Morgunblaðið - 31.07.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993
3
*
Tugir þúsunda Islendinga leggja upp í ferðalög á þessari mestu ferðahelgi ársins
Flestir leggja
leið sína í Ejjar
Umferð einna þyngst á Suðurlandi
VERSLUNARMANNAHELGIN er runnin upp og tugþúsundir manna
hafa lagt upp í ferðalög af ýmsu tagi. Lögregla taldi í gærkvöldi að
bílaumferð hafi verið einna þyngst á Suðurlandi og sagði nærri lagi
að helmingur bílaflota landsmanna verði á ferðinni um helgina þegar
umferð er mest. Af skipulögðum hátíðum virðast langflestir leggja
leið sína út í Eyjar en fullt var í flestar ferðir íslandsflugs og Flugleiða
í gær og á fimmtudag. Hjá BSI var einnig mest ásókn í ferðir til Eyja
en rúmlega 700 manns höfðu keypt sér miða þangað með Herjólfi í
gær. Einnig fóru margir til Galtalækjar og Þórsmerkur en ferðaskrif-
stofa BSI taldi þó að mikla fækkun megi merkja í ferðir þangað.
Nei þýðir nei!
STARFSMAÐUR Stígamóta var
mættur á Reylqavíkurflugvöll þar
sem hann minnti á slagorð samtak-
anna: „Nei þýðir nei, nauðgun er
glæpur!“ Samtökin verða með ráð-
gjafa á tveimur útihátiðum, í Eyjum
og á Eiðum, og ennfremur í Þórs-
mörk.
„Við þurftum aldrei að spyija vini
okkar hvert þeir hygðust fara. Við
sögðum bara; sjáumst í Eyjum!“
Þannig lýstu Aslaug og Edda
stemmningunni meðal unga fólksins
en þær voru að fara til Eyja ásamt
sex vinkonum sínum og Jóni, sem
fékk að fylgja með. Að sögn Bettý-
ar, einnar í hópnum, kostar ferðin
með öllu um 25 þúsund krónur. Það
þótti þeim þó alls ekki of mikið því
ferðin væri einfaldlega vel þess virði!
Að sögn Hjálmars Ingvarssonar,
aðstoðarvarðstjóra Lögreglunnar í
Reykjavík, var umferð einna þyngst
á landinu á Suðurlandsundirlendinu
og á leiðum út úr Reykjavík. Hann
segir umferð hafa aukist jafnt og
þétt allan daginn en hafi verið einna
mest seint í gærdag og frameftir
kvöldi.
Flestir í Eyjar
Lögregla, Slökkvilið Reykiavíkur, Landhelgisgæsla, Umferðarráð og FÍB
Víðtækt umferðarátak um allt land
Ferðbúin í Galtalæk
ÞAU sleiktu sólina fyrir utan Um-
ferðarmiðstöðina í Reykjavík með-
an beðið var eftir bílnum á Galta-
lælqarmótið.
í . • x j T-i • Morgunblaðið/Biami
A leið til Eyja
ÞESSIR hressu unglingar höfðu ákveðið að fara á Þjóðhátíðina í
Eyjum fyrir mörgum mánuðum og gátu vart beðið eftir því að stíga
um borð og halda í Eyjar.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Prúðbúnar á þjóðhátíð
FÓLK var prúðbúið við setningu
Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum í
gær. Þessar konur fóru í upphlut
í tilefni dagsins.
LÖGREGLA, Umferðarráð, Slökkvilið Reykjavíkur í samstarfi við Land-
helgisgæsluna og Félag íslenskra bifreiðaeigenda munu leggja sitt af
mörkum til að verslunarmannahelgin verði slysalaus. Lögreglan mun
dreifa Ferðafélaganum með hagnýtum upplýsingum fyrir ökumenn og
hafa náið eftirlit með allri umferð á landinu, meðal annars með aðstoð
þyrlusveitar. Slökkviliðið verður á sérstakri bakvakt, umferðarráð
starfrækir upplýsingamiðstöð og útvarpar leiðbeiningum til ferða-
manna og FIB mun aðstoða bifreiðaeigendur á hefðbundinn hátt.
Að sögn Inga Sigurðssonar, vakt-
stjóra hjá Flugleiðum, voru 17 ferð-
ir farnar til Eyja í gær og á fimmtu-
dag en fullt var í þær flestar. Hann
segir að gera megi ráð fyrir því að
um þúsund manns hafí verið fluttir
þangað ef reiknað er með þremur
ferðum, sem farnar verða í dag. Af
öðrum ferðum megi nefna að allar
vélar til Akureyrar hafi verið fullar
í gær.
Sömu sögu má segja af íslands-
flugi en þar ber mest á Eyjaferðum.
Að sögn Sigfúsar Sigfússonar verða
rúmlega þúsund manns fluttir til
Eyja með vélum flugfélagsins. Einn-
ig segir hann allmarga leggja leið
sína til Sigluijarðar og Egilsstaða
með áætlunarflugi íslandsfiugs.
Lögreglan verður með sérstakt
átak þessa helgi og mun dreifa
Ferðafélaganum á vegum úti um allt
land. Vegfarendur geta átt von á að
verða stöðvaðir, fá tiltal og ókeypis
eintak af „félaganum" og þeir sem
eru til sérstakrar fyrirmyndar í um-
ferðinni kunna að fá óvæntan glaðn-
ing. Ferðafélaginn inniheldur gagn-
legar upplýsingar fyrir ökumenn, svo
sem greinar um skyndihjálp, akstur
yfir ár og vötn, bílbelti og margt
fleira.
Lögreglan verður einnig með eina
þyrlu í reglulegu flugi um suðvestur-
horn landsins en hún mælir m.a.
hraða.
Sérstakt átak verður hjá lögregl-
unni á Suðurlandi en um þessa helgi
munu lögregludeildir í Reykjavík og
á Suðurlandi starfa saman að eftir-
liti. Liðsauki verður sendur lögreglu-
deildum á Suðurlandi.
Samstarf
Um þessa helgi mun slökkviliðið
í fyrsta sinn aðstoða þyrlusveit Land-
helgisgæslunnar. Hún felst í því að
einn maður frá slökkviliðinu verður
viðbúinn að fara með hjálparflugi
gæslunnar með klippur og glennur á
slysstað. Æfmgar hafa farið fram
og hefur samstarfið reynst vel að
mati Jóns Friðriks Jóhannssonar,
varðstjóra hjá slökkviliðinu. Hann
segir þetta mikilvægt öryggisatriði.
Umferðarráð starfrækir um þessa
helgi. upplýsingamiðstöð sem mun
miðla upplýsingum um umferð til
ferðamanna. Ráðið mun í þessu skýni
starfa í samvinnu við flestallar út-
varpsstöðvar og senda út reglulega
stutta þætti um umferð og umferðar-
öryggi.
FÍB aðstoðar
Síðustu fjörutíu ár hefur Félag
íslenskra bifreiðaeigenda aðstoðað
bifreiðaeigendur um þessa helgi. Á
því verður engin breyting en félagið
hefur samið við verkstæði, drátt-
arvélar, varahlutasölur og bifreiða-
umboð að halda bakvakt alla helgina.
BARNAHJÓL FJALLAHJÓL KVEf J- KARLAHJÓL
2 0-30% 'iU\.
Miuucuu kynast DBS Velamos CATS
FÁLKIN N
Suðurlandsbraut 8, sími 814670 - Mjódd, sími 670100
REIÐHJÓLAÚTSALA FÁLKANS
HEFST ÞRIDJUÐAGINN 3. ÁGÚST