Morgunblaðið - 24.07.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
Shítar flýja
frálrak
til Iran
UM 3000 shítar búsettir í fenj-
um Suður-íraks hafa flúið til
írans undanfarna daga eftir að
íraski herinn gerði árás á svæð-
ið, að sögn talsmanna Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna. Um 150 manns fara yfir
landamærin dag hvern og er
búist við að um 15.000 manns
eigi eftir að flýja til viðbótar.
Armenar
vinna á
HER Azerbajdzhan beið ósigur
er her Armena tókst að ná
bænum Agdam á sitt vald í
gær, að sögn hemaðarráðu-
neytis Azera. Armenar gerðu
einnig harðar árásir á bæinn
Fizuli, en báðir þessir bæir eru
hernaðarlega mikilvægir. Tals-
maður Armena neitaði þessum
fregnum.
Barnard ger-
ist Grikki
SUÐUR-afríski hjartaskurð-
læknirinn Christiaan Barnard
fékk í gær grískan ríkisborg-
ararétt og var útnefndur heið-
ursborgari í Aþenu. Barnard,
sem nú stendur á sjötugu,
græddi fyrstur hjarta í mann
árið 1967. Hann sagði við at-
höfnina að hann hefði viljað
gerast ríkisborgari í landinu
alveg frá fyrstu heimsókn sinni
þangað á sjöunda áratugnum.
Ólöglegar
veiðar
SKIPSTJÓRI á spænskum tog-
ara var sektaður í breskum
rétti í gær fyrir að hafa veitt
fisk vemdaðan af evrópskum
fiskveiðireglum. Nam sektin
um 190.000 krónum. Togarinn
var að veiðum undan suðvestur-
strönd Englands þegar hann
var stöðvaður og við leit í skipi
hans fundust um 400 kg af
ólöglegum fiski, meðal annars
lúðu og þorski.
Herinn borgar
skaðabætur
SVARTUR hermaður í breska
hemum, sem sakaði hvíta fé-
laga sína um að uppnefna sig
vegna litarháttar síns og þvo
sér með klór, fékk dæmd 8500
pund, um 900.000 krónur, í
skaðabætur í gær frá breska
hemum. Anthony Evans gekk
f herinn árið '1985 en gerðist
liðhlaupi árið 1991 vegna árás-
anna. Þetta er í annað skipti
sem herinn borgar skaðabætur
vegna ásakana um kynþátta-
fordóma.
Rauðir klefar
snúa aftur
RAUÐU símaklefamir sem
settu svip sinn á London þang-
að til í lok níunda áratugarins,
verða settir upp aftur á þeim
stöðum þar sem straumur
ferðamanna er mikill um borg-
ina. Verða þeir settir upp á leið-
inni frá Westminster Abbey til
Pálskirkju. Var búið að fjar-
lægja flesta þessara símaklefa
og setja í staðinn nútímalegri
klefa. Það eru litlar líkur á því
að þeir rauðu verði algengir á
ný, þar sem nýrri klefar henta
betur fötluðum og einnig er
auðveldara að þrífa þá.
Reuter
Eldraun lokið
JOHN Major og eiginkona hans, Norma, á leið frá þinghúsinu í gær
eftir að breska stjómin hafði varist vantrausti.
Viðræður eru
ekki tímabærar
—segir Radovan Karadzic
Genf, Brussel. Reuter.
SÁTTASEMJARAR í Bosníudeilunni höfnuðu í gær tillögu Radovans
Karadzics, leiðtoga Bosníu-Serba, þess efnis að öllum samningaviðræð-
um yrði frestað til hausts. Sögðust þeir vænta þess að hann mætti til
viðræðna í Genf á morgun. Sameinuðu þjóðirnar hafa mælst til þess
við Atlantshafsbandalagið (NATO) að það sendi flugvélar sínar ekki
strax til vemdar gæsluliðum í Bosníu.
Talsmaður sáttasemjaranna sagði
þeim hafa borist bréf frá Karadzic,
þar sem hann sagði að viðræður nú
gætu reynst „ótímabærar og árang-
urslausar" og myndu leiða til harðn-
andi átaka. „[Alija] Izetbegovic [Bos-
níuforseti] hefur alls ekki í hyggju
að ganga að samkomulagi sem Serb-
ar og Króatar geta sætt sig við,“
sagði Karadzic, og lagði til að frek-
ari viðræður yrðu haldnar í haust.
Útvarpið í Sarajevo greindi frá því
í gær að árásir hefðu verið gerðar á
borgina síðdegis, eftir að allt hafði
verið þar með kyrrum kjörum frá
því á fimmtudag, þegar sjö manns
létust í hörðustu árásum sem gerðar
hafa verið á borgina síðan stríðið
hófst, í apríl á síðasta ári.
Framkvæmdastjóri SÞ, Boutros
Boutros-Ghali, bað NATO í gær um
að fresta áætlunum um að senda
flugvélar til vemdar gæslusveitum
SÞ í Bosníu. Getum var að því leitt,
að Boutros-Ghali væri í mun að ekki
yrði hafst að áður en samningavið-
ræður hefjast í Genf. Hann vildi
hvorki styggja Bosníu-Serba né
vekja falskar vonir múslima um
vernd.
John Major gengur óstyrkum fótum af orrustuvellinnin
Urslitakosti þurfti gegn
uppreisnarliði flokksins
London. The Daily Telegraph og Reuter.
MEÐ sigri sínum í atkvæðagreiðslu um van-
traust á breska þinginu í gær hefur John
Major forsætisráðherra tekist að framlengja
líf stjórnar sinnar en sljórnmálaskýrendur
eru á þvi að vandi hans sé síður en svo úr
sögunni. Samkvæmt könnunum er hann ein-
hver óvinsælasti forsætisráðherra landsins
síðustu áratugi og mikils stjórnmálaleiða
gætir meðal almennings. Þingið hefur að
vísu endanlega afgreitt Maastricht-samning-
inn en ekki er útilokað að Rees-Mogg lá-
varði takist að bregða fæti fyrir staðfestingu
Breta á samningnum með málshöfðun sinni.
Lávarðurinn telur að meðferð málsins hafi
strítt gegn bresku stjórnarskránni.
Heimildarmenn álíta að fyrir atkvæðagreiðsl-
umar tvær á fímmtudagskvöld hafí Major flutt
bestu þingræðu sína frá því hann tók við af
Margaret Thatcher. En allt kom fyrir ekki. Full-
trúar Verkamannaflokksins á þingi fögnuðu
gríðarlega á fimmtudagskvöld er ósigur Majors
var staðreynd, þeir stöppuðu í gólfið, hrópuðu
og blístruðu. -íhaldsleiðtogar sátu hnipnir á
bekkjum sínum, Major grár og gugginn, enda
var hann að ganga í gegnum mestu eldraun sína
á stuttum ferli í embætti forsætisráðherra.
Heimildarmenn segja að forysta íhaldsflokks-
ins hafi beitt örþrifaráðum til að reyna að telja
uppreisnarmönnum hughvarf á fimmtudag,
hvers kyns hótunum en vafalaust einnig loforð-
um um laun fýrir hollustu. Er hvorki gekk né
rak var ákveðið að leita hófanna um stuðning
hjá níu þingmönnum Sambandsflokksins á Norð-
ur-írlandi. Þeim var heitið að sett yrði á laggim-
ar sérstök nefnd um n-írsk málefni, landshlutinn
fengi sinn eigin tíma í þingumræðum og aukin
áhrif í eigin málum. Þetta nægði og í fyrsta
sinn frá því íhaldsmenn komust til valda 1979
tókst Sambandsflokknum að kría út tilslakanir
af hálfu bresku stjómarinnar.
Vanmátu Maastricht-andstöðuna
Ihaldsleiðtogamir höfðu hins vegar vanmetið
hve andstaðan við Maastricht var öflug í þing-
flokknum og spennan jókst stöðugt í þinghús-
inu. Yfírstéttarmaðurinn Douglas Hurd utanrík-
isráðherra, sem venjulega heldur ró sinni, sýndi
óvenjuleg spennumerki, nagaði neglur og boraði
jafnvel í nefíð meðan atkvæði voru talin. Stjórn-
inni tókst aðeins með harmkvælum að merja.
sigur í atkvæðagreiðslunni um tillögu Verka-
mannaflokksins, er vill að Bretar gangist undir
félagsmálareglur Maastricht. í seinni atkvæða-
greiðslunni, þar sem tekist var á um stjómartil-
lögu er greiða myndi leiðina fyrir staðfestingu
samningsins, varð Major undir. Aðeins eitt ráð
var eftir, að hóta þingkosningum fyrir tímann.
Hæpið að Bandaríkjamaðurinn John Demjanuk sé ívan grimmi
Getur torveldað mjög saksókn
- segir Efraim Zuroff og telur að málið hafi alþjóðleg áhrif
SÍÐAR í þessum mánuði kemur John Demj-
anuk að nýju fyrir rétt í Israel en hann er
grunaður um að vera ívan grimmi sem vann
í útrýmingarbúðum nasista í Treblinka í Pól-
landi. Nýjar upplýsingar frá Bandaríkjunum
benda til að Demjanuk hafi verið hafður fyrír
rangri sök. Og alríkisdómarí í Bandaríkjunum
úrskurðaði fyrir skemmstu að þaðléki allnokk-
ur vafi á því að Demjanuk væri fvan grímmi.
Bandarísk og ísraelsk stjómvöld voru á sínum
tíma sannfærð um að ívan grimmi væri fundinn
þar sem fór John Demjanuk, fyrrverandi starfs-
maður bifreiðaverksmiðju í Cleveland. Hann var
framseldur til ísraels árið 1986 að loknum réttar-
höldum, sakfelldur í ísrael árið 1988 og dæmdur
til hengingar. Síðar í þessum mánuði, 29. júlí
nánar tiltekið, mun Hæstiréttur ísraels ijalla um
áfrýjun Demjanuks.
Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum fjallaði fyrr í
þessum mánuði um það hvort framsalið 1986
hefði verið réttmætt. Fyrir réttinum lágu ný sönn-
unargögn, se;n reyndar eru einnig lögð til grund-
vallar í áfrýjun Demjanuks í ísrael. Um er að
ræða vitnisburði 32 fyrrverandi fangavarða í Tre-
blinka og fímm þrælkunarfanga í sömu búðum.
Allir segja að Ivan grimmi sé maður að nafni
Ivan Martsjenkó, Úkraínumaður eins og Demj-
anuk, sem sást síðast árið 1944 í Júgóslavíu.
Ekki er einvörðungu um nýjar upplýsingar að
ræða því stríðsglæpadeildin í bandaríska dóms-
málaráðuneytinu (Office of Special Investigations)
John Demjanuk
vissi um tvo af þessum
vitnisburðum þegar
árið 1978 en hélt þeirri
vitneskju leyndri fyrir
lögmönnum Demj-
anuks.
Þjálfaður
fangavörður
Önnur gögn bentu
hins vegar sterklega
til að Demjanuk væri
í raun ívan grimmi.
Samkvæmt sovéskum
persónuskilríkjum sín-
um var Demjanuk þjálfaður SS-fangavörður. Þeg-
ar Demjanuk sótti um vegabréfsáritun til Banda-
ríkjanna skrifaði hann ranglega á umsóknina að
meyjarnafn móður sinnar væri Martsjenkó, sem
er algengt úkraínskt nafn. Loks þótti grunsamlegt
að hann sagðist hafa stundað búskap í Sobibor í
Póllandi en þar voru aðrar útrýmingarbúðir.
Niðurstaða alríkisdómstólsins er samt sú að
bandarískir embættismenn hafí framselt Demj-
anuk í góðri trú og að brottvísun úr landi hafí
verið réttmæt vegna þess að hann laug til um
fortíð sína er hann sótti um landvistarleyfi.
Á hinn bóginn reisti ísraelski dómstóllinn sak-
fellingardóm sinn fyrst og fremst á framburði
fímm manna sem sluppu lifandi úr Treblinka og
sakbendingu af þeirra hálfu. Sakbendingin var
þó eftir á að hyggja ekki gallalaus. Fyrst var fólk-
ið látið skoða fjölda mannamynda og benda á
þann sem líktist mest ívani grimma. Myndin af
Demjanuk varð fyrir valinu enda var hún hlutfalls-
lega stærst. Sakbending fór einnig fram í réttar-
salnum en þá höfðu öll vitnin séð myndir af Demj-
anuk í ísraelska sjónvarpinu, sem fjallaði ítarlega
um framsalsmálið í Bandaríkjunum.
Hæstiréttur ísraels býr núna yfír vitneskju sem
ekki lá fyrir þegar dómurinn, sem nú er búið að
áfrýja, var kveðinn upp: Til voru tveir menn, ívan-
Demjanuk og ívan Martsjenkó, sem voru mjög
líkir í æsku, af myndum af dæma. Margt bendir
til að Demjanuk hafi verið fangavörður annars
staðar en í Treblinka, þ. á m. í Sobibor en vonlít-
ið er að ákæra hann fyrir slíkt því engin sönnunar-
gögn liggja fyrir um framferði hans þar.
Fyrirhafnarinnar virði?
Efraim Zuroff, forstöðumaður Wiesenthal-
stofnunarinnar í Jerúsalem, segir að Demjanuk-
málið og þær efasemdir sem hafðar hafa verið
uppi um áreiðanleika vitnisburða frá fólki, sem
lifði helförina af, torveldi mjög saksókn á hendur
stríðsglæpamönnum um allan heim. Segir hann
að það kunni hugsanlega að veikja staðfestu
stjómvalda og menn hugsi með sér: Er þetta fyrir-
hafnarinnar virði?
Heimild: Time