Morgunblaðið - 12.09.1993, Qupperneq 6
6 FRETTIR/IIMNLENT_________ ___MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
Tillögnr umdæmariefndar á Suðurlandi um fækkun sveitaifélaga
Sex s veitar félög verði
í staðinn fyrir þrjátíu
UMDÆMANEFND um sameiningu sveitarfélaga á Suðurlandi sam-
þykkti á fundi sínum 7. september að leggja til að á Suðurlandi
verði sex sveitarfélög, í stað þrjátíu nú. Lagt er til að Ámessýsla,
Rangárvallasýsla og Vestur-Skaftafellssýsla skiptist hver um sig í
tvö sveitarfélög. í tillögunum er meðal annars gert ráð fyrir að
þéttbýlisstaðirnir í Flóa og Ölfusi; Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn,
Eyrarbakki og Stokkseyri, sameinist I eitt sveitarfélag. Kosið verður
um tillögurnar í almennri atkvæðagreiðslu 20. nóvember næstkom-
andi.
ÁRNESSÝSLA
skiptist í tvennt:
í efri hluta sameinist átta sveitartélðg:
Grafningshreppur
Þingvallahreppur
Grímsneshreppur
Laugardalshreppur
Biskupstungnahreppur
Hrunamannahreppur
Gnúpverjahreppur
Skeiðahreppur
Sveitarfélög í Flóa og Ölfusi sameinist:
Villingaholtsnreppur
Hraungerðishreppur
Gaulverjabæjarhreppur
Sandvíkurhreppur
Selfoss
Stokkseyrarhreppur
Eyrarbakkahreppur
Hveragerði
ölfushreppur
RANGÁRVALLASÝSLA
skiptist í tvennt:
í vesturhluta sameinist:
Rangárvallahreppur
Djúpárhreppur
Ásahreppur
Holta- og Landmannahreppur
í austurhluta sameinist:
Austur- Eyjafjallahreppur
Austur-Landeyjahreppur
Vestur- Landeyjahreppur
Fljótshliðarhreppur
Hvolhreppur
VESTUR-
SKAFTAFELLS-
SYSLA
Sveitarfélög
óbreytt:
Skaftárhreppur
Mýrdalshreppur
í greinargerð með tillögum um-
dæmanefndar segir um þessar sam-
einingartillögur:
Vestur-Skaftafellssýsla
„Sveitarfélögin í Vestur-Skafta-
fellssýslu, Skaftárhreppur og Mýr-
dalshreppur eru aðskilin af Mýr-
dalssandi og mynda nú þegar sitt-
hvora þjónustuheildina með þjón-
ustumiðstöðvum, þ.e. á Kirkjubæj-
arklaustri og í Vík í Mýrdal. Þessir
hreppar hafa tiltölulega nýlega orð-
ið til við sameiningu og eru að festa
þá skipan í sessi.
Af þessum ofangreindum ástæð-
um er lagt til að hreppar í Vestur-
Skaftafellssýslu verði óbreyttir og
að ekki verði kosið um sameiningu
þann 20. nóvember 1993.
Rangárvallasýsla
í Rangárvallasýslu eru tveir þjón-
ustukjarna, Hvolsvöllur og Hella.
Ýmis samfélagsleg þjónusta, s.s.
skólar, heimili aldraðra o.fl. hefur
byggst þar upp í samstarfi við ná-
grannasveitir þannig að þær eiga í
fasteignum og búnaði og standa
sameiginlega að rekstrinum. Sam-
starf þetta hefur verið farsælt.
Þéttbýlisstaðimir standa nærri
„Vandræðin hófust aðfaranótt
fyrsta ágúst eftir vel heppnaða
sjóferð til íslands þar sem Dani-
elle sýndi að hún er afbragðs sjó-
skip“, sagði Per Stolen í samtali
við Morgunblaðið.
Skútan sekkur
„Eg og vinur minn höfðum
gengið tryggilega frá skútunni við
bryggjuna. Hann er lærður skip-
stjómarmaður og starfar á norsk-
um skútum, og er ég þess fullviss
og hann fór aftir öllum kúnstar-
innar reglum er gengið var frá
landfestum. Hann ætlaði að fljúga
heim til Noregs daginn eftir og
brugðum við okkur í bæinn til að
halda uppá kveðjustundina. Þegar
við komum að skútunni um kl. 2
um nóttina sáum við að hún var
farin að hallast. En við tókum
einnig eftir því að farið hafði ver-
ið um borð í hana og fyrirkomu-
lagi landfesta breytt. Vinur minn
taldi ráðlegast að höggva á allar
landfestar og myndi skútan þá
ná að rétta sig af en hafnarvörð-
urinn taldi að það væri óráðlegt.
Því miður fórum við að hans ráð-
um. Skútan hallaðist sífellt meir
og meir uns vatn tók að flæða inn
í hana. Við gerðum allt sem í
okkar valdi til að koma í veg fyr-
miðju sýslunnar og eru því á sveit-
arenda í þeim sveitarfélögum sem
lagt er til að verði við sameining-
una. Vegalengdir eru því töluverðar
hjá þeim sem fjærst búa en vegir
og færð er með því besta sem ger-
ist hérlendis. Þó þarf að gera vega-
bætur á nokkrum svæðum.
Bent hefur verið á ýmsa kosti
þess að eitt sveitarfélag sé í Rang-
árvallasýslu en tvö sveitarfélög í
sýslu eru nógu öflug hvort um sig
til þess að standa undir alhliða þjón-
ustu s.s. skólum, heilsugæslu, fé-
lagsþjónustu o.fl. Nú þegar eru fyr-
ir hendi mannvirki, búnaður og
rekstrarfyrirkomulag á báðum stöð-
unum, Hellu og Hvolsvelli, til þess
að þjóna nágrannabyggðum.
Árnessýsla
Efri hluti Árnessýslu nær fylli-
lega þeirri íbúatölu sem sveitarfé-
laganefnd telur næga til þess að
standa undir sameiginlegri samfé-
lagsþjónustu s.s. heilsugæslu, fé-
lagslegri þjónustu, skólarekstri o.fl.
Samstarf er mikið á milli einstakra
hreppa þó að misvíðtækt sé eftir
verkefnum s.s. rekstri skóla, bygg-
ingafulltrúa, atvinnumála o.fl. Sam-
starf þetta er farsælt. Svæðið er
ir að hún fylltist en það koma
fyrir ekki“.
Skútan náðist upp með krana
daginn eftir en skaðinn var skeð-
ur. Öll siglingatæki reyndust ónýt
svo og rafkerfi. Vatn komst í
aðalvélina og einnig eyðilagðist
mestur hlutinn af vistum og per-
sónulegum eignum Stolen. Hann
metur tjónið á nokkrar milljónir
íslenskra króna. Stolen telur hafn-
arvörðinn, og þar með Kópa-
vogsbæ, bera ábyrgð á óhappinu
þar sem fyrirkomulagi landfesta
var breytt eftir að þeir félagar
fóru frá borði. Hefur hann fengið
lögfræðing í Reykjavík til að ann-
ast málið fyrir sig.
Um nóttina þegar þeir félagar
reyndu að bjarga skútuni hlaut
Stolen höfuðhögg sem hann taldi
ekki svo alvarlegt í fyrstu. Ásæk-
inn höfuðverkur varð hins vegar
til þess að hann leitaði til læknis.
Við rannsókn kom í ljós að blætt
hafði inn á heilann og fær Stolen
úr því skorið 20. september hvort
hann þarf að gangast undir að-
gerð. Hann getur ekki lagt af stað
fyrir en eftir þann tíma.
Stolen sagði að það hefði veitt
sér mikinn styrk hversu góðar
móttökur hann hefði fengið hér á
landi eftir óhappið. Atvikin hög-
hins vegar stórt, samtenging þess
þyrfti að batna, enginn einn sam-
eiginlegur þjónustukjarni er þar
nógu öflugur og sækir fólk töluvert
af þjónustunni til Selfoss. Sam-
göngur þurfa að batna á svæðinu
m.a. með a) nýjum vegi milli Þing-
vallahrepps og Laugardals (um Gjá-
bakkahraun) en hann mundi tengja
saman efstu byggðir og er auk þess
mikið hagsmunamál ferðaþjónustu
í Árnessýslu; b) brú á Hvítá við
Hvítárholt vegna samtengingar at-
vinnu og þjónustu í miðju héraði
og c) vegabótum í uppsveitum til
þess að tengja þær sem best við
aðrar byggðir. Vegur um Gjábakka-
hraun og brú við Hvítárholt eru
ekki á vegaáætlun.
Flói og Ölfus, stundum nefnt
Árborgarsvæði, uppfylla flest þau
skilyrði sem sveitarfélaganefnd tel-
ur ákjósanleg til sameiningar sveit-
arfélaga, þ.e. íbúafjöldi er nægur,
stærð heppileg og styrkur þjón-
ustumiðstöðvar nægur. Samgöngur
eru góðar og samstarf sveitarfélaga
á svæðinu er mikið.
Hvað varðar dreifbýli í nágrenni
Selfoss er vart um aðrar tillögur
að ræða en að þeir hreppar séu í
sama sveitarfélagi og Selfoss.
Atvinnulíf þorpanna þriggja við
ströndina, Stokkseyrar, Eyrar-
bakka og Þorlákshafnar, er með
öðrum hætti en í nágrannasveitum.
Tengist það útgerð og fiskvinnslu.
Hins vegar sækja Stokkseyri og
Eyrarbakki þjónustu að mestu leyti
til Selfoss og ræður það mestu að
lagt er til að þau sameinist Selfossi
fremur en sérstöku sveitarfélagi
uðu því þannig að hann komst í
kynni við eldri hjón sem hann
hefur búið hjá frá því óhappið
varð og segir hann að þau hafi
reynst honum ákaflega vel ásamt
tengdafólki þeirra.
Stolen er enn ráðinn í að halda
áfram ferð sinni í haust ef honum
auðnast að koma Danielle í sigl-
ingarhæft ástand í tæka tíð. Hann
gerir sér hins vegar Ijóst að áhætt-
an eykst eftir því sem haustar og
hefur áhyggjur af að bilanir gætu
orðið þegar verst stæði á. Hann
segir að siglingin héðan til Ang-
magssalik á Grænlandi sé á þriðja
sólarhring en þaðan hyggst hann
sigla suður með strönd Grænlands
og Ameríku.
Gefst ekki upp
„Ég hef gert samning við tíma-
rit um greinaskrif og var ætlunin
að kosta ferðina með tekjum af
þeim. Við náðum mörgum góðum
myndum við suðurströnd Islands
en þær eyðilögðust allar ásamt
myndavélunum. Þetta lítur ekki
vel út hjá mér núna en ég er þó
með Ölfusi þ.m. Þorlákshöfn.
Þá var það einnig niðurstaða
nefndarinnar að sameining Ölfus
og Hveragerðis væri ekki nógu víð-
tæk tillaga og þess vegna var ekki
í vor var plantað um 700 þús-
und plöntum, aðallega lerki og
nokkru af furu og hengibjörk.
Plantað var á 50 jörðum og í sex
ráðinn í að gefast ekki upp heldur
reyna að sigrast á erfiðleikunum,"
sagði hann.
Stolen sagði að fullnaðarvið-
gerð á skútunni myndi kosta allt
að þjár milljónir króna en ný tæki
sem hann hefur fengið og þær
bráðabirgðaviðgerðir sem unnið
hefur verið að hafa kosta hann
u.þ.b. eina milljón króna og hefur
hann ekki ráð á meiru. Hann sagði
að á hnattsiglingu gæfust margar
tómstundir og myndi hann reyna
að gera við og endumýja klæðn-
ingu skútunnar eftir því sem tími
gæfist til á ferðalaginu.
Stolen hefur íhugað þann
möguleika að hafa hér vetrarsetu
og halda áfram næsta vor. Hann
treystir sér til að búa um borð í
skútunni í vetur en telur ólíklegt
að hér sé atvinnu að fá. Hann
getur ekki snúið heim til Noregs
því dóttir hann er tekin við fyrir-
tæki sem hann á þar og býr í
íbúð hans. Helst af öllu vill Stolen
komast áfram og ná til Karíba-
hafsins í vetur eins og að var
stefnt í upphafi.
lagt til að skipta sveitarfélögum um
Ölfusá. Styrkur sveitarfélagsins
yrði meiri með sameiningu Olfus
og Flóa.“
sveitarfélögum þ.e. Vallahreppi,
Skriðdalshreppi, Fljótdalshreppi,
Fellahreppi, Eiðahreppi og Egils-
staðabæ. Gróðursettar hafa verið
allt upp í 40 þúsund plöntur á bæ,
eru það bændur sjálfír sem fyrst
og fremst hafa séð um gróðursetn-
ingu hver hjá sér, að öðrum kosti
hafa Héraðsskógar ráðið fólk til
verksins.
Plöntun á vegum Héraðsskóga
hófst fyrir árið 1990 og virðist
árangurinn lofa góðu. Árið 1970
og næstu árin á eftir var plantað
lerki á nokkrum jörðum í Fljótsdal
sem gengið hefur undir heitinu
Fljótsdalsáætlun. Árangur af
þeirri ræktun má segja að hafi
farið fram úr öllum vonum og er
þegar kominn til nytja, s.s. í park-
et og það sem grennra er í staura
og stikur. Þá má ekki gleyma því
sem notað er í ýmsa listmuni því
að lerkið þykir mjög fallegur viður
til slíkra nota og hafa hagleiks-
og listamenn hagnýtt sér það.
- G.V.Þ.
Morgunblaðið/Kristinn
Skilti þýtt
á íslensku
FORSV ARSMENN McDonald’s
hafa látið breyta skiltinu sem vísar
bifreiðum veginn að veitingastað-
um við Faxafen. í stað enska text-
ans „Drive-Thru“ stendur ,Beint-í-
bílinn“. Enska orðið Restaurant
er þó enn á skiltinu.
Norskur siglingamaður á leið umhverfis jörðina í vanda hér á landi
Gefst ekki upp fyrr
en í fulla hnefana
Telur hafnarvörð eiga sök á að skútan sökk
NORÐMAÐURINN Per Stolen er í vanda staddur eftir að skútan
hans Danielle sökk í Kópavogshöfn fyrir nokkru. Hann sigldi
hingað frá Noregi og var að hefja siglingu umhverfis jörðina sem
átti að taka sex ár. Hann telur að hafnarvörður við Kópavogs-
höfn hafi orðið valdur af óhappinu með því að fást við landfest-
ar skútunnar og ætlar að krefjast skaðabóta af Kópavogsbæ.
Skútan varð fyrir miklum skemmdum og er óvíst hvort Stolen
tekst að láta fara fram nauðsynlegar viðgerðir og prófanir fyrir
haustið, þegar veður gerast válynd á Norður-Atlantshafi. Gæti
hann því neyðst til að seinka ferðinni til vors eða hætta við hana.
Morgunblaðið/Kristinn
Sæfari í vanda \
PER Stolen um borð í skútunni Danielle. Skútan er mjög illa
farin að innan og eru allar klæðningar stórskemmdar.
Gróðursetning
trjáplantna hafin
Geitagerði.
NÝLEGA var hafin gróðursetning trjáplantna á vegum Héraðs-
skóga, svokölluð haustgróðursetning. Fyrirhugað er að planta um
600 þúsund lerkiplöntum og 100 þúsund birkiplöntum og nokkru
af sitkagreni. Plönturnar eru fyrst og fremst framleiddar í gróður-
húsi Barra hf. á Egilsstöðum og einnig í gróðrarstöðinni í Hallorms-
stað.