Morgunblaðið - 12.09.1993, Page 1
80 SIÐURB
STOFNAÐ 1913
206 tbl. 81. árg.
SUNNUDAGUR12. SEPTEMBER1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Atthagafj ötrum
aflétt í Rússlandi
ÞÓTT átthagafjötrum hafi opinberlega
verið aflétt í Rússlandi á síðustu öld, í
orði kveðnu að minnsta kosti, voru
þeir samt við lýði í Sovétríkjum komm-
únismans. Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, hefur loksins kastað burt þessum
miðaldasið og nú mega Rússar vinna
og búa þar sem þeim líkar best. Áður
þurfti sérstakt leyfi til að flyljast bú-
ferlum og það var eins gott fyrir þá,
sem fundust annars staðar en í sinni
sveit, að hafa skýringuna á reiðum
höndum. Að öðrum kosti beið þeirra
hálfs árs vinnubúðavist. Að sjálfsögðu
ýtti þetta undir gífurlega spillingu.
Þeir, sem það gátu, keyptu sér flutn-
ingsleyfi og mikið var um giftingar á
pappírunum til að fólk gæti flust á
milli borga og héraða. Nú hafa Rússar
fengið sín mannréttindi að þessu leyti
en samt eru ekki allir ánægðir, ekki
borgarsljórinn í Moskvu. Hann óttast
gífulegan tilflutning til borgarinnar og
segist ekki ætla að fara að nýju lögun-
um.
Næsti bær við
ÞRJÁR franskar konur frá París lögðu
nýlega land undir fót og var förinni
heitið til Bandaríkjanna, til Portsmouth
í New Hampshire þar sem þær pöntuðu
sér hótelherbergi. Landafræðin þeirra
var að vísu ekki alveg upp á það besta
og því ákváðu þær að taka lestina.
Eftir átta klukkustunda ferð, sem þeim
fannst meira en nóg, töldu þær sig
komnar á leiðarenda en þá gátu þær
hvergi fundið hótelið sitt. Það var svo
vingjarnlegur lögreglumaður, sem kom
þeim til hjálpar. Þær voru ekki í
Portsmouth í New Hampshire, heldur
í Portsmouth í Hampshire á Englandi.
Óttast óholl áhrif
sýndarveruleika
ÓTTAST er, að nýjustu nýjustu tölvu-
leikirnir, svokallaður „sýndarveru-
leiki“, sem eru að koma á markað um
þessar mundir og eru rniklu raunveru-
legri en þeir, sem fyrir eru, geti valdið
skaða á sjón barna. í Bretlandi eru
heilbrigðisyfirvöld að skoða ýmsar
gerðir þessara leikja en augnsérfræð-
ingar segja, að þeir geti til dæmis gert
börnin tileygð. Við rannsóknir eða til-
raun með 20 unglinga kom einnig í Ijós,
að 12 varð óglatt og fengu höfuðverk
eftir að hafa verið nokkurn tíma í nýju
tölvuleikjunum og þeir sáu allt eins og
í þoku nokkra stund á eftir. Sumir
læknar segja þó, að þessi einkenni séu
háð samhæfingu augnanna, sem getur
verið mismikil eftir einstaklingum, og
þegar frá líði minnki þau eða hverfi.
Rabín og Arafat ljúka
sáttum í Washington
Dansað á götum úti á Gaza-svæðinu til að fagna friðarsamkomulaginu
Jerúsalem, Fíladelfía. Reuter.
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra ísra-
els, og Yasser Arafat, leiðtogi PLO, Frels-
issamtaka Palestínumanna, munu undir-
rita samninginn um sjálfsljórn Palestínu-
manná á Gaza-svæðinu og í Jeríkó á
Vesturbakkanum i Washington á mánu-
dag. Skýrðu fulltrúar þeirra beggja frá
þessu í gær. Er jafnvel talið hugsanlegt,
að þá verði einnig undirrituð viljayfirlýs-
ing um frið milli Jórdana og Israela.
Þúsundir Palestínumanna dönsuðu á göt-
um úti á Gaza-svæðinu í gær til að fagna
friðarsamkomulaginu og föðmuðu marg-
ir að sér ísraelska hermenn.
Talsmaður Rabins sagði í gær, að Warren
Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hefði haft samband við ísraelska forsæt-
isráðherra í gærmorgun og boðið honum til
undirritunarinnar í Washington. í för með
honum verður Shimon Peres utanríkisráð-
herra. Arafat mun undirrita sjálfstjórnarsamn-
inginn fyrir hönd PLO en talsmaður samtak-
anna sagði, að Bandaríkjastjórn hefði ekki
nefnt nein nöfn í boði sínu til samtakanna,
heldur látið þeim eftir að velja sendinefndina.
Bandaríkjastjórn tók aftur upp formlegt
stjórnmálasamband við PLO á föstudag og
Bill Clinton forseti hefur ákveðið að hefja
beinar viðræður við samtökin.
Jórdanir á mánudag?
Hussein, konungur Jórdaníu, sagði í fyrra-
kvöld, að viljayfirlýsing um friðarsamninga
milli Jórdaníu og ísraels yrði líklega undirrituð
snemma í vikunni, hugsanlega á mánudag,
og hann kvaðst telja,_að stutt væri í samninga
milli Sýrlendinga og ísraela. Í sýrlenska ríkis-
útvarpinu voru hins vegar ítrekaðar í gær
kröfur um, að ísraelar flyttu strax á brott
allt sitt lið frá Gólanhæðum og sagt, að þar
yrði aldrei gefið eftir land.
Sam Lewis, háttsettur starfsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, sagði í gær, að
þótt undirritaðir yrðu samningar milli PLO
og ísraela, væri málið mjög viðkvæmt áfram
og ýmislegt gæti orðið til spilla því. Kvað
hann það komið undir því, að Arafat héldi
áfram meirihluta sínum innan PLO, en hann
taldi ólíklegt að Likud-flokkurinn í ísrael, sem
er andvígur samningum við PLO, þyrði að
hrófla við þeim þótt hann fengi tækifæri til.
„Salaam“ og „shalom“
Leiðtogar róttækustu hreyfinga Palestínu-
manna saka Arafat um svik við palestínsku
þjóðina og hóta honum jafnvel dauða en þús-
undir Palestínumanna dönsuðu á götum úti á
Gaza-svæðinu í gær til að fagna friði og von
um sjálfstjórn. Föðmuðu sumir að sér ísra-
elska hermenn og skiptust á blessunarorðum,
„salaam" á arabísku og „shalom" á hebresku.
Stóra systir
stingur litlu
systurnar at
12
Reuter
Holst þakkað
AÐ lokinni undirritun Yassers Arafats, leiðtoga PLO, undir skjölin um viðurkenn-
ingu samtakanna á ísrael á fimmtudagskvöld þakkaði Arafat Johan Jörgen Holst,
utanríkisráðherra Noregs, innilega fyrir hans mikla framlag til þeirra sögulega sátta,
sem nú hafa tekist með ísraelum og Palestínumönnum.
Síðustu spár vegna kosninganna í Noregi
Sljórn Gro Harlem
situr líklega áfram
Ósló. Reutcr.
SÍÐUSTU skoðanakannanir fyrir þingkosningarnar í Noregi á mánudag benda til,
að Gro Harlem Brundtland og Verkamannaflokkurinn muni verða áfram við stjórnvöl-
inn í landinu. Eiginlegur sigurvegari kosninganna verður þó líklega Miðflokkurinn,
sem hagnast hefur á eindreginni andstöðu við hugsanlega aðild að Evrópubandalag-
inu, EB.
Samkvæmt skoðanakönnunum, sem
birtust í gær í blöðunum Aftenposten og
Nationen, fær Verkamannaflokkurinn um
36% atkvæða í kosningunum á mánudag
en í kosningunum 1989 fékk hann 34,3%.
Telja því flestir fullvíst, að Gro Harlem
myndi aftur minnihlutastjórn. Verka-
mannaflokkurinn hefur notið þess í kosn-
ingabaráttunni, að efnahagsástandið í Nor-
egi hefur farið batnandi en Hægriflokkur-
inn virðist vera að missá fylgi og er nú
ýmist spáð 16,2% eða 21,1% en fékk 22,2%
1989. Miðflokknum er spáð 10,1% en fékk
6,5% 1989.
HVEMÆR
HEFUR 16
ÞAKKLÆTI
EIMKEMMT
PÓLITÍK?