Morgunblaðið - 12.09.1993, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
LANDBÚNAÐAR
eftir Guðna Einarsson -
Landbúnaðar hefur frá fornu
fari talist annar höfuðatvinnu-
vegur þjóðarinnar. Kringum
þennan atvinnuveg hefur risið
mikið bákn stofnana sem ýmist
heyra beint undir ríkisvaldið og
lúta stjórn landbúnaðarráðu-
neytisins eða eru bein hagsmuna-
samtök bænda. MiIIi þessara höf-
uðstólpa landbúnaðarkerfisins er
svo viðamikið stofnanakerfi þar
sem ríkisvaldið og bændastéttin
hafa ruglað reitum svo að óinn-
vígðum reynist á stundum erfitt
að greina þar á milli. Mikil upp-
stokkun hefur orðið í landbúnaði
undanfarin ár og ljóst að breyt-
ingaskeiðinu er ekki lokið. Stofn-
ana- og félagakerfi landbúnaðar-
ins mun einnig breytast til að
auka skilvirkni og laga það að
kröfum tímans.
Vægi bændastéttarinnar hef-
ur mikið minnkað frá fyrri
árum, sé miðað við um-
fang á vinnumarkaði. Bændur á
íslandi eru um 4500, í fyrra voru
tæplega 4700 jarðir í ábúð og nær
1800 jarðir í eyði. Árið 1990 töld-
ust 4,9% vinnuafls starfa við land-
búnað en hálfri öld áður, árið 1940,
störfuðu 32% vinnuaflsins í grein-
inni. Framleiðsla landbúnaðaraf-
urða hefur þó síður en svo dregist
saman í hlutfalli við minnkandi
mannafla. Nútíma búskaparhættir
og stjórnun landbúnaðarins hafa
séð til þess að framleiðslugetan
hefur árum saman verið langt um-
fram innanlandsþörf.
Offramleiðsla, offjárfesting og
breyttir neysluhættir, sem meðal
annars birtast í minni sölu hefð-
bundinnar landbúnaðarframleiðslu,
hafa gert sitt til að skapa erfiðleika
í landbúnaði. Fjölbreytni í fram-
leiðslu landbúnaðarvara hefur auk-
ist mikið, bæði með tilkomu nýrra
búgreina og nýrra vörutegunda.
Landbúnaðurinn hefur notið vernd-
ar fyrir samkeppni erlendis frá jafn-
hliða miklum opinberum styrkjum.
Er talið að greinin hafi alls notið
um þriðjungs af framlögum ríkisins
til atvinnumála en framlag landbún-
aðarins til þjóðarframleiðslunnar
aðeins verið um 5%. Um árabil var
talsvert flutt út af landbúnaðarvör-
um og útflutningurinn niðurgreidd-
ur af almannafé. Auk útflutnings-
bótanna naut landbúnaðurinn
styrkja til jarðabóta og nýbygginga.
Niðurgreiðslur á innanlandsneyslu
hafa vegið lang þyngst í opinberum
framlögum til landbúnaðarins, þær
hafa átt að gegna því tvíþætta hlut-
verki að bæta kjör neytenda og
bænda.
Kringum landbúnaðinn og
styrkjakerfið hefur risið stofnana-
bákn sem staðið hefur traustum
fótum í skógi flókinna laga og
reglugerða. Handbók bænda er hin
fróðlegasta lesning fyrir þá sem
vilja skoða þessa flóru. Af lestrinum
má ráða að bændastéttin sé mjög
félagslega sinnuð og nefndaglöð. I
handbókinni eru skráðar hátt á
búnaðarins. Félagið lýtur stjórn
bænda en hefur á hendi fjölmöt'g |
verkefni fyrir ríkisvaldið og er á
fjárlögum. Uppbygging Búnaðarfé-
lagsins er fróðlegt dæmi um sam- |
búð ríkisvaldsins og bændastéttar-
innar.
{ öllum hreppum starfa búnaðar- |
félög og nær allir bændur landsins
eiga aðild að þeim. Víðtæk aðild
að búnaðarfélögunum er skiljanleg
í ljósi ákvæðis í lögum Búnaðarfé-
lags íslands sem segir: „Félagar í
búnaðarfélögum skulu vera allir
bændur á viðkomandi svæði, er
hafa jörð eða jarðarhluta til ábúðar
eða búvöruframleiðslu að atvinnu,
þótt ekki sé á lögbýli." Þá er skil-
yrði fyrir framlagi til jarða- eða
húsabóta úr jarðasjóði að umsækj-
andinn sé í búnaðarfélagi. Makar
bænda eiga rétt á að vera félags-
menn og njóta fullra réttinda innan
búnaðarfélaganna.
Búnaðarfélög hreppanna mynda k
15 búnaðarsambönd á landinu. *
Búnaðarsamböndin ná yfir eina eða
fleiri sýslur og bæjarfélög innan l
sömu marka. Þá eru einnig til bú- '
greinafélög, hagsmunafélög bænda
í tilteknum búgreinum. k
Búnaðarsamböndin kjósa 25 *
manns til fjögurra ára í fulltrúaráð
sem nefnist Búnaðarþing og fer það
með æðsta vald í málefnum Búnað-
arfélagsins. Búnaðarþing kemur
saman á hverju ári í febrúar og
situr í allt að tvær vikur. Löggjafinn
hefur falið Búnaðarþingi að tilnefna
fulltrúa bænda í stjórnir fjölda
stofnana, til dæmis Stofnlánadeild-
ar landbúnaðarins, Lífeyrissjóðs
bænda, stjórnir Bjargráðasjóðs,
Framleiðnisjóðs og Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins. Oft á
Stéttarsamband bænda einnig full-
trúa í sömu stjómum og á sömu
forsendum, þ.e. að bændur eigi þar
fulltrúa. Fyrsta þing hvers kjör- )
tímabils kýs fimm manna stjórn
Búnaðarfélagsins. Stjórnin ræður
búnaðarmálastjóra, sem er fram- |
kvæmdastjóri félagsins, ráðunauta
og fasta starfsmenn.
Eitt helsta hlutverk búnaðarfé- í
laganna er leiðbeininga- og
fræðsluþjónusta við bændur. Þessi
þjónusta er að verulegu leyti kostuð
af almannafé. Héraðsráðunautar
starfa hjá búnaðarsamböndum og
er fjöldi ráðunauta á hverjum stað
í hlutfalli við fjölda bænda. Hin síð-
ari ár hafa héraðsráðunautar verið
um 35 talsins og eru ákvæði í lögum
um að ríkið greiði 65% af launum
héraðsráðunauta og allt að 65% af
ferðakostnaði þeirra. Til viðbótar
hefur Búnaðarfélagið landsráðu-
nauta í öllum búgreinum sem stund-
aðar eru og í æðarrækt. Laun og
starfskostnaður landsráðunauta er
alfarið greiddur úr ríkissjóði. )
Búnaðarfélagið á að vera ráð-
gjafi ríkisvaldsins í því sem lýtur
að Iandbúnaðarmálum. Jafnframt )
er það málsvari bændastéttarinnar
og á að hafa frumkvæði að því sem
til framfara horfir fyrir stéttina. )
Sú spurning er áleitin hvort félag
sem er málsvari tiltekinnar stéttar
getur veitt hlutlæga ráðgjöf um
FLÓKID STOFNANA- OG NEFNDAKERFIUMVEFUR
LANDBÚNAÐINN Á ALLAR HLIÐAR
þriðja hundrað stofnanir, félög,
nefndir og embætti sem fjalla um
landbúnað og hagsmuni og félags-
mál bænda. Valdamesta stofnun í
stjórn búnaðarmála er landbúnað-
arráðuneytið. Af félögum bænda
eru Búnaðarfélagið og Stéttarsam-
band bænda fyrirferðarmest. Bún-
aðarsambönd starfa um allt land
og búgreinafélög í algengustu bú-
greinum. í sumum búgreinum, til
dæmis þeim er snúa að kúm og
kindum, er mikill fjöldi nefnda og
félaga um hin aðskiljanlegustu efni
búskaparins. Svo dæmi sé tekið af
stofnunum, félögum og nefndum
sem einbeita sér að velferð og mál-
efnum sauðkindarinnar má nefna
sauðfjárræktarnefnd, fagráð í
sauðfjárrækt, ullarnefnd, gæru-
nefnd, sauðfjársjúkdómanefnd,
Landssamtök sauðfjárbænda,
starfshóp um slátrun og afurðasölu
sauðfjárafurða, sauðfjársæðinga-
stöðvar og markanefnd. Á landinu
eru 26 markaverðir og nær 40 aðil-
ar hafa umsjón með varnarlínum
sauðfjárvarnarsvæða. Kjötmats-
formaður, yfírkjötmatsmenn og
kjötmatsmenn flokka svo skrokk-
ana hjá sláturleyfishöfum vítt og
breitt um landið. Loks skal Smala-
hundafélag íslands látið fljóta með
því varla Ieikur vafi á að félagar
þess eru áhugasamir um sauðfjár-
rækt.
í handbókinni má sjá að sumir
eru meiri nefndamenn en aðrir. Lík-
lega er Haukur Halldórsson for-
maður Stéttarsambands bænda
nefndakóngur bændasamtakanna
og á hann sæti í 11 mikilvægum
nefndum og stjórnum. Þær eru
Framkvæmdanefnd búvörusamn-
inga, Sjömannanefnd, Sexmanna-
nefnd, Stéttarsamband bænda,
Framleiðsluráð landbúnaðarins,
Stjóm Bændahallarinnar, Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins, Til-
raunaráð RALA, Lífeyrissjóður
bænda, Bjargráðasjóður og Fram-
leiðnisjóður landbúnaðarins.
Landbúnaöarráóuneytió
Landbúnaðarráðherra fer með
yfírstjórn landbúnaðarmála. Undir
ráðuneyti hans heyrir fjöldi stofn-
ana á ólíkum starfssviðum. Þar á
meðal má telja svo ólíkar stofnanir
sem Áburðarverksmiðjuna og Garð-
yrkjuskólann á Reykjum, Land-
græðsluna, Skógræktina, Hagþjón-
ustu landbúnaðarins, Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins, embætti
yfírdýralæknis, Sauðfjárveikivarnir
og Veiðimálastofnun. Þarna er
einnig að fínna sjóði og lánastofn-
anir á borð við Stofnlánadeild og
Framleiðnisjóð.
Þegar umhverfisráðuneyti var
komið á fót ásældist það ýmis verk-
efni landbúnaðarráðuneytisins, svo
sem landgræðslu og skógrækt. Inn-
an landbúnaðarráðuneytisins var
erindi umhverfísráðuneytis tekið
heldur fálega og mun lítið hafa
breyst í þeim efnum. Ráðuneytis-
menn telja óskynsamlegt að flytja
þessa málaflokka frá ráðuneytinu í
ljósi þeirrar auknu áherslu sem lögð
er á skógrækt sem atvinnuveg.
Stefnt er að því að plöntufram-
leiðslu og plöntun, sem Skógrækt
ríkisins hefur nú með höndum, verði
í vaxandi mæli komið til bænda.
Hlutverk Skógræktarinnar verði því
fyrst og fremst á sviði tilrauna og
rannsókna. Sömu sjónarmið munu
gilda um landgræðslu.
Búnaóarfélag íslands
Búnaðarfélagið er elsti félags-
skapurinn í flóknu félagakerfi land-