Morgunblaðið - 24.07.1993, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
t/ F~d&u þ'erkaFfiboLic^c^ mebati
hefmig tiL"
Nei, hann er alveg hættur
að bíta. Passaðu bara pen-
ingaveskið þitt.
HÖGNI HREKKVÍSI
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Heimilispóstur-
inn - Gott blað
Frá Árna Helgasyni:
Mér hefir nýlega borist fyrri hluti
29. árgangs af blaði Elliheimilisins
Grundar, Reykjavík, sem Gísli Sig-
urbjörnsson forstjóri hefir öll árin
ritstýrt og heitir það Heimilispóst-
urinn.
Gísla þarf ekki að kynna fyrir
þjóðinni, svo mörgum mannúðar-
málum hefir hann um daga ýtt á
flot og fylgt eftir, þó stærsta verk-
efnið hafi verið uppbygging Elli-
og hjúkrunarheimilisins Grundar,
sem alltaf hefir verið í framþróun
og þeir sem þau mál hafa kynnt
sér eru ekki í vafa um að enn er
Gísli í fararbroddi um allt sem bet-
ur má fara í aðhlynningu aldraðra.
I heimilispóstinum nú sem fyrr eru
mörg góð íhugunarefni og rætt við
ýmsa áhugaverða menn í starfi
mannúðarmála og geta má t.d. við-
tals við Helga Gunnarsson fv. fang-
elsisstjóra á Litla Hrauni. Einnig
er þar athyglisverð grein um heilsu-
gæslu eftir Davíð A. Sverrisson,
sem segir okkur margt. Þá er þar
einnig minnst sorgardagsins 1.
mars 1989, þegar áfengiselfan fékk
mikla útrás hjá valdhöfum, þá
flæddi áfengisbölið og allt sem því
fylgdi inn yfir landið og afleiðing-
arnar létu ekki á sér standa. Þar
er skrá um aukningu vínveitinga-
staða í Reykjavík frá 1954 en það
ár voru þeir 3 en í dag eru 138 og
segir það sína sögu.
Og enn er Gísli með heilum huga
að leggja sitt af mörkum til betra
þjóðfélags og þar getur hann sýnt
að verkin tala. Lokaorð hans í
Heimilispóstinum eru ekki mörg en
þeim mun alvarlegri:
„Á þessum alvarlegu tímum þjóð-
arinnar er eitt nauðsynlegt: Að
spara, hjá öllum meðan eitthvað er
til, til að spara. Samhugur og sam-
starf er nauðsyn með þjóðinni, ann-
ars mun illa fara.“ Og geta ekki
allir tekið undir þau orð. Og sjá
ekki allir í dag hve stórar þær fjár-
hæðir eru sem fólkið hefir sóað út
í véður og vind, meðan þjóðarskuld-
ir aukast dag frá degi.
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
Til ráðherra og
annarra þingmamia!
Frá Albert Jensen:
VIRÐINGARLEYSI ykkar fyrir
þjóðinni er sorglegt og birtist í svo
til öilu sem þið gerið á opinberum
vettvangi og er af nógu að taka.
Þegar undirskriftalistar sönnuðu
að meirihluti landsmanna vildi
þjóðaratkvæðagreiðslu um full-
veldisafsal, eða EES, fannst ykkur
nóg að segja þjóðinni að henni
kæmi málið ekki við, enda hefði
hún ekkert vit á því.
Þegar sjúkraliðar, sem hafa
þurft að búa við vaxandi vinnuálag
og léleg laun reyndu, fyrir nokkr-
um mánuðum að fá smávægilega
leiðréttingu, var þeim hótað illu.
Eg tek sjúkraliðana sem dæmi
um alhliða kúgun láglaunastétt-
anna og svívirðilegt launamisrétti
sem þið sjáið ekkert athugavert
við. En hvað kemur upp þegar
dæmið snýr að ykkur, virðulegu
aðstandendur okkar trúgjömu
þjóðar.
Þið settuð með lögum kvöð á
þjóðina, það er að ef hún hafnaði
ykkur í kosningu, yrði hún að
borga ykkur hálfsárs biðlaun, það
er meðan enginn þurfti eða vildi
taka ykkur í vinnu, yrðuð þið á
framfæri hennar. Á þessum tíma
var hægt að segja Sóknarkonum
upp með dagsfyrirvara svo það var
ekki skrítið þó lögin kæmu mönn-
um spánskt fyrir sjónir. En þið
eruð þekkt fyrir að koma ykkar
persónulegu ár vel fyrir borð og
hunsa almenningsálit. Með slíkt
siðferði í farteskinu var létt að
túlka lögin ykkur sjálfum í hag og
það hafið þið sannarlega gert.
Frægt er dæmið þegar Sverrir
Hermannsson var á framfæri þjóð-
arinnar í hálft ár, á þingmanns-
launum, þó hann hafí strax að
loknu þingi orðið seðlabankastjóri.
Fyrir stuttu var Alþýðufl. að
reyna að lægja innanflokkseijur
og gerði það að hluta á kostnað
þjóðarinnar. Hann skákaði mönn-
um út og inn að geðþótta og einn
þeirra, Jón Sigurðsson, sem 'skip-
aður var seðlabankastjóri, hefur
greinilega talið sig eiga rétt á bið-
launum því hann afþakkaði tvær
milljónir. Honum er ekki alls varn-
að að hafna því sem hann hafði
engan rétt á og ætti engum að
koma á óvart eftir alla sýndar-
mennskuna kringum bankastjórar-
áðninguna.
Þið hafið hunsað þann skilning
þjóðarinnar að ykkur væri vorkunn
þó þið væruð á framfæri hennar
mánuð eftir mánuð allt í hálft ár
meðan þið væruð atvinnulaus.
En þjóðin átti ekki von á að þið
væruð svo spillt, að þið breyttuð
biðlaunum í verðlaun, ef ykkur
væri hafnað.
Ykkur sem ráðið, virðist í mun
að færa auð og völd á fárra hend-
ur og gera þjóðina áhrifalausa. Þið
hafíð dregið kjark úr fólki og haft
neikvæð áhrif í atvinnumálum.
ísland er gott land, samhent
gætum við lifað hér góðu Iífi.
ALBERT JENSEN,
Háaleitisbraut 129,
Reykjavík.
„þBTTA ER RDRPP2.yKJCXIR/NM CXS
HÉR EK. FC>RR.ÉTTUeiNM )p>IKIN“
Víkveiji skrifar
fleiri veitingastaðir og krár
í Reykjavík bjóða nú upp á
lifandi tónlist á virkum dögum. Vík-
veija fínnst þetta lífga verulega upp
á borgarlífíð, og vissulega er meira
uppbyggjandi að fylgjast með fær-
um Iistamönnum en að svolgra bjór-
inn eingöngu á þessum stöðum.
Víkveiji ætlaði til dæmis að setjast
niður eina örskotsstund og fá sér
hressingu á Kringlukránni eitt
kvöldið en ílentist, þar sem tónlist-
arflutningurinn náði að fanga at-
hygli hans. Þar voru Bjöm Thorodd-
sen jazzgítarleikari og félagar hans
á ferðinni. Bjöm er listamaður á
heimsmælikvarða og aðrir hljóm-
sveitarmeðlimir stóðu sig ekki síður
vel. Víkveiji yfírgaf staðinn Iéttari
í spori, og þurfti ekki bijóstbirtu í
vökvaformi til.
xxx
Gaukur á Stöng hefur lengi stað-
ið fyrir tónleikum hvert kvöld
vikunnar, en satt að segja taldi
Víkveiji að þar spiluðu aðallega ein-
hveijar unglingahljómsveitir. Það
kom honum því þægilega á óvart
er hann kom á Gaukinn með er-
lenda gesti, sem kröfðust þess að
fá að heimsækja elztu bjórkrá í
Reykjavík (Gaukurinn er tíu áral),
að sjá vísnahljómsveitina Hálft í
hvom auglýsta síðar um kvöldið.
Sveitin lét heldur ekki sitt eftir
liggja. Hún flutti reyndar eingöngu
lög úr Vestmannaeyjum þetta
kvöld, en það spillti ekki fyrir að
mati Víkveija. Hálft í hvoru virtist
ná jafnvel til Eyjamanna og ann-
arra, Islendinga sem útlendinga.
xxx
*
Ikjölfar Hálft í hvoru sigldi sveitin
Dr. Sáli. Víkveija sýndist þetta
vera það, sem hann flokkar undir
unglingahljómsveit — og víst voru
sveitarmenn komungir að árum, en
þegar þeir byijuðu að spila fór ekki
á milli mála að þama var fólk sem
hafði allt sitt á hreinu. Flutningur
Dr. Sála á gömlum Stuðmannaslög-
urum, ABBA-lögum og fleiri
„standördum" var kraftmikill og
fagmannlegur. Vonandi heyrist
meira frá þessari sveit.
xxx
Kunningi Víkveija velti því fyrir
sér hvort það væri tilviljun
að tvær fjögurra stjömu bíómyndir
vom á dagskrá Stöðvar tvö að
kveldi fimmtudagsins. Yfírleitt er
boðið upp á misjafnan bíómynda-
graut á virkum dögum. Þetta var
hins vegar fimmtudagurinn sem
Ted Tumer og kona hans Jane
Fonda hugðust heimsækja stöðvar-
menn, en af því varð ekki. Þessi
sami kunningi sagðist vona að þau
hjónin boðuðu komu sína og afboð-
uðu hana svo aftur sem allra oft-
ast, til þess að tryggja gæði dag-
skrárinnar á Stöð tvö.