Morgunblaðið - 31.07.1993, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993
51
I
I
í
I
I
t
4
í
í
4
4
4
Þakkir til Langjökuls hfGæslunn-
ar og Björgunarsveitarinnar Oks
Frá Ævari Sveinssyni:
í grein í Morgunblaðinu 24. júlí
þar sem vitnað er í Snorra Jóhannes-
son rekur hann björgunarsögu
manns á Langjökli á frekar neikvæð-
an hátt.
Á laugardagskvöld um kl. 21.30
töluðum ég og félagi minn saman
og ákváðum að halda niður af jöklin-
um og áttum þá eftir svona 15
mínútur niður. Á leiðinni varð ég
bensínlaus og stoppaði í u.þ.b. 10
mínútur til að tanka.
Þegar ég kom niður sá ég félaga
minn hvergi og beið ég þá í eina
klukkustund. Næst ákvað ég að
halda aftur inn á jökul til að freista
þess að finna sleða og mann. Þegar
sú leit bar ekki árangur fór ég aftur
niður og sást ekkert til hans þar,
þá var kl. 23.00.
Um miðnættið komu umsjónar-
menn frá Langjökli hf., sem er vél-
sleðaleiga við Þjófakróka, og ákváð-
um við að fara á þrem sleðum og
leita á svæðinu þar sem við urðum
viðskila. Héldum við beint á staðinn
þar sem ég og félagi minn töluðumm
síðast sama og sáum þar för niður
af jöklinum sem lágu beint inn á
sprungusvæði en þorðum ekki að
leita á því svæði á sleðum.
Um kl. 2.30 vorum við búnir að
leita á þeim slóðum sem við töldum
að væri rétta leitarsvæðið og fórum
þá og hringdum í björgunarsveitina
OK sem tók málið til athugunar. Því
næst ákváðum við að tala við Land-
helgisgæsluna og sögðum þeim
hvernig málið væri.
Landhelgisgæslan ákvað réttilega
að koma á staðinn á þyrlunni meðan
veðrið væri gott og leita á jöklinum
því enginn vissi hvað hafði gerst.
Þó að veðrið hafi verið mjög gott
myndaðist þokuslæðningur yfir jökl-
inum um kvöldið. Þyrlan kom og
fundum við sleðann og félaga minn
kl. 6.00 heilan á húfi, en á biluðum
sleða. Við gáfum Ok-mönnum stað-
setningu og héldum síðan inná jökul
á nokkrum sleðum. Þegar við vorum
að koma að Geitlandsjökli sá ég sleða
á leið niður og stoppaði ég þá
fremsta björgunarsveitarsleðann og
sagði við þann sem honum ók að
ég sæi félaga minn þarna niður frá.
Ég snéri svo við til þess að tala vð
hann en björgunarsveitarmenn héldu
áfram, ekki veit ég hvers vegna.
Þegar þeir komu aftur niður þakk-
aði ég þeim fyrir og þá virtist sem
einhver úr hópum væri bara fúll
yfir því að allt skyldi enda vel og
voru þeir ekki viðræðuhæfir á staðn-
um, enda sést það best á því hvert
umræðan er komin. Ef það er við-
horf Snorra að ergjast út í fólk sem
þarf á hjálp að halda þá er hann á
rangri braut. Það eru orðin alltof
mörg dæmi um að menn skrifi nei-
kvæðar greinar um björgunarstörf
og þá sérstaklega þegar sá týndi
finnst heill á húfi og því fannst mér
vera kominn tími til að svara þessum
skrifum.
Að lokum vil ég að það komi fram
að hér brugðust allir rétt við. Sá
týndi hélt kyrru fyrir hjá sleðanum
sem ekki komst í gang fyrr en níu
tímum eftir að hann stoppaði sleðann
til þess að horfa í kringum sig og
áíta sig á aðstæðum. Leitað var í
marga klukkutíma áður en kallað
var á hjálp björgunarsveitar og
Landhelgisgæslu. Er það glópska?
Fyrir mína hönd og vonandi
flestra óska ég þess að Snorri og
hans félagar fínni alla þá, sem þeir
koma til með að leita að í sama
ásigkomulagi og félagi minn var í,
heila á húfi.
ÆVAR SVEINSSON,
Ofanleiti 27, Reykjavík.
LEIÐRÉTTIN G AR
Ekki heilbrigðis-
ráðuneyti
í frétt um skilun eiturefna í blað-
inu á fimmtudag er sagt að gera
eigi úttekt á starfsemi spillaefnam-
óttöku Sorpu og samstarf muni
verða haft við heilbrigðisráðuneyti
um betri skilun. Hið rétta er að
samstarf verði haft við heilbrigði-
seftirlit. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangt nafn
í texta í Morgunblaðinu í gær
með mynd af nefnd sem vann
skýrslu um flutning ríkisstofnana
var Guðmundur Árnason skristofu-
stjóri í forsætisráðuneytinu sagður
heita Hrafnkell Jónsson. Þá vantaði
í upptalningu á nefndarmönnum
Tómas Inga Olrich alþingismann.
Dagskrá Samhjálpar um verslunarmannahelgina
fyrir há sem ekki fara í ferð
Laugardagur 31. júlí:
Opiö hús frá kl. 14-17. Lítiö inn og rabbiö um daginn og veginn.
Heitt kaffi á könnunni. Almennur söngur. Arinbjörn Árnason leikur á píanó.
Gunnbjörg Óladóttir syngur einsöng. Takiö meö ykkur gesti. Allir velkomnir.
Sunnudagur 1. ágúst:
Dorkas-samkoma kl. 16. Dorkas-konur annast samkomuna
meö söng og vitnisburöum. Gunnbjörg Óladóttir syngur einsöng.
Barnagæsla. Stjórnandi Ásta Jónsdóttir. Allir velkomnir.
C.
Allir velkomnir í Þríbúöir, Hverfisgötu 42 | <
um verslunarmannahelgina =
Norrœnn
öldrunarmáladagur
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið boðar til
norrænnar ráðstefnu um öldrunarmál á Hótel
Loftleiðum fimmtudaginn 19. ágúst 1993. *
Allir frummælendur gegna lykilstöðum varðandi
öldrunarmál.
Dagskrá verður sem hér segir:
Kl. 9:00 Skráning.
Kl. 9:20 Ráðstefnan sett:
Hr. Guðmundur Árni Stefánsson, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra.
Kl. 9:30 Greiðslufyrirkomulag fyrir öldrunarþjónustu.
Fyrirlesari verður Sigbrit Holmberg, deildar-
stjóri, frá Svíþjóð.
Kl. 10:00 Sjálfboðaliðar í öldrunarþjónustunni.
Fyrirlesari verður Eli Sundby, deildarstjóri, frá
Noregi.
Kl. 10:30 Kaffihlé.
Kl. 11:00 Breytingar á þjónustustigi.
Fyrirlesari verður Dorte Höeg, deildarstjóri, frá
Danmörku.
Kl. 11:30 Breytingará öldrunarþjónustunni íFinnlandi.
Fyrirlesari verður Marja Vaarama, öldrunar-
fræðingur, frá Finnlandi.
Kl. 12:00 Hádegisverður.
Kl. 13:30 Fjármál og rekstur.
Nýjar hugmyndir og spurningar.
Fyrirlesari verður Ásgeir Jóhannesson, formað-
ur Samstarfsnefndar um málefni aldraðra, frá
íslandi.
Kl. 14:00 Umræður verða í hópum um fyrirlestrana.
Kl. 15:00 Kaffihlé.
Kl. 15:30 Niðurstöður hópumræðna.
Kl. 16:00 Dagskrárlok.
íslenskum ágripum úr fyrirlestrunum verður dreift til
þátttakenda auk þess sem túlkur verður á staðnum.
Fundarstjóri verður Hrafn Pálsson, deildarstjóri öldrun-
armála í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Ráðstefnugjald verður 2.500 krónur. Innifalinn er hádeg-
isverður og kaffi.
Þátttaka tilkynnist ráðuneytinu fyrir 10. ágúst 1993.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
íþróttabuxur töpuðust
ÍÞRÓTTABUXUR merktar Jó-
hanni Gunnarssyni töpuðust á
Pollamóti á Laugarvatni um síð-
ustu helgi. Upplýsingar gefur
Brynja í síma 653550.
Peugeot-fjallahjól
BLÁTT Peugeot-fjallahjól var
skilið eftir fyrir utan Rofabæ
fyrir röskri viku. Sá sem telur
sig þekkja hjólið má hafa sam-
band í síma 672919.
Úlpa tapaðist á ættarmóti
NÝ ÚLPA, svört öðrum megin
og rauðbleik hinum megin, svo-
kölluð vendiflík, tapaðist á ætt-
armóti í Miðgarði, Innri-Akra-
neshreppi, sl. helgi. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
686136.
Barnaúlpa í óskilum
KONA hringdi til Velvakanda
og sagðist oft fara á endurhæf-
ingardeild Borgarspítalans á
Grensási og þar segir hún að
hafi verið í óskilum í nokkuð
langan tíma bleik barnaúlpa
með gulu á vösunum. Starfs-
fólkið þar hefur hengt úlpuna á
handrið á ganginum og ef ein-
hver kannast við þessa úlpu
ætti hann að fara upp á Grens-
ás og kanna málið.
Hjólkoppur tapaðist
HJÓLKOPPUR undan Toyota
Starlet bifreið tapaðist í Heið-
mörk fyrir u.þ.b. mánuði.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 681523 eftir kl. 17.
Barnakerra tapaðist
GRÁ regnhlífarkerra með
grænum röndum og tvöföldum
hjólum hvarf frá Fjölskyldu-
garðinum í Laugardal 19. júlí.
Hafi einhver orðið kerrunnar
var er hann vinsamlega beðinn
að hringja í síma 44556 eftir
kl. 17 á kvöldin og um helgar
eða 32935 milli kl. 13 og 17.
Rannveig.
Ullarpeysa tapaðist
DÖKKBLÁ handprjónuð ullar-
peysa með hvítu og rauðu
mynstri tapaðist við körfubolta-
völl við Frostafold í Grafarvogi
fyrr í sumar. Finnandi er vin-
samlega beðinn að hringja í
Hafdísi í síma 676037.
Eyrnalokkur týndist
FERHYRNDUR eymalokkur
með grænum steini í tapaðist
fyrir utan veitingastaðinn Lækj-
arbrekku aðfaranótt laugardags
sl. Finnandi er beðinn að hringja
í Dóru í síma 73984.
GÆLUDÝR
Kettlingar fást gefins
ÞRÍR kassavanir kettlingar,
tvær læður og einn högni fást
gefins. Tveir þeirra eru gulir en
sá þriðji er svartur. Upplýsingar
gefur Ingibjörg eftir klukkan
hálfníu á kvöldin í síma 626423.
Kettlingur fæst gefins
LÍTILL svartur kettlingur fæst
gefins á gott heimili. Hann er
níu vikna og kassavanur. Uppl.
gefur Unnur í síma 668593.
Tjúlli er týndur
TJÚLLI er stór svartur og hvít-
ur köttur og tapaðist frá Suður-
götu 72 í Hf. sl. laugardag.
Hann er eyrnamerktur og með
hálsband. Finnandi er beðinn
að hafa samband við Hermund
í síma 50327 á kvöldin.