Morgunblaðið - 12.09.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
21
málefni sömu stéttar?
Búnaðarfélagið sér að verulegu
lejrti um framkvæmd ýmissa laga,
svo sem laga um búfjárhald, það
fylgist með og hefur umsjón með
landgræðslumálum, yfirumsjón
með framkvæmd forfalla- og
afleysingaþjónustu í sveitum, gefur
umsögn um stofnun nýrra býla og
viðurkenningu á félagsbúum, sam-
einingu jarða og fleira.
Starfsmenn Búnaðarfélagsins,
sem eru starfsmenn bændastéttar-
innar, fá laun sín greidd af ríkisfé.
Starfsmennirnir gera sjálfstæðan
kjarasamning við félagið en ríkið
hefur átt fulltrúa í samninganefnd-
inni til að gæta þess að samræmi
sé í launakjörum Búnaðarfélags-
manna og starfsmanna hliðstæðra
stofnana landbúnaðarráðuneytis-
ins. Starfsmenn Búnaðarfélagsins
greiða í lífeyrissjóð opinberra
starfsmanna og njóta sömu réttinda
og opinberir starfsmenn. Þetta sér-
stæða fyrirkomulag helgast af lög-
um sem sett voru 1928 um lífeyris-
réttindi starfsmanna Búnaðarfé-
lagsins.
Stéttarsamband bænda
í fyrstu annaðist Búnaðarfélagið
eitt hagsmunagæslu og leiðbein-
ingastarf fyrir bændastéttina. Árið
1945 kom upp ágreiningur innan
félagsins varðandi verðákvörðun
landbúnaðarafurða. í kjölfar þess
varð klofningur og Stéttarsamband
bænda stofnað. Aherslur Búnaðar-
félagsins voru eftir það meira á
hinu faglega sviði og ráðgjafaþjón-
ustu við bændastéttina.
Meginhlutverk Stéttarsambands-
ins hefur verið að gæta hagsmuna
bænda og semja fyrir þeirra hönd
við ríkið um kjör bænda og í seinni
tíð framleiðslumagn landbúnaðar-
afurða. Stéttarsambandið tekur
þátt í alþjóðlegu samstarfí búvöru-
framleiðenda. Það gildir líkt um
Stéttarsambandið og Búnaðarfé-
lagið að allir starfandi bændur hafa
kjörgengi og kosningarétt innan
Stéttarsambandsins, séu þeir félag-
ar í búnaðarfélagi og greiði í Lífeyr-
issjóð bænda. Grunneiningar Stétt-
arsambandsins voru hreppabúnað-
arfélögin og kusu þau kjörmenn
sem aftur völdu fulltrúa á aðalfund
Stéttarsambandsins. Á aðalfundi í
byijun mánaðarins var gerð sú
skipulagsbreyting að búnaðarsam-
böndin urðu grunneiningar líkt og
í Búnaðarfélaginu. Til viðbótar velja
búgreinafélög fulltrúa á aðalfund
Stéttarsambandsins. Kostnaður við
rekstur Stéttarsambandsins er
greiddur af Búnaðarmálasjóðsgjaldi
sem innheimt er af afurðaverði.
Framleiósluráó
Framleiðsluráð landbúnaðarins
starfar samkvæmt búvörulögum.
Það er samstarfsvettvangur allra
búvöruframleiðenda og samtaka
þeirra. Framleiðsluráðið skipa 15
fulltrúar, þar af koma 14 fulltrúar
gegnum Stéttarsamband bænda og
1 frá landbúnaðarráðuneytinu.
Verkefni Framleiðsluráðs er að
annast stjórn búvöruframleiðslu,
verðskráningu, gerð framleiðslu-
áætlana og söluáætlana. Þá heldur
ráðið skýrslur um framleiðslu og
sölumál búvöru. Framleiðsluráð
gegnir annast verðmiðlun sem á að
tryggja framleiðendum landbúnað-
arvöru sama afurðaverð, hvar sem
þeir eru í sveit settir. Landbúnaðar-
ráðuneytið hefur og falið Fram-
leiðsluráðinu milligöngu um bein-
greiðslur til bænda, vegna búvöru-
framleiðslu, samkvæmt búvöru-
samningnum. Framleiðsluráð hefur
einnig með höndum verkaskiptingu
milli einstakra mjólkursamlaga og
sláturleyfishafa. Framleiðsluráð er
rekið fyrir gjald sem innheimt er
af búvöru. Framleiðsluráð hefur
undanfarið verið í fréttum vegna
þess valds sem það hefur til að
ákvarða um innflutning búvöru.
Síðastliðið vor var frumvarp lagt
fyrir Alþingi þar sem lagt er til að
vald þetta verði fært til ráðherra.
Frumvarpið fékk ekki afgreiðslu en
þess er vænt að það verði aftur
lagt fram á þingi.
Uppstokkun ó kerfinu
Undanfarin ár þykir Búnaðarfé-
Búnaðarfélag íslands
J I :
Stéttarsamband bænda
15 búnaðarsambönd
V?Q
11 búgreinasambönd
Landsamband kúabænda
Landssamband sauðfjárbænda
Landssamband kartöflubænda
Samband garðyrkjubænda
Samband ísl. loðdýrabænda
Svínaræktarfélag Islands
Æðarræktarfélag Islands
Félag eggjaframleiðenda
Félag ferðaþjónustubænda
Félag hrossabænda
Félag kjúklingabænda
192 hreppabúnaðarfélög
tHttmmit tmtttttt
BÆNDURNIR
L A N D
N U
Rætt er um aó gera bændasamtökin skilvirkari eg einfaldari
i uppbyggingu.
lagið hafa sveigt aftur inn á svið
hagsmunabaráttu fyrir bændastétt-
ina. Kunnugir rekja þá þróun til
þess að nú sitja í stjóm Búnaðarfé-
lagsins menn sem hafa verið mjög
virkir í Stéttarsambandinu. Á aðal-
fundi Stéttarsambands bænda kom
fram skýr krafa bænda víða um
land um að félagskerfi landbúnað-
arins verði einfaldað og gert ódýr-
ara en nú er. Skipulagsbreytingin
sem samþykkt var á aðalfundi
Stéttarsambandsins er augljóslega
til að færa skipulag þess nær Bún-
aðarfélaginu. Nú eru búnaðarsam-
böndin ásamt búgreinafélögum
grunneiningar Stéttarsambandsins
í stað þess að áður voru hreppabún-
aðarfélögin hinar landfræðilegu
grunneiningar. Hafnar eru viðræð-
ur milli Búnaðarfélagsins og Stétt-
arsambandsins um endurskipulagn-
ingu bændasamtakanna til að ein-
falda kerfíð og gera það skilvirk-
ara. Hvor samtök um sig hafa kos-
ið þijá fulltrúa í nefnd sem hist
hefur á fundum í sumar og haust
til að ræða sameininguna. Félags-
málanefnd aðalfundarins lýsti
ánægju sinni með viðræður um
sameiningu Stéttarsambandsins og
Búnaðarfélagsins og hvatti til að
niðurstaða lægi fyrir sem fyrst.
Fundarmönnum þótti tillaga félags-
málanefndar ekki ganga nógu langt
og var samþykkt tillaga fundar-
manna um að ákveðið yrði stefnt
að sameiningu heildarsamtakanna.
Stefnt er að því að hægt verði að
leggja mótaðar tillögur um endur-
skipulagningu bændasamtakanna
fyrir Búnaðarþing í febrúar á næsta
ári.
Tilboö fyrir hópa: 2.000 kr.
afsláttur á mann ef í
hópnum eru 15 manns eöa
fleiri. 40.000 kr. spamaóur
fyrir 20 manna hóp.
frá midjiun deptember
á mamim í tvíbýli í 2 ruetur og
3 daga á Hotel GrafMoltke. *
í Hamborg bjóöum viö gistingu á
eftirtöldum gæöahótelum:
Graf Moltke, Berlin, Monopol, SAS
Plaza, Metro Mercur og Ibis.
Ein helsta versunarborg Þýskalands, vörugæöi og hagstætt verö.
Nafntogaðir veitingastaðir, krár, vínstofur, skemmtistaðir,
fjörugt næturlíf af öllu tagi. Tónleikar, sígild
tónlist, jass og rokk, leiksýningar, eitt virtasta
óperuhús í Evrópu, frábær söfn, fallegt umhverfi,
gott mannlíf.
Brottfarir á fimmtu-
föstu- og
laugardögum.
Heimflug á sunnu-,
mánu- og
þriójudögum.
Ilnnifalið er flug, gisring, morgunverður og flugvallarskattar. Á tímabilinu 30. sept. til 28. nóv.
er innifalið í verði akstur til og frá flugvelli í Hamborg og íslensk fararstjórn í brottförum
síðdegis á fimmtudögum með heimkomu síðdegis á sunnudögum. Aksturinn verður að bóka
sérstaklega.
Börn, 2ja -11 ára, fa 10.500 kr. í afslátt. Börn að 2ja ára aldri greiða 3000 kr. Enginn
bókunarfyrirvari. Forfallagjald, 1.200 kr., er ekki innifalið í verði. Forfallagjald er valfrjálst
en Flugleiðir hvetja farþega til að greiða það til að firra sig óþarfa áhættu.
*Verð miðast við gengi 6. ágúst 1993. [—QATfAS/*
EUROCARD.
I |
B»l
Hafðu samband við söluskrifctofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifetofumar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18.)
FLUGLEIDIR
Traustur tslenskur ferðafélagi