem langt eru komnir í gítarnámi eða hafa
lokið reglulegu námi, tekið leiðsögn Arnaldar Arnarsonar, sem
kom frá Barcelona á Spáni öðru sinni til að kenna á þessari náms-
stefnu. Auk þess hafa fremstu gítarleikarar landsins leikið á tón-
leikum Gítarhátíðar.
Lokatónleikar Gítarhátíðarinn-
ar verða í Akureyrarkirkju í dag,
en þá munu nemendur á námskeið-
inu leika verk sem þeir hafa feng-
ist við þar undir handleiðslu Am-
aldar. I þeim hópi má meðal ann-
arra nefna Guðmund Pétursson,
sem þekktari er sem framúrskar-
andi blúsgítarleikari en að fást við
klassíska tónlist, og Halldór Má
Stefánsson, sem er á förum tii
framhaldsnáms hjá Amaldi í Barc-
elona, en hann lauk einleikara-
prófi frá Tónlistarskólanum á Ak-
ureyri í vor.
Kallar á framhald
Om Viðar Erlendsson er fram-
kvæmdastjóri Gítarhátíðar. Hann
sagði hana hafa gengið afar vel,
nemendur væru ánægðir með
námskeiðið og ágæt aðsókn hefði
verið að tónleikunum. Ekki væri
um að efast að framhald yrði á
að halda Gítarhátíð á Akureyri.
Næsta sumar væri stefnt að því
að fá hingað þekktan og góðan
erlendan kennara, en til þess að
það mætti takast yrðu að fást til
samstarfs traustir styrktaraðilar.
Örn sagði að námskeið sem
þessi væru sem væn vítamín-
sprauta fyrir þátttakendurna. Þeir
fengju ýmis verkefni og hugmynd-
ir til að vinna með um nokkurra
mánaða skeið og það tæki tals-
verðan tíma að melta og tileinka
sér það sem fram kæmi í svona
samþjöppuðu námi. Þá væri jafn-
framt mjög mikilvægt og
skemmtilegt að allir helstu gítar-
leikarar landsins hefðu hér tök á
að njóta samveru og samvinnu í
hópi ungra og efnilegra tónlistar-
manna.
Uppskera námskeiðsins verður
ljós á tónleikum nemenda Gítarhá-
tíðar í Akureyrarkirkju klukkan
18 í dag.
Sigurður Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Norður-
lands sagði að vegna mikilla anna
í flugi hjá félaginu þessar vikumar
hefði verið gripið til þess ráðs að
taka þessa vél á leigu hjá Gron-
landsfly í Grænlandi. Um væri að
ræða tímabundin viðbótarverkefni
sem Ieyst væru með þessari leigu.
Mikið að gera í Grænlandi
FN hefur nú í þjónustu sinni
fimm 19 sæta flugvélar en að sögn
Sigurðar er þetta einungis dæmi
um sumarannir félagsins. Þetta
breytti ekki því að ein fjögurra véla
félagsins væri á söluskrá og reynt
yrði að selja hana þegar sumarönn-
um lyki. Framvegis yrði leitast við
að halda flugflotanum í hæfilegu
marki miðað við verkefni vetrarins
en leigja vélar til að mæta sumar-
verkefnum.
Sigurður sagði að miklar annir
væru í flugi félagsins í Grænlandi,
en á sumrin kæmu þar upp margvís-
legustu aukaverkefni vegna ýmissa
vísindarannsókna. Sem dæmi
nefndi hann að menn á vegum Alf-
red Wegner-stofnunarinnar í
Þýskalandi hefðu verið að störfum
í Grænlandi í sumar og haft með
sér Domier-flugvélar. Þær dygðu
hins vegar ekki jafnvel og Twin
Otter-vélarnar til þessara nota og
þess vegna hefðu þær verið sendar
heim en Flugfélag Norðurlands ver-
ið fengið til að flytja mennina af
jöklinum. Þannig hefðu núna komið
upp viðbótarverkefni þar eins og
hér heima, en FN hefði tekið að sér
allmikil leiguverkefni fyrir Flugleið-
ir eftir að ein Fokker-vélin var leigð
úr landi.
Veturinn rólegri
Að sögn Sigurðar er fyrirsjáan-
legt að félagið þurfl að draga sam-
an seglin þegar kemur fram á
haust, en áður hefur komið fram
að vegna óvissu um framtíðina hef-
ur fímm starfsmönnum FN verið
sagt upp störfum. Sigurður sagði
að það væri hvort tveggja varúðar-
ráðstöfun og kaldur veruleiki.
Messur á
Akureyri
Akureyrarprestakall:
Guðsþjónusta í Akureyrar-
kirkju sunnudag klukkan 11.
Guðsþjónusta á Seli sunnu-
dag klukkan 14.
Guðsþjónusta á Hlíð sunnu-
dag klukkan 16.
Glerárprestakall:
Guðsþjónusta í Glerárkirkju
sunnudagskvöld klukkan 21.
Prestur séra Hannes Öm Blan-
don.
Landsmót skáta hefst á morgnn
LANDSMÓT skáta verður sett í Kjarnaskógi við Akureyri klukkan
20.30 annað kvöld. Á mótinu verður á annað þúsund þátttakenda
auk hundraða í vinnu- og fjölskyldubúðum. Fjölbreytt dagskrá bíður
skátanna þá viku sem mótið stendur.
Skátar á Akureyri era að leggja
lokahönd á mikinn undirbúning
landsmótsins, sem sett verður ann-
að kvöld. Að sögn Ásgeirs Hreiðars-
sonar hjá Skátafélaginu Klakki
verður dagskrá mótsins viðamikil
og öruggt að allir hafa nóg fyrir
stafni allan tímann sem mótið
stendur.
Að setningu mótsins lokinni
verða kynningarleikir fram eftir
kvöldi. Á mánudag er ætlað að
meginhluta dags komi skátamir sér
fyrir til vikudvalar, gangi frá tjald-
búðum sínum og aðstöðu allri á
svæðum flokkanna. Frá og með
þriðjudegi verður í gangi fímmþætt
dagskrá í jafnmörgum veröldum,
sem svo era nefndar.
Út í veröld bjarta
Einkunnarorð Landsmóts skáta
að þessu sinni eru „Út í veröld
bjarta". Þær veraldir sem skátunum
býðst að taka þátt í era Þrautaver-
öld, fjölbreytt viðfangsefni á af-
mörkuðu svæði í Kjamaskógi,
Vatnaveröld, ýmsar vatnaþrautir
í og við Leirutjörn, Kjarnaveröld,
blönduð umhverflsdagskrá meðal
annars með gróðurrækt og endur-
vinnslu og Ferðaveröld, þar sem
skátarnir fara í lengri og skemmri
ferðir. í fimmta lagi er Dagur á
Akureyri, þar sem skátar verða
við ýmsa iðju í bænum í heilan
dag. Á þriðja hundrað skáta verður
í hveiju þessara fímm verkefna
hvern dag.
Á laugardag, undir lok mótsins,
verður slegið upp skátatívolíi og
skátaballi í Kjarnaskógi en lokadag-
inn, sunnudag, verður opinn dagur
þar sem gestum gefst færi á að
taka þátt í verkefnum í veröldunum
fimm. Mótinu verður síðan slitið
með geysimikilli flugeldasýningu
um miðnætti sunnudags.