Morgunblaðið - 31.07.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993
7
Náttúruperla
sem er horfin
Morgunblaðio/Svemr
Myndin gefin
MARGRÉT Hallgrímsdóttir borgarminjavörður tekur hér við myndinni
fyrir hönd Árbæjarsafns af Krisljóni Olafssyni snikkara, sem hefur átt
myndina frá því 1916. Kristjón verður 100 ára 20. ágúst næstkomandi.
Kristjón Ólafsson snikkari gefur Ár-
bæjarsafni gamla mynd af Efrifossum
ÁRBÆJARSAFNIÐ hefur fengið að gjöf gamla málaða ljósmynd, sem
tekin var af Efrifossum í Elliðaánum. Ekki er nákvæmlega vitað hvenær
myndin var tekin, en Kristjón Ólafsson snikkari, sem gaf safninu mynd-
ina, segir að hann hafi eignast hana árið 1916.
Kristjón, sem verður 100 ára 20.
ágúst næstkomandi, segir í gjafabréfí
til Árbæjarsafns, að Efrifossar hafi
verið talinn einn besti veiðistaður í
Elliðaánum. Kristjón segist hafa séð
myndir af Elliðaánúm í sjónvarpi og
þar sé enga fossa að sjá lengur og
ámar séu ekki svipur hjá sjón miðað
við það sem áður var. Ljósmyndina
eignaðist Kristjón árið 1916 og segist
hann hafi geymt myndina vandlega
í gegnum árin til að geta gefíð Árbæj-
arsafninu hana, því þá hafí Reykjavík-
urborg eignast a.m.k. eina mynd af
þessari náttúruperlu, sem manns-
höndin hafi á sínum tíma eyðilagt.
Myndin var máluð af Magnúsi
Ámasyni snikkara sem bjó í Uppsöl-
um við Aðalstræti. Magnús og Ey-
vindur Ámason snikkari, sem Kristjón
lærði hjá, voru vinir og uppúr alda-
mótum fóru þeir gjaman saman til
laxveiða í Efrifossa. Kristjón segist
ekki geta fullyrt að mennirnir á mynd-
inni séu þeir vinimir, en það gæti vel
verið.
Kristjón segir að Magnús hafí feng-
ist við að mála ljósmyndir og muni
hafa málað þessa mynd eftir að hún
var stækkuð.
Nánari upplýsingar:
FARKLÚBBUR VISA
UPPLÝSINGA- OG ÞJÓNUSTUMIÐSTÖO
Höf&abakka 9, 112 Reykjavík
Sími 91-671700, Fax 91-673462
/
VISA
Rómantísk fegurð Gardavatnsins
og N-Ítalíu
26.ágúst - 3. september - 8 dagar
Kristján Jóhannsson t besta hlutverki sírtu,
Radames í AIDU eftir Verdi, íburSarmestu
óperusýningu allra tíma í Arenunni frægu í Verona.
Töfrar Gardavatnsins og Itölsku Alpanna.
Gist á völdum fjögurra stjörnu fiótelum.
FLUG - SKOÐUNARFERÐIR - TÓNLEIKAR
*
SÍÐUSTU SÆTIN á aáeins 59.650 kr.
* án flugvallaskatts 1.905 kr.
og morgunverðar og kvöldver&ar.
10 mánaða raágreiáslur
Bókanir og nánari upplýsingar hjá
FERÐASKRIFSTOFAN
PRIMA
HEIMSKLUBBUR
______________ INGOLFS
AUSTURSTRÆTI17, 4. hæð 101 REYKJAVIK
SÍMI 620400FAX 626564
QRKIN 5007-280-21