Morgunblaðið - 24.07.1993, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
25
þjónusta byggðarlagsins verður
opin gestum hátíðarinnar.
Eyjólfsstaðir
Samtökin Ungt fólk með hlut-
verk, sem starfa innan þjóðkirkj-
unnar, munu standa að vímulausu
æskulýðsmóti í höfuðstöðvum sín-
um á Eyjólfsstöðum í Vallarhreppi
á Austurlandi. Guðbjartur Arna-
son starfsmaður samtakanna segir
mótið skipulagt fyrir unglinga í
æskulýðssamtökum á Austurlandi
en unglingar hvaðanæva af land-
inu séu velkomnir. Að mati hans
verða flestir gesta hátíðarinnar á
aldrinum 13-15 ára.
Hann segir að dagskrá mótsins
verði mjög íjölbreytt og að margt
verði til gamans gert á mótinu.
Hann tekur það þó skýrt fram að
öllu áfengi verði úthýst en segir
það mikilvægan kost fyrir ungl-
inga að geta valið vímulausa
skemmtun.
Að sögn Guðbjarts verður boðið
upp á klassískar kvöldvökur með
söng og leik. Þá geta gestir lagt
í gönguferðir um nágrennið, farið
á bátum eftir Grímsá eða reynt
með sér í ýmsum leikjum. Þá verða
farnar ævintýraferðir upp í Eyj-
ólfsstaðaskóg þar sem meðal ann-
ars verður kveiktur varðeldur.
Hann segir mótskostnað verða
haldið í lágmarki en innifalið í
mótsgjaldi, sem verður á bilinu
4-5 þúsund krónur, er gistingar-
kostnaður og fullt uppihald.
Kirkjulækjarkot
Hvítasunnumenn halda sitt ár-
lega landsmót í Kirkjulækjarkoti,
Fljótshlíð, um verslunarmanna-
helgina en það verður sett fimmtu-
dagskvöldið 29. júlí. Theodór Birg-
isson kveður mótið verða við allra
hæfi og býður alla velkomna á
það. í ár verður sérstakt barnamót
haldið samhliða landsmótinu en
þar verður dagskrá allan daginn
og meðal annars boðið upp á leiki,
föndur, fræðslu og brúðuleikhús.
Theodór segir mikinn og lífleg-
an söng munu einkenna samveru-
stundir hátíðargesta þar sem sér-
stök áhersla verði lögð á fræðslu
og fyrirbænaþjónustu. Kvöldvökur
eiga sinn fasta sess á hátíð Hvíta-
sunnumanna og aukinheldur verð-
ur kveiktur varðeldur.
Að sögn Theodórs er aðstaða
til samkomuhalds mjög góð í
Kirkjulækjarkoti en samkomur
verða haldnar í tveimur stórum,
upphituðum tjöldum, sem hann
segir rúma um 800 manns. Sér-
stök gæsla verður fyrir yngstu
börnin á meðan á samkomu stend-
ur.
Frítt er inn á mótssvæði Hvíta-
sunnumanna en nóttin á tjaldstæði
kostar 300 krónur. Matsala verður
ennfremur rekin á mótinu.
Húsafell
Sumarmót félaga í AA og Alan-
on samtökunum verður haldið í
Húsafelli en slíkt mót hefur verið
á þessum stað síðustu fjögur sum-
ur. Mótið er að sögn aðstandenda
sannkölluð fjölskylduhátíð og geta
gestir notið fjölbreyttrar dagskrár
í Húsafellsskóginum.
Tvö stór flugskýli, sem nýlega
hafa verið reist á svæðinu, verða
lögð undir dansleikjahald en það
eru hljómsveitirnar Sniglabandið
og Blackout, sem munu sjá fyrir
þeim tónum, sem gestir geta dans-
að við. Þá verður diskótek starf-
rækt á staðnum en gestir geta
einnig tekið þátt í hefðbundnum
kvöldvökum. Aðstandendur benda
og á fjölbreytta aðstöðu til afþrey-
ingar, sem þegar sé til staðar á
svæðinu, svo sem sundlaug, mini-
golf og hesta- og hjólaleigu.
Börn og unglingar, 15 ára og
yngri, fá frítt inn á svæðið en
aðrir greiða mótsgjald sem ákveð-
ið hefur verið 2.500 krónur. Farin
verður áætlunarferð með rútu-
þjónustu Sæmundar frá BSÍ
klukkan 18.30 föstudaginn 30.
júlí.
Fjölskylduhátíð
Fjölnis í Grafarvogi
TORFÆRUSPYRNA, íslandsmót í motorkross, hafnabolti, fornbíla-
sýning, fjölskylduratleikur, listflug, fallhlífastökk og fleira verður á
dagskrá í Grafarvoginum í dag, laugardag. Hátiðin ber yfirskriftina
„Geggjað fjör í Grafarvogi“ og er haldin til að safna fé til áfram-
haldandi framkvæmda á íþróttasvæði Fjölnis við Dalhús. Hátíðin er
á vegum fjölskylduklúbbs Fjölnis
íþróttasvæði félagsins.
Bílar leika stórt hlutverk
Torfæruspyma Bílabúðar Benna
1993 verður milli kl. 13 og 15 á
laugardeginum og byggist keppnin
á tveimur brautum, sem m.a. eru
búnar djúpum drullupytti. íslands-
mótið 1993 í motorkross verður i
fyrsta skipti haldið innan höfuð-
borgarsvæðisins á hátíðinni. Tutt-
ugu keppendur hefja keppnina í
undanrás kl. 11 um morguninn en
úrslitakeppnin í motorkross fer síð-
an fram milli kl. 13 og 15. Bak við
íþróttamiðstöðina í Grafarvogi
verður sýning á fombílum.
Hreystimótið 1993 í hafnabolta
verður haldið í fyrsta skipti. í hveiju
liði verða fimm keppendur og á
staðnum verður nauðsynlegur bún-
aður til keppni ásamt því að sér-
stakur leiðbeinandi aðstoðar hvert
lið í keppni. Reglur í hafnaboltanum
em ekki ósvipaðar og margir þekkja
í kílubolta. Sportvöruverslunin
Hreysti hf. verður með sölukynn-
ingu á hafnaboltavörum á meðan á
keppninni stendur milli kl. 13 og 17.
í Grafarvogi og verður haldin á
Fjölskylduratleikur
Fjölskylduratleikur verður á há-
tíðinni í Grafarvogi og byggist hann
á því að þegar fjölskyldan skráir sig
á milli 13 til 16 á laugardeginum
eru henni afhent lýsing á sérstökum
stað, sem hún þarf að finna. Á þeim
stað verða afhent staðfestingargögn
og lýsing á næsta stað, sem leita
skal að. Ratleikurinn gengur ekki
út á tíma heldur létta göngu sam-
kvæmt því sem hentar hverjum og
einum. Þegar á síðasta staðinn er
komið fær fjölskyldan viðurkenning-
arskjal og setur nafn sitt í pott þar
sem verður dregið um verðlaun.
Ýmislegt fleira verður í boði í
Grafarvoginum á laugardaginn m.a.
listflug milli kl. 13.30 og 14.30 fyr-
ir ofan íþróttasvæðið, fallhlífarstökk
kl. 14 á efsta velli íþróttasvæðisins
og leiktæki fyrir börnin allan daginn
við íþróttamiðstöðina. Fólki mun
gefast tækifæri til að prófa að slá
bolta með hafnaboltakylfu. Veit-
ingasala verður á nokkrum stöðum
á svæðinu og í samkomusal á þriðju
hæð íþróttamiðstöðvarinnar verður
boðið upp á kaffi og kökur.
Dómkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
Ferð eldri borgara
DÓMKIRKJAN efnir til árlegr-
ar sumarferðar fyrir eldri borg-
ara úr söfnuðinum nk. miðviku-
dag, 28. júlí.
Lagt verður af stað frá Dóm-
kirkjunni kl. 13 og ekið að Flúðum
og þar drukkið kaffí. Síðan verður
staldrað við í Hruna, kirkjan skoð-
uð og höfð helgistund. Leiðin ligg-
ur síðan yfir Hvítá á Brúarhlöðum
og komið verður að Gullfossi og
Geysi og loks ekið til Reykjavíkur
niður Biskupstungur og Grímsnes.
Heyannir á Árbæjarsafni
TÚNIÐ við Árbæinn verður slegið með orfi og ljá sunnudaginn 25. júlí.
Einnig verður rakað, rifjað, tekið saman og bundið í bagga. Gestir
eru hvattir til að taka þátt í heyskapnum. Veitingasala í Dillonshúsi
verður opin og einnig geta menn brugðið sér í Árbæinn, þar sem
boðið verður upp á lummur og fengist við ýmis störf á baðstofulofti.
Hafnardagur í
Gömlu höfninni
HAFNARDAGAR verða í Gömlu höfninni í dag, laugardag. júlí.
Ýmslegt verður á döfinni og mun Reykjavíkurhöfn m.a. bjóða
þeim sem vilja ókeypis í tivolíið á Miðbakka milli kl. 10 og 14.
Skemmtiferðaskip og varðskip munu liggja í höfn allan daginn
og sýna björgunaræfingar. Á Austurbakka verður markaðstorg
með sjávarvörur og sjávarréttaveitingahús. Siglingakeppni, ferðir
um Sundin, sjótívolí, djasstónleikar og fleira verður líka á hátíðar-
svæðinu, sem nær yfir Faxagarð, Austurbakka og Miðbakka.
Björgunaræfingar
Kl. 8 á laugardagsmorgun verða
flögg dregin að húni og hátíðar-
svæðið skreytt. Frá klukkan 8 til
18 verður skemmtiferðaskipið
Funchal við Miðbakka, danska
varðskipið Vædderen við Faxa-
garð og varðskipið Ægir við
Austurbakka. Hægt verður að
skoða Vædderen og Ægi milli kl.
14 og 17. Varðskipin munu síðan
verða með björgunaræfingu milli
10.30 og 11.30 ogafturmilli 13.15
og 13.45. Hin árlega siglinga-
keppni Reykjavíkurhafnar og sigl-
ingafélagsins Brokeyjar verður
ræst með fallbyssu kl. 12.
Unglingar á nám-
skeið með kennunim
í lok ágúst gefst unglingum á
aldrinum 13-16 ára kostur á stuttu
og óvenjulegu námskeiði. Þá verður
haldið endurmenntunarnámskeið
fyrir kennara um notkun myndefnis
og tölvuforrita í stærðfræðinámi
unglinga. Um 25 kennarar munu
sækja námskeiðið. Hluta nám-
skeiðsins er fyrirhugað að vinna
með unglingum og reyna þá ýmis
verkefni þar sem myndefni og
tölvuforrit eru notuð sem eðlilegur
hluti af stærðfræðinámi. Vinnan
með unglingunum verður 23., 24.
og 25. ágúst kl. 13-16 hvern dag.
Þeim unglingum, sem hafa áhuga
á að taka þátt í námskeiðinu, er
bent á að hafa samband við skrif-
stofu Kennataháskóla íslands og
skrá sig til þátttöku. Takmarkaður
fjöldi kemst að en aðsókn á hliðstæð
námskeið hefur verið mjög mikil
undanfarin ár.
(Fréttatilkynning)
Sigling um Sundin
Við Grófarbryggju verður dorg-
veiðikeppni milli kl. 10 og 15 og
Reykjavíkurhöfn býður upp á sigl-
ingar um Sundin með m/s Fjöru-
nesi milli kl. 13 og 17. Lúðrasveit
verkalýðsins leikur lög frá 13.30
til 14 og milli klukkan 14 og 17
verður Slysavarnardeild Ingólfs
með sjótívolí fyrir yngstu kynSlóð-
ina.
Kl. 16 hefjast síðan djasstón-
leikar á Austurbakka í boði
Reykjavíkurhafnar, þar sem
Hljómsveit Carls Möller mun leika.
Þeir ætla meðal annars að frum-
flytja lagið Hafnarblús, sem hljóm-
sveitin samdi í tilefni Hafnardags-
ins. Tónleikunum lýkur kl. 18.
Gönguferðir í Viðey um helgma
DAGSKRÁ helgarinnar verður
sem hér segir:
Laugardagur 24. júlí: Göngu-
fer á Austureyna. Farið verður
af Viðeyjarhlaði kl. 14.15 en báts-
ferð verður á heila tímanum frá
kl. 13. Gengið verður austur á
Sundabakka, skoðaður skólinn,
sem nú er verið að endurbyggja.
Einnig verða skoðaðar aðrar leifar
þorpsins, sem reis á Sundabakka
í byijun þessarar aldar. Þaðan
verður haldið yfir Þórsnes, yfir í
Kríusund og eftir suðurströndinni
heim að Viðeyjarstofu með við-
komu í Kvennagönguhólum. Þar
er að finna forna náttúrugerða
rétt og heillisskútann Paradís.
Ferðinni lýkur á Heljarkinn við
nýja útsýnisskífu sem þar er að
finna. Kaffisala verður í Viðeyj-
arstofu kl. 14-16.
Minnt er á hestaleiguna í eyj-
unni sem notið hefur mikilla vin-
sælda, ekki síst meðal barna. Báts-
ferðir verða á heila tímanum sem
fyrr segir frá kl. 13 út í eyju en
á hálfa tímanum til baka til kl.
17.30. Farið er frá Klettsvör í
Sundahöfn.
Sunnudagur 25. júlí: Staðar-
skoðun kl. 15.15. Hún hefst með
því að kirkjan verður skoðuð og
rakin saga hennar og stofnun.
Þetta er næstelsta guðshús Iands-
ins og elsta steinbyggða íbúðar-
húsið á íslandi. Að því búnu verð-
ur gengið um Viðeyjarhlöð, fom-
leifagröfturinn skoðaður, sagan
rifjuð upp og sagt verður frá því
helsta, sem fyrir augu ber í eynni
og nágrenni hennar. Gengið verð-
ur upp Heljarkinn og litið yfir
eyna og síðan til kjallara Viðeyjar-
stofu og litið á myndir frá viðgerð-
um á húsum og fornleifasýningu
sem þar er.
Hestaleiga, kaffisala og báts-
ferðir verða með sama hætt.i og á
laugardag.
Atriði úr myndinni Gengið.
Sagabíó sýn-
ir Gengið
SAGABÍÓ hefur nú tekið til
sýninga myndina Gengið (Blood
In Blood Out) eftir Óskarsverð-
launaleikstjórann Taylor Hack-
ford.
Saga þessi segir frá lífi og sam-
skiptum þriggja ungra manna,
sem alast hafa upp sem bræður..
þeim Miklo (Damian Chapa), Cruz
(Jesse Borrego) og Paco (Benjam-
in Bratt). Þeir eru af mexíkóskum
ættum og búa í mexíkóska hverf-
inu í austurhluta Los Angeles
borgar. Tilvist þeirra eru tengd
óijúfanlegum böndum, en í kjölfar
fullorðnisáranna tekur líf þeirra
breytingum. Hálfbræðurnir Paco
og Cruz hafa alist upp ásamt
frænda þeirra Milko frá blautu
barnsbeini og deilt með sér sömu
draumum og framtíðaráætlunum.
Paco er skapheitur og baráttuglað-
ur en Cruz er hæfileikaríkur lista-
maður. Milko, sem er hvítur í aðra
ættina, passar aldrei almennilega
inn í hópinn. Skyndiákvörðun, sem
tekin er í hita augnabliksins, á
eftir að hafa afdrifaríkar afleiðing-
ar í for með sér fyrir líf þeirra
allra. Hér er á ferðinni spennandi
mynd um bræðralag, valdabaráttu
og togstreitu ólíkra viðhorfa.