Morgunblaðið - 24.07.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
3?~
l
í
I
I
I
>
I
I
í
>
>
I
>
Evrópuferðir - Ríkis-
útvarpið - Plús film
Frá Sveini M Sveinssyni:
Vegna greinar Jóhönnu Tryggva-
dóttur hjá ferðaskrifstofunni Evr-
ópuferðum í Morgunblaðinu 12. júlí
síðastliðinn telur undirritaður nauð-
synlegt að upplýsa lesendur um
samskipti Plús film hf., Evrópu-
ferða og Ríkisútvarpsins Sjónvarps
haustið 1989. Margir sem lásu
umrædda grein hafa haft samband
til að vita um hvað málið íjallar og
því ógjömingur var að komast að
því við lestur greinarinnar.
Sumarið 1989 gerði Plús film
samning við Ferðaskrifstofu í
Reykjavík um að gera kynningar-
mynd um ferðamannastaðinn Be-
nidorm. Einnig hafði Friðrik Brekk-
an, þá starfsmaður Evrópuferða,
minnst á gerð myndar í Norður-
Portúgal á vegum Evrópuferða.
Undirritaður hóf strax könnun á
hvaða íslendingar væru staddir á
þessum slóðum með það fyrir aug-
um að gera þætti fyrir sjónvarp.
Það kom svo í ljós að nokkrir áhuga-
verðir einstaklingar voru á svæðinu
og var haft samband við Ástu R.
Jóhannesdóttur dagskrárgerðar-
mann, sem þá starfaði sem farar-
stjóri á Benidorm, til að sjá um
handrit og umsjón þáttanna. Það
gekk eftir. Minnst var á þessa hug-
mynd við dagskrárstjóra Sjónvarps
og taldi hann þetta nokkuð áhuga-
vert sjónvarpsefni, en engir samn-
ingar voru gerðir. Þegar samningur
var gerður við Evrópuferðir um
gerð kynningarmyndar og tveggja
sjónvarpsauglýsinga lá _ það ljóst
fyrir að Plús film ásamt Ástu Ragn-
heiði ætluðu að gera sjónvarps-
þætti um íslendinga í Portúgal í
þessari sömu ferð. Jóhanna var
reyndar ánægð með að þurfa ekki
að greiða fargjöld til og frá megin-
landi Evrópu. í samningi Plús fiim
og Evrópuferða var tekið fram að
reynt yrði að selja kynningarmynd
Evrópuferða til RÚV eða Stöðvar 2
og rynni ágóði af þeirri sölu til
Evrópuferða að frádregnum
vinnslukostnaði við þær breytingar
sem sjónarpsstöðvamar færu fram
á. Upptökulið eyddi síðan 5 dögum
með Friðriki Brekkan og fulltrúa
ferðamála Norður-Portúgal og 7
dögum með Ástu Ragnheiði við
upptökur í Portúgal.
Þegar heim var komið skilaði
Plús fílm síðan 2 kynningarmynd-
um, annarri með ensku tali og hinni
án texta, til Evrópuferða á tilskild-
um tíma. Stór hluti myndefnisins
var tekinn við gerð þáttanna um
íslendingana og nutu Evrópuferðir
þess. Einnig var ferðaskrifstofunni
afhent fullfrágengin sjónvarpsaug-
lýsing. Evrópuferðir greiddu síðan
‘/3 af umsömdu verði í sænskum
krónum, sem komu erlendis frá, og
hluta af útlögum kostnaði vegna
bflaleigubíls, en síðan ekki söguna
meir. Jóhanna skrifaði reyndar upp
á víxla að upphæð kr. 100.000 sem
Plús film þurfti síðan að leysa út
með tilheyrandi kostnaði. Jóhönnu
var gerð grein fyrir að Plús film
}mni ekki frekar í málinu fyrr en
hún hefði gert hreint fyrir sínum
dyrum og svo er ekki enn. Heildar-
útgjöld ferðaskrifstofunnar vegna
þessa samnings við Plús fílm voru
því tæpar fímmtíu þúsund krónur
(bílaleigubíllinn).
Plús film og innlend dagskrár-
gerð Sjónvarps gerðu síðan með sér
staðlaðan samning um kaup á þátt-
unum „íslendingar í Portúgal“ í
umsjón Ástu R. Jóhannesdóttur al-
gjörlega óháðan ferðaskrifstofunni
Evrópuferðum. Jóhanna heldur því
reyndar fram í grein sinni að í
samningnum séu einhver sérákvæði
hennar vegna, en svo er ekki. Ef
hún skoðaði aðra samninga kæmist
hún að því.
Vandi Jóhönnu Tryggvadóttur
hefur ekkert að gera með innlenda
dagskrárdeild Sjónvarpsins, yfir-
menn þess eða Ástu R. Jóhannes-
dóttur. Evrópuferðir létu birta sjón-
varpsauglýsingu þá sem Plús Film
gerði hjá auglýsingadeild Sjón-
varpsins snemma á árinu 1990.
Jóhann greiddi ekki þær birtingar
frekar en annað og er það ástæða
eðlilegra innheimtuaðgerða auglýs-
ingadeildar Sjónvarpsins.
Það hlýtur að vera erfitt að lifa
við stöðugan ótta við að allir reyni
sífellt að svindla á sér, en svo virð-
ist vera með suma. Undirritaður
bendir Jóhönnu á að það sem hún
vill að aðrir geri henni, það skal
hún einnig gera öðrum.
Sveinn M. Sveinsson
Plús film hf
Tryggvagötu 10, Reykjavík
Pennavinir
Bandarískur 25 ára karlmaður
með margvísleg áhugamál:
Ken Caflamme,
Box 538-819559,
1150 Sco. Allapattah Road,
Indiantown,
Fl. 34956,
U.S.A.
ítalskur 28 ára karlmaður sem
getur ekki um áhugamál:
Gabriele Tognacci,
Via M. Gorki 7,
40128 Bologna,
Italy.
Frá Ghana skrifar 26 ára kona
með áhuga á ljósmyndun:
Christina Emma Quarshie,
P.O. Box 1135,
Cape Coast,
Ghana.
Fjórtán ára ítölsk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Maike Tiemann.
Sonnleitenstrasse l'A,
8170 Bad Tölz,
Germany.
Þýsk 33 ára kona með margvís-
leg áhugamál:
Christiane Berkenbosch,
Im Bottermoor 6,
27404 Heeslingen,
Germany.
LEIÐRÉTTINGAR
Féll úr dómi
í tónlistardómi sem birtist um
Tríó Reykjavíkur í gær, föstudag,
féllu út hlutar af setningum sem
röskuðu samhengi. Réttur er text-
inn þessi: „Tríó í e-moll, op. 67 eft-
ir Sjostakovitsj er stórbrotið lista-
verk, sterkt í formi og tónbálkurinn
samfelldur og efnisríkur. í fyrsta
þættinum var sorgin vegna vina-
missis ráðandi og í öðrum þætti
hverfur höfundurinn til minning-
anna sem birtast í þjóðlegum og
allt að því bamalegum söngstefj-
um.“
Og ögn síðar: „Sem innskot og
í tilefni sýningarinnar, lék Halldór
smá lag eftir Carl Hasse, vin og
aðdáanda málarans og lék Halldór
þetta saklausa lag mjög fallega."
Rangt skip
Á forsíðu blaðsins „Úr verinu"
siðastliðinn miðvikudag misritaðist
nafn togarans, sem fékk risahalið
og mynd var af. Skipið, sem mynd-
in er af er Árbakur EA 308. Hlutað-
geigendur eru beðnir velvirðingar.
Y en ekki C
í fyrirsögn fréttar sem birtist
sl. fimmtudag um opnun á sýningu
þýska listamannsins Ludvig Gose-
vitz í sýningarsalnum Annarri hæð,
misritaðist föðurnafnið og var hann
kallaður Gosecitz. Hlutaðeigendur
eru beðnir velvirðingar.
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
Fatnaður í poka
KVENFATNAÐUR fannst í poka
merktum versluninni 5. stræti á
bílastæði á efra bílastæði bak við
Hagkaup í Kringlunni. Ofan í
pokanum var annar poki merktur
Hagkaup og voru kvenmannsföt
í honum líka. Upplýsingar eru
gefnar í síma 680210.
Týndur bakpoki
RÓNDÓTTUR, svartur og hvít-
ur, bakpoki tapaðist í miðbænum
sl. föstudagskvöld. Finnandi vin-
samlega hringi í síma 75037.
Körfuboltamyndir
TAPAST hafa á annað hundrað
myndir af körfuboltastjömum.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 12983.
Veski tapaðist
SVART veski með rauðri og gulri
rönd utan um og Ólympíumerk-
inu framan á tapaðist 19. júlí sl.
í Norðurmýri eða Hlíðahverfi.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 12798.
Týnt hjól
SVART og dökkfjólublátt hjól
hvarf frá Bogahlíð 9 aðfaranótt
18. júlí. Hjólið er af gerðinni
Pro-Style. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 679147.
MÓANÓRA OG
TÖSKUR
SVANHILDUR í versluninni
Móanóru, Laugavegi 17, hafði
samband við Velvakanda vegna
auglýsingar sem birtist sl.
fímmtudag þess efnis að ung
stúlka hafi tapað Móanóm-tösk-
unni sinni. Hafí stúlkan ekki
haft erindi sem erfiði við leit tösk-
unnar má hún hafa samband við
verslunina og ætlar verslunin þá
að gefa henni aðra tösku.
LÍTIL GÆLUDÝR í
TÍVOLÍ
HVERAGERÐI
í BYRJUN júlí birtist í Velvak-
anda bréf Jóns Magnússonar
hundavinar um gæludýr í Tívolí
Hveragerði. Ég vil þakka honum
hlý orð í garð Tívolís Hveragerð-
is og vonast eftir að sjá hann og
fjölskylduna sem oftast hjá okk-
ur, en fjölskylda hans var hjá
okkur einhvern þriðjudaginn í
júlí. Kvörtun Jóns vegna banns
við hundahaldi í Tívolíinu vil ég
svara þannig:
Varðandi tíkina Topp, þá er
hún af sjeffer-kyni og flokkast
varla undir lítil gæludýr eins og
segir í bréfinu, jafnvel þó að
Toppur sé aðeins fimm mánaða.
Toppur var ekki með hundaól og
lék því lausum hala í öllu Tívolí-
inu. Þess vegna var Jón beðinn
að vista hundinn utanhúss meðan
á heimsókninni stóð.
Hundahald í Tívolíinu er leyfi-
legt ef um er að ræða kjöltu-
rakka enda séu þeir í bandi allan
tímann. Öll gæludýr em velkom-
in að ég taji nú ekki um lítil
gæludýr.
F.h. Tívolís Hveragerðis,
Ólafur Ragnarsson.
Ættarmót Feliskotsættar
verður haldið í Aratungu í Biskupstungum dagana 6. og 7.
ágúst 1993. Sameiginlegt borðhald verður í Aratungu laugar-
daginn 7. ágúst og hefst dagskrá á tjaldstæðinu kl. 17.00.
Æskilegt er að fólk láti vita um þátttöku fyrir 3. ágúst í sím-
um 91-651089 Sigríður Þorláksdóttir og 98-22371 Eyvindur
Þórarinsson.
Ath.: Farfuglaheimili er á staðnum, símar 98-68830 og 68B31.
---------------------------------\
Frá París
Fyrir brúðkaupsveisluna meiriháttar
kjólar, dragtir, pils og blússur.
,Mér'\
Laugavegi 54, 2. hæð, sími 624710.
V_________________________________
Gabriel
HÖGGDEYFAR
STERKIR, ORUGGIR
ÓDÝRIR!
SKEIFUNNI 5A. SIMI: 91 - 8 47 88
Auglýsing um starfsleyfistillögur skv. gr. 8.4.
í mengunamrnareglugerð nr. 396/1992
I samræmi við gr. 8.3. ofangreindrar reglugerðar liggja
frammi til kynningar hjá upplýsingaþjónustunni (1. hæð) í
Ráðhúsi Reykjavíkur frá 26. júlí nk., starfsleyfistillögur fyrir
eftirtalin fyrirtæki:
1. Hreyfill sf., biðstöð við Lönguhlíð. Fellsmúla 26, 108 Rvík.
2. Hreyfill sf., biðstöð við Hlemm, Fellsmúla 26, 108 Rvik.
3. Bæjarleiðir sf., skiptistöð í Mjódd Langholtsvegi 115 104 Rvík.
4. Regnbogaframköllun Siðumúla 34 108 Rvik.
5. Tokyo (framköllun) Laugavegi 116 101 Rvík.
6. Borgarprent hf. Skipholti 11-13 105 Rvík.
7. Merking Brautarholti 24 105 Rvik.
8. Vélvík Dugguvogi 17-19 104 Rvik.
9. Málmsmiðjan hf. Funahöfða 7 112 Rvík.
10. Innréttingar og húsgagnasprautun Dugguvogi 10 104 Rvík.
11. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Laugardal 104 Rvík.
12. Haraldur Guðjónsson (bílaréttingar) Grettisgötu 50 101 Rvík.
13. Bilaleigan Geysir hf. (bilaspr. og réttingar) Dugguvogi 10 104 Rvík
14. Bræðurnir Ormsson hf. (vélaverkstæði) Lágmúla 9 108 Rvík.
15. Pústþjónusta BJB Sigtúni 3 105 Rvík.
16. Bón- og bílaþvottastöðin Bíldshöfða 8 112 Rvik.
17. Bón- og þvottastöðin Sigtúni 3 105 Rvík.
18. Kringlubón Kringlunni 4 103 Rvik.
19. Litla bónstöðin Síðumúla 25 108 Rvik.
20. Hjó Jobba Skeifunni 17 108 Rvík.
21. Stjörnubón Bildshöfða 14 112 Rvík.
22. Gljáinn Ármúla 26 108 Rvík.
23. Bílaþvottastöð Skeljungs Laugavegi 180 105 Rvík.
24. Stóra bllaþvottastöðin Þórðerhöfða 1 112 Rvík.
25. Bón og þvottur Skeifunni 5 108 Rvik.
26. B.T. þjónustustöðin (bílaþvottur) Klettagörðum 11 104 Rvík.
27. Strætisvagnar Reykjavlkur (bílaþvottur) Borgatúni 35 105 Rvík.
28. Bónstöð Reykjavíkur Hverfisgötu 105 101 Rvik.
29. Besta bón og þvottur Ármúla 1 108 Rvik.
30. Laugin sf. Vatnagörðum v/Holtaveg 104 Rvík.
31. Gæðabón Ármúlo 17a 108 Rvik.
32. Aðalbónstöóin Suðurlandsbraut 32 108 Rvík.
33. Bón og þvottur Vatnsmýrarvegi 10 101 Rvik.
34. Olíufélagið hf. (bón- og þvottastöð) Gagnvegi 2 112 Rvik.
35. Olíufélagið hf. (bílaþvottastöð) Skógarseli 100 109 Rvík.
36. Bónus Bón — Bóntorg Súðarvogi 40 104 Rvík.
37. Bónhöllin Dugguvogi 10 104 Rvík.
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi, svo og forsvarsmenn
og starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi.
2. íbúar þess svæðis, sem ætla má að geti orðið fyrir
óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir, sem málið varðar.
Athugasemdir, ef gerðar eru, skulu vera skriflegar og
sendast Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, Drápuhlíð 14, 105
Reykjavík fyrir 24. ágúst nk.
Heilbrigóiseftirlit Reykiavikur.
'ffi