Morgunblaðið - 24.07.1993, Page 40
MORGUNBLADW, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 091100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
VERÐ í LAÚSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Golli
Bros á norðlensku búi
ELÍN María Heiðarsdóttir er sex ára heimasæta á Draflastöðum í Fnjóska-
dal. Hún á svolítið bú ekki langt frá bænum og þar unir hún sér gjaman.
Köld tíðin í sumar hefur sett svip sinn á búskapinn í Fnjóskadalnum en
Elín Maríá brosir þrátt fyrir slæma sprettu á túnunum og lélegar heyskapar-
horfur.
Góðar heimtur á haf-
beitarlaxi og hátt verð
Dagsveiðin 82
laxar á stöngina
VEIÐIFÉLAGARNIR Þórarinn Sigþórsson og Egill Guðjohnsen fengu
metveiði í Laxá á Asum nú í lok vikunnar er dagsveiði þeirra varð
- Sí2 laxar á eina stöng. Á stöngina fengu þeir saman 43 laxa seinnipart
fimmtudags og 39 laxa fyrripart föstudagsins.
Þórarinn Sigþórsson segir að hann
hafi aldrei áður veitt jafnmarga laxa
á eina stöng á einum degi. Fyrra
met hans var 58 laxar. „Það er óhætt
að segja að við séum ánægðir með
þennan afla en við lentum í göngu
í ánni og fískurinn gaf sig vítt og
•^■breitt um alla á,“ segir Þórarinn.
Stærsti laxinn af þessum fjölda
GÓÐAR heimtur hafa verið í margar hafbeitarstöðvar að undan-
förnu. Hefur hlutfallið verið hæst í hafbeitarstöðvum Silfurlax í
Hraunsfirði á Snæfellsnesi og ríkisins í Kollafirði og hafa fleiri
iaxar komist undir hnífinn á báðum stöðum en allt fyrrasumar.
Ólíka sögu er hins vegar að segja af Norðurlandi og telur Sigurð-
ur Stefánsson, stöðvarstjóri í Laxósi hf., líkur á að kaldur sjór
spili inn í Iélegar heimtur. Heimtur hafa líka verið fremur slakar
í Vogavík. Aron Reynisson, markaðsstjóri í ferskfiskdeild SH,
segir að markaðssetning hafbeitarlax hafi skilað góðum árangri.
Auðvelt sé að selja laxinn en meira vandamál að halda uppi góðu
verði. Framleiðendur fá nú að meðaltali 420 kr. fyrir kg og eru
kaupendurnir aðallega erlendir veitingahúsaeigendur.
Góðar heimtur
Þrjár stærstu hafbeitarstöðv-
amar eru Silfurlax, Vogavík og
Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði.
Sagði Júlíus B. Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Silfurlax, að þar
hefði verið slátrað 50.000 löxum
og hefðu að viðbættum um 15.000
löxum í kvíum komið 60.-70.000
laxar í stöðina. Þannig sagðist
hann eygja þá von að 100.000
laxar kæmu í stöðina í sumar, án
þess að nokkru væri hægt að slá
föstu. Ef miðað væri við þann
fjölda gætu heimtur orðið 4-5%,
miðað við 2% í fyrra.
Eins og í Hraunsfirði eru heimt-
ur þegar orðnar meiri nú en í allt
fyrrasumar í Laxeldisstöð ríkisins
í Kollafirði. Þannig sagði Vigfús
Jóhannsson, framkvæmdastjóri,
var 12 pund en Þórarinn segir að
megnið af honum hafi verið 5-7
punda vænn og fallegur smálax. Með
þessari veiði er heildarfjöldi laxa úr
ánni í sumar orðin 550 og segja má
að þeir félagar hafi aukið heildar-
veiði í ánni um 20% á einum degi.
Sjá nánar á bls. 15 „Eru þeir
að fá ann?“
að komnir væru á land á níunda
þúsund láxar og svaraði sá fjöldi
til 4% seiðaheimtu. Heimtur yrðu
því a.m.k. 6% með sama áfram-
haldi.
Jón Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Látravíkur hf., sem rekur
Lárós á Snæfellsnesi, sagði að þar
væru heldur fleiri laxar komnir á
land en í fyrra á sama tíma eða
um 7.000.
Dræmt hjá Vogavík
Viktor Guðmundsson í Vogavík
á Vatnsleysuströnd sagði að þar
væru heimtur heldur slakari en í
fyrrasumar. Þannig væru komnir
rúmlega 21.000 laxar á land mið-
að við 32.000 á sama tíma í fyrra.
Það ár hefðu heimst 46.000 laxar
og hefðu heimtur verið keimlíkar
og í Hraunsfírði og Kollafirði.
Hann kvaðst hins vegar ekki hafa
skýringu á ólíkum heimtum nú.
Aðeins voru komnir um 1.100 lax-
ar á land í Laxósi í Ólafsfírði þeg-
ar rætt var við Sigurð Stefánsson
stöðvarstjóra í gær. Gat hann sér
þess til að kaldur sjór réði mestu
um dræmar heimtur.
Sjá bls. 17: Stöðvar fengið
meiri heimtur..
Verslunarmaiinahelgi
Þrettán
hátíðir
LANDSMENN geta um versl-
unarmannahelgina valið milli
þrettán skipulagðra útihátíða
víða um land. Hátíðirnar eru
með fjölbreyttu sniði en hægt
er að fara á hefðbundnar
útihátíðir, sérstakar fjöl-
skylduhátíðir, bæjarhátíðir,
kristilegar samkomur, nýald-
armót eða æskulýðshátíð.
Þekktar eru
hátíðir á borð
við Þjóðhátíð-
ina í Eyjum
og bindind-
ismótið í Gal-
talæk og þær
hafa verið
haldnar um
langa hríð. Til
fjölskylduhátíðar í Vík í Mýrdal
og nýaldarmóts á Hellnum hef-
ur verið boðið í mörg ár en
nýrri af nálinni eru útisamkom-
umar Eiðar ’93, fjölskylduhá-
tíðir á Kirkjubæjarklaustri og í
Vatnaskógi.
Sérstakan svip á helgina
setja bæjarhátíðir en í fyrra gat
fólk upplifað Síldarævintýri á
Siglufirði og dvalist við Eyja-
flörð á Halló Akureyri! í ár
bætist við ein slík þegar íbúar
Neskaupstaðar bjóða til Neista-
flugs ’93. Loks verður haldið
æskulýðsmót að Eyjólfsstöðum
á Austurlandi, landsmót Hvíta-
sunnusafnaðarins verður opið
öllum í Kirkjulækjarkoti, Fljóts-
hlíð og félagar í AA og Alanon
munu safnast saman í Húsa-
fellsskógi á árlegu sumarmóti.
Sjá bls. 24-25: „Fjölbreytt
hátíðahöld..."
Ráðherrar hefja viðræður við stjórnendur bankanna
Morgunblaðið/Einar Falur
Með hafbeitarlax
ÓLAFUR Ásmundsson, stöðv-
arstjóri í KoIIafirði, með haf-
beitarlax úr stöðinni. Hlutfalls-
lega hafa heimtur orðið mestar
þar og hjá Silfurlaxi í Hrauns-
firði á Snæfellsnesi.
Raunvextirnir
verði lækkaðir
segir að 0,64% séu afleiðingar
gengisfellingarinnar í lok júní og
0,43% vegna fækkunar undan-
þága virðisaukaskatts en á móti
komi 0,27% lækkun vegna auk-
inna niðurgreiðslna. Byggingavísi-
talan hækkaði um 1,3%, aðallega
vegna gengisbreytinga.
Sjá bls.17: „Ríkissijórnin vill
að bankamir taki mið ...“
---------» ♦ ♦
Erlend úttekt Visa
20% lækkun
frá í fyrra
ERLENDAR úttektir hjá Visa
ísland lækkuðu um 20% í dollur-
um talið á síðasta kortatímabili
miðað við sama tíma í fyrra.
Á síðasta úttektartímabili, frá
18. júní til 19. júlí, minnkuðu við-
skiptin um 20% í dollurum talið.
Einar S. Einarsson framkvæmda-
stjóri Visa íslands sagði að færri
íslendingar virtust vera á ferð er-
lendis en í fyrra a.m.k. hefði ís-
lenskum korthöfum Visa, sem
verslað hefðu erlendis á þessu ári,
fækkað um 7% frá í fyrra. Væri
greinilegt að landsmenn væru farn-
ir að spara.
Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráðherra segir að þó bank-
amir hafí ekki hækkað raunvexti
með vaxtaákvörðunum í þessum
mánuði hafí þeir ekki fylgt þeirri
þróun sem verið hafí annars stað-
ar á fjármagnsmarkaðnum. „Það
er því full ástæða til að vekja at-
hygli þeirra á því og láta það koma
fram að þess sé vænst að þeir
taki mið af þessari þróun og þess
sé vænst að raunvextir geti farið
lækkandi eins og er að gerast á
öðrum vettvangi," sagði Sighvatur
á blaðamannafundi í gær. Jón Sig-
urðsson seðlabankastjóri sagði að
menn hlytu að vænta þess að 0,25
til 0,50% raunvaxtalækkun yrði á
næstunni.
Hækkanir svipaðar
Hagstofan telur að hækkanir á
framfærslu- og byggingavísitölu í
þessum mánuði hafi verið svipaðar
og spáð var Framfærsluvísitalan
hækkaði um 0,9% í júlí. Hagstofan
RÍKISSTJÓRNIN mun beina þeim eindregnu tilmælum til banka og
sparisjóða að þeir taki mið af þróun vaxta á fjármagnsmarkaði og
lækki raunvexti bankalána. Forsætis- og viðskiptaráðherra munu
eftir helgi ræða við stjórnendur bankanna um þetta efni. Seðlabank-
inn telur ekki að raunvextir hafi hækkað með nafnvaxtahækkunum
bankanna í þessum mánuði, þeir hafi fremur lækkað. Þá segir bank-
inn í greinargerð til viðskiptaráðherra að bankarnir hafi ekki verið
að auka vaxtamun. Vakin er athygli á þvi vextir verðtryggðra út-
lána hafi hækkað lítilsháttar hjá bönkunum að undanförnu.