Morgunblaðið - 24.07.1993, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
fólk i
fréttum
LYTALÆKNIN G AR
Fór fimmtán ára í
brjóstaaðgerð
Soleil Moon var þekkt bama-
stjarna í Bandaríkjunum fyrir
um það bil 5-10 árum, en þá lék
hún Punky Brewster í samnefndum
sjónvarpsþáttum. Frægðin olli henni
þó ekki vandræðum. Hins vegar
þegar hún var orðin fimmtán ára
komu upp vandamál sem hún átti
ekki von á. Hún var orðin svo
bijóstastór að það olli henni óþæg-
indum bæði líkamlega og andlega.
Hvar sem hún fór varð hún vör
við aðfínnslur eða það var flautað á
eftir henni. Ef hún fór út að skokka
var kallað til hennar ósmekklegum
athugasemdum. Hún segist ekki
einu sinni hafa getað faðmað fólk
með góðu móti og þyngslin á bijóst-
unum gerðu það að verkum að hún
fann til í bakinu. Þar fyrir utan heftu
svo stór bijóst leikkonu á hennar
aldri, því hún gat ekki leikið jafn-
aldra sinn. Hún ákvað því að fara í
bijóstaaðgerð eins og um það bil
2.500 aðrar bandarískar stúlkur á
svipuðum aldri gera. Líðanin eftir
aðgerðina var þó langt frá því að
vera góð og næstu sex mánuði gat
Soleil hvorki lyft handleggjunum né
sofíð öðruvísi en á bakinu.
Var kærasta Marky Mark
Soleil kveðst ekki oft hafa verið
á föstu, því það var sama hversu
stráknum þótti vænt um hana, alltaf
fannst henni bijóstin vera aðalatrið-
ið. Hún var um tíma með leikaranum
Eddie Furlong, sem Iék í Terminator
2 og síðar með rappsöngvaranum
Marky Mark. „Þegar ég fór baksviðs
eftir tónleika Markys litu stelpurnar
á mig eins og ég væri eitthvert frík,“
er haft eftir Soleil. Smám saman
missti hún sjálfstraustið. „Mér var
skapi næst að fara heim og grenja,"
segir hún í viðtali við tímaritið Pe-
ople.
Lágmarksaldur 16 ár
Að öllu jöfnu er ekki ráðist í lýta-
aðgerð fyrr en viðkomandi er orðinn
16 ára. Þó eru gerðar undantekning-
ar eins og í tilviki Soleil, því hana
vantaði þijá mánuði upp á aldurinn.
Hún kveðst vera mjög ánægð með
útlitið núna. „Ég vissi ekki að ég
yrði svona ánægð. Nú líkar mér við
líkama minn og ég nýt þess að vera
táningur," sagði hún.
sem
21.500 unglingar gangast undir lýtaaðgerðir
árlega
Um það bil 21.500 drengir og stúlkur á unglings-
aldri gangast undir ýmiss konar lýtaaðgerðir í
Bandaríkjunum ár hvert. Dr. Vivian Center Seltzer,
prófessor við Pennsylvaníuháskóla, sagði í viðtali við
People að ef líkamslýti væru veruleg og brytu niður
sjálfstraust tánings væri lýtaaðgerð til bóta. Venju-
lega væri þó reynt að fresta aðgerðinni um nokk-
ur ár eða þar til fullum vexti væri náð. Hún
kannaðist við að sjónvarps- og kvikmynda- i
stjömur hefðu áhrif á unglinga í þá átt, að !
þeim fyndist ýmislegt bagalegt við eigið útlit
og þeir væm sífellt að reyna að líkjast goðun-
um. Að lokum var hún spurð hvernig foreldr-
ar gætu hjálpað börnum sínum að efla sjálfs-
traustið og byggja það ekki á því sem kvik-
myndir sýndu. Hún svaraði því til, að nauð-
synlegt væri að gera börnum grein fyrir
hvaða kostum þau væru prýdd án tillits
til útlits, í hvert skipti sem hægt væri
að benda á góða eiginleika væri sjálfstra-*-
ustið smám saman byggt upp.
UPPBOÐ
Bréf frá
Lennon
fórá
240 þúsund
Bréf frá John Lennon til
manns að nafni Tom
Bonifield var selt á uppboði í
New York fyrir nokkru á rétt
um 240 þúsund íslenskrar
krónur. Það var árið 1971 að
Tom þessum blöskraði von-
leysið í texta Lennons á plöt-
unni Imagine. í titillaginu seg-
ir m.a.: ímyndið ykkur að það
sé ekkert himnaríki til... Tom
sendi því fyrrverandi bítlinum
bréf þar sem hann hvatti hann
til að vera bjartsýnni. Lennon
sendi handskrifað svarbréf og
í því stóð eitthvað á þessa
leið: Heyrðu, vinur. Af hveiju
getið þið Jesús-vinir ekki
látið fólk í friði? Ástandið
r hefur verið eins í tvö þús-
und ár — ætlið þið aldrei að
læra neitt? Þeir sem vita tala
ekki. Þeir sem tala vita ekki.
Hugsun þín kemur ekki fram
í hugsjúku bréfí þínu, sonur
sæll. Eins dauði er annars
brauð. „Peace off!“. John +
Yoko.
Joe Mann er einn þeirra 21.500 unglinga
árlega fara í lýtaaðgerð. Hann hafði orðið
fyrir miklu aðkasti vegna þess hversu nefið
var stórt. Meira að segja læknirinn viður-
kenndi að þetta væri eitt stærsta unglingsnef
sem hann hafði séð og því hefði hann ákveðið
að þörf væri á aðgerð. Hann kvaðst þo alltaf
vera varkár þegar drengir væru annars vegar.
Soleil var aðeins fimm ára
þegar hún fékk hlutverk í
myndinni „Hver gætir barn-
anna minna?“. Þá lék hún í
mörg ár í sjónvarpsþáttunum
Punky Brewster. Hún segist
vera ánægð með aðgerðina
og nú geti nú einbeitt sér að
því að vera hún sjálf, auk
þess sem hún geti nú valið
úr fleiri hlutverkum.
John Lennon
KLUBBURINN
SÆNSKAR GO-GO" STULKUR A HOTEL ISLANDI
Næstu helgar munu þær Jannica Midas og Sara Simsson koma fram 5 sinnum á
kvöldi og skipta jafnoft um búninga og dansa við tónlist frá diskótímabilinu.
Diskótekarar
Daddi DJ — Alli Bergás - Gísli Sveinn Hollywood/Sigtún rifja upp gamlar rispur.
HÚTEL Jj'I.AND
MIÐASALA OG BORÐAPANTANIR I S: 687111