Morgunblaðið - 24.07.1993, Síða 24
24___________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993_
Fjölbreytt hátíðarhöld um
verslunarmannahelgina
SKIPULAGÐAR útihátíðir um verslunarmannahelgina 30. júlí
til 2. ágúst verða að þessu sinni 13 talsins. Það virðist færast í
vöxt að yfirvöld í bæjum og kaupstöðum leggi allan staðinn
undir hátíðarhöld. Þannig varð til Síldarævintýri á Siglufirði og
Halló Akureyri! og í ár verður í fyrsta sinn haldið Neistaflug ’93
í Neskaupstað. Einstakar útihátíðir eiga orðið sinn fasta sess
meðal landsmanna en um það bera Þjóðhátíðin í Vestmannaeyj-
um, bindindismótið á Galtalæk, fjölskylduhátíðin í Vík í Mýrdal
og nýaldarmótið á Hellnum glöggt vitni. Nýrri af nálinni eru
hátíðir á borð við útihátíðina á Eiðum, fjölskylduhátíðir á Kirkju-
bæjarklaustri og í Vatnaskógi. Akveðna sérstöðu hafa hátíðirnar
að Eyjólfsstöðum, í Kirkjulækjarkoti og í Húsafelli. Hin fyrst-
nefnda er ætluð unglingum, á Kirkjulækjarkoti er landsmót
Hvítasunnusafnaðarins og í Húsafelli er fjölskylduhátíð AA og
Alanon félaga.
Utih tíðir um Verslunarmannahelgina
Akureyri: Halló Akureyri Bæjarhátíð. Fritt inn á svæðið.
Eiðan Útihátíð og dansleikir á Hótel Valaskjálf. Verð kr. 6.000.
Aldurstakmark 16 ára, nema í fylgd forráðamanna.
Eyjóifsstaðin Æskulýðshátíð Verð kr. 4-5.000, gisting og matur innifalinn.
Galtalækun Bindindismót Verð kr. 5.300,13-15 ára kr. 4.800,
forsala kr. 4.800/4.300, fritt f. 12 ára og yngri.
Hellnan Snæfellsás '93 Nýaldarmót. Verð kr. 3.500. Fritt f. 13 ára og yngri.
Húsafell: Sumarmót AA og Alanon félaga. Verð kr. 2.500, frítt f. 15 ára og yngri.
Kirkjubæjarkl.: Fjölskylduhátíð Frítt inn á svæðið.
Kirkjulækjarkot: Landsmót Hvítasunnusafnaðarins. Frítt inn á svæðið.
Neskaupstaðun Neistaflug ’93 Bæjarhátíð. Frítt inn á svæðið.
Siglufjörðun Síldarævintýri Bæjartiátíð. Fritt inn á svæðið.
Vatnaskógun Sæludagar Fjölskylduhátíð. Verð kr. 2.000, fritt f. 12 ára og yngri.
Vestmannaeyjan Þjóðhátíð Verð kr. 6.500, fritt f. 13 ára og yngri.
Vík í Mýrdal: Fjölskylduhátíð Fritt inn á svæðið.
Þjóðhátíð I Eyjum
Skipulag Þjóðhátíðar í Eyjum
er að þessu sinni í höndum Týr-
ara. Hátíðin verður formlega sett
klukkan 15 föstudaginn 30. júlí
en samkvæmt hefð verður svokall-
að húkkaraball haldið kvöldið áð-
ur. Hljómsveitimar Pláhnetan,
SSSól og Todmobile munu leika á
stóra pallinum. Hálft í hvoru, Blús-
menn Andreu, Rokkabillýband
Reykjavíkur, Sigtryggur dyra-
vörður, Bone Chine, Léttasta lund-
in, Vinir Óla, Yukatan, Stóru börn-
in leika sér, Dr. Sáli og fleiri
munu einnig skemmta. Hreiðar
Örn Stefánsson mun sjá um dag-
skrá fyrir yngri kynslóðina.
Alþingismaðurinn Ami Johnsen
verður kynnir á Þjóðhátíðinni og
mun sjá um Brekkusönginn að
kvöldi sunnudags. Á föstudags-
kvöldinu verður brenna á Fjósa-
kletti og flugeldum verður skotið
á loft laugardagskvöldið.
Miðaverð á Þjóðhátíðina er
óbreytt kr. 6.500 en ókeypis er
fyrir böm 13 ára og yngri. Hægt
er að kaupa pakkaferð hjá Flug-
leiðum og umboðsmönnum um allt
land og kostar slíkur pakki frá
Reykjavík kr. 10.990 en innifalið
er ferðir og aðgöngumiði. Hægt
er að ferðast með Heijólfí til Eyja
en miði aðra leiðina kostar 1.300
krónur.
Galtalækur
Á bindindismótinu í Galtalækj-
arskógi verður boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá og aðstandendur
segja að allir fjölskyldumeðlimir
muni geta fundið eitthvað við sitt
hæfí. Á daginn munu Spaugstofan
og félagamir Mikki refur og Lilli
klifurmús skemmta. , Magnús
Scheving þolfimimeistari mun
ennfremur stjóma þolæfíngum í
hádeginu. Fleira má fínna sér til
dundurs svo sem; hjólreiðakeppni,
leiktækjaland, minigolf, barnaball
og söngvarakeppni fyrir börnin,
auk þess sem séra Pálmi Matthías-
son mun messa.
Á kvöldvökum heldur Spaug-
stofan áfram gríni sínu, Hörður
Torfa trúbadúr mun syngja sem
og Raddbandið. Magnús Scheving
heldur áfram tilraunum sínum við
að koma fólki í form. Á kvöldin
sjá síðan Geirmundur Valtýsson,
Pandemonium og Orkin hans Nóa
um tónlistardagskrá. Á laugar-
dagskvöldinu verður efnt til flug-
eldasýningar og þá mun varðeldur
verða kveiktur.
Miðaverð er kr. 5.300 fyrir full-
orðna og kr. 4.800 fyrir unglinga
en böm 12 ára og yngri í fylgd
með fullorðnum fá ókeypis inn á
svæðið. Fram til 26. júlí næstkom-
andi kostar miðinn í forsölu 4.800
kr. fyrir fullorðna og 4.300 kr.
fyrir unglinga. Mótshaldarar em
íslenskir ungtemplarar og Um-
dæmisstúka Suðurlands nr. 1.
Eiðar
Útihátíð verður í ár haldin á
Eiðum í annað sinn en Ungmenna-
og íþróttasamband Austurlands
hefur umsjón með Eiðahátíðinni.
Hátíðin er kynnt sem fjölskylduhá-
tíð en börn og unglingar yngri en
16 ára verða að koma í fylgd for-
ráðamanna.
Mikil áhersla er lögð á dans-
leikjahald en fjórar hljómsveitir;
GCD, Ný dönsk, Jet Black Joe og
Sú Ellen munu leika fyrir dansi.
Rúmt verður um dansandi gesti
hátíðarinnar því danspallurinn að
Eiðum, sem reistur var í fyrra, er
einn stærsti sinnar tegundar eða
um 600 m2 að flatarmáli. Þá verð-
ur haldin hljómsveitakeppni og
geta áhugasamir skráð sig hjá
mótshöldurum.
Meðal skemmtiatriða verður
sýning fímm fallhlífastökkvara en
þeir munu reyna að mynda rós í
stökki sínu. Varðeldar verða
kveiktir á hátíðarsvæðinu og flug-
eldum verður þeytt á loft. Loks
má nefna að gestir geta reynt með
sér í götukörfubolta á hátíðinni.
Hátíðarhöldin á Eiðum munu
tengjast dansleikjahaldi í Hótel
Valaskjálf en þar mun Bogomil
Font og milljónamæringamir leika
fyrir dansi. Miðaverð á Eiðahátíð-
ina er óbreytt frá því fyrra og
kostar miðinn 6.000 krónur. Mið-
inn gildir einnig á dansleikina á
Hótel Valaskjálf. Aðstandendur
hátíðarinnar segja loftbrú verða
myndaða milli Egilsstaða og
Reykjavíkur og tíðar rútuferðir
verða frá Akureyri, Húsavík,
Homafírði og Reykjavík.
Vatnaskógur
Á Sæludöguin í Vatnaskógi
verður þess minnst að 70 ár era
liðin frá upphafí sumarbúðastarfs
í Vatnaskógi og mun það setja
sterkan svip á hátíðina. Þá mun
einkenna hátíðina sú stefna að-
standenda hennar að hún verði
með öllu áfengislaus. Kvöldvökur,
Guðsþjónusta, bænastundir, gosp-
eltónleikar, sjóskíði, varðeldur,
krakkaklúbbur, kappróður,
þrautakeppni, trönuborgir, kodda-
slagur á vatninu, grillveisla,
fræðslustundir, söngvarakeppni,
arinstund, fótbolti og bátar era
meðal þess, sem bryddað verður
upp á Sæludagana. Raddbandið
verður með bamadagskrá kl. 17 á
laugardeginum.
Miðaverð á hátíðina, sem er í
umsjón nokkurra starfshópa innan
kirkjunnar, er 2.000 krónur en
ókeypis er fyrir börn yngri en 13
ára. Hægt er að fá gistingu í
svefnskálum en sérstaklega þarf
að greiða fyrir hana. Veitingasala
verður á staðnum en einnig að-
staða til að snæða nesti innan-
dyra. Rútuþjónusta Sæmundar
Sigmundssonar í Borgamesi mun
annast sætaferðir á Sæludagana.
Neistaflug ’93
Fjölskylduhátíð verður haldin í
Neskaupstað undir nafninu
Neistaflug ’93. Enginn aðgangs-
eyrir verður innheimtur á hátíð-
inni, sem ferðamálafélag Nes-
kaupstaðar stendur að með aðstoð
hagsmunahópa í bænum.
Útimarkaður, útibíó og tívolí verða
starfrækt í bænum og sjóskíðasýn-
ing og sæsleðakeppni munu fara
fram. Famar verða stuttar skoð-
unarferðir bæði á sjó og landi auk
þess sem keppt verður í körfubolta
og öldungar á Austurlandi munu
reyna með sér í knattspyrnu. Loks
verður haldið sjóstangaveiðimót.
Listasmiðja Norðfjarðar mun
standa fyrir málverkasýningum og
síðasta kvöldið verður varðeldur
kveiktur í lystigarði bæjarins.
Heimamenn munu leika stórt hlut-
verk í tónlistarappákomum en auk
þess mun KK-bandið og nokkrir
trúbadúrar sjá um tónlistarflutn-
ing.
Öll venjuleg þjónusta bæjarins,
svo sem sundlaugar, náttúrugripa-
safn og sjoppur verða til staðar.
Hellnar-Snæfellsás 1993
Á Snæfellsási verður í ár haldin
hátíð í sjöunda sinn þar sem lögð
er áhersla á ræktun huga og lík-
ama. Boðið verður upp á fjölmargt
sem því tengist, svo sem árateikn-
ingar, námskeið í shamanisma,
friðarstund við Bárðarlaug og
námskeið í skyggnilýsingum. Þar
mun verða kynnt víkingakort,
mannspeki, áhrif fæðu á heilsuna,
orka hugans og ilmkjarnaolíur í
nuddi og heilun og margt fleira.
. Að kvöldi laugardags verður
draumadans, uppranninn hjá Pa-
iute indíánum, stiginn fyrir þá
eina, sem orðnir eru 18 ára og
eldri . Á sama tíma geta börn og
unglingar undir 18 ára aldri stigið
indíánadans. Farið verður í göngu-
ferð um fjöruna á Hellnum og
Akido hópurinn mun sýna forna
japanska bardagalist. Miðaverð er
kr. 3.500 en frítt er fyrir börn
yngri en 14 ára. Snæfellsás ’93
er mót án vímugjafa.
Vík í Mýrdal
Á áttundu fjölskylduhátiðinni í Vík
í Mýrdal verður ýmislegt í boði
fyrir alla fjölskylduna en það eru
ungmennafélagið Drangur og
björgunarsveitin Víkveiji, sem
standa að þessari hátíð. Að sögn
Njarðar Helgasonar hjá Víkveija
verður á laugardeginum boðið upp
á götukörfubolta, barnaskemmt-
un, söngvarakeppni, gönguferðir,
auk þess sem grillað verður undir
beram himni.
Á sunnudeginum verður sett
upp barnaskemmtun, söngvara-
keppni og einnig verður keppt í
strandblaki. Um kvöldið verður
loks haldið hestamót og hestasýn-
ing. í félagsheimilinu Laufskála
mun hljómsveitin Gloría frá Húsa-
vík leika fyrir dansi bæði kvöldin.
Auk skipulagðrar dagskrár segir
Njörður að ýmislegt megi fínna
sér til afþreyingar; gönguleiðir séu
margar stikaðar, golfvöllur byggð-
arlagsins verður opinn og boðið
verður upp á ferðir með hjólabát-
um.
Ekkert mun kosta inn á svæðið
að sögn Njarðar en fyrir dvöl á
tjaldsvæðum greiða menn 2.500
krónur fyrir alla helgina en minna
ef gist er í færri nætur. Þá verður
selt inn á böllin hvort. í sínu lagi
og greiða verður þátttökugjald í
götuboltakeppninni.
Síldarævintýri
Siglfírðingar munu um verslun-
armannahelgina bjóða fólki að
upplifa Síldarævintýrið í þriðja
sinn. Hátíðarhöldin heijast í ár
fimmtudaginn 29. júlí og þá verð-
ur meðal annars opnuð myndlist-
arsýning Siguijóns Jóhannssonar
en myndir hans eru allar tengdar
mannlífí síldaráranna.
Dagskráin á Sigló verður með
fjölbreyttu sniði en áhersla verður
lögð á að skapa ósvikna síldar-
stemmningu; tónlist síldaráranna
leikin og ræst verður í síldarsölt-
un. Dansleikir verða haldnir öll
kvöld á Hótel Læk nema laugar-
dagskvöldið en þá verður haldin
síldarhátíð í miðbænum. Þá verða
ennfremur haldnir tónleikar
föstudeginum og sunnudeginun
leiksviði við bæjartorgið. Miðalc
menn, Gautar, Max og Storrr
sjá um tónlistarflutning á Síldi
ævintýrinu 1993.
Skipulögð skemmtiatriði fy
börn verða á hveijum degi. Tív
mun starfa alla helgina frá
með föstudeginum og ýmsar kur
uglegar persónur úr barnaleiki
um munu heimsækja börnin.
öðram skemmtiatriðum fyrir bc
og fullorðna má nefna leiksýnin
ar leikfélaga Siglufjarðar
Stykkishólms, skemmtidagsk
Fílapensla, söngskemmtun þjc
lagakvartettsins Stráka, tónlei
Harmonikkusveitar Siglufjarð
og Eyjafjarðar. Þá verður lo
haldið sjóstangaveiðimót og doi
veiðikeppni.
Ekkert kostar inn á Síldarævi
týrið sjálft. Merki hátíðarinr
verða aftur á móti seld og m
ágóði af sölu þeirra renna til Sí!
arminjasafnins.
Halló Akureyri!
Á Akureyri verður haldin há'
undir heitinu Halló Akureyri! Fjj>
margir aðilar í ferðaþjónustu ha
í samvinnu við Ákureyrarl
skipulagt fjölbreytta dagskrá, sc
að sögn Guðmundar Ómars P<
urssonar er sniðin þannig að ha
allri fjölskyldunni. Ekki er kraf
mótsgjalds heldur geta gestir va
milli dagskrárliða og greitt fy
hvern og einn eftir atvikum.
Guðmundur segir hátíði
hugsaða sem sannkallaða fj>
skylduskemmtun sem höfði
fólks á öllum aldri. Hann nefí
að bömin geti fundið margt \
sitt hæfí en tívolí mun meðal an
ars verða starfrækt í bænum. Fj
ir hina eldri verður boðið upp
sjóstangaveiði, sjávaríþrótt
söngvarakeppni, bílabíó, hest
leigu og fjöjmarga dansleiki. Þ
munu hljómsveitir á borð við Pe
kan, Pláhnetuna, Rokkabillýba:
Reykjavíkur og Skriðjöklana lei
fyrir dansi á hinum ým
skemmtistöðum bæjarins. Eins >
í fyrra mun „Pakkhúsið" svoka
aða verða opið skemmtanafíklu
lengur fram á nótt en að:
skemmtistaðir.
Guðmundur tekur það fram
Landsmót skáta verði haldið
Kjarnaskógi, útivistarsvæði Aki
eyringa, á svipuðum tíma frá 2
júlí til 1. ágúst. Hann segir
gestir Halló Akureyrar! séu v<
komnir á Landsmótið en þar g<
að líta margt forvitnilegt >
spennandi. Hann bendir einnig
að á hátíðarsvæðinu verði boc
upp á aðskilin tjaldsvæði og j:
geti gestir hátíðarinnar valið hvc
þeir vilji dveljast í ró og næði e>
í glaum og gleði.
Kirkjubæjarklaustur
Á vegum Skaftárhrepps verð
boðað til fjölskylduhátíðar
Kirkjubæjarklaustri um versluns
mannahelgina. María Guðmund
dóttir, einn skipuleggjenda hátí
arinnar, segir að áhersla verði löj
á náttúraskoðun, útivist <
skemmtiatriði, sem höfði til allr
fjölskyldunnar. Að sögn henn
verða daglegar ferðir farnar u
helgina í Laka, Eldgjá, Gnjú
staðaskóg, Skaftafellsfjöru og u|
á Skálafellsjökul. Þá verða hest
og bátaleigur opnar og gestir ge
farið í golf og veiðiferðir sér
ánægju. Loks verður kapellan op
gestum og gangandi en þar e
reglulega haldnar sögustundir.
Yfír hátíðarsvæðinu munu flu
vélar sýna listflug auk þess se
varðeldur verður kveiktur og flu
eldum skotið á loft. María seg
að þrír dansleikir verði haldnir
Kirkjuhvoli, félagsheimili bygg
arlagsins, þar sem Baggaband
mun sjá um tónlistarflutning <
Nafnlausa hljómsveitin mun leil
í hléum.
Ekkert mótsgjald þarf að greii
en miði á hvern dansleik mj
kosta 1.500-1.800 krónur. Öll