Morgunblaðið - 31.07.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 31.07.1993, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993 GOLF / LANDSMOTIÐ Einvígi Þorsteins og Siguijóns ÞEGAR kappamir í meistara- flokki lögðu í hann í gær var stað- an þannig að Þorsteinn Hallgríms- son úr GV var búinn að leika á 226 höggum, 10 högum yfir pari vallarins. Björgvin Sigurbergsson úr Keili var á 230 höggum, 14 höggum yfir pari, Sigurjón Arn- arsson úr GR var á 231 höggi, 15 yfir pari og Úlfar Jónsson úr Keili var á 233 höggum, 17 yfir pari. Hér á eftir verður lýst síð- asta hring efstu manna, en í síð- asta riðli léku þrír efstu. Eftir hverja holu segir frá skori dags- ins, hvort um er að ræða par, skolla, fugl eða eitthvað allt ann- að, hve mikið yfir eða undir pari vallarins leikmenn eru þennan daginn og síðast í heildina. 1. braut: 483 m Þorsteinn var á miðri braut en Sigurjón rétt utan brautar hægra megin og sló þaðan inn á flöt en púttið var heldur sterkt á því en setti niður í næsta pútti og fékk fugl. Gó byijun. Þorsteinn sló annað höggið of langt til hægri við flötina og þurfti að vippa hon- um inná. Hann þurfti að tvípútta en í fyrra skiptið kíkti boltinn aðeins niður í holuna en vildi ekki í. Par og Siguijón búinn að vinna eitt högg af honum. Þorsteinn: 231, 0 (+10) Sigun'ón: 235, -1 (+14) 2. braut: 349 m Upphafshögg þeirra voru utan brautar vinstra megin og áttu þeir um 150 metra eftir inná flöt. Þorsteinn sló yfir flötina og inná- höggið þaðan var of langt enn hann setti púttið engu að síður niður og fékk gott þar. Siguijón sló of stutt í öðru högginu en lagði alveg uppvið í því þriðja og fór á pari. Þorsteinn: 235, 0 (+10) Simirión: 239, -1 (+14) 3. braut: 181 m Bolti Siguijóns stoppaði í flatar- kanti á Bergvíkinni illræmdu en Þorsteinn sló útí drasl vinstra megin. Boltinn lá frekar illa en hann gat þeytt honum framhjá glompunni og inná flöt. Hann missti síðan naumlega iangt pútt en Siguijón lagði failega við stöng { öðru höggi og fékk par. Þorsteinn: 239: +1 (+11) Sigurión: 242: -1 (+14) 4. braut: 387 m Þorsteinn sló upphafshöggið á braut en Siguijón var aðeins utan við vinstra megin á góðum stað. Innáskot Þorsteins var aðeins of langt en hann notaði þó pútter til að renna boltanum að og fékk par. Siguijón gerði eiginlega al- veg eins, var of langur lagði að og púttaði niður. Þorsteinn: 243: +1 (+11) Sigrurión: 246, -1 (+14) 5. braut: 364 m Þorsteinn fór útaf vinstra megin en boltinn var á fínum stað þó svo betra sé að vera hægra meg- in eins og Siguijón var. Þorsteinn sló í giompuna við flötina en Sig- uijón var aðeins of langur í öðru höggi sínu. Högg Þorsteins upp úr glompunni var glæsilegt og hann þurfti aðeins eitt pútt og paraði. Siguijón sló yfir flötina en notaði pútterinn til að slá inná. Það var allt of stutt en hann núði að reka púttið niður og fá par. Þorsteinn: 247: +1 (+11) SÍGrurión: 250: -1 (+14) '.iUí* 6. braut: 488 m Þorsteinn lagði boltann sinn aftan við hólinn hægra megin en Sigur- jón var aðeins lengri og við hliðina á honum og spuming hvort hann reyndi að fara alla leið inn í næsta höggi. Hann gerði það ekki heldur lék af skynsemi og setti boltann í 80 metra fjartegð frá flöt. Ann- að högg Þorsteins sleikti hólinn og að tjöminni. Báðir slógu glæsi- lega inná fiötina og settu í, bolti Siguijóns lak reyndar niður. Fall- égir fuglar hjá báðum. Þorsteinn: 251, 0 (+10) Skrurión: 254, -2 (+13) 7. braut: 170 m Siguijón sló á flöt en boltinn lak útaf og hann átti erfitt annað högg því lítið pláss var á milli holunnar og flatarkantsins. Hann ieysti það snilldarlega og fékk par. Þorsteinn sló á flöt og tvípútt- aði og fékk ömggt par. Þorsteinn: 254, 0 (+10) Siarurión: 257, -2 (+13) 8. braut: 310 m Báðir slógu í kargann vinstra megin og þaðan yfir flötina og boltar þeirra lágu hlið við hlið. Báðir notuðu pútter til að renna boltanum inná og settu síðan nið- ur meters pútt. Þorsteinn: 258, 0 (+10) Sitrurión: 261, -2 (+13) ‘4 >»« 9. braut: 319 m Báðir slógu þeir inná 18. braut- ina. Þorsteinn í glompu þar en Siguijón náði aðeins fram yfir hann. Hann sló stórglæsilega inná og setti niður fyrir fugli. Þorsteinn sló of langt frá holunni og tvipútt- aði og fékk par. Þar með munaði aðeins einu höggi á þeim. Þorsteinn: 262, 0 (+11) Sigurión: 264: -3 (+12) 10. braut: 302 m Þorsteinn sló útaf hægra megin og boltinn lá á grasvegi þar en Sigurjón fann boltann sinn í þykku grasi vinstra megin við brautina. Þorsteinn sló fallega inná og gerði heiðarlega tilraun við fuglinn en boltinn kíkti aðeins niður en vildi ekki í. Siguijón sló ágætlega inná flöt en púttaði hræðilega illa og í næsta pútti iak boltinn niður í holuna. Þorsteinn: 266, 0 (+10) Sierurión: 268, -3 (+12) 11. braut: 330m Upphafshögg Siguijóns endaði við kvennateiginn á 10. braut en Þorsteinn var á miðri braut, þeirri réttu. Hann sló inná flöt, en nokk- uð langt frá í næsta höggi eins og Siguijón. Þorsteinn rak púttið í og fékk fulg en Siguijón tvípútt- aði. Þorsteinn vann því eitt högg til baka. Þorsteinn: 269, -1 (+9) Sigurión: 272. -3J+12) 12. braut: 311 m Siguijón sló í kargann vinstra megin og var boltinn þar í þykku grasi og lá mjög illa. Þorsteinn var hins vegar í brautarkanti hægra megin. Siguijón náði að- eins að siá boltann upp úr grasinu og kom honum þó nokkuð áfram og inná braut en Þorsteinn sló yfir flötina og þar lá boltinn í þéttu gi’ási. Innáhöggið hjá Þor- steini var frábært og hann fékk ömggt par. Siguijón vippaði of stutt inná en setti samt niður fyr- ir pari. Þorsteinn: 273, -1 (+9) Sierurión: 276, -3 (+12) 13. braut: 186 m Siguijón sló inná en Þorsteinn vai’ vinstra megin við flötina og lá boltinn í slakka þannig að erfitt var að slá hann vel inná flöt. Bolti Siguijóns kíkti aðeins niður í holuna en vildi ekki { og hann fékk par. Þorsteinn sló í belginn á boltanum og þurfti síðan tvö pútt. Siguijón vann þama eitt högg. Þorsteinn: 277, 0 (+10) Sierurión: 279, -3 (+12) 14. braut: 485 m Þorsteinn sló á braut en Siguijón yfir á 6. braut eins og hann er vanur enda er þægilegra að leika þaðan inná flötina. Báðir voru of stuttir í næsta höggi og sýnu erf- iðara innáhögg fyrir Þorstein því hann þurfti að fara yfir glompu. Siguijón var óheppinn því boltinn lenti i stönginni þegar hann lék inná flötina og það munaði ekki miklu að hann fengi öm, en varð að sætta sig við fugl. Þorsteinn tvípúttaði átta metrana og fékk par. Siguijón vann eitt högg og nú munaði aðeins einu höggi á þeim. Þorsteinn: 282, 0 (+10) Siguijón: 281, -4 (+11) 15. braut: 306 m Þorsteinn sló upphafshöggið á milli 14. og 15. brautar og átti erfitt innáhögg fyrir höndum. Sig- uijón var hins vegar vinstra meg- in og inná 17. braut. Höggið inn á flöt var glæsilegt og hann fékk ömggt par eftir slakt fyrra pútt. Þorsteinn sló aðeins yfir flötina og nærri í áhorfendur. Innáhöggið var fullstutt en hann hafði ekki áhyggjur af því. „Ég hlýt að grísa þessu í,“ sagði hann sem hann og gerði. Gott par. Þorsteinn; 286, 0 (+10) Siguijón: 285, -4 (+11) 16. braut: 153 m Siguijón var inná í teighögginu en átti eftir tæplega 20 metra pútt. Þorsteinn var í flatarkantin- um og lagði alveg við holu eins og Siguijón. Báðir á pari og enn magnaðist spennan því nú vom aðeins tvær holur eftir og munur- inn aðeins eitt högg. Þorsteinn: 289, 0 (+10) Sigurión: 290, -4 (+11) 17. braut: 334 m Siguijón var vinstra megin á brautinni en Þorsteinn fór útaf hægra megin. boltinn lá ágætiega en hann þurfti að slá yfír glompu og hafði lítið svæði að vinna með á flötinni. Siguijón lék ekki nógu vel inná og átti óþarflega iangt pútt eftir eins og Þorsteinn. Báðir þurftu að nota tvö pútt og enn magnaðist spennan. Þorsteinn: 293, 0 (+10) Sigurión: 294, -4 (+11) 18. braut: 477 m Þorsteinn sló á miðja braut en Siguijón fór yfir á fyrstu braut eins og hann gerir stundum, enda ágætt að leika þaðan. Annað högg Þorsteins var í karga vinstra meg- in en Siguijón sló í brautarglompu þar sem boltinn lá svo til ósiánleg- ur þannig að hann varð að vippa uppúr glompunni og inná braut. Þorsteinn lá hins vegar ágætlega í karga vinstra megin en sló það- an í glompuna við flötina vinstra megin, þá sömu og hann var_ í þegar hann lék 9. holuna. Úr glompunni sló hann inná og átti eftir tíu metra í holu. Siguijón sló vel inná en átti eftir um fimm metra pútt. Þorsteinn lagði við holu og Ömggur um að fara á skolla þannig að Siguijón varð að setja í til að jafna og fá um- spil. Það gekk ekki eftir því pútt- ið fór aðeins framhjá og Þorsteinn því nýr ísiandsmeistari. Þorsteinn: 299, -1 (+11) Siguijón: 800, -3 (+12) LOKASKOR: Þorsteinn.................73 Siguijón...................69 ff Rosalega svekktur" - sagði Sigurjón Amarsson úr GR sem varð í öðru sæti þriðja árið í röð ■ LINFORD Christie, breski Ólympíumeistarinn frá því í Barcel- ona, sigraði heimsmethafann Carl Lewis í langþráðu einvígi þeirra i 100 m hlaupi í gærkvöldi, er þeir mættust í Gateshead í Englandi. Christie hljóp á 10,08 sek. en Lew- is, sem byrjaði illa í hlaupinu, varð að láta sér þriðja sætið lynda á 10,22 sek. Bandaríkjamaðurinn John Drummond varð annar á 10,12 sek. ■ DRUMMOND byijaði best og hafði forystu lengi vel en Christie gaf í síðustu 20 metrana og kom fram úr í lokin. Hann var heilum metra á undan Lewis í mark. Þetta var fyrsta keppni Lewis og Christie síðan á HM í Tókíó 1991, en báðir verða í eldlínunni á HM í Stuttgart, sem hefst eftir aðeins tíu daga. ■ TVEIR íslenskir keppendur verða á Evrópumeistaramótinu í sundi sem fram fer í Sheffield á Englandi um helgina. Það eru systkinin Bryndís Ólafsdóttir og Amar Freyr Ólafsson. Þjálfari og fararstjóri er Hrafnhildur Guð- mundsdóttir, móðir þeirra og fyrr- verandi sundmaður. ■ BRYNDÍS keppir í fjórum greinum á mótinu; 50 m, 100 m og 200 m skriðsundi og 100 m flug- sundi. Amar Freyr keppir einnig í fjórum greinum: 200 m skrið- sundi, 200 m flugsundi, 200 m fjór- sundi og 400 m fjórsundi. Þau hefja bæði keppni á þriðjudag. ■ LANDSLIÐ heyrnarlausra i þandknattleik tekur nú þátt í Sum- arleikum heymarlausra, sem fram fara í Sofíu í Búlgaríu. Liðið sigr- aði Svía í fyrradag, 16:13, en hafði áður borið sigurorð af Tævan 29:13 en tapað fyrir Þjóðveijum, 15:19. ■ BERNHARÐ Guðmundsson gerði 7 mörk gegn Svíum. Leikur- inn var jafn lengst en Islendingar tryggðu sér sigurinn á síðustu fímm mínútunum, m.a. vegna frábærrar markvörslu Kristjáns Friðgeirs- sonar, sem varði þá m.a. tvö víti. ■ ÍSLAND vann Tævan í fyrsta leiknum, 29:13. Jóhann Ágústs- son, leikmaður með FH, skoraði 11 mörk í leiknum. Jóhann skoraði svo sjö gegn Þjóðveijum, en hann ~Var tekinn úr umferð allan tímann Segn Svíum og gerði þá tvö mörk. I ÍSLENSKI keppandinn í sundi, Jón Bjarki Ásgeirsson, keppti á fimmtudag í 400 m skriðsundi á þessum leikum heyrnarlausra. Hann komst ekki í úrslit og hafn- aði í 18. sæti af 19 þátttakendum. ■ ÁRNI Þór Árnason, sem leikur með knattspymuliði Þórs frá Akur- eyri, er meiddur og óljóst hvenær hann getur leikið á ný. Þijár tær á öðrum fæti hans brákuðust í leik gegn Val á dögunum og er hann illa marinn. ■ NORSKA handknattleiksliðið Bodo, sem Sigurður Gunnarsson þjálfar og Gylfí Birgisson leikur með, kemur til landsins í byijun ágúst og leikur hér þrívegis — gegn FH, Aftureldingu og Selfossi. ■ ELLERT Aðalsteinsson frá Sauðárkróki náði 88 stigum af 100 í haglabyssuskotkeppni á Blöndu- ósi um sl. helgi. ■ PAUL Gascoigne, enski lands- liðsmaðurinn í knattspymu, sem leikur með ítalska liðinu Lazio, sagðist í gær vera kominn í 12 mánaða þagnarbindindi gagnvart fjölmiðlamönnum. „Gassi“ sagði þetta eigin ákvörðun. ■ GASCOIGNE, sem er 26 ára, er. staddur í London þar sem lið hans tekur þátt í fjögurra liða móti ásamt Ajax, Chelsea og Totten- ham — sem „Gassi“ lék með áður en hann fór til Ítalíu. Ákvörðun sina upplýsti hann rétt áður en blaða- mannafundur hófst, þar sem kynna atti mótið. Gascoigne var á leið á salinn, en snéri við í dyrunum og sagðist heidur ætla í hádegismat. etta voru mér mikil vonbrigði og ég er rosalega svekktur yfir að vinna ekki. Það var aldrei spuming í mínum huga frá fyrsta höggi að ég ætlaði mér að sigra og ég hafði það á tilfinningunni í dag að ég væri að ná Þorsteini, en hann hélt haus og kláraði dæmið,“ sagði Siguijón. „Ég er mjög ánægður með hring- inn í dag en hina dagana gekk ekk- ert að pútta. Þó svo að ég hafi leik- ið nokkuð stöðugt er skorið alls ekki gott enda gaf veðrið ekki til- efni til þess. Miðað við hvemig mér gekk í dag er mjög svekkjandi að sigra ekki. Þetta gekk allt þar til á síðustu holu, þá sló ég í glompu og gat ekkert annað en vippað inná braut, en innáhöggið og púttið gekk vel miðað við það sem á undan var gengið. Ég hefði gjaman viljað fá umspil, en það gekk ekki að þessu sinni," sagði Siguijón. Hann er á föram í haust til Bandaríkjanna en er ekki enn ákveðinn hvort hann reynir fyrir sér í atvinnumennskunni eða leikur sem áhugamaður þar ytra. „Þetta veltur meðal annars á því hvemig gengur að fá einhveija til að kosta þetta. Ölgerðin ætlar að styðja mig og það hjálpar mér að gera þetta. Ég held ég geti meira sem kylfingur og hafi ekki sýnt allt sem ég get,“ sagði hann. Vildi kveðja með sigri „Auðvitað er ég svolítið svekktur því ég hefði viljað kveðja með sigri enda er þetta síðasta landsmótið rnitt," sagði Úlfar Jónsson, fyrrver- andi íslandsmeistari, eftir að hann kom inn á 75 höggum í gær, en það dugði í fjórða sætið að þessu sinni. „Ég byijaði ágætlega fyrsta dag- inn og hélt mér í hópnum eins og ég hafði ætlað mér. Eftir fyrsta dag gekk ekkert að pútta, alveg sama hvernig ég reyndi. Þetta setti þrýst- ing á allan annan leik hjá mér því ég missti sjálfsöryggið og þá fór maður að rembast við að gera betur I öllum öðrum höggum til að vera enn nær holunni. Til að verða ís- landsmeistari þarf smá heppni að fylgja með en hún var langt frá því að vera með mér að þessu sinni. Ég vissi fyrir mótið að til að sigra yrði ég að leika mjög vel, en því miður tókst það ekki og því fór sem fór,“ sagði Ulfar Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.