Morgunblaðið - 24.07.1993, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
23
. , Morgunblaðið/RR.
Fiskur ut um allt
MIKIL mildi var að ekki skyldi verða slys á fólki er vörubíllinn
rann um lengd sína á Gatnabrú í Mýrdal.
Bflvelta í Mýrdal
Litla Hvammi, Mýrdal.
VÖRUBÍLL frá Hafnarfirði fór á hliðina í Gatnabrú í Mýrdal um
9 leytið á þriðjudagskvöld. Var hann að koma frá Höfn í Horna-
firði með 12 tonn af fiski er áttu að fara á fiskmarkað syðra.
Fljótlega dreif að menn úr ná-
grenni og frá Vík með vélar og
fiskkassa til að setja farminn í,
réttu síðan bílinn við. Er skipt hafði
verið um olíu á bílnum gat hann
haldið ferð sinni áfram eftir um
flögurra tíma stans, en þó án þess
að taka farminn með. Var öll yfir-
bygging bílsins að sjá mikið
skemmd. Annar bíll tók síðan farm-
inn suður seinna um nóttina. Öku-
maður slapp ómeiddur.
- Sigþór.
Er bíllinn var kominn um miðja
vegu niður brattann, fóru brems-
urnar skyndilega af og ætlaði öku-
maður að koma bílnum í lægri gír,
en heppnaðist ekki svo hann fríhjól-
aði niður að næstu beygju þar sem
ökumaður lagði snarpt á hann inn-
úr beygjunni, með þeim afleiðing-
um að farmurinn kastaðist út í
yfirbygginguna og lagði bílinn á
götuna. Rann bíllinn um lengd sína
á hliðina eftir veginum og fiskurinn
flóð út um allt.
Bygging fyrir aldraða á Höfn í Hornafirði
Ekra og Lands-
bankinn semja
EKRA, sjálfseignarstofnun, hefur samið við Landsbanka íslands um
fjármögnun og ráðgjöf við byggingu íbúða fyrir aldraða á Víkurbraut
28 á Höfn. Þetta fyrirkomulag á sífellt meiri vinsældum að fagna og
Landsbankinn hefur nú fjármagnað byggingar eldri borgara víða á
landinu og á höfuðborgarsvæðinu.
London
frá
68
kr*
Með slíkum samningi vinnst
tvennt: Félagsmenn fá góðan tíma
til að selja íbúðir sínar eða losa um
annað fé og hagstæðir samningar
nást við verktaka, þegar traustur
aðili tekur að sér að tryggja fjár-
mögnun verksins.
Hönnuður hússins er Kím sf.,
byggingaraðili er Trévirki sf., Lands-
bankinn annast fjármögnun þess og
Fjarhitun fer með byggingar- og
kostnaðareftirlit. Landsbankaútibúið
á Höfn annast alla þjónustu og fyrir-
greiðslu við kaupendur og hefur Ní-
els Jónsson útibússtjóri yfírumsjón
með þeim málum.
Samningur Landsbankans og
Ekru var undirritaður 16. júlí og eru
byggingarframkvæmdir hafnar. Hér
er um 13 íbúðir að ræða auk þjón-
usturýmis sem bæjarsjóður stendur
að. Heildarkostnaður er um 80,5
milljónir kr. á verðlagi í maí 1993.
Samninginn undirrituðu Guð-
mundur Jónsson og Sigurður Hjalta-
son af hálfu Ekru hf., Níels Jónsson
útibússtjóri og Edvard Ragnarsson
Góðir gestir
FÉLAGAR úr Flugklúbbi Mosfellsbæjar sóttu Hólmvíkinga heim laugardaginn 17. júlí sl.
Flugdagnr á Hólmavíkurvelli
H61mavík.
ÞAÐ VAR mikið um að vera á Hólmavíkurflugvelli þegar félagar úr
Flugklúbbi Mosfellsbæjar fjölmenntu til Hólmavíkur á flugvélum sínum
laugardaginn 17. júlí síðastliðinn.
Alls komu tólf flugvélar af ýmsum
stærðum á staðinn, en einna mesta
athygli vakti koma rússneskrar tví-
þekju af Antonov-gerð. Meðal far-
þega i þeirri vél voru rússnesku
sendiherrahjónin á íslandi.
Félagar í Flugklúbbi Mosfellsbæj-
ar buðu Hólmvíkingum, ungum sem
öldunm, í stutta flugtúra og var það
vel þegið af heimamönnum. Á annað
hundrað Hólmvíkingar komu á stað-
inn í tilefni af flugkomunni og þótti
dagurinn heppnast einstaklega vel.
Miklar framkvæmdir hafa verið á
Hólmavíkurflugvelli undanfarið.
Lokið er frágangi 1.000 metra flug-
brautar og 60 metra öryggissvæða
á sitt hvorum enda, auk þess verður
ný flugstöð tekin formlega í notkun
á næstunni.
- M.H.M.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Hafnarsvæðið fegrað
STÓRÁTAK hefur verið gert við fegrun hafnasrvæðisins í Stykkis-
hólmi. Myndin er tekin úr Súgandisey.
Töluverðar fram-
kvæmdir við höfn- Bíianem
ina í Stykkishóhni
jéffrvib
Brekkustíg 38 - Njarðvík -
sími 92-15944 - fax 92-15946
Stykkishólmi.
TÖLUVERÐAR framkvæmdir hafa í sumar verið við höfnina í Stykk-
ishólmi. Meðal annars hefur svæðið allt verið lagt bundnu slitlagi, þar
á meðal leiðin út í Súgandisey þar sem flóabáturinn Baldur hefur at-
hafnasvæði.
Hafnarkanturinn hefur verið hlað- stjóri sagði að þessi framkvæmdir
inn varanlega og smekklega. Með ættu að duga lengi enda ættu bæjar-
þessu eru nú allir garðar hafnarinnar yfirvöld ávallt að horfa til framtíðar.
hlaðnir. Ólafur Sverrisson bæjar- Árni
Toyota 4Runner árg. '92, ek. 10
þús., álfelgur, 31“ dekk, sóllúga.
af markaðssviði H fyrir hönd Lands-
banka íslands og Syava Kristbjörg
Guðmundsdóttir og Ásta Guðmunds-
dóttir af hálfu bæjarins.
(Fréttatilkynning)
♦ ♦ ♦
Gönguferð
um Straums-
víkursvæðið
SUNNUDAGINN 25. júlí kl. 14,
mun skátafélagið Hraunbúar í
Hafnarfirði stand fyrir hinni mán-
aðarlegu sunnudagsgöngu sinni
fyrir almenning. Að þessu sinni
er ætlunin að taka fyrir svæðið í
kringum Straumsvík og Kapellu-
hraun.
Það er Jón Kr. Gunnarsson rithöf-
undur sem leiðir gönguna, en hann
er nýbúinn að gefa út bók um Hafn-
arfjörð. Gangan hefst við listamið-
stöðina í Straumi kl. 14 og mun taka
um lVi klst. Allir eru velkomnir í
gönguferðir skátanna síðasta sunnu-
dag hvers mánaðar.
-----»"»'-4---
Engeyjarför
á sunnudag
Boðið verður upp á tvær skoðun-
arferðir út í Engey sunnudaginn 25.
júlí. Fyrri ferðin verður farin kl. 10
en sú seinni kl. 14. Gengið verður
umhverfis eyna. Farið verður með
Viðeyjarferju úr Suðurbugt, bryggju
neðan við Hafnarbúðir. Ferðir fýrir
alla fjölskylduna. Verð 800 kr., hálft
gjald fyrir börn þrettán ára og yngri.
Það kostar minna
en þig grunar að
hringja til útlanda
PÓSTUR OG SÍMl
* 68 kr.: Verð á 1 mínútu símtali
(sjálfvirkt val) til London
á dagtaxta m.vsk.
Þú svalar lestrarþörf dagsins _
' stóum Moggans!
Biskup til
Yestfjarða
NÆSTKOMANDI miðvikudag, 28.
júlí, hefst vísitasía biskups íslands
herra Ólafs Skúlasonar í ísafjarð-
arprófastsdæmi.
I fréttatilkynnungu frá Biskups-
stofu segir: „Biskup hefur vísitasíuna
á Hrafnseyri og vísiterar síðan Þing-
eyrarkirkju kl. 14. Á fimmtudeginum
verður síðan kirkjuskoðun a ðHrauni
og á Sæbóli.
Biskup mun vlsitera alla söfnuði
og kirkjur í prófastdæminu, sem eru
18 talsins. Með biskupi í för verður
eiginkona hans, frú Ebba Sigurðar-
dóttir og prófastur ísafjarðarpróf-
astsdæmis, séra Baldur Vilhelmsson
í Vatnsfirði. Vísitasíu biskups lýkur
7. ágúst.“
VINDHEIMAMELAR
1993
DAGSKRÁ:
Föstudagur 30. júlí
Kl. 9.00 Dómar kynbótahrossa.
Laugardagur 31. ágúst
Kl. 10.00 Töltkeppni - 200 m völlur.
Kl. 10.00 Eldri flokkur unglinga.
Yngri flokkur unglinga.
Kl. 13.00 Gæðaíþróttir A fl.
Gæðaíþróttir B fl.
Skeið, fyrri sprettur.
Yfirlitssýning kynþótahrossa.
Björn og Hrímnir.
Sigurbjörn og Vídalín.
Opin keppni í gæðingaíþróttum.
Opin keppni í tölti og gæðingaskeiði.
í unglingakeppni leiða saman hesta sína Ólafsfirðing-
ar, Siglfirðingar, Húnvetningar og Skagfirðingar.
Sunnudagur 1. ágúst
Kl. 11.00 Gæðingaskeið.
Kl. 13.00 Töltúrslit.
Yngri fl. unglinga, úrslit.
Eldri fl. unglinga, úrslit.
Björn og Hrímnir.
Sigurbjörn og Vídalín.
Kynbótahross, úrval.
Kl. 16.00 Skeið, seinni sprettur.
Gæðingaíþróttir B fl., úrslit.
Gæðingaíþróttir A fl., úrslit.
Verðlaun í skeiði 250 m 1. verðl. kr. 75.000,-
2. verðl. kr. 30.000,-
3. verðl. kr. 20.000,-
150 m 1. verðl. kr. 40.000,-
2. verðl. kr. 20.000,-
3. verðl. kr. 15.000,-
Skráning hjá Magnúsi Lárussyni á Hólum í síma
. 95-36587 dagana 26. og 27. júlí frá kl. 10-22.
Aðgangseyrir kr. 1.500 fyrir alla dagana.
Kr. 1.000 á sunnudag.