Morgunblaðið - 12.09.1993, Qupperneq 13
iMORGmaiBMÍŒB SÖJNNUBAGUR'i 1)2; S®PT.EMEER;It9H3
við EB. Geri bandalagið kröfu um
slíkt, er úti um inngöngu Norð-
manna, segir Brundtland.
Hvað á að gera við
atvinnuleysinu?
Verkamannaflokkurinn heldur
áfram að auka við sig fylgi, þrátt
fyrir að atvinnuleysi hafi ekki verið
meira frá stríðslokum, á einum
mánuði hefur atvinnulausum fjölgað
um 12.000. Ríkisstjórnin, samband
atvinnurekenda og samtök
verkalýðsfélaga hafa gert með sér
nokkurs konar þjóðarsátt um að-
gerðir gegn atvinnuleysinu. Þær
miða að því að ná því niður í 3,5%
fyrir aldamót, meðal annars með
því að takmarka launahækkanir.
Hægrimenn hafa lagt til að reglur
um ráðningu og uppsagnir starfs-
fólks verði gerðar frjálsari en
flokkurinn heldur því fram að regl-
urnar séu ein ástæða atvinnuleysis,
þær séu bindandi fyrir atvinnu-
rekendur og valdi því að þeir haldi
að sér höndum við mannaráðningar.
Þá vill Hægriflokkurinn að lág-
launamörk verði felld úr gildi.
Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa
áfellst Verkamannaflokkinn fyrir að
hafa ekki haldið atvinnuleysinu niðri
en Brundtland svarar því til að
flokkurinn sé sá eini sem hafí komið
með fullmótaðar aðgerðir í
atvinnumálum. Þá hefur
Hægriflokkurinn ítrekað bent á
íjárlagahallann, sem nú er um 500
milljarðar íslenskra króna og segir
það ekki gott veganesti fyrir fram-
tíðina.
Verður Kullmann Five
látin fjúka?
Ef EB-málin og gagnrýni á
Verkamannaflokkinn eru frátalin,
eru fá stór mál á lista hægrimanna.
Eitt af grunnatriðunum er aðhald í
ríkisrekstri en af öðrum málum má
nefna deilu þeirra og
Verkamannaflokksins um hvort
herða eigi refsilöggjöfina sem
hægrimenn segja of veika. Þá vilja
þeir að flóttamenn sem bijóta al-
varlega af sér verði reknir úr landi.
Þeir norsku blaðamenn sem
Morgunblaðið ræddi við, sögðu erfitt
að segja til um ástæðu þess að
Hægriflokkurinn hefur tapað fylgi.
Verkamannaflokkurinn hefur lagt
mikla áherslu á ábyrgð, ákveðna
stefnu fyrir landsbyggðina og bætt
efnahagsástand og það hefur hrifið
á kjósendur. Hægriflokkurinn hefur
ekki náð athygli þegar hann hefur
gagnrýnt Verkamannaflokkinn fyrir
fjárlagahallann og skuldasöfnunina
sem komi niður á komandi
kynslóðum. „Flokkurinn hefur haft
orð á sér fyrir að losa sig reglulega
við formenn sína en ég hef ekki trú
á því að Kullmann Five verði látin
fjúka. Ætli þeir hafi ekki látið af
þessum ósið,“ segir Ole Mathismoen
hjá Aftenposten.
Til vinstri snú
Miðflokkurinn er eins og nafnið
bendir til miðjuflokkur og hefur
talist til borgaraflokkanna. And-
stæðingar hans segja hann vera
aðal-sérhagsmunaflokk Noregs. í
formannstíð Anne Enger Lahnstein
hefur flokkurinn hins vegar færst
töluvert til vinstri og bið verður án
efa á því að Miðflokkurinn og
Hægriflokkurinn eigi samstarf að
nýju eftir að Miðflokkurinn rauf
stjórnarsamstarfíð árið 1990 vegna
afstöðunnar til EB. Trygve Monsen
hjá Aftenposten segir flokkinn nú
vera stuðningsflokk
Verkamannaflokksins á þingi.
Sósíalíski vinstriflokkurinn er
andvígur inngöngu Norðmanna í
EB, og er ekki fylgjandi Evrópska
efnahagssvæðinu. Hefur hann lagt
til að Noregi verði skipt upp í 19
fylki og að til þess að EB-aðild verði
samþykkt, þurfi meirihluta í 10 af
19 fylkjum. Á stefnuskránni eru
aukin skattlagning á hátekjufólk og
meiri áhersla á umönnun aldraðra
og á heilbrigðis- og skólakerfíð. Þá
hvetur fiokkurinn til að yfírvinna
verði takmörkuð svo að fleiri fái
vinnu. Sósíalíski vinstriflokkurinn
leggur mikla áherslu á
umhverfismál og málefni flótta-
manna. Vill flokkurinn að réttindi
fjölskyldna flóttamanna til að sam-
einast séu tryggð, svo og réttindi
barna flóttamanna.
Fylgið hefur aðallega hrunið af
Framfaraflokknum, en hann kom
fram sem uppreisn gegn skatta-
áþján og ríkisafskiptum. Þá hefur
andstaða gegn flóttamönnum verið
eitt aðalbaráttumál flokksins. Af-
staða flokksins til EB er eilítið
ruglingsleg þar sem hann er fylgj-
andi inngöngu Noregs í EB en jafn-
framt andvígur Evrópubandalaginu.
Flokkurinn gengur í raun klofinn
til kosninga þar sem Carl I. Hagen,
formaður flokksins lýsti því yfir fyrir
skömmu að skattalækkanir væru
ekki mögulegar eins og
efnahagsástandið væri nú. Olli
yfírlýsingin mikilli ólgu í flokknum
enda gengur hún þvert á eitt helsta
stefnumál Framfaraflokksins.
EB-tímasprengjan
Margir fullyrða að Norðmenn
hafí stillt tímasprengju með því að
gera EB ekki að kosningamáli. Þjóð-
aratkvæðagreiðsla verður um aðild-
ina þegar samið hefur verið við
Evrópubandalagið. Lokaákvörðunin
er þó í höndum þingmanna og verða
3/4 þeirra að samþykkja inngöngu
Norðmanna.
Þrátt fyrir að Lahnstein hafí ekki
tekist að gera afstöðuna til EB að
því hitamáli sem hún vildi, hefur
umræðan um EB án efa mikil áhrif.
Það er fyrst og fremst skýringin á
fylgisaukningu Miðflokksins. Það
eru þó aðallega hörðustu andstæð-
ingar EB sem kjósa flokkinn þar
sem formaðurinn, Lahnstein, hefur
ekki gert upp við sig hvort hún
muni virða niðurstöður þjóðarat-
kvæðagreiðslu um aðild að EB. Þar
sem andstæðingar EB eru allmargir
innan Verkamannaflokksins hefur
hann náð töluverðu af fylgi hjá þeim
sem andsnúnir eru aðild að EB,
ekki síst í Norður-Noregi, en þar
hefur flokkurinn endurheimt tals-
verðan hluta af sínum gömlu fylgis-
mönnum. Verkamannaflokkurinn
og Hægriflokkurinn hafa báðir lýst
því yfir að þeir muni viðurkenna
niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar svo Norðmenn sætta sig við
það að EB-málin verði rædd seinna.
Að haf a rétt fyrir sér
Kosningabaráttan hefur þótt
heldur leiðinleg að þessu sinni, lítið
um hressilegar kappræður. Trygve
Monsen hjá Aftenposten segir ekki
ríkja fjandskap milli frambjóðenda.
Kosningabaráttan beri auðvitað
keim af þeim sem séu í forsvari,
ekki síst Gro Harlem Brundtland
og Kaci Kullmann Five. Ef til vill
eru orð Anne Enger Lahnstein um
Gro Harlem Brundtland lýsandi en
hún sagði Brundtland vera í algerri
sérstöðu vegna reynslu sinnar. „Hún
hefur óbilandi trú á því að hún hafi
fullkomlega rétt fyrir sér. Ég ber
mikla virðingu fyrir henni en fínnst
það synd hvað hún hefur oft á röngu
að standa.“
ÞarsemsolinslÉ
allanveöirim
Auður Sœmundsdóttir fararstjóri
verður á söluskrifstofu okkar
Laugavegi 7 sem hér segir:
aKTlAS^
EUROCAHD
V/SA
Mánudagur 13. sept. 13-17.
Þriðjudagur 14. sept. 10-17.
Miðvikudagur 15. sept. 10-17.
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
Forfallagjald', 1.200 kr., er ekki innifalið í verði. Forfallagjald er valfrjdlst en Flugleiðir hvetja farþega til að greiða það til að ftrra sig óþarfa dbattu.
* Innifatið: Ftug, gisting, íslensk fararstjóm og flugvallarskattar.
Náðu þér í nýja Kanaríeyjabœhlinginn og leggðu
drög að sólríku vetrarfríi.
Frá 22. desernber og fram á vor verður beint leigu-
flug til Kanaríeyja. Tveggja og þriggja vikna ferðir.
Jól á Kanarteyjum
Tveggja, þriggja og fjögurra vikna ferðir.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðs-
menn um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma
690 300 (svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18).
Með tilkomu vetraráætlunar Almenningsvagna
hefst á ný akstur hraðleiðar 14 1
Hafnarfjörður, Reykjavík, Grensás, Hlemmur.
Um leið og Almenningsvagnar óska öllum
landsmönnum góðs vetrar heldur fyrirtækið
áfram að bæta þjónustu sína við farþega
svo þeir megi komast hratt og örugglega
á ákvörðunarstað.