Morgunblaðið - 12.09.1993, Blaðsíða 4
I
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
ERLENT
IIMNLENT
Deilur um
danskt
svínakjöt
TVÖ og hálft tonn af dönsku
svínakjöti sem Hagkaup flutti til
landsins og hugðist selja hafa
valdið deilum milli ráðherra. For-
ætisráðherra og utanríkisráð-
herra eru ekki sammála um
hvaða ráðuneyti eigi að hafa for-
ræði á innflutningnum og lög-
fræðingum ber ekki saman um
hvernig túlka beri búvörulög eða
hvort þau heimili innflutning á
kjöti til neyslu.
Ráðherra óbundinn af
fjárlagafrumvarpi
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra gekk út af fundi
ríkisstjómarinnar á föstudag
áður en fjárlagafmmvarpið var
tekið til afgreiðslu. Mikill ágrein-
ingur er um húsaleigubætur og
fjármögnun þeirra og segist ráð-
herra vera óbundinn af afgreiðslu
fjárlaganna.
Tillaga um Super Puma
Þyrlukaupanefnd leggur til að
keypt verði notuð 12 ára þyrla
fyrir Landhelgisgæsluna af gerð-
inni Super Puma frá Aerospat-
iale-verksmiðjunum í Frakklandi.
Gerð hafa verið drög að kaup-
samningi og samkvæmt honum
mun þyrlan kosta um 620 millj-
ónir.
. Deilt um debetkort
Bankar og eigendur VISA-
íslands neita þeirri staðhæfingu
Kaupmannasamtakanna, að
bankamir hyggist nota debetkort
til að greiða niður eigin vanda
með álögum á notendur upp á
einn milljarð króna. Þjónustu-
taxtar, sem áformað er að þjón-
ustuaðilar greiði kreditkortafyr-
irtækjum vegna debetkortavæð-
ingar, verða fyrst um sinn á bil-
inu 0,5-1,5% en fara síðan lækk-
andi eftir því sem viðskiptin með
kortin verða útbreiddari.
Gætu tapað niðurgreiðslum
í samningum íslenskra út-
gerðarmanna við norskar skipa-
smíðastöðvar er ákvæði um, að
ef skipin halda til veiða í Smug-
unni eða í Norður-Atlantshafi á
þeim svæðum sem norsk stjórn-
völd telja að ekki hafi náðst við-
unandi samkomulag um, falli
niðurgreiðslur norska ríkisins
niður. Niðurgreiðslur em á bil-
inu 5 til 15% af verði nýrra tog-
ara.
Greiðslur félagsgjalda
MeDonald’s-veitingahúsakeðj an
opnaði veitingastað í Reykjavík
í vikunni. Forsvarsmenn fyrir-
tækisins lýstu því yfir í fyrstu,
að þeir hygðust gera sérstáka
ráðningarsamninga við starfsfólk
sitt, án tillits til kjarasamninga.
Horfið var frá því og ákveðið að
launin miðist við gildandi kjara-
samninga.
ERLENT
Sættir PLO
og- ísraela
ÍSRAELAR og Palestínumenn
skiptust á gagnkvæmri viður-
kenningu á föstudag og stað-
festu þannig með formlegum
hætti sögulegar sættir með gyð-
ingum og aröbum. Gjöminginn
staðfestu þeir Yitzhak Rabin,
forsætisráðherra ísraels og
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínu, PLO. Tíðind-
um þessum var fagnað víða um
heim en stjómmálaskýrendur
bentu á að stjóm Rabins stæði
höllum fæti í Israel og að búast
mætti við öflugri mótspyrnu
öfgaafla í röðum Palestínu-
manna. Á morgun, mánudag,
verður undirritaður í Washington
í Bandaríkjunúm samningur um
sjálfstjóm Palestínumanna á
Gaza-svæðinu og í Jeríkóborg.
Bill Clinton, Bandaríkjaforseti,
sagði að Bandaríkjamenn myndu
leggja sitt af mörkum við efna-
hagslega endurreisn á fyrirhug-
uðu sjálfstjórnarsvæði Palestínu-
manna en áður höfðu loforð um
aðstoð bonst frá Norðurlöndum,
m.a. frá íslandi.
Verkamannaflokknum
spáð sigri
Norska Verkamannaflokkn-
um er spáð sigri í þingkosning-
unum sem fram fara á morgun,
mánudag. Skoðanakannanir sem
birtar vom í vikunni gáfu til
kynna að flokkur Gro Harlem
Brundtland forsætisráðherra
hefði aukið fylgi sitt og að minni-
hlutastjóm hennar héldi velli.
Var því spáð að Verkamanna-
flokkurinn fengi rúm 37% at-
kvæða en Hægri flokkurinn,
helsti stjómarandstöðuflokkur-
inn um 20%. Var það talið nokk-
urt áfall fyrir Kaci Kullmann
Five, formann flokksins. Efna-
hags- og atvinnumál vom efst á
baugi í kosningabaráttunni en
minna fór fyrir umræðum um
aðild Norðmanna að Evrópu-
bandalaginu, sem almennt er þó
taliff mesta hitamálið í norskum
stjómmálum nú um stundir.
Vaxtalækkanir í Evrópu
Þýski seðlabankinn lækkaði á
föstudag almenna forvexti úr
6,75% í 6,25% og Lombard eða
millibankavexti úr 7,75% í 7,25%.
í kjölfarið vom vextir lækkaðir I
nokkrum Evrópuríkjum og var
litið svo á að vaxtalækkunin
gæti mtt auknum hagvexti braut-
ina á meginlandinu. Ifyrr í vik-
unni höfðu verið birtar hagtölur
sem gáfu til kynna að tekið væri
að rofa til í þýsku efnahagslífí.
Skriffinnskan skorin niður
Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, kynnti á þriðjudag rót-
tækar tillögur um uppskurð á
bandaríska stjómkerfínu. Stefnt
er að því að spara 108 milljarða
dollara á næstu fimm ámm.
Lagt er til að fjárlög verði fram-
vegis til tveggja ára í stað eins
og að starfsmannakerfi ríkis-
valdsins verði stokkað upp frá
gmnni. Er fyrirhugað að fækka
opinberam starfsmönnum um
12% eða 252.000.
Samkomulag í S-Afríku
Samkomulag um aðild blökku-
manna að stjóm Suður-Afríku
var gert á þriðjudag án þátttöku
Inkhata-hreyfingar Zulumanna.
Samkomulagið gerir ráð fyrir að
stofnað verði svonefnt fram-
kvæmdaráð sem starfa á sam-
hliða ríkisstjóm landsins. Er
markmiðið að veita blökkumönn-
um tækifæri til að taka þátt í
landsstjóminni áður en þing-
kosningar fara fram í apríl á
næsta ári. Nelson Mandela,
leiðtogi Afríska þjóðarráðs-
ins.ANC, sagði þetta samkomu-
lag sögulegt skref í réttindabar-
áttu blökkumanna en hvítir
hægri öfgamenn sögðu að það
myndi leiða til upplausnar og
borgarastyijaldar í landinu.
Yitzhak Rabin
Yasser Arafat
1.000. breiðþotan
STARFSMENN Boeing-verksmiðjanna í Bandaríkjunum luku við 1.000. breiðþotuna, Jumbo 747, á föstudag
og var þeim áfanga fagnað með viðeigandi hætti. Við fyrstu þotuna var lokið fyrir 25 árum og farþegafjöldinn
síðan svarar til fjórðungs mannkyns, eða 1,4 milljarða manna. Fyrirtækið er nú með samninga um smíði 177
þotna en það svarar til fjögurra eða fímm ára vinnu.
Þing breska alþýðusambandsins í Brighton í síðustu viku
Umbótatíllögur Smiths
fá aukinn byr í
Brighton. Reuter.
EFTIR margra mánaða harðar deilur virðist sem John Smith, leið-
toga Verkamannaflokksins í Bretlandi, sé að takast að fá leiðtoga
stéttarfélaganna til að fallast á skipulagsbreytingar sem draga úr
beinum völdum þeirra í flokknum. Ötti við ofurvald stéttarfélaganna
er talinn hafa verið ein helsta orsök þess að Verkamannaflokknum
hefur mistekist í síðustu kosningum að fá aukið fylgi hjá miðstéttar-
fólki.
Samkvæmt gildandi reglum hafa
verkalýðsfélögin 40% atkvæða á
samkundum sem ákveða val fram-
bjóðenda flokksins til þings og
greiða þau atkvæði sín sem ein
heild. Smith vill að framvegis hafí
hver fulltrúi eitt atkvæði; félagar í
stéttarfélögum yrðu því að ganga
í flokkinn sjálfir en ekki nægði að
vera í stéttarfélagi til að geta haft
áhrif á valið. Eftir sem áður hefðu
stéttarfélögin 30% vægi við val á
flokksleiðtoga og 70% fulltrúa á
landsfundum yrðu úr þeirra röðum.
Fjallað verður um skipulagsbreyt-
ingarnar á landsfundi Verkamanna-
flokksins síðar í mánuðinum.
Hreyfingin hyllt
Þing alþýðusambands Bretlands
(TUC) var haldið í Brighton í síð-
ustu viku og flutti þá Smith ræðu
þar sem hann hyllti ákaft verkalýðs-
hreyfinguna. Hann lét hjá líða að
fjalla um breytingatillögur sínar í
ræðunni. Stjórnmálaskýrendur
sögðu að enginn leiðtogi flokksins
hefði undanfarin 20 ár verið jafn
blíðmáll í garð hreyfingarinnar og
framlag Smiths bar árangur.
„Ég ætla að mæla með því við
framkvæmdastjórnina að við styðj-
um umbótatillögur Smiths," sagði
Garfield Davies, framkvæmdastjóri
sambands afgreiðslufólks í verslun-
um en félagar þess eru um 340.000.
John Edmonds, framkvæmdastjóri
sambands starfsmanna í verksmiðj-
um og einn helsti gagnrýnandi til-
lagna Smiths, sagði að sér hefði
seglin
John Smith
létt mjög og hann væri afar ánægð-
ur með ræðu flokksleiðtogans.
Smith tjáði fréttamönnum eftir
ræðu sína að hann myndi sem fyrr
beijast af hörku fyrir umbótunum.
Fijáls ferða sinna þrátt fyrir dráp á eiginmanni
Tekið tillit til aðstæðna
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur,
DÖNSK kona hefur verið dæmd
sek fyrir að hafa drepið mann
sinn. Hins vegar er hún ekki
dæmd til refsingar, heldur látin
laus, þar sem tekið var tillit til
skýringar verjanda konunnar,
að maðurinn hefði hótað að
drepa fimmtán ára dóttur hjón-
anna.
í desember síðastliðinn stakk
konan, sem er 38 ára, mann sinn
til bana í íbúð þeirra hjóna, þar
sem hann svaf. Konan hafði áður
sagt manninum að hún vildi skilja
við hann og hann hafði þá hótað
að drepa fimmtán ára dóttur hjón-
anna. I réttinum viðurkenndi kon-
an drápið, en sagðist ekki hafa séð
aðra leið til að veija dótturina.
Veijandi konunnar vísaði til grein-
ar í refsilögum um að hægt sé að
sýkna sakborning ef verknaðurinn
er framinn undir sérstökum kring-
umstæðum. Dómurinn er því á
engan hátt fordæmi, heldur er
fréttaritara Morgunblaðsins.
vísað til sérstakra aðstæðna.
Sagan sem konan sagði í réttin-
um hafði mikil áhrif á viðstadda,
en þar lýsti hún hvernig maðurinn
hefur misþyrmt henni í fimmtán
ára hjónabandi þeirra.
Oþekktur forsetafram-
bjóðandi í Þýskalandi
Dresden. Reuter.
STEFFEN Heitmann, dómsmálaráðherra Saxlands í Þýskalandi,
sagðist á miðvikudag vera reiðubúinn að gefa kost á sér í embætti
Þýskalandsforseta ef Helmut Kohl kanslari styngi upp á honum.
Heitmann var á sínum tíma lög-
maður mótmælendakirkjunnar í
Austur-Þýskalandi og höfðu fæstir
Þjóðverjar heyrt á hann minnst fyrr
en nafn 'hans kom upp í tengslum
við forsetaembættið.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
vill einungis 1% Þjóðveija að hann
verði forseti en aftur á móti 51%
að Hans Dietrich Genscher, fyrrum
utanríkisráðherra, hreppi hnossið.
’Í’alið er að Heitmann sé sá sem
Kohl vilji helst sjá í embættinu er
Richard von Weizsácker lætur af
embætti á næsta ári.
Kohl er sagður vilja að fyrrum
Austur-Þjóðveiji taki við embætti
forseta og hafi sjónir hans beinst
að Heitmann er honum tókst ekki
að finna neinn stjórnmálamann,
sem ekki hafði haft of mikil tengsl
við kommúnistastjómina gömlu.
I
1
»
i
i
i
i
I
I
i
*
I