Morgunblaðið - 24.07.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
17
Mjög góðar heimtur hjá flestum hafbeitarstöðvum landsins
Stöðvar fengið
meiri heimtur en
allt síðasta sumar
BETRI heimtur hafa verið í hafbeitarstöðvum suðvestan-
og vestanlands en síðasta sumar og eru dæmi um að jafn
mörgum löxum hafi þegar verið slátrað og allt síðasta sum-
ar. Heimtur eru lakari á Norðurlandi. Flest bendir til að
gott ástand hafsins ráði mestu um góðar heimtur og segist
Sigurður Stefánsson, stöðvarstjóri í Laxósi hf. í Ólafsfirði,
hallast að því að slæmar heimtur fyrir norðan skýrist af
lágum sjávarhita. Menn eru yfirleitt þokkalega ánægðir
með þyngd laxins.
Vigfús Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Laxeldisstöðvar
ríkisins í Kollafirði, sagði að
komnir væru á land á níunda
þúsund laxar eða ríflega sami
fjöldi og ailt fyrrasumar. Þar
með væru heimtur orðnar 4%
seiða sem sleppt var og yrðu
a.m.k. 6% með sama áframhaldi.
Hvað þróun undangenginna
ára varðaði sagði Vigfús að
heimtur hefðu tvöfaldast á
hverju ári frá árinu 1989 þegar
nokkur lægð hefði verið í heimt-
um. Þessu þakkaði hann kyn-
bóta- og rannsóknarstarfi í sam-
vinnu við hinar stöðvamar en
minnti jafnframt á að ástand
sjávar væri betra en áður. Skipu-
legar kynbætur hafa farið fram
í stöðinni frá árinu 1987 og er
nú 220-230.000 Seiðum sleppt í
stöðinni á hvetju ári. I öðrum
stöðvum er sleppt allt að 100.000
löxum frá stöðinni í Kollafirði.
Almennt um horfur sagði Vig-
fús að hafbeitin ætti eflaust
bjarta framtíð fyrir sér á hér á
landi en til þess væri nauðsyn-
legt að standa myndarlega að
rannsóknar- og þróunarstarfi
áfram. Fram kom að allar að-
stæður hér á landi væru hinar
bestu og Iaxastofninn tæki stöð-
ugum framförum frá ári til árs.
Þá hefði unnist góður markaður
fyrir vöruna.
Snæfellsnes
Júlíus B. Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Silfurlax á Snæ-
fellsnesi, sagði að laxaheimtur
væru orðnar meiri en allt árið í
fyrra. Lokið væri við að slátra
yfir 50.000 þúsund löxum og að
viðbættum 15.000 löxum í kvíum
væru heimtur orðnar 60-70.000
laxar. Hann sagðist eygja þá von
að 100.000 laxar næðust í sumar
og samsvaraði sá fjöldi 4-5%
heimtum í stöðina miðað við 2%
á síðasta ári. Hefði laxinn komið
jafnt og þétt inn í stöðina í sum-
ar og hefði á bilinu 3-4.000 löx-
um verið slátrað á dag. Um
tveimur milljónum seiða verður
sleppt í stöðinni í sumar.
Jón Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Látravíkur hf., sagði að í
Lárós á Snæfellsnesi væru
komnir heldur fleiri laxar en á
sama tíma í fyrra eða um 7.000.
Af þeim hefði 6.000 verið slátrað
en 1.000 seldir lifandi til stang-
veiði. Hann sagði ómögulegt að
segja fyrir um heimtur nú en þær
hefðu verið um 3% eða 20.000
laxar í fyrra. Viktor Guð-
mundsson sagði að heimtur í
Morgunblaðið/Einar Falur
Hafbeitarlaxinn háfaður
VERIÐ var að háfa laxinn upp úr ferskvatninu með gröfu til að
koma honum í kvíar til geymslu í gær. Laxinum verður siðan
slátrað eftir helgi.
Vogavík væru heldur slakari en
í fyrrasumar. Komnir væru rúm-
lega 21.000 laxar á land og
væru heimtur 1,1% af eins árs
laxi og 0,5% af tveggja árs laxi.
Á sama tíma í fyrra hefðu hins
vegar um 32.000 laxar verið
komnir á land og allt sumarið
hefðu 46.000 laxar komið í stöð-
ina, þ.e. 3% heimtur af eins árs
laxi og' 0,25% heimtur af tveggja
ára laxi. Sagði hann þessi hlut-
föll keimlík heimtum Silfurlax í
Hraunsfirði og stöðvarinanr í
Kollafírði í fyrra en sagðist ekki
hafa skýringu á dræmari heimt-
um nú. Aðspurður sagði Viktor
að eins árs laxinn væri heldur
lakari en áður en tveggja ára
laxinn örlítið stærri.
Kaldur sjór fyrir norðan
Sigurður Stefánsson, stöðvar-
stjóri í Laxósi hf., sagði að heimt-
ur hefðu einfaldlega verið slæm-
ar fyrir norðan. Ellefu hundruð
fiskar væru allt og sumt sem
komið hefði á land. „Við höldum
að þetta sé í sambandi við kuld-
ann í sjónum. Annars veit maður
ekki,“ sagði Sigurður en heimtur
í stöðinni voru um 3% eða 8.000
laxar í fyrra. Hann sagði að
tveggja ára laxinn liti ágætlega
út en smálaxinn, þ.e. eins árs
lax, væri í minna lagi.
Ríkisstjómin vill að bankamir taki
mið af vaxtaþróun á eftírmarkaði
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt að forsætis- og viðskiptaráð-
herra eigi viðræður við bankana eftir helgina vegna þess að
bankavextir hafa ekki tekið samsvarandi breytingum og vextir
á öðrum útlánaformum á fjármagnsmarkaði. Sighvatur Björg-
vinsson viðskiptaráðherra segir að þeim eindregnu tilmælum
verði beint til bankanna að þeir taki mið af því að þróun á
vöxtum bankalána sé í samræmi við það sem er að gerast ann-
ars staðar á fjármagnsmarkaði og lækki raunvextina. Á blaða-
mannafundi sem hann boðaði til í gær kom fram að nafnvaxta-
hækkanir bankanna í júlí hafa ekki leitt til raunvaxtahækkunar
og ekki hafi breytt vaxtamun.
Viðskiptaráðherra segir að þótt
bankarnir hafi ekki hækkað raun-
vexti núna með vaxtaákvörðunum
sínum þá hafí þeir ekki fylgt þeirri
þróun sem sé annars staðar á fjár-
magnsmarkaði. „Það er full ástæða
til að vekja athygli þeirra á því og
ræða það við þá, og láta það koma
skýrt fram að þess sé vænst að
þeir taki mið af þessari þróun og
þess sé vænst að raunvextir geti
farið lækkandi eins og^er að ger-
ast á öðrum vettvangi," sagði
hann.
Ekki raunvaxtahækkun
Samkvæmt greinargerð Seðla-
bankans til viðskiptaráðherra hafa
breytingar nafnvaxta óverð-
tryggðra útlána í þessum mánuði
ekki valdið hækkun raunvaxta
heldur þvert á móti. Meðaltal nafn-
vaxta óverðtryggrða útlána hefur
hækkað síðastliðinn mánuð um 1
til 1,9%, en raunvextir lækkað um
3,7 til 4,7%. Þá hefur nafnvaxta-
hækkun innlána orðið minni en
útlána. „Þessar tölur sýna með
öðrum orðum umtalsverða lækkun
raunvaxta óverðtryggrða lána,
þegar til skamms tíma er litið.
Ástæðan er auðvitað fólgin í stökk-
breytingu verðbólgunnar nú um
hríð ..." segir í greinargerðinni.
Raunvextir lækka þó ekki á helstu
lánaflokkum Búnaðarbanka og ís-
landsbanka þegar miðað er við sex
mánaða verðbólgustig, þ.e. þijá
mánuði aftur í tímann og spá þijá
mánuði fram í tímann.
Vextir verðtryggðra lána
hækkað lítillega
í skýrslunni er vakin athygli á
því að vextir verðtryggðra lána
hafa hækkað. „Hækkunin er
reyndar ekki mikil, úr 9,3 í 9,5%
að meðaltali, en þetta er ólíkt þeirri
þróun sem verið hefur á eftirmark-
aði með verðtrygð verðbréf nú í
júlímánuði," segir í greinargerð-
inni. Þá segir að miðað við þróun
vaxta á eftirmarkaði fyrir ríkis-
tryggð verðbréf virðist ástæða til
þess að búast við lækkun raun-
vaxta.
Jón Sigurðsson seðlabankastjóri
segir að mjög grannt verði fylgst
með því sem gerist á fjármagns-
markaði á næstunni. Hann segir
að ef bankarnir haldi sínu fyrra
lagi og vísi til eftirmarkaðar á rík-
istryggðum bréfum sem viðmiðun
sinni í vaxtaákvörðunum þá hljóti
menn að vænta þess að 0,25 - 0,5%
raunvaxtalækkun verði á næst-
unni. „Þetta þýðir að þessi mark-
aðsstarfsemi við hlið bankanna
heldur aftur af vaxtabreytingum,
kannski gagnstætt því sem flestir
höfðu búist við,“ sagði hann.
Áhrif gengisfellingar komu
fyrr fram
í greinargerð Seðlabankans
kemur fram að í spá um vísitölu-
breytingar sem bankinn gerði
strax að lokinni gengisfellingu 28.
júnf hafi bankinn vanáætlað hækk-
un framfærslu- og byggingarvísi-
tölu. Áhrif gengisfellingarinnar
hafí komið fyrr fram en búist var
við en það breyti ekki heildarverð-
bólguspá fyrir allt árið. Fram kem-
ur að bankarnir hafí fengið þessar
spár og líklega stuðst við þær við
vaxtaákvarðanir að undanförnu.
Nýjar spár Seðlabankans benda
til að verðbólgan muni hjaðna fljótt
aftur og að hækkun lánskjaravísi-
tölu frá upphafi til loka ársins verði
um 3%, eins og spáð var strax
eftir gengisbreytinguna.
Ekki óeðlilegar
verðhækkanir
í greinargerð Hagstofunnar til
viðskiptáráðherra um hækkanir á
vístölu framfærslukostnaðar
(0,9%) og byggingarvístölu (1,3%)
í júlí kemur fram að þær séu meiri
en rekja megi til áhrifa gengis-
breytinganna, en hins vegar séu
þær svipáðar og spáð hafði verið
að þær yrðu. Seðlabanki og fjár-
málaráðuneytið höfðu gerð ráð
fyrir 0,6 til 1% hækkun fram-
færsluvísitölu og byggingavísitala
myndi hækka um 1,5 til 1,6%.
Hagstofan segir að 0,64% af
hækkun framfærsluvísitölunnar
megi rekja til áhrifa gengisbreyt-
inga en þar hefur hækkun bíla
lang mest áhrif, eða 0,42%, og
0,43% séu vegna fækkunar undan-
þága i virðisaukaskatti en á móti
komi 0,27% lækkun vegna aukinna
niðurgreiðslna í kjölfar kjarasamn-
inga. Þá kemur fram að hækkun
byggingavísitölunnar megi að lang
Forstjóri Visa ísland
um afkomuna í fyrra
124 milljón-
ir ekki mik-
ill hagnaður
EINAR S. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Visa Islands, segir
að 124,2 milljón króna hagnaður
Visa árið 1992, sé ekki há upp-
hæð þegar fjármálafyrirtæki
eigi í hlut sem ábyrgist háar
upphæðir, um fjóra milljarða
gagnvart kaupmönnum í þess-
um mánuði svo dæmi sé tekið.
Hann sagði þetta aðspurður um
hvort fyrirtækið gæti ekki notað
hluta af hagnaði til að lækka
þjónustugjöld. Hann sagði þjón-
ustugjöld hafa verið lækkuð um
10% í janúar síðastliðnum og
rafrænn posbúnaður lækkað um
10% hvert tæki í maí.
Einar sagði, að þjónustugjöldin
hefðu verið lækkuð um 10% frá
og með 18. janúar hjá þeim, sem
væru í rafrænum viðskiptum og
leiga á rafrænum búnaði hefði
lækkað um 10%. Þjónustugjöld eru
mishá eftir fyrirtækjum og fara
stiglækkandi miðað við veltu.
Ekki mikill hagnáður
„Ef mönnum finnst 124 milljón-
ir í hagnað mikið þá er það ekki
okkar mat,“ sagði hann. Áf hagn-
aði væri greiddur skattur og fjár-
málafyrirtæki yrði að hafa góða
afkomu til að geta gengið í ábyrgð
fyrir háum upphæðum. Á síðasta
ári hefðu það verið 40 milljarðar
og í yfirstandandi mánuði fjórir
milljarðar. Fjármálafyrirtæki gæti
ekki stundað sína starfsemi nema
þau væru traust og með sæmilega
afkomu.
Árið í fyrra sagði Einar að hefði
verið dágott og í ljósi nýrrar tækni
hefði verið fjárfest í posum eða
rafrænum búnaði fyrir 200 milljón-
ir. Það sparaði kaupmönnum skrif-
finnsku og veitti öryggi. Þá væri
verið að byggja upp nýja debet-
kortaþjónustu og hefur þegar verið
fjárfest í kerfum og búnaði.
mestu leyti rekja til áhrifa gengis-
fellingar.
„Það er ekkert sem bendir til
þess að um óeðlilegar verðhækkan-
ir sé að ræða, en hins vegar er
það ljóst að einhver hluti af gengis-
breytingunni hefur strax komið
fram sem hækkun á vöruverði.
Eitthvað mun eiga eftir að koma
fram þannig að við getum búist
við einhveijum verðhækkunum á
næstunni, en það er viðbúið að það
standi mjög stutt, einhvetjar vikur
eða fáa mánuði, og þegar líður
lengra á haustið þá verði um verð-
hjöðnun að ræða og við förum aft-
ur að sjá verðbólgutölur eins og
við höfum verið að sjá, eða 3-4%
miðað við heilt ár,“ sagði Sighvat-
ur Björgvinsson.
Ekki aukið vaxtamun
Seðlabankinn telur ekki að
bankarnir hafí aukið vaxtamun
með vaxtabreytingum í júlí. „Laus-
legir útreikningar benda til að
vaxtabreytingamar í júlí ásamt
breytingu verðbólgustigs úr 1 í
6,5% (3ja mánaða viðmiðun) hafí
leitt til lækkunar á vaxtamun allra
eigna og skulda banka og spari-
sjóða um 0,5%. Sé hinsvegar horft
til lengri tíma hvað verðbólguviðm-
iðun varðar, og t.d. litið á spár um
lánskjaravísitölu á síðari árshelm-
ingi 1993, má segja að verðbólgu-
stig hafí hækkað úr 0,7 í 3,9%.
Með slíkri viðmiðun liafa vaxta-
breytingar nú í júlí haldið vaxta-
mun óbreyttum," segir í greinar-
gerðinni. Þar er jafnframt bent á
að rekstraruppgjör fyrsta þriðj-
ungs yfirstandi árs bendir til að
vaxtamunur banka og sparisjóða
hafi nánast staðið/í stað miðað við
sl. ár.