Morgunblaðið - 24.07.1993, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
27
Marg’arítur
Runnabrá — Argyranthemum frutescens.
Blóm vikunnar
Umsjón Ágústa Björnsdóttir
Nr. 274
Nafnið margaríta eða
marguerite eins og það er ritað
á frönsku hefur alltaf haft yfir
sér þokkafulla dulúð — e.t.v.
vegna þess að ekki er fullkom-
lega ljóst við hvaða plöntu eða
plöntur er átt. Þó má slá því
föstu að margarítur eru körfu-
blóm og tilheyrðu eitt sinn ætt-
kvíslinni Chrysanthemum — pre-
stafíflum. Ekki alls fyrir löngu
komust grasafræðingar með
klærnar í þessa ættkvísl og tóku
hana til gagngerðrar endurskoð-
unar með þeim afleiðingum, að
margaríturnar flokkast nú í aðr-
ar ættkvíslir.
Ein þeirra plantna sem stund-
um hefur verið nefnd margaríta
norðursins er Freyjubrá — Leuc-
anthemum vulgare, 30-60 sm
há fjölær jurt. Blómin minna á
blóm Baldursbrár, körfur með
gulum hvirfilblómum og hvítum
jaðarblómum. Hún véx í Evrópu
og Asíu og hefur reyndar slæðst
víðar, t.d. til íslands, þar sem
hún fínnst hér og hvar í nánd
við tún, sáðsléttur og garða.
Margarítunafn hennar er talið
dregið af nafni Margrétar
(Marguerite) af Anjou (1429-
1482), franskrar prinsessu, sem
15 ára gömul giftist Hinriki VI
Englandskonungi. Margrét var
mikill skörungur og var um tíma
leiðtogi Lancasterættarinnar í
Rósastríðunum. Að hætti aðals-
kvenna fyrri alda lét hún sauma
einkennismerki sitt á klæði hirð-
fólks síns. Þetta merki voru þrjú
margarítublóm eða Freyjubrár
eins og við köllum þær.
Önnur planta hefur verið
nefnd margaríta suðursins. Það
er Runnabrá — Argyranthemum
frutescens, sem nú er almennt
talin hin eina og sanna marga-
ríta. Runnabrá er 60-90 sm hár
marggreindur runni. Blómin líkj-
ast blómum Freyjubrár en
standa á löngum stilkum og
mynda samfellt blómahaf yfir
runnanum sjálfum. Runnabrá
vex villt á Kanaríeyjum. Talið
er að hún hafí borik til Frakk-
lands á seinni hluta 16. aldar.
Sumir telja margarítunafn henn-
ar kennt við Margréti af Valois,
franska prinsessu sem giftist
Hinriki af Navarra, leiðtoga
Húgenotta árið 1572. Brúð-
kaupsdagur hennar varð óneit-
anlega eftirminnilegur. Brúð-
kaupsins er minnst í sögunni sem
blóðbrúðkaupsins, því þann dag
voru Húgenottar brytjaðir niður
af kaþólskum andstæðingum
sínum. Hinrik varð síðar konung-
ur í Frakklandi. Margrét af Valo-
is var áhugasöm um garðrækt
og voru garðar hennar frægir
um alla álfuna. Hún er talin
hafa ræktað Runnabrá fyrst
allra á setri sínu nálægt París.
Setrið ánafnaði hún kirkjunni
eftir dauða sinn og var þar stofn-
að nunnuklaustur. Þar lokaðist
Runnabráin inni og komst ekki
í almenna ræktun fyrr en í lok
17. aldar.
Runnabrá er ekki harðger og
þýðir ekki að rækta hana úti
vetrarlangt hér á norðurslóð.
Hún er því best geymd innan
dyra á vetrum, en er tilvalin í
blómaker með góðu afrennsli og
getur staðið úti sumarlangt.
Runnabrá hefur stundum fengist
hér sem pottablóm í blómaversl-
unum.
Einhvers staðar sá ég að nafn-
ið Möggubrá hefur verið notað
um þessa plöntu. Með tilliti til
þeirra merkiskvenna, sem hér
hefur verið minnst á, fínnst mér
það nafn óhæft. Það minnir líka
óþægilega á þann hvimleiða löst
að nefna þekkt fólk gælunafni.
Kannski er það tilraun til að
sannfæra sig um að merkisfólkið
sé svo sem ekkert merkilegra en
maður sjálfur.
Ég fletti að gamni mínu upp
nafninu marguerite í Ensk-
íslenskri orðabók frá Emi og
Örlygi. Þar sá ég að Fagurfífill
— Bellis perennis er talinn til
margaríta. Þetta held ég að sé
alrangt. Fagurfífill er ekki skyld-
ari margarítum en t.d. Jakopsfíf-
ill. Vitleysan er að öllum líkind-
um komin úr bandarískri orða-
bók Websters og misskilningur-
inn fólginn í því að ensku nöfnin
á þessum plöntum eru að nokkru
leyti þau sömu. Fagurfífíll kall-
ast Daisy, Freyjubrá Oxeye Da-
isy og Runnabrá Paris Daisy.
Þá má að lokum geta enn einn-
ar plöntu sem margir telja
margarítu. Það er Biskupsbrá —
Tanacetum coccineum. Þessi fjö-
læra planta á heima í suðvestur
Asíu, en þrífst ágætlega í görð-
um hér. Hún getur orðið 70-80
sm há og er frábrugðin frænkum
sínum m.a. að því leyti að hún
er með bleik jaðarblóm en ekki
hvít.
Plöntulýsingum hefur verið
stillt hér í hóf, en Freyjubrá,
Runnabrá og Biskupsbrá em all-
ar til í Grasagarðinum í Reykja-
vík og geta þeir sem hafa tæki-
færi til skoðað þær þar, því sjón
er sögu ríkari og reyndar ættu
þær líka að vera í fullum blóma
þegar þessar línur birtast.
Dóra Jakobsdóttir.
Heimildir:
1. Anderson, A.W. 1966. How We Got Our Flow-
ers. Dover Publications. New York.
2. Bailey, L.H. et.al.1954. Manual of Cultivated
Plants. The Macmillan Company. New York.
3. Brewer, C.E. 1978. The Dictionary of Phrase
and Fable. Avenel Books. New York.
4. Crystal, D. (ed.) 1990. The Cambridge Encyc-
lopedia. Cambridge University Press.
5. Hörður Kristinsson. 1986. Plöntuhandbókin.
Örn og Örlygur. Reykjavík.
6. íslenska alfraíðiorðabókin 1990. Öm og Örl-
ygur. Reykjavík.
7. Sören Sörenson 1984. Ensk-íslensk orðabók.
Öm og Örlygur. Reykjavík.
Guðrún Asa Ölafs-
dóttír - Minning
Fædd 10. júlí 1894
Dáin 11. júlí 1993
Ég er hrædd um að henni Ásu
minni myndi ekki líka, ef hún vissi
að hennar væri getið á opinberum
vettvangi. „Hvað á að vera að skrifa
um svona kerlingu eins og mig,“
myndi hún sjálfsagt segja. En ef
nokkrir verðskulda að minningu
þeirra sé haldið á loft, þá eru það
þessar góðu konur sem lifa lífinu
til að þjóna öðrum, en gera litlar
sem engar kröfur sjálfum sér til
handa.
Þeire eiginleikar sem fyrst og
fremst vom einkennandi fyrir Ásu,
vom hvað hún var jafnlynd, þolin-
móði og barngóð. Hún giftist aldrei
og eignaðist engin börn sjálf, en
átti engu að síður miklu barnaláni
að fagna, ef svo má að orði komast.
Þegar Sigríður, elsta systir henn-
ar og Sigurður Guðmundsson gift-
ust og stofnuðu heimili á Eyrar-
bakka, þar sem þau öll voru fædd
og uppalin, fluttist Ása til þeirra,
um 10 ára gömul, og átti sitt heim-
ili hjá þeim upp frá því.
Hún tók þátt í uppeldi tíu barna
þeirra, og eftir því sem árin liðu,
ótalins fjölda barnabarna og barna-
barnabarna, þar á meðal undirrit-
aðrar. Mér skildist snemma að ég
myndi vera einn óþekkasti krakkinn
á Bakkanum og þó að víðar væri
leitað. Það kom því oft í Ásu hlut
að reyna að tjónka við mig, en ekki
man ég til að hún hafi nokkurn tíma
hækkað röddina, hvað þá danglað
í endann á mér. í staðinn tók hún
mann með lempni og leiddi hugann
að einhveiju öðm. Hún varð eins
konar vara-mamma eða -amma
þear og þar sem þess þurfti með.
Gallinn við að eyða mestallri
ævinni erlendis er að börnin manns
fá ekki nóg tækifæri til að umgang-
ast eldri kynslóðina. Engu að síður
leikur enginn vafi á því hvern sess
Ása skipaði í hugum og hjörtum
krakkanna minna, þrátt fyrir til-
töluiega stopular heimsóknir. Og
þannig lifír kannski minningjn um
hana lengur og víðar en hana sjálfa
gat gmnað. Ég hef séð son minn
reyna að lýsa kleinunum hennar
Ásu fyrir vinkonu sinni austur í
Tókýó og í Gautaborg ber lítil stelpa
nafnið hennar.
Það hafa orðið þáttaskil. Með
Ásu er síðasti fulltrúi elstu kynslóð-
arinnar í fjölskyldunni horfínn. Hún
lifði síðust eftir af gamla fólkinu á
„Grænó“. Þau kvöddu hvert af öðm
í hárri elli, afí Sigurður, amma Sig-
ríður og systirin Ólafía (Lóa). Og
sjálft „Grænó“, heimilið á Grænu-
völlum 6 á Selfossi, áður miðpunkt-
ur alls, er ekki lengur til sem staður-
inn þangað allar leiðir lágu.
Þar sem ég hef dvalist flest mín
fullorðinsár nokkuð afsíðis, miðað
við Selfoss, hafði ég ekki tækifæri
né framtakssemi til að gjalda þeim
öllum fósturlaunin sem skyldi.
Ég hugsa því með þakklæti til
móðursystra minna sérstaklega og
annars venslafólks, sem sáu um þau
í ellinni.
Fjölskylda mín og ég sendum
ykkur öllum kveðjur okkar.
Sigríður Þorvaldsdóttir.
jfleööur
r
a
morgun
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks Áskirkju er minnt á
guðsþjónustu í Laugarneskirkju
sunnudag kl. 11. Sóknarprest-
ur.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hjalti Guðmunds-
son. Dómkórinn syngur. Organ-
isti Marteinn H. Friðriksson.
Ferming og altarisganga.
Fermdur verður Stefán Úlfur
Brynjólfsson, Keilufelli 6, Rvk.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl.
11. Prestur sr. Halldór S. Grön-
dal. Organisti Pavel Smid.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Fermd verður Lilja Sturludóttir,
Macon, USA, Ofanleiti 23, Rvk.
Tónleikar kl. 20.30. Oskar
Gottlieb Blarr leikur á orgelið.
LANDSPÍTALINN: Messa kl.
10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Hámessa kl.
11. Sr. Arngrímur Jónsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Engin
guðsþjónusta vegna sumarleyfa
starfsfólks.
LAUGARNESKIRKJA: Bæna-
stund með altarisgöngu kl. 11.
Prestur sr. Sigrún Óskarsdóttir.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Helgistund kl. 11 í umsjá sókn-
arnefndar. Organisti Hákon
Leifsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 árdegis. Prestur sr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson hér-
aðsprestur. Organisti Þóra
Guðmundsdóttir. Eiríkur Jóns-
son leikur á trompet. Sóknar-
prestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Biblíu-
lestur í umsjá Ungs fólks með
hlutverk kl. 20.30. Sr. Gísli Jón-
asson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Sumarsamvera kl. 20.30.
Kristniboð, ábyrgð kristinna
manna. Skúli Svavarsson
kristniboði prédikar. Jón Ágúst
sér um tónlist. Ritningarlestra
annast Ásthildur Sigurðardóttir,
Ragnhildur Hjaltadóttir og Örn
Egilsson. Tekið verður á móti
gjöfum til kristniboðsins. Prest-
arnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Þorbergur Krist-
jánsson.
SELJAKIRKJA: Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20. Altarisganga. Prest-
ur sr. Þórhallur Heimisson. Org-
anisti Kjartan Sigurjónsson.
Jónas Ingimundarson sér um
tónlistarkynningu. Sóknarprest-
ur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Safnaðar-
ferð. Brottför kl. 9 frá kirkjunni.
Farið um Kaldadal í Reykholt
undir fararstjórn Jóns Böðvars-
sonar. Guðsþjónusta í Reyk-
holtskirkju kl. 14. Heimferð um
Akranes og Hvalfjörð. Cecil
Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messa kl. 8.30. Hámessa kl.
10.30. Messa kl. 14. Ensk
messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14 og ensk messa kl.
20. Aðra rúmhelga daga mess-
Guðspjall dagsins: (Mk.
8). Jesús mettar 4 þús.
manna.
ur kl. 8 og kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Alla rúmhelga
daga messa kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filad-
elfía: Almenn samkoma kl. 20.
Ræðumaður Mike Fitzgerald.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dag kl. 20 hjálpræðissamkoma.
Majorarnir Álma Kaspersen og
Ragnhild Ihle tala og stjórna.
Útisamkoma á Lækjartorgi kl.
16 ef veður leyfir.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-, *
koma sunnudag kl. 17. Pétur
og Svanhild frá Færeyjum tala.
VIÐISTAÐAKIRKJA: (Sjá
Garðakirkja)
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigurður Helgi Guð-
mundsson prédikar. Kór Víði-
staðasóknar syngur. Organisti
Úlrik Ólason. Sóknarprestur.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Mánud.-fös.
kl. 18 messa.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl.
18.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðs- -
þjónusta sunnudag kl. 11 ár-
degis. Ólafur Oddur Jónsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16.
LANDAKIRKJA, Vestmanna-
eyjum: Almenn guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Bolli Gústavs-
son, vígslubiskup í Hólastifti og
sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjóna
fyrir altari. Birkir Matthíasson
leikur á trompet. Altarisganga.
Boðið upp á akstur frá Hraun-
búðum. Kl. 20.30 er unglinga-
fundur KFUM/K.
HVALSNESKIRKJA: Guðsþjón- “
usta fellur niður vegna viðgerða
í kirkjunni. Sandgerðingum er
bent á guðsþjónustu í Utskála-
kirkju kl. 14. Hjörtur Magni Jó-
hannsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Messa kl.
14. Organisti Frank Herlufsen.
Altarisganga. Hjörtur Magni Jó-
hannsson.