Morgunblaðið - 31.07.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JUU 1993
15
Davíð Oddsson forsætisráðherra hóf ungur starfsferil sinn sem sendi-
sveinn í Sunnubúðinni. Þótt viðfangsefni hans nú séu margvísleg
og flóknari, sýndi hann að ennþá kann hann tökin á gamla hjólinu.
sem allir voru sendisveinar hjá mér
í Sunnubúðinni, og hafa sendisve-
inahjólið með á myndinni.
Þrátt fyrir mikið annríki tókst
að koma því í kring og núverandi
eigendur Sunnubúðarinnar, syst-
urnar Sigríður og Sigurbjörg Ól-
afsdætur úr Mávahlíðinni, (Sigga
og Sibba), sem báðar hafa unnið
þar frá unglingsárum, buðu upp á
eftirlætisfæði sendisveina „Litla
flösku af kók og Prins Póló“ og
höfðum við öll mjög gaman af.
Þær systumar hafa varðveitt vel
andrúmsloftið, sem ríkti í litlu búð-
unum og heildsalar segja mér að
aldrei þurfi að fara nema einu sinni
með reikning í Sunnubúðina, og
væri ólíkt auðveldara og ánægju-
legra að stunda viðskiptin ef allir
stæðu sig eins vel og þær. — Það
þykir mér vænt um að heyra.
Af öllum þeim matvöruverslun-
um sem áður voru upptaldar eru
nú aðeins starfandi í hverfinu,
Sunnubúðin í Mávahlíð og Hlíðakjör
í Eskihlíð.
Matvöruverslun á íslandi varð
að búa við óréttlát verðiagshöft
löngu eftir að aðrar vestrænar þjóð-
ir höfðu tekið upp frjálsa sam-
keppni sem leiddi af sér lægra vöru-
verð.
Hér á landi voru kaupmennirnir
bundnir á sínum stað í fjötrum verð-
lagsákvæða við að þjóna vísitölu-
íjölskyldunni fyrir ekki neitt, en
áttu að fá . rekstrarkostnaðinn
greiddan með hagnaðinum af
„lúxusvörunum", pakka- og dósa-
matnum. Á þær vörur var leyfð há
álagning þótt tilkostnaður við sölu
þeirra væri miklu minni, en á vísi-
töluvörunum.
Þegar loks skapaðist aðstaða hér
á landi fyrir stórhuga mtjnn til að
innleiða nýjungar í viðskiptaháttum
sem þróast höfðu í nágranna-
löndunum, spruttu upp stórverslan-
ir og hófst þá mikil verðsamkeppni
sem eðlilega byrjaði í „lúxusvörun-
um“.
Þann hluta viðskiptanna misstu
kaupmennirnir fyrst. Nú er
geymsluþol mjólkurvara margfalt
og annarra viðkvæmra neysluvara
einnig. Daglegar innkaupaferðir
eru því óþarfar, og innkaup gerð í
stórverslunum vikulega eða sjaldn-
ar. Með bættum samgöngum getur
viðskiptasvæði einnar stórverslunar
í Reykjavík náð vestan frá Snæfells-
nesi austur undir Eyjafjöll.
Fólk vill þó hafa verslun í næsta
nágrenni við heimilið, ef á þyrfti
að halda. Breyttir viðskiptahættir
minnka þörfina fyrir þjónustu kaup-
mannsins. Hann getur ekki selt
neinum kvóta eða fullvirðisrétt til
að auðvelda sér starfslokin. Nú er
svo komið að aðeins fáir þeirra
halda velli enn í dag.
Það verður ekki sagt að umskipt-
in hafi gengið þegjandi og hljóð-
laust fyrir sig.
Ekki þarf að undrast það þegar
margir risar ætla að gleypa sömu
kökuna í einum bita — allir í einu,
en sú saga verður ekki rakin nánar
hér.
Þegar ég læt nú hugann reika
um það tímaskeið ævi minnar, er
ég var einn af kaupmönnunum í
Hlíðunum, minnist ég auðvitað
langra vinnudaga, en það eru
mannlegu samskiptin sem hæst ber
og bjartast er yfir, og ég er þakklát-
ur fyrir vináttu og hlýhug alls þess
fólks sem ég átti samskipti við.
Höfundur er fulltrúi á skrifstofu
borgarverkfræðings í Reykjavík.
Koli hf. stofnað um tilraunaveiðar í Barentshafi
Jóhann Gíslason fer með
snurpunót næstu daga
ÍSLENSKT hlutafélag um tilraunaveiðar í Barentshafi var formlega
stofnað á þriðjudag. Hlaut það nafnið Koli hf. Verið er að ráða áhöfn
á bát félagsins, Jóhann Gíslason ÁR-42, og verður haldið af stað
innan tíu daga.
Fiskafurðir hf. hafa haft forgöngu
um viðræður við Rússa um veiðar í
Barentshafi. Samið hefur verið um
leyfi til tilraunaveiða með snurvoð
og gangi þær vel verður stofnað sam-
eiginlegt útgerðarféíag með tveimur
rússneskum útgerðarfélögum.
Sex hluthafar eru í Kola hf., auk
Fiskafurða, en það eru Þróunarfélag
fslands hf., Eignarhaldsfélag Al-
þýðubankans hf., Sæplast hf. á Dal-
vík, Árnes hf. í Þorlákshöfn, Stál-
smiðjan hf. og Orri Vigfússon. Jón
Sigurðarson, framkvæmdastjóri
Fiskafurða hf., er stjómarformaður.
Áhöfn ráðin
Jón sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Koli hf. hefði keypt Jóhann
Gíslason, 243 tonna bát sem legið
hefur bundinn við bryggju um tíma,
af Ámesi hf. og yrði hann notaður
við tilraunaveiðamar. Hann fer út
af íslenskri skipaská og verður
heimahöfn hans í Múrmansk en hann
mun landa í Noregi. Jón sagði að
nú væri verið að ráða mannskap á
skipið og það ætti að sigla innan tíu
daga.
Jón sagði að veiðileyfí félagsins
gilti í eitt ár. Það réðist af árangrin-
um hvað veiðamar stæðu lengi en
miðað væri við að það yrði ekki skem-
ur en þijá mánuði.
Síöustu sætin
ísólinaísumar
á tilboflsverói
Bóhaðu sfrax 09 fnjggðu þér sæfi
Við höfum fengið nokkur viðbótarsœti
fró "njravia til Benidorm sem við getum
boðið ó fróbœru verði.
Verödæmi: Kr. 45.640,-
Hjón með 2 börn 2-tl óra.
TTinisol íbúðarhótel 11. ógúst 2 vikur.
Verðdæmi: Kr. 56.684,-
2 í íbúð, Trinisol íbúðarhótel
11. ógúst 2 vikur.
v i ö b ó t a rsœt i :
4. ógúst 4 sœti 11. ógúst 9 sœti 18. ógúst 5 sœti 25. ógúst 14 sœti
Flugvallarskattar:
Flugvallarskattar og forfallatrygging
kr. 3.570,- f. futlorðinn.
kr. 2.315.- f. bðrn.
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600