Morgunblaðið - 31.07.1993, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993
45
GOLF / LANDSMÓTIÐ
Islandsmeistaratitillinn í karlaflokki til Eyja á ný eftir 34 ára bið
ÚRSLIT
ÞORSTEINIM Hallgrímsson
sýndi mikinn styrk á síðasta
degi landsmótsins með þvf að
leika á einu höggi yfir pari og
halda höfði því Sigurjón Arn-
arsson úr Golfklúbbi Reykja-
víkur, sem varð annar, lék
mjög vel, kom inn á 69 högg-
um, þremur höggum undir
pari vallarins. Þorsteinn fór til
Eyja í gær á Þjóðhátfð og hef-
ur trúlega verið vel tekið því
34 ár eru síðan titillinn í karla-
flokki fór til Eyja en það var
Steinn Ársælsson sem sigraði
1957 og 1959.
kominn. Hann hefur lengi verið í
eldlínunni, leikið vel í mörg ár en
þó aldrei eins vel og í sumar.
Hann hefur þó sjaldan náð sér vel
á strik þegar að landsmóti hefur
komið. En núna sýndi hann og
sannaði að hann er sterkur kylf-
ingur og það sem meira er, hann
virðist hafa mjög gaman af því
sem hann er að gera hverju sinni.
Það hefur nefnilega stundum
gleymst að þetta er golfleikur og
það er mikilvægt að keppendur
reyni að hafa eins gaman af leikn-
um og áhorfendur.
Keppni var einnig jöfn í nokkr-
um öðrum flokkum en í meistara-
Morgunblaðið/Óskar Sæmundsson
Meistarínn
ÞORSTEINN Hallgrímsson hróðugur á svip á átjándu flöt eftir að hafa lagt
boltann að holu. Sigurjón, sem sést í baksýn, þurfti að setja niður fimm metra
pútt til að eiga möguleika á sigri, en náði því ekki. Þorsteinn setti því næst
kúluna niður af stuttu færi og sigurinn var hans.
Karen meistari
fimnvta áríð í röð
Landsmótið í golfi
MEISTARAFLOKKUR KARLA
Skorið í gær og lokastaðan:
Þorsteinn Hallgrimsson, GV......73 299
Siguijón Amarsson, GR...........69 300
Björgvin Sigurbergsson, GK......76 306
Úlfar Jónsson, GK...............75 308
Björn Knútsson, GK..............76 313
Helgi Anton Eiríksson, GR.......74 314
Kristinn G. Bjarnason, GL.......79 314
Sigurpáll Sveinsson, GA.........71 315
Guðmundur Sveinbjörnsson, GK ....75 316
Þórður Emil Ólafsson, GL........76 316
Birgir L. Hafþórsson, GL........77 316
Hannes Eyvindsson, GR...........77 317^
Tryggvi Traustason, GK..........73 319'
Ragnar Ólafsson, GR.............81 319
Vilhjálmur Ingibergsson, NK.....79 319
Örn Ævar Hjartarson, GS.........74 320
Sigurður Hafsteinsson, GR.......76 321
Sigurður Sigurðsson, GS.........78 322
Helgi Þórisson, GS..............76 324
Hilmar Björgvinsson, GS.........78 326
MEISTARAFLOKKUR KVENNA
Skor gærdagsins og lokastaðan:
Karen Sævardsóttir, GK..........77 317
Ólöf MaríaJónsdóttir, GK........78 327
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR...81 338
Þórdís Geirsdóttir, GK..........83 338
■Ragnhildur tryggði sér þriðja sætið með
því að sigra Þórdísi í bráðabana.
Herborg Arnardóttir, GR.........83 340
Ásgerður Sverrisdóttir, GR......83 343
Anna Jódís Sigurbergsdóttir, GK ...85 373
1. FLOKKUR KARLA
Skor gærdagsins og lokastaða efstu manna:
Rúnar Geir Gunnarsson, NK.......75 303
Hjalti Atlason, GR..............73 310
Hörður Arnarson, GK.............76 311
Jóhann Kjærbo, GNK..............76 313
ArnarÁstþórsson, GS.............74 315
Guðmundur Margeirsson, GS.......74 317
Sigurgeir Guðjónsson, GG........79 317
Davíð Jónsson, GS...............80 317
Helgi Dan Steinsson, GL.........76 319
Ekki allir sem hafa 15
þúsund manns í þriggja
daga veislu efftir sigur!
NÝKRÝNDUR íslandsmeistari
í golfi, Þorsteinn Hallgríms-
son frá Vestmannaeyjum, var
að vonum kátur þegar löngu
og erfiðu móti var lokið. Hann
hafði talað um að ef vel gengi
myndi hann trúlega raula
þjóðhátfðarlagiðá seinni níu
holunum, en hann lét það vera
enda keppnin mjög spenn-
andi.
Eg lagði í þetta mót með því
hugarfari að hafa gaman af
því sem ég væri að gera og reyna
að leika eins vel og ég get, en í
sumar hef ég verið að leika mitt
besta golf frá upphafi. Ég gleymdi
þó þessu létta hugarfari á síðustu
holunum þegar þetta var orðið ein-
vígi milli mín og Sigurjóns, þá
hugsaði maður bara um að láta
þrýstinginn ekki ná tökum á sér
og leika eins og maður, og það
tókst,“ sagði meistarinn nýkrýndi
við Morgunblaðið.
„Siguijón lék frábærlega í dag
og var oft óheppinn, til dæmis á
14. braut að fá ekki örn og svo
vippaði hann í pinna og fleira. Ég
lék líka vel og náði að halda haus
undir miklum þrýstingi og ég er
ánægður með það. Ég held að ég
hafi unnið í heildina á höggum af
um hundrað metra færi, því þau
hef ég æft mjög vel og æfi til
dæmis ekki upphafshöggin heldur
þessi högg sem telja svo mikið.“
Þú hefur oft leikið vel en síðan
ekki náð þér á strik þegar í lands-
mót er komið. Nú varð breyting á
því, hver er ástæðan?
„Já, þetta er rétt. Ég hef æft
með því markmiði að hafa gaman
af golfinu. Svo er líka annað, ég
hef aldrei náð að einbeita mér á
landsmóti í þau níu ár sem ég hef
verið með og ég skil bara ekkert
í því,“ segir meistarinn og hlær
og veit greinilega hver ástæðan
er: Þjóðhátíð í Eyjum.
„Þessi síðasti hringur var rosa-
lega spennandi og erfiður því
Siguijón vann fljótlega af mér
högg en ég komst inní leikinn aft-
ur á Qórðu og fímmtu holu. Ég
kunni vel við að hafa áhorfendur
og það fór ekki í taugarnar á mér
þó að ég sé óvanur þessari að-
stöðu. Ég vona bara að þeir hafi
haft jafn gaman af þessu og ég.
Mér leið mjög vel á hringnum
og ég svaf vel í nótt og svaf meira
að segja nærri yfir mig. Núna er
bara að fara á Þjóðhátíð og það
verður ekki leiðinlegt að koma
heim. Það eru ekki allir sem vinna
landsmót og hafa fimmtán þúsund
manns í veislu í þijá daga,“ sagði
Þorsteinn sem sagðist að vísu
ætla að æfa á milli þess sem hann
liti inn r Heijólfsdal.
3. sætið verður
ekki að vana
Eg er tiltölulega sáttur við
spilamennskuna hjá mér í
þessu móti en gekk þó ekki al-
veg nógu vel að pútta í dag.
Þetta var erfítt hjá mér í dag
og ég datt fljótlega út úr keppn-
inni um fýrsta sæti og hugsaði
þá bara um að leika eins vel og
ég gat til að halda þriðja sæt-
inu. Ég vissi um Ulfar á undan
mér en reyndi að hugsa ekki
um það,“ sagði Björgvin Sigur-
bergsson úr Keili sem varð í
þriðja sæti annað árið í röð.
„Ég hef ekki áhyggjur af því
að þriðja sætið verði að vana.
Ég varð fimmti á Akureyri í
hitteðfyrra, þriðji í fyrra og aft-
ur núna en ég var bara að gefa
strákunum tækifæri áður en ég
tek þetta með trompi. Ég ætlaði
að gefa Úlfari tækifæri núna
en hann brást mér. Það má segja
að þetta hafi bara verið upphitun
fyrir næstu landsmót, þegar ég
fer að taka þetta,“ sagði Björg-
vin í gamansömum tón, en öllu
gamni fylgir jú nokkur alvara.
Þorsteinn vel
að sigri kominn
Spennan var gífurlega mikil því
Siguijón saxaði á forskot
Þorsteins, sem átti fímm högg
fyrir síðasta hring.
Skúli Unnar Lengi vel munaði
Sveinsson einu höggi á þeim
skrifar 0g úrslitin réðust
ekki fyrr en á síð-
ustu holunni, og raunar í síðasta
púttinu, þannig að fjölmargir
áhorfendur höfðu mikið gaman af.
Golfið sem piltarnir voru að leika
var mjög gott, sérstaklega lék Sig-
uijón vel. Björgvin Sigurbergsson
úr Keili datt fljótlega út úr mynd-
inni varðandi baráttuna um fyrsta
sæti en hann og Úlfar Jónsson úr
Keili, sem var í næsta riðli á und-
an, börðust um þriðja sætið og
hafði Björgvin betur.
Þorsteinn er vel að þessum sigri
flokki kvenna var hún þó ekki jöfn.
íslandsmeistarinn Karen Sævars-
dóttir úr GS hafði yfírburði þar
að þessu sinni.
Oll umgjörð í kringum þetta 52.
landsmót var góð og sem dæmi
má nefna að síðasti riðill var ræst-
ur út á nákvæmlega réttum tíma.
Suðurnesjamenn eiga heiður skilið
fyrir frábæra framkvæmd enda
eru þeir orðnir vanir að halda stór-
mót og ferst það mjög vel úr hendi.
Það eina sem skyggði aðeins á var
veðrið. Það hefði verið gaman að
hafa gott veður því eins og tölur
síðasta dagsins bera með sér voru
kylfingarnir í góðu formi og ef
veðrið hefði verið gott hefði verið
leikið enn betra golf. En svona er
að leika golf á íslandi og við þetta
verðum við að lifa.
KAREN Sævarsdóttir úr Golf-
klúbbi Suðurnesja sigraði
næsta örugglega í meistara-
flokki kvenna og varð þar með
íslandsmeistari fimmta árið í
röð.
Eftir fyrstu holurnar í gær virt-
ist sem Ólöf María Jónsdóttir
úr Keili ætlaði að veita henni ein-
hveija keppni en Karen náði að
komast aftur inn í leik sinn eftir
erfiðar fyrstu brautir og eftir það
var sigurinn aldrei í hættu, hún
sigraði með tíu högga mun.
„Ég náði höggum á sjöttu holu
og eftir það var þetta nokkuð ör-
uggt. Ég sló mjög vel í dag en
gúttin hefðu vel mátt detta betur.
Ég er auðvitað mjög ánægð með
sigurinn en ekki með golfið sem
ég var að leika og það er leiðinlegt
að geta ekki sýnt sitt besta á lands-
móti,“ sagði Islandsmeistarinn.
Átti von á meiri keppni
„Ég átti í raun von á meiri keppni
og ég var búin að undirbúa mig
að missa titilinn, því að ég er þreytt
eftir 25 hringi á 20 dögum. Stelp-
urnar áttu bara ekki sína bestu
daga frekar en ég og því náði ég
að sigra. Það kemur þó að því að
þetta verður jafnara því bæði Her-
borg og Ólöf María eru orðnar
mjög sterkar og þær eru ungar og
svo eru auðvitað fleiri að koma
upp. Vonandi fjölgar okkur því þá
er meira gaman, en við erum alls
ekki að leika slæmt golf þótt við
séum fáar,“ sagði Karen.
„Ég klúðraði þessu á sjöttu holu
og þá var þetta svo til búið,“ sagði
Ólöf María Jónsdóttir úr Keili sem
varð í öðru sæti. Hún varð í fjórða
sæti í fyrra og er greinilega á upp-
leið. „Ég lofa þér meiri keppni og
jafnari næsta ár og þá ætla ég a<?
vinna,“ sagði hún.
Bráðabani
Bráðabana þurti um þriðja sætið
þar sem Þórdís Geirsdóttir úr Keili
og Ragnhildur Sigurðardóttir úr
GR áttust við. Eftir að hafa leikið
þijár holur í umspili, 16., 17. og
18., voru þær jafnar og fóru því í
bráðabana. Fyrsta holan féll en
Raghildur hafði betur á næstu eft-
ir að Þórdís missti stutt pútt.