Morgunblaðið - 31.07.1993, Side 34

Morgunblaðið - 31.07.1993, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993 Andsvar sterkra afla? Menn velta því nú fyrir sér hvort sprengjuárásimar í Mílanó og Róm fyrr í vikunni séu nokkurs konar hótun frá þeim sterku öflum sem vilja stöðva hreingerninguna í ríkiskerfinu. Myndin er af Laterandómkirkjunni í Róm. Hræringarnar á Italíu V on um byltingn fremur en bylting Almenningnr vill umbætur Almenningur í Mílanó mótmælir sprengjuárásunum fyrr í vikunni og sýnir stuðning við pólitískar umbætur. Fréttagangurinn rís hátt á ít- alíu um þessar mundir. Fyrir skömmu vom það spillingarfrétt- ir úr heilbrigðisgeiranum, þessa dagana samkrull efnahagssam- steypunnar Montedison og ríkis- olíufélagsins Eni, með sjálfsmorð- um og háum upphæðum í földum sjóðum. Og allt er þetta framleitt á ítalska vísu í sætbeiskri súpu staðreynda, orðróms, ummæla þekktra manna og tilfinninga- þmngnum frásögnum af einstaka ófúsum meðleikurum og fjöl- skyldum þeirra. Spurningin er hvort nýjar aðstæður í ítölskum stjórnmálum og reiði almennings í garð spilltra stjórnmálamanna fái í raun einhverju breytt. Francesco De Lorenzo fyrrum heilbrigðismálaráðherra og sam- starfsmenn hans liggja meðal annars undir ásökunum fyrir að hafa þegið greiðslur frá lyfjafyrirtækjum fyrir að hækka lyfjaverð, frú De Lorenzo fékk rándýra skartgripi og ráðherr- ann átti hagsmuna að gæta í lyfja- bransanum. Með í svikamyllunni var Antonio Viottoria prófessor í læknis- fræði, sem gaf umsögn lyfjafyrir- tækinu í hag. De Lorenzo hjónin ku nú vera að skilja, fyrst og fremst til að koma ríkidæmi sínu undan, segir sagan. Dómararnir nefna með- al annars upphæð sem svarar um 15 milljónum íslenskra króna, sem ráðherrann kallar ýkjur. Prófessor Vittoria greip til sömu ráða og ýmsir fleiri, sem hafa lent undir smásjá dómaranna og framdi sjálfsmorð um leið og nafn hans kom fram í fjölmiðlum. Skjalataska hans kom ekki í leitimar fyrr en nokkrum dögum eftir lát hans og eins hafði hann sést í fylgd ókunnugs manns. Sá kvittur kom upp að hann hefði Vérið myrtur, en einnig að honum hefði verið komið undarlega brátt í gröfina og kistan brennd tóm. Sjálf- ur hafi hann komist undan. Heil- brigðiskerfið þykir almennt bágborið og því hafa spillingarfréttirnar vakið mikla reiði. Með þessu máli beindist athyglin líka að háskólunum, sem hingað til hafa ekki tengst spillinga- rumræðunni og nokkrir þekktir pró- fessorar í læknisfræði eru nú sakað- ir um að hafa þegið greiðslur frá lyfjafyrirtækjum. Allt þetta fór fram á Suður-Ítalíu. Á Norður-Ítalíu er annar tryllir í gangi. Fyrirtækjasamsteypan Mon- tedison og Feruzzi, fyrrum systur- fyrirtæki hennar, hefur undanfarið ár verið undir smásjánni vegna slæmrar fjáhagsstöðu. Feruzzi er líka nafnið á auðugri fjölskyldu, sem á samnefnt fyrirtæki og fjölskyldan hefur um árabil séð blöðunum fyrir krassandi efni um peninga, ástamál og völd, sem fær ameríska þætti eins og Dallas og Dynasty til að líkj- ast slagsmálum skólakrakka. Gius- eppe Garofano fyrrum yfirmaður Montedison flúði til Sviss, þegar fór að hitna í kolunum, en gaf sig ný- lega fram við dómarana í Mílanó, þar sem hann var settur í fangelsi. Tuttugu lögreglumenn gæta hans dag og nótt, því hann er dýrmætt vitni. Tveir af þeim, sem Garofano hef- ur nefnt til sem þátttakendur í bók- haldssvindli, mútugreiðslum og brot- um á lögum um flokksframlög, frömdu nýlega sjálfsmorð með nokk- urra daga millibili, þeir Gabriele Cagliari fyrrum yfirmaður Eni ríki- solíufélagsins og Raul Gardini fyrr- um yfirmaður Feruzzi. Montedison og ríkisfyrirtækið Eni stóðu saman að því stofnsetja Enimont, sem síðan var notað til að dæla fé úr ríkisfyrir- tækinu í leynda sjóði, auk þess sem Enimont lagði ólöglega fram fé til Kristilega demókrataflokksins og Sósíalistaflokksins. Talað er um að í bókhald Montedison-Feruzzi-Enim- ont vanti sem svarar rúmlega fimm- tíu milljörðum íslenskra króna. Auk dómaranna hafa bankar og aðrir lánardrottnar þessara fyrirtækja áhuga á að finna féð. Cagliari sat í fangelsi, þegar hann framdi sjálfsmorð og strax kom upp kvittur um að hann hefði verið myrt- ur, auk þess sem dómararnir, sem höfðu með mál hans að gera voru sakaðir um að hafa látið hann sitja inni að ástæðulausu. Samfangar hans voru fullir samúðar og um 270 þeirra skrifuðu undir opið bréf, þar sem dómararnir voru sagðir forhert- ir og fullir mannfýrirlitningar, en nú væri Cagliari kominn fyrir réttlát- an dóm. Þótt reglulega komi upp gagnrýni á dómarana, fær hún lítinn byr og er yfirleitt túlkuð sem ósk um að stöðva þá, en það komast stjórnmálamenn tæplega upp með eins og stendur. Flokksræði í stað lýðræðis Spillingarfréttir ásamt mafíu- fréttum kunna að vekja upp spurn- ingar um hvers konar þjóðfélag þetta sé eiginlega þarna niður frá. Annars vegar er ríkisvaldið veikt og af- skiptalítið. Veikleikinn er mest áber- andi á Suður-Ítalíu og eyjunum, þar sem talað er um að ríkið sé ekki til, hvorki hvað varðar dómsvald, né framkvæmdavald. Hins vegar hefur ríkið undirtökin í efnahagslífinu, því á Ítalíu er meiri ríkisrekstur en þekk- ist í nokkru öðru Iandi Norður- og Vestur-Evrópu. Að því leyti líkist efnahagslífið meira Austur-Evrópu en samstarfslöndum í EB. Þessar aðstæður hafa ítölsku stjómarflokkarnir nýtt sér í stórum stíl, einkum Kristilegi demókrata- flokkurinn, sem er íhaldsflokkur og Sósíalistaflokkurinn, sem er andlega skyldur Jafnaðarflokknum. Spilling- in stafí ekki af vondum forystu- mönnum, heldur vondu kerfi. Ríki- skerfið, sem er aðgerðalítið hvað hin almenna borgara varðar og greiðir seint og illa úr málum einstaklinga og fyrirtækja hefur verið óeðlilega víðtækt að öðru leyti og teygt sig inn á hvert einasta svið þjóðlífsins og þar með veitt stjórnmálamönnum ótakmarkaða möguleika til að ráðsk- ast með almannafé jafnt í eigin þágu sem flokkanna. Með réttu má segja að lýðræðið hafi ekki verið almennilega virkt. Þótt fólk hafi fengið að kjósa hefur einn af hornsteinum virks lýðræðis, þrískipting valdsins í dómsvald, lög- gjafarvald og framkvæmdavald, tæpast verið við lýði. Réttara væri að tala um flokksræði, þar sem flokkamir hafa ofið þræði milli þess- ara þriggja sviða. Nútíma goðaveldi: Kunningja- og fyrirgreiðsluþjóðfélagið Ástæðan fyrir að flokksræðið hef- ur náð að blómstra er vísast ekki einhlít. Hluti af skýringunni er að ítalir eru almennt tortryggnir í garð ríkisvalds sem birtist í afskiptum af almenningi. Jafnvel nú sýna skoð- anakannanir að þeir telja ekki að sterkt og virkt ríkisvald leysi vand- ann. Útlendingar, til dæmis frá Norður-Evrópu, sem flytja til Ítalíu og þurfa á opinberri fyrirgreiðslu að halda, bera sig auðvitað að eins og heima fyrir og snúa sér til þar til gerðrar skrifstofu. Eftir fyrstu atrennu rennur upp fyrir þeim að upplýsingar stangast á og ekkert gengur að fá úrlausn mála. Þeir finna grimmilega fyrir að vera van- máttugir og utangarðs og skilja ekki hvernig innfæddir geta sætt sig við að búa við það sem í þeirra augum er óreiða. Þeir innfæddu bera sig yfirleitt öðruvísi að. Þeir fara ekki á fund viðkomandi aðila eða skrifstofu fyrr en þeir eru búnir að huga að hvort þeir þekki ekki einhvem sem geti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.