Morgunblaðið - 24.07.1993, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
29
Minning
Hildur Pálsdóttír
Fædd 11. ágúst 1905
Dáin 9. júlí 1993
Það er komið að þeim atburði í
lífi mínu að þurfa að kveðja tengda-
móður mína, Hildi Pálsdóttur frá
Hjálmstöðum í Aðaldal, sem ég hef
elskað og dáð frá því ég hitti hana
fyrst fyrir tuttugu og átta árum.
Hvað ég er þakklát fyrir þessi ár.
Hún var fullorðin kona þá, en nú
var hún orðin öldruð og lúin. Þrátt
fyrir það hélt hún reisn sinni í ná-
vist okkar til síðustu stundar. Hún
bjó yfir mikilli visku og kærleika
og umvafði fjölskyldu sína og vini
ást og vináttu. Henni leið best þeg-
ar bömin hennar voru nálægt henni.
Styggðaryrði gagnvart ástvinum
voru ekki á hennar vörum, heldur
voru það kostirnir og það sem vel
var gert sem hún hafði á orði. Hún
var nútímaleg kona í hugsun og
aldrei hissa á brölti unga fólksins,
en fylgdist ánægð með eða tók þátt
í því og samgladdist yfir hveijum
áfanga okkar allra, og lagaði sig
að öllum nýjungum eins og sjálf-
sögðum hlut. Sagði kannski ,já,
margt er nú skrýtið.“
Hún var aldamótabarn, missti
móður sína aðeins tólf ára, þá elst
átta systkina og eignaðist sjö hálf-
systkini í viðbót. Það hefur verið
lærdómsríkt fyrir mig, borgarbam-
ið, fædda í birtu og yl, að vita hvem-
ig lífið var hjá henni á þeim tíma.
Það var lítill dýrðarljómi yfír því.
Hún fór ung stúlka til Reykjavíkur
að læra ljósmóðurfræði og starfaði
farsæl í sveitinni sinni þar sem
ekkert barn dó í fæðingu meðan
hennar naut við. Það starf var erf-
itt og krafðist mikils af ljósmóður-
inni. Hún var áreiðanleg og mikill
garpur og var oft kölluð um langan
Minning
Jónína Ólafsdóttír
Fædd 24. september 1899
Dáin 10. júlí 1993
Elskuleg vinkona mín, Jónína
Ólafsdóttir, er látin á 94. aldursári.
Ég, sem er fímmtíu árum yngri en
hún, vissi alltaf að sennilegast væri
að hún myndi kveðja þennan heim
á undan mér. Ég vissi líka að lífíð
yrði fátækara án hennar, þessarar
yndislegu konu sem ég kynntist
þegar ég var aðeins barn að aldri.
Hún var amma æskuvinkonu
minnar og nöfnu sinnar, Jónínu
Maríu Sommer. Nína var elsta
barnabarn ömmu sinnar. Þeim þótti
afar vænt hvor um aðra.
Ég fór oft með Nínu minni til
ömmu sinnar. Hún hitaði þá gjarn-
an fyrir okkur súkkulaði og gaf
okkur kökumar sínar góðu. Jónína
var mikill bakari og listakokkur.
Ég man alltaf eftir því þegar ég
skaust inn á Sólvallagötu í mýflugu-
mynd til að hitta Nínu og Ransý.
Mamma, pabbi og litla dóttir mín
biðu úti í bíl. Klukkustundu síðar
hafði hún töfrað fram herramanns-
máltíð. Það var svo gaman að setj-
ast til borðs þar sem hún var gest-
gjafi. Heimili hennar var óvenju
fallegt, handsaumaðir skermar,
púðar og myndir um allt.
Jónína fæddist á Gaddstöðum
undir Eyjafjöllum. 24. september
1899. Hún var dóttir hjónanna
Gujóns Guðmundssonar og Elínar
Bjarnadóttur. Systkini hennar voru
Guðrún, Davíð, Rannveig og Ólaf-
ur. Rannveig lifir systkini sín. Þau
hjón, Elín og Guðjón, fluttu til Vest-
mannaeyja með ung börn. Jónína
fór snemma í fóstur til rnóðursystur
sinnar Rannveigar og Ólafs Þórðar-
sonar í Reykjavík, en þau voru barn-
laus. Hún ólst þar upp ásamt fóstur-
bróður sínum Ragnari. Þau tóku
bæði upp nafn fósturföður síns.
Ragnar og Jónína reyndust hvort
öðru ævinlega sem bestu systkini.
Jónína giftist Jóni Jóhannssyni
skipstjóra frá Barðaströnd árið
1919. Þau bjuggu á Bíldudal. Böm
þeirra eru: Ölafur, sem lést ungur;
Jóhann, fæddur 1923; Guðrún,
fædd 1926 og Rannveig (Ransý),
fædd 1928. Fjölskyldan fluttist til
Reykjavíkur 1941. Jón lést 1949.
Jóhann kvæntist Huldu Jónsdótt-
ur en þau skildu. Börn þeirra eru
Ólafur, Jóna María og Sigurður.
Jóhann býr í Hafnarfírði. Guðrún
giftist 1944 Robert Milbum og
fluttist með honum til Bandaríkj-
anna. Þau hjón búa nú í Indiana-
polis. Börn þeirra eru Micky og
Debby. Ransý giftist Robert Somm-
er 1949. Böm þeirra eru: Jónína
María, Marlow, John og Robert sem
lést aðeins 23 ára af slysförum.
Ransý, Bob og Nína búa núna í
Flórída.
Jónina giftist aftur 1956 indæl-
um manni, Benedikt Jónssyni. Hann
var ættaður úr Dölunum. Ransý
minnist hans ætíð með hlýhug.
Benedikt lést árið 1963. Þau Jónína
og Benedikt hófu búskap á Sólvalla-
götu 5a í Reykjavík. Þar leið þeim
vel með góðum nágrönnum. Helga
Sigurðardóttir, sem bjó á efri hæð-
inni, var Jónínu sem besta dóttir
alla tíð. Þau systkin segjast seint
geta þakkað henni allan þann kær-
leika sem hún sýndi móður þeirra.
Jónína þurfti að sætta sig við það
að lifa lifínu að mestu án dætra
sinna. Það var stóra sorg þessarar
fjölskyldu. Ransý og Bob bjuggu í
Njarðvík fyrstu hjúskaparár sín.
Hann var yfirmaður í slökkviliðinu
á Keflavíkurflugvelli. Þegar íslend-
inar tóku við varð hann að flytja
sig um set og fjölskyldan fluttist
til Kúbu. Örlög ástríkrar móður og
dætra hennar voru grimm.
Ég átti sjálf erfítt á þessum tíma,
besti og eini vinurinn um árabil var
nú farinn fyrir fullt og allt. Ég man
ég fór oft ein upp í heiði, sat þar
á steini og grét af einmanaleika.
Síðar skildi ég að sorg mín var
aðeins smá, hún náði ekki út yfír
gröf og dauða eins og sorg mæðgn-
anna.
Fjölskylda mín í Ameríku, eins
og ég kalla þau gjarnan, Ransý,
Bob og börnin þeirra, var nær mér
þegar ég heimsótti Jónínu. Þess
vegna rofnuðu tengsl mín aldrei við
hana. Heillandi persónuleiki hennar
styrkti vinskapinn stöðugt með ár-
unum, þrátt fyrir mikinn aldurs-
mun. Við vorum góðir vinir og skild-
um ævinlega hvor aðra. Við áttum
það til að tárast saman, en hlógum
venjulega hressilega á eftir. Það var
svo gaman að láta hana hlæja. Hún
var alltaf svo kát, tignarleg og fal-
leg, allt fas hennar og handbragð
svo fágað.
Litli kertastjakinn sem hún gaf
mér einu sinni er falleg minning
um góða konu. Ljósið sem minnir
á algóðan Guð sendir geisla sína
gegnum kristalsdropa og úr verða
litir regnbogans. Svo tær og hrein
er minningin um elsku vinkonu
mína.
Ransý mín, ég veit að þannig eru
minningar ykkar líka. Slíkar minn-
ingar milda sorgina. Guð leiði ykkur
öll.
Stella Óskarsdóttir
og fjölskylda.
veg til næstu byggðarlaga. Það
voru stundum erfíðar ferðir því
börnin biðu ekki eftir góðu ferða-
veðri þegar þau komu í heiminn um
hávetur.
Hún giftist Bimi Jónssyni kenn-
ara og ól honum fimm böm. Hún
bað eins um að fá að vera hraust
til að geta annast böm sín og heim-
ilið. Hún var dugmikil kona, sem
sat og ptjónaði á gömlu handvirku
prjónavélina sína fram á nætur til
að geta hjálpað til við að afla heimil-
inu tekna til daglegra þarfa, heimil-
inu sem stóð systkinum hennar og
vinum ávallt opið. Oft vissi hún
ekki hve margir það yrðu sem
kæmu að borða matinn sem hún
var að elda, gætti þess aðeins að
það yrði örugglega nóg.
Hún var amma, sem umvafði
barnabörn sín endalausri ást og
umhyggju og kenndi mér að elska
bömin mín fyrst og fremst og leiða
þau áfram í þeirri hugsun. Minning
þeirra er sú að hafa alltaf liðið eins
og gersemum í návist hennar.
Tengdamóðir mín fagnaði alltaf
þegar ég kom, þó að margir dagar
eða vikur væru liðnar síðan ég kom
síðast. Það var gaman að vera hjá
þessari konu sem kunni svo mörg
ljóð og lög og mundi nánast hvern
dag í lífi sínu. Þvílíkt minni. Ég
naut þess að fara með vinkonur
mínar til hennar og leyfa þeim að
kynnast henni og hún þekkti þær
og fylgdist með högum þeirra alla
tíð.
Hún beygði sig tignarlega fyrir
ellinni og átti að lokum sitt ástríka
heimili ásamt tengdaföður mínum,
Birni hennar, blíða og góða, í fal-
legu húsi með öllum nýtísku þæg-
indum. Þvílíkur lærdómur að hafa
fengið að vera með þessum hjónum.
Líklega verður aldrei til kynslóð á
íslandi sem lifír aðrar eins breyting-
ar og þeirra kynslóð.
Móðir mín og systkini kveðja
góða vinkonu og ég kveð þig, kæra
tengdamóðir, Hildur Pálsdóttir,
með söknuði, þakklæti og virðingu.
Far þú í friði. Tengdaföður mínum
og börnum þeirra óska ég friðar
og blessunar.
Aðalheiður Jónsdóttir.
Það var snemma morgun hinn
9. júlí sem að Erla frænka hringdi
í mig til að segja mér að amma
Hildur væri dáin. Það er undarlegur
tómleiki sem sest inn í mann þegar
svona stór partur í lífi manns er allt
í einu farinn. Mér var hugsað til
allra þeirra stunda sem við fjöl-
skyldan höfum átt hjá ömmu Hildi
og afa Birni og hvað þau voru allt-
af glöð að sjá okkur þegar við kom-
um í heimsókn. Hjá þeim var aldrei
til sparað og alltaf hlaðborð veit-
inga, sama hver kom eða hvenær.
Allir velkomnir til ömmu og allir
skynjuðu væntumþykju í návist
hennar.
Stórkostleg kona og yndisleg
amma er farin frá okkur sem við
munum sakna mikið. Hún kunni svo
margar sögur frá því að hún var
ung og mundi þær jafn vel og það
sem gerðist í gær. Henni þótti mjög
gaman að segja frá, og það var
alltaf gaman að hlusta á sögurnar
hennar þar sem æska hennar var
í órafjarlægð í augum lítils barns
sem þekkti ekki annað en öll þæg-
indi. Hún var af kynslóð sem hefur
lifað ótrúlegar breytingar og lifað
við mjög ólíkar aðstæður en þær
sem við þekkjum í dag, en samt
kom henni aldrei neitt á óvart. Hún
samgladdist alltaf öllum af heilum
hug, sama hvað þeir voru að gera.
Það var alltaf gaman að segja
ömmu frá einhveiju, því að henni
fannst það allt sniðugt og skemmti-
legt og hafði áhuga á því sem mað-
ur var að segja.
Ég mun sakna þess mikið að
geta ekki lengur komið til ömmu
og fengið heimabakaðar flatkökur,
hafrakex, kleinur og heimatilbúna
kæfu sem var það besta sem til
var. Það er ótrúlega sárt að hugsa
til þess að maður fái aldrei að sjá
hana aftur, og að maður eigi ekki
eftir að sjá ömmu og afa saman
aftur í þeirri óendanlegu ást og
kærleika sem á milli þeirra ríkti
fram til síðasta dags. Ég mun minn-
ast ömmu Hildar sem yndislegrar
ömmu og heimilis þeirra afa, hvað
það var fullt af lífi og ást sem allir
fundu er þangað komu. Hún bað
alltaf Guð að geyma okkur, og það
hefur hann gert. Nú vil ég biðja
guð að geyma afa Björn og frænd-
systkini mín og hjálpa þeim-í þeirra
mikla söknuði sem nú fyllir hjarta
þeirra.
Laufey Erlendsdóttir.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða krossi íslands
og varð ágóðinn 2.055 krónur. Þær heita Hulda María Halldórsdótt-
ir, Aðalheiður Halldórsdóttir og Berglind Gísladóttir.
Ingibjörg Sveins-
dóttír - Minning
Fædd 29. júlí 1919
Dáin 18. júlí 1993
Nú birtir yfir bláum austurfjöllum,
og blómin glitra um dal og hól.
Það fer að ijúka á bændabýlum öllum,
og byggðir Ijóma í morgunsól.
I grænu lyngi lindir bláar hjala,
en laufin skjálfa í mjúkum sunnanblæ,
og nú er sól og söngur fram til dala
og sumargleði í hveijum bæ.
(Davíð Stefánsson)
Það var sól og sumarylur er hún
Inna frá Minna-Hofi kvaddi okkur
á sinn hógværa hátt.
Hún var ein af þeim konum er
ávallt bera birtu og ljúfmennsku
hvar sem þær koma. Það varð ávallt
sólskin í návist hennar.
Við félagar í Helludeild eldri
borgara í Rangárvallasýslu sjáum
nú á eftir góðum og gegnum fé-
Iaga, er ávallt var jákvæður um öll
störf.
Missir ástvina hennar er þó mest-
ur og sendum við þeim innilegar
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
F.h. eldri borgaranna,
Jakobína Erlendsdóttir.
ÞESSAR stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða kross íslands
og varð ágóðinn 10.326 krónur. Þær heita Birna Hrönn Björnsdótt-
ir, Helga Dóra Jóhannsdóttir, Bryndís Þorsteinsdóttir og Unnur
Þorsteinsdóttir.