Morgunblaðið - 12.09.1993, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SBPTEMBER 1993
Kosningar í Noregi
STORA SYSTIR STINGUR
LITLU SYSTURNAR AF
eftir Urði Gunnarsdóttur
ÞAÐ EINA sem er öruggt í
kosningunum sem fram fara
í Noregi á mánudag, er að
kona verður forsgetisráð-
herra. Áííar líkur benda til
þess að Gro Harlem Brundt-
land sitji áfram í stól forsætis-
ráðherra en þó er ekki hægt
að útiloka með öllu að hún
verði að láta í minni pokann
fyrir Kaci Kullmann Five, for-
manni Hægriflokksins eða
Anne Enger Lahnstein, for-
manni Miðflokksins. Allar
þrjár hafa þær náð góðum
árangri í forystu flokka sinna,
sérstaklega Lahnstein, sem
hefur náð að tvöfalda fylgi
hans enda telja margir hana
verða hinn raunverulega sig-
urvegara kosninganna.
Norskir blaðamenn hafa líkt
þessum þremur konum við
systur, þar sem Gro er elst í
hópnum.
Reynslan segir til sín
GRO Harlem Brundtland forsætisráðherra, t.h., var öllu afslappaðri en Kaci Kullmann Five í sjónvarps-
kappræðum fyrir skömmu.
Hinn sigurvegarinn
ANNE Enger Lahnstein formanni Miðflokksins hefur tekist að tvö-
falda fylgi flokksins samkvæmt skoðanakönnunum.
Konur eru um 40% þing-
manna á Stórþinginu og
kynskiptingin á fram-
boðslistum flokkanna er
tiltölulega jöfn. Hins veg-
ar eru áhrif kvenna í
norsku viðskiptalífi
hvergi nærri hin sömu. Skýringuna
segir Kullmann Five vera þá að
stjórnmál tengist frekar skoðunum
og daglegu lífl almennings og og
helmingur kjósenda sé konur.
Stjórnmál varði afkomu heimilanna,
framtíð barnanna og því fínnist
konum þær hafa eitthvað um málið
að segja.
Málefnin mýkjast
Það að vera kona hefur lítið að
segja í kosningábaráttunni eitt og
sér. Norsk stjórnmál bera þess hins
vegar merki að konur hafa gert sig
þar heimakomnar. Hin „mjúku“
málefni skipta meiru en áður, fjöl-
skyldan er í fyrirrúmi. í kosninga-
baráttunni hefur Gro Harlem
Brundtland til dæmis lagt áherslu
á það að hún sé amma, sat fyrir á
kosningaspjaldi með barnabami
sínu. „Það skiptir ekki lengur máli
hvort karlar eða konur eru í stjórn-
málum. Það eru mörg ár síðan þeirri
umræðu lauk. Það er tilviljun að
konur eru mest áberandi í bar-
áttunni," segir Trygve Monsen
blaðamaður hjá Aftenposten.
Fyrsti kosningasigurinn?
Gro Harlem Brundtland er 54 ára
læknir. Hún var umhverfisráðherra
1976-1979, formaður Verkamanna-
flokksins og forsætisráðherra 1981.
Hún sagði af sér sama ár en komst
aftur til valda 1986-1989 og frá
1990. Vinni hún kosningamar nú
verður það í fyrsta sinn en eftir
kosningamar 1981, 1985 og 1989
varð hún að láta stjómartaumana í
hendur öðrum, þrátt fyrir að hún
fengi þá aftur í hendur er leið á
kjörtímabilin.
Brundtland hefur ímynd lands-
móður, vekur öryggistilfinningu hjá
Norðmönnum sem móðir og amma.
Hún er virtur og vinsæll stjórnmála-
maður, sem hefur komið til bjargar
þegar öðrum hefur mistekist við
Verkamannaflokkur 34,3 37,4
Hægriflokkur 22,2 19,4
Miðflokkur 6,5 11,7
Sósíalíski vinstrifl. 10,1 10,3
Kristilegi þjóðarfl. 8,5 8,0
Framfaraflokkur 13,0 6,6
Gro Harlem
Brundtland er
spáó sigri í kosn-
ingabaráttunni
fyrsta sinni. Annar
sigurvegari kosn-
inganna er þó án
efa Anne Enger
Lahnstein,
formaður
Miðflokksins
stjórn landsins. Vinsældir hennar
ná langt út fyrir raðir fylgismanna
Verkamannaflokksins, til dæmis
nýtur hún stuðnings margra kjós-
enda Hægriflokksins.
Kaci Kullmann Five er 42 ára.
Hún er fædd og uppalin í Bærum,
vígi hægrimanna og hóf snemma
afskipti af stjórnmálum, Hún var
viðskiptaráðherra 1989-1990 og
varð formaður Hægriflokksins árið
1991. Hún hefur eflt flokk sinn
mjög frá því að hún tók við for-
mannsembætti, fyrri hluta sumars
var fylgi Hægriflokksins og Verka-
mannaflokksins svipað og hægri-
menn gerðu sér vonir um sigur í
kosningunum. Gengi hans í kosn-
ingabaráttunni hefur ekki verið eins
og þeir vonuðu, nýjustu skoðana-
kannanir sýna að Verkamanna-
flokkurinn nálgast það að vera tvö-
falt stærri en Hægriflokkurinn.
Einstrengingslegur
bókstafstrúarmaður
Árangur Anne Enger Lahnstein
formanns Miðflokksins í kosninga-
baráttunni er framar vonum. Henni
hefur tekist að tvöfalda fylgi flokks
síns, hann er nú með 11 þingmenn
en er spáð 20 í kosningunum.
Fylgisaukninguna hefur hún fyrst
og fremst fengið frá
Framfaraflokknum. En þrátt fyrir
góðan árangur er ekki tryggt að
hún komist inn á þing. Lahnstein
býður sig fram í Akershus, sem er
vestan Oslóar og eitt af vígjum
hægrimanna. í síðustu kosningum
komst Lahnstein inn á uppbótar-
þingsæti. Verði fyígi heiVúar i
Ákershus svipað og síðast kemst
hún ekki inn, vegna aukins fylgis
flokksins á landsbyggðinni. Allt
bendir þó til þess að hún nái kjöri.
Lahnstein er 44 ára bóndadóttir
sem flutti til Óslóar 1968 og hefur
starfað þar sem hjúkrunarkona og
félagsráðgjafi. Athyglin beindist
fyrst að henni er hún vakti máls á
samstarfi við Hægriflokkinn, löngu
áður en slíkt þótti tímabært. Þá var
hún einn aðalandstæðingur fijáisra
fóstureyðinga. Hún er talsmaður
bænda og annarra íbúa
landsbyggðarinnar.
Lahnstein tók við starfi flokks-
formanns fyrir tveimur árum. Henni
hefur verið lýst sem bók-
stafstrúarmanni vegna einstreng-
ingslegrar afstöðu til Evrópu-
bandalagsins. Hefur jafnvel verið
haft á orði að kæmist hún til valda,
myndi hún banna öll orð sem byija
á evró-. Fyrir skömmu var La-
hnstein beðin um að nefna þrjú
atriði sem henni þættu jákvæð við
aðild að EB en hún sagðist ekki
treysta sér til þess, þar sem allt það
jákvæða hefði einnig á sér
neikvæðar hliðar.
Gro er ekki hrædd
Síðustu daga hefur lítið borið á
Lahnstein, enda hefur EB-umræðan
orðið æ minna áberandi í kosn-
ingabaráttunni. Kaci Kullmann Five
og Gro Harlem Brundtland eru hins
vegar í sviðsljósinu. Sérkennileg
staða kom fyrir nokkru upp þegar
Lahnstein óskaði eftir því að heyja
sjónvarpseinvígi við Brundtland.
Forsætisráðherra vísaði óskinni á
bug, sagði að Lahnstein gæti glímt
við formann Verkamannaflokksins,
Thorbjorn Jagland. Hins vegar tók
Brundtland þátt í
sjónvarpskappræðum við Kullmann
Five. Brundtland var spurð hvers
vegna hún viidi ekki etja kappi við
Lahnstein, hvort hún væri hrædd
við hana. „Það síðasta sem sagt
verður um mig er að ég sé hrædd“,
svaraði hún og munu flestir
Norðmenn taka undir það.
Verkamannaflokkurinn
bætir stöðugt við sig
Verkamannaflokkurinn hefur
verið við stjórnvölinn frá 1990 og
sjást nú merki um batnandi efnahag
að frátöldu atvinnuleysinu, sem er
8,2%. Vextir eru lágir, sömuleiðis
verðbólgan. Samband Noregs við
útlönd hefur verið gott og
Norðmenn eru stoltir af sínum
mönnum, þeim Thorvald Stolten-
berg sáttasemjara Sameinuðu
þjóðanna í Bosníu og Johann Jorgen
Holst, utanríkisráðherra, sem
miðlaði málum í deilu Israela og
Palestínumanna. En það sem gerir
líklega gæfumuninn að áframhald-
andi minnihlutastjórn Verka-
mannaflokksins er eini raunhæfi
möguleikinn þar til þjóðin hefur
sagt hug sinn til aðildatað Evrópu-
bandalagsinu. Verkamannaflokk-
urinn hefur þvertekið fyrir stjórn-
arsamstarf með Sósíalíska vinstri-
flokknum og borgaraflokkarnir eru
þverklofnir í afstöðu sinni til EB.
Til að róa kjósendur sína hefur
Brundtland Iýst því yfir að Norð-
menn muni ekki láta einn einasta
fisk af hendi í samningaviðræðum