Morgunblaðið - 21.08.1993, Page 37

Morgunblaðið - 21.08.1993, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993 37 Hugleiðing trillukarls Frá Friðrik Siguriónssyni: Nú er enn eitt stoppið um garð gengið, til viðbótar öðrum stoppum á árinu þar sem við erum skikkaðir til að fara í land. Öll þessi bönn eiga trúlega að vera til þess fallin að vernda fiskistofnana okkar, þó að ég sjái það ekki ekki af þeirri einföldu ástæðu að við höfum enga möguleika á að stunda neina rán- yrkju á veiðum með færum og línu. Enda finnst okkur áreiðanlega flestum að- blessuð náttúran sjái okkur fyrir meira en nógu mörgum stoppdögum á árinu. En þessa staðreynd eiga þeir sem setja lög og reglur alveg ótrúlega erfítt með að skilja. Nú á þessu ári hefur afli smábáta dregist saman um eða yfír 40% frá fyrra ári, fyrst og fremst vegna ótrúlega mikillar ótíðar. Þess vegna á margur trillukarl- inn sjálfsagt erfitt fjárhagslega, svo ekki sé talað um bilanir upp á kannski tugi eða hundruð þúsunda, sem tryggingar bæta ekki. Ég er viss um það að þeir smábátasjó- menn sem hugsanlega lenda í þeim þrengingum að verða að hætta út- gerð, þeir munu ekki fremur venju stíga á stokk og væla um að fá bætur eða gengisfellingu út úr stjórnvöldum eins og þeir sem stóru skipin eiga. Það er kannski ekki furða þó að smábátaeigendur séu svartsýnir og kvíði framtíðinni, þar sem allt er á huldu um hvað um okkur verður. Ef enn á að þrengja að okkur með fleiri banndögum, eða ef svo illa fer að krókaleyfið verði afnumið, þá þýðir það ekkert annað en dauðadóm yfír mörg hundruð manns víða um land. Hvað á að gera við allt þetta fólk. Hvert á það að fara og hvar fær það vinnu við sitt hæfí? Verði krókaleyfíð afnum- ið og fólk þar með svipt lífsbjörg- inni, þá verður til mjög stórt vanda- mál sem gæti orðið þess eðlis að það yrði ekki leyst í einni andrá. Til viðbótar má svo nefna gífurlegt eignatjón svo sem verðlausa báta og verðlitlar íbúðir sem enginn vill kaupa, þar sem búið verður að svipta fólk möguleikum til að lifa og búa á mörgum stöðum úti á landi. Þessi fískveiðistefna sem hefur verið við líði undanfarin ár hefur ekki skilað neinum árangri í físki- vemd, síður en svo. Til að ná árangri i að ná upp fiskistofninum, og þá fyrst og fremst þorskinum, held ég að það verði hreinlega að banna veiðar, fyrst og fremst með net og dragnót á allri grunnslóð í kringum 'landið í 1-1 ‘A mánuð á hrygningartímanum. Menn verða samt að sætta. sig við svona aðgerð- ir ef málin eiga að ganga upp í framtíðinni. Ég tel þó að krókaveið- ar á færi og línu væru í lagi á þessu tímabili. Nú er hann að hugsa um sjálfan sig, hugsar kannski einhver, en svo er ekki. Þeir sem stundað hafa línu- og handfæraveiðar vita að þegar fískurinn er í hrygningarástandi þá sinnir hann mjög illa krókaveiðum. Þessi fískveiðistefna hefur líka haft þau áhrif og komið því til leiðar að sjómenn á minni bátum hafa sótt sjóinn í mun verri veðrum og lengra en áður hefur þekkst. Þetta hafa þeir gert til að reyna að físka upp í svokallaða viðmiðun. Það hefur lengi verið mín skoðun að ef króka- leyfíð yrði gefíð fijálst á alla smá- bátana með, illu heilli, sanngjörnum fjölda stoppdaga þá myndi þessu ofurkappi í sjósókn linna. Menn færu að róa af meiri skynsemi. Ég get hvorki né vil fullyrða neitt um það, en hugsanlega væri einhver af þeim smábátasjómönnum sem fallið hafa í valinn "við störf sín á sjónum á þessu ári væru enn á meðal okkar ef þessi fískveiðistefna væri manneskjulegri en hún er í dag. Ég held að hún bjóði beinlínis upp á það að slysin verði, því mið- ur. Ég hef alla tíð verið svo bjart- sýnn að ég held að krókaleyfið verði við líði um ókomin ár öðrum til heilla. En til að það megi takast verðum við smábátasjómenn að standa saman sem einn maður, hvort sem um er að ræða smábát- asjómenn á krókabát eða kvótabát. Við erum jú að beijast fyrir því sama, þrátt fyrir misjafnar skoðan- ir á hlutunum. Við erum að beijast fyrir því að fá að físka til að hafa í okkur og á, en jafnframt í sátt og samlyndi við aðra sjómenn sem sækja sjóinn með ólík veiðarfæri. Af framansögðu hef ég þá trú að allir sjómenn geti stundað sinn veiðiskap í sátt, án þess að vera með einhver leiðindaskot hver á annan eins og stundum hefur verið. Sem betur fer eigum við sjábátasjó- menn marga góða stuðningsmenn meðal almennings og einnig meðal ráðamanna þjóðarinnar og ég vil trúa því að þeir sem koma til með að fjalla um mál okkar smábátasjó- manna á komandi hausti verið svo lánsamir að ganga þannig frá mál- um að krókaveiðar verði gefnar fijálsar um ókomin ár, það yrði mikið gæfuspor. Að lokum vil ég votta öllum þeim sem misst hafa ástvini sína í sjóslys- um á undangengnum mánuðum mína dýpstu samúð. Guð geymi ykkur öll. FRIÐRIK SIGURJÓNSSON, Norðurgötu 40a, Akureyri. Pennavinir Bandarísþur 39 ára karlmaður hyggur á íslandsferð. Getur ekki áhugamála en vill eignast penna- vini, konur sem ekki reykja: Richard Waldon, Rt. 10, Box 331-E, Sarasota, Florida 34240, U.S.A. Sautján ára fínnsk stúlka með margvísleg áhugamál: Henriikka LeppSniemi, Tikka-Mikonmutka 7, 40500 JyvaskylS, Finland. Sautján ára íri með áhuga á hest- um, tónlist, o.fl.: Cormac Byrne, 39 Copeland Grove, Clontarf, Dublin 3, Ireland. LEIÐRÉTTINGAR Framkvæmda- stjórinn rang- feðraður í frétt Morgunblaðsins í gær um flutning Heimilistækja hf. úr Kringlunni var framkvæmdastjóri fyrirtækisins rangfeðraður. Hann heitir réttu nafni Rafn Johnson og biðst Morgunblaðið velvirðingar á þessum mistökum. VELVAKANDI VEIÐARI BARENTSHAFI EINS og menn vita streyma ís- lenskir togarar í Barentshaf um þessar mundir til að heija veiðar þar, þó erfiðlega virðist ganga að fínna þann gula í augnablik- inu. Stjórnvöld hafa að vísu ekki bannað þessar veiðar ennþá, en þau virðast ekki heldur standa með þeim beinlínis. Mér fínnst þessar aðgerðir svolítið varhuga- verðar á meðan stjómvöld standa ekki með útgerðarmönnunum, og fínnst þetta mál nokkuð lang- sótt, því veiðar utan landhelgi eru í mínum huga land sem eng- inn á og allir geta notað. Konráð Friðfinnsson, Þórólfsgötu la, Neskaupstað. SKEMMTELEGASTA SJÓNVARPSEFNIÐ MIG langaði að koma þeim ósk- um á framfæri við Ríkissjónvarp- ið að endursýna skemmtilegasta íslenska sjónvarpsefnið sem sýnt hefur verið en það eru þættir Eddu Björgvinsdóttur og Helgu Thorberg, „Fastir liðir eins og venjulega". Einnig væri gaman að vita hvort þessir þættir hafa verið sýndir á fleiri Norðurlönd- um en Svíþjóð, en ég veit að þeir vora sýndir þar við góðar undirtektir. Á sínum tíma vora þetta framúrstefnulegir þættir, en í dag munu þeir hitta hvern mann (konu) í hjartastað. Að lok- um vil ég skora á þær fjölhæfu stöllur að skrifa framhald af þessum skemmtilegu þáttum og gaman væri ef hægt væri að ganga að slíkum þáttum vísum eins og einu sinni í viku á dag- skrá sjónvarpsins. Kona undir Jökli. SMÁSPOTTA VANTAR ÞAÐ ER hægt að ganga eftir steyptum eða malbikuðum gang- brautum alla leið úr miðbænum og upp að hesthúsinum í Elliðaár- dal að undanskildum smáspotta sem er á mjlli Skeiðarvogs og Holtavegar. Hvers vegna er þess spotti skilinn eftir? Stendur ekki til að bæta úr þessu? Sverrir Bjarnason Efstasundi 52, Reykjavík. GÓÐUR ÚTVARPSÞÁTTUR EITT af því besta sem Ríkisút- varpið sendir frá sér er þátturinn „í vikulokin" sem Páll Heiðar Jónsson sér um á milli kl. 11 og 12 á laugardögum. Hann er menningarlegur, fróðlegur og skemmtilegur. Ég vil ráðleggja sem flestum að hlusta á þennan þátt sem tækifæri hafa til. Filippía Krisljánsdóttir TAPAÐ/FUNDIÐ Fjallahjól í óskilum RAUTT karlmannsfjallahjól er í óskilum. Sá sem telur sig eiga það má hringja í síma 812308 eða 676255. Týnt gullarmband GULLARMBAND tapaðist á leiðinni á milli Egilsstaða og Reykjavíkur í vikunni fyrir versl- unarmannahelgi. Finnandi vin- samlega hringi í síma 670105. Fundarlaun. Myndavél tapaðist LÍTIL Canon Jet myndavél með hálfátekinni fílmu í hvarf af Fæðingardeild Landspítalans 3.-5. ágúst sl. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 18909. Myndavél tapaðist MYNDAVÉL var tekin í Ölveri í Glæsibæ sl. laugardagskvöld. Filman í vélinni er eigandanum mikils virði. Upplýsingar í síma 668176. Vertu með draumurinn gæti orðið að veruleika ! GRAFlSK HÖNNUN: merkismenn hf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.