Morgunblaðið - 31.07.1993, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993
Rússneskt verksmiðjuskip í ljósum logum
Breskir brunaliðsbátar sprauta vatni á rússneskt verksmiðjuskip sem logaði glatt undan strönd Hjaltlands-
eyja. Eldurinn braust út í haug af umbúðum utan um fisk þar sem skipið hafði varpað akkerum úti fyrir höfninni
í Leirvík. 162 manns voru í áhöfn skipsins, sem er 12.400 t og skráð í Kalíníngrad, og var flestum þeirra bjargað
í nærliggjandi rússneskt skip, en 56 manns urðu eftir um borð til að aðstoða 16 slökkviliðsmenn að berjast
við eldinn.
Aukakosningarnar í Christchurch á Englandi
Stærsti ósigur Ihalds-
flokksins eftir stríð
Christchurch. Reuter.
BRESKI íhaldsflokkurinn beið
sinn mesta ósigur í aukakosning-
um eftir stríð er hann tapaði kjör-
dæminu Christchurch á suð-
urströnd Englands í fyrrakvöid.
Féll kjördæmið Frjálslyndum
demókrötum í skaut og eru þing-
menn flokksins þá orðnir 22. Þing-
meirihluti íhaldsmanna í neðri
deildinni, þar sem 651 maður sit-
ur, er nú 17 menn.
íhaldsflokkurinn vann Christ-
church með 23.000 atkvæðum í þing-
kosningunum í apríl í fyrra. Nú sigr-
aði Diana Maddock, frambjóðandi
fijálslyndra, hins vegar með 16.427
atkvæðum, hlaut 33.164 atkvæði en
fulltrúi íhaldsflokksins 16.737.
Verkamannaflokkurinn hlaut aðeins
1.453 atkvæði og fær þvíekki endur-
greidda 500 punda tryggingu sem
setja varð til þess að fá að bjóða fram.
John Major forsætisráðherra sagði
úrslitin sorgleg en þau yrðu ekki til
þess að breyta stjómarstefnunni.
Hann sagði að ekki yrði fallið frá
því að leggja skatt á orku til heimili-
snotkunar, Ijós og hita, en sú skatt-
lagning ein og sér er talin hafa ráð-
ið úrslitum um að íhaldsflokkurinn
tapaði Christchurch þar sem mikill
hiuti kjósenda er ellilífeyrisþegar.
Kreppa og klofningur
Sir Norman Fowler flokksformað-
ur sagði ósigurinn afleiðingu efna-
hagskreppu og klofnings í íhalds-
flokknum í svonefndum Evrópumál-
um. Varði hann Major forsætisráð-
herra og sagði það fjarstæðu að
halda því fram að niðurstaðan væri
dómur yfír Major.
Paddy Ashdown, formaður Frjáls-
lyndra demókrata, sagði hins vegar
að niðurstaðan væri dómur yfír verk-
stjóm Majors í ríkisstjóm, aðgerðum
Flugstjórinn, Hwang In-ki, skipaði
aðstoðarflugmanninum að lækka
flugið áður en þotan var komin yfír
fjallshrygg, að því er fram kemur á
segulbandsupptökum af samtölum
flugmannanna. „Við erum komnir
yfír, lækkaðu, meira, lækkaðu hrað-
ar,“ heyrist flugstjórinn segja á upp-
tökunum 15 sekúndum áður en þotan
skall á Qallshlíðinni.
. . vegna þess að ég er nýbyij-
aður ..." heyrist flugmaðurinn
svara en það er talið geta annað
hvort verið til marks um að hann
hafí verið að afsaka sig af því að
hann var nýráðinn til flugfélagsins
stjómar hans í tveggja ára kreppu
og forystuhæfíleikum. „Kjósendur í
Christchurch hafa sett hann á
reynslulausn og dómur verður kveð-
inn upp í næstu þingkosningum,"
sagði Ashdown.
eða þá að hann hafí verið að andæfa
flugstjóranum og gefa honum til
kynna að hann hafí verið nýkominn
inn á aðflugsgeisla og lækkun ótíma-
bær.
„Allt í lagi, 800 fet . . . Ó,
minn . . .“ segir flugstjórinn
skömmu síðar en síðan kveða við
brothljóð og svo þagnar segulbandið.
í skýrslu kóreskra flugmálayfír-
valda er skuldinni skellt bæði á flug-
stjórann og flugumferðarstjóra fyrir
að fylgjast ekki nógu grannt með
flugi þotunnar og vara flugmennina
við hvert stefndh>
Þotan var að koma frá Seoul og
reyndu flugmennimir lendingu við
mjög slæm veðurskilyrði, rok og úr-
hellisrigningu. Tvær fyrstu lending-
artilraunimar misheppnuðust þar
sem flugmennirnir sáu ekki til jarðar
í lágmarkshæð en í þriðja aðfluginu
skall þotan á Qallinu.
Segir í skýrslunni að Hwang flug-
stjóra hafí orðið á siglingafræðileg
mistök og hann hafí tekið of mikla
áhættu með því að freista þess að
lenda við þær aðstæður sem voru í
Mokpo. Þar segir að flugumferðar-
stjórunum hafí borið að leggja mjög
hart að flugmönnunum að reyna
ekki lendingu heldur hverfa frá til
annars vallar þar sem betri skilyrði
voru fyrir hendi. Hið eina sem flug-
umferðarstjóramir hefðu gert var að
segja frá því að veður væri slæmt en
í engu varað flugmennina við.
Gabriel
HÖGGDEYFAR
STERKIR, ORUGGIR
ÓDÝRIR!
i7
G ”
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88
Flugslysið við Mokpo í Suður-Kóreu
Mannleg mistök
ástæða slyssins
SUÐUR-kóresk stjórnvöld kenna flugstjóra Boeing-757 þotunnar sem
fórst í Suður-Kóreu í vikunni og flugumferðarstjórum á flugvellinum
í Mokpo um að þotan skall á fjallshlíð með þeim afleiðingum að 66
manns biðu bana. Fyrir liggur nú að stél þotunnar rakst fyrst í fjallið
rétt fyrir neðan fjallstindinn með þeim afleiðingum að hún kastaðist
á hvolfi yfir fjallseggina og niður í hlíðar handan hennar.
Framkvæmdastjóri söludeildar SH í Japan
Fólk virðist hafa
trú á Hosokawa
FYRSTA stjórnin í 38 ár án þátttöku Frjálslynda lýðræðisflokks-
ins (LDP) hefur nú verið mynduð í Japan. Helgi Þórhallsson,
framkvæmdastjóri söludeildar Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna í Japan, sagði í samtali við Morgunblaðið að honum virtist
að almenningúr í landinu væri ánægður með nýju stjórnina.
„Það er þá helst að embættismenn séu hræddir," sagði hann.
„Það hafði myndast vinsamlegt samband milli þeirra og LDP
síðastliðin 38 ár.“
hægt væri að finna að Morihiro
Hosokawa, leiðtoga Nýja flokks-
ins, væri að hann hefði ekki mikla
reynslu. En Hosokawa væri maður
sem fólk hefði álit á, hann væri
heiðarlegur sjálfur, en óvíst væri
hvort hann væri góður stjórnandi.
Helgi sagði að Hosokawa þætti
loðinn í svörum og segði aldrei
neitt ákveðið, en fólk vildi treysta
honum. Hann væri af virtri sam-
urai-fjölskyldu (hermannaaðals-
fjölskyldu) og fólk vonaðist til að
hann stæði sig í stykkinu.
Eitt af markmiðum nýju stjórn-
arinnar væntanlegu er að stemma
stigu við spillingunni sem viðgeng-
ist hefur innan japansks stjórn-
kerfís og sagði Helgi að hún ætl-
aði t.d að banna að fyrirtæki veittu
stjórnmálaflokkum fjárstuðning
líkt og áður. „En ég á eftir að sjá
hvernig þeir ætla þá að fjármagna
starfsemina," sagði hann.
Aðspurður um hvort búist væri
við því að nýju stjórninni, sem
samanstendur af 8 flokkum, tæk-
ist að starfa sagði hann að LDP
ræki áróður fyrir því að menn í
nýju stjórninni ættu ekki eftir að
geta komið sér saman um neitt.
Helgi sagði líklegt að einhverjar
breytingar yrðu á stjóm efnahags-
mála í landinu og bjóst við því að
stjómin yrði opnari. Einnig væri
hugsanlegt að einhveijum inn-
flutningshöftum yrði aflétt og
Helgi Þórhallsson
hann bjóst við því að það hefði
góð áhrif á innanlandsneyslu í kjöl-
far lækkaðs vömverðs.
Hann sagði enga ástæðu til
þess að ætla að miklar breytingar
yrðu á efnahagsmálum, geng-
isþróun benti til þess að viðskipta-
heimurinn hefði trú á nýju stjórn-
inni, yenið væri sterkt og færi
hækkandi.
„Þessir menn em engir nýgræð-
ingar og það verða engar grand-
vallarbreytingar gerðar," sagði
Helgi. „Þetta era engir róttækling-
ar.“
Zuroff ósáttur við málslok í fsrael
Demjanjuk laus
vegna formgalla
EFRAIM Zuroff, forstöðumaður Wiesenthal-stofnunarinnar
í Jerúsalem, segir að engan lærdóm sé hægt að draga af
máli Johns Demjanjuks, sem hæstiréttur ísraels sýknaði í
gær af ásökunum um að vera fangabúðavörðurinn „ívan
grimmi“. „Þetta mál snerist um kennsl á manni; hvort við-
komandi væri sá sem um ræddi,“ sagði Zuroff í samtali
við Morgunblaðið. „Þetta var ekki spurning um hvort glæp-
ur hefði verið framinn, og er að því leyti öðru vísi en öll
önnur hliðstæð mál.“
Zuroff segir mál Eðvalds Hin-
rikssonar vera ólíkt máli Demj-
anjuks að þessu leyti. Eðvald
hafí aldrei neitað því að hann
væri sá maður, þ.e. Mikson, sem
sakaður væri um stríðsglæpi,
en segðist engan hafa drepið.
Slapp vegna formgalla
Zuroff segist alls ekki sáttur
við sýknudóminn yfir Demj-
anjuk. „Hann slapp vegna form-
galla, og það er dapurlegt."
Honum hefði verið gefið tvennt
að sök. Annars vegar að hann
væri ívan grimmi, og hins vegar
að hann hefði verið vörður í
öðram búðum. „Það segir ekki
í dómsúrskurðinum að hann sé
saklaus. Það segir að umtals-
verður vafi leiki á sannleiksgildi
fyrra atriðisins og því verði hann
ekki dæmdur sekur.“ Hins veg-
ar sé því ekki neitað í dóminum
að hann hafí verið fangavörður
annars staðar, en verði ekki
dæmdur fyrir það vegna þess
að hann hafí ekki haft nægan
tíma til að
undirbúa
vörn
gegn
þeirri
ákæra -
öll hans
vörn hafi
snúist um
meinta
glæpi í
Tre-
blinka.
KGB-vitni marktæk
Zuroff segir það jákvætt við
úrskurðinn í fyrradag, að réttur-
inn hafí tekið gildan framburð
sem öryggislögregla fyrram
Sovétríkjanna, KGB, lagði fram
og hafði eftir fólki sem nú er
látið. „KGB sá um rannsóknir
á glæpum nasista í Sovétríkjun-
um, og til dæmis má nefna að
vitni KGB bera að Mikson hafí
sjálfur framið morð. Þetta er
mikilvægt frá okkar bæjardyr-
um séð,“ sagði Zuroff.
Morgunblaííið/Kristinn
Efraim Zuroff